Morgunblaðið - 21.01.1960, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.01.1960, Qupperneq 4
4 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. jan. 1960 I dag er 21. dagur ársins. Fimmtudagur 21. janúar. Árdegisflæði kl. 10,15. Síðdegisflæði kl. 22,57. Slysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. — L.ækí)avórður L.R. (fyrii vitjanir), er á sama stað frá kl 18—8. — Sími 15030 Næturvarzla vikuna 16.—22. jan. er í Lyfjabúðinni Iðunni. Næturlæknir í Hafnarfirði vik una 16.—22. jan. verður Ólafur Ólafsson. Sími 50536. 0 Helgafell 59601227. VI. 2. □ GIMLI = 59601217 = 3 Fr. I.O.O.F. 5 = 1411218% = N. K. Brúökaup S.l. laugardag voru gefin sam an í hjónaband af séra Árelíusi Níelssyni, Hulda Haraldsdóttir, Skaftahlíð 11 og Þorgeir Ólafs- son, Stórholti 45. Heimili þeirra verður að Hólmgarði 20. S.l. sunnudag voru gefin sam- an í hjónaband á Akureyri af séra Pétri Sigurgeirssyni, Hrafn- hildur Jónsdóttir (Guðjónssonar, bakarameistara), Norðurgötu 52 Akureyri og Sigurður Þorsteins- son, verzlunarmaður (Sigurðs- sonar, rafvirkja), Kleppsvegi 2. Heimili þeirra verður fyrst um sinn að Kleppsvegi 6, Rvík. □--------------------□ LJÓÐ DAGSINS Ur „Drukknanir“. Ennþá blæs náfregnum inn yfir fjörð frá orustusvæðinu kalda, og svalur fer yfir freðna jörð og flytur ekkjunum boðin hörð. En klökkur við klettarið alda og kveðst ekki einsaman valda. Ég veit það hrynjandi bára blá og þú, byrmilda loftgeimsins alda. Á ykkur ei skuldinni skella má, þótt skaðvænt oft reynist bátunum á og oft falli æskan valda á orustusvæðinu kalda. Hannes Hafstein. □ □ IH8 Skipin Eimskipafélag Islands h.f.. — Dettifoss fer frá Gdynia 22. þ.m. til Abo. Fjallfoss fór frá Rostock 19. þ.m. til Rotterdam Goðafoss fór frá Reykjavík 20. þ.m. til Ak ureyrar. Gullfoss fór frá Ham- borg 19. þ.m. til Kaupmannahafn ar. Lagarfoss fór frá Vestmanna- eyjum 12. þ.m. til New York. — Reykjafoss fór frá Bergen 18. þ. m. til Rotterdam og Hamborgar. Selfoss er í Keflavík. Tröllafoss fó* frá Hamborg 16. þ.m. til Reykjavíkur. Tungufoss fór frá Svalbarðseyri 20. þ.m. til Akur- eyrar og Siglufjarðar. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er á Austfjörðum á norðurleið. Esja er í Reykjavík. Herðubreið er á Austfjörðum á suðurleið. — Skjaldbreið fer frá Rvík í kvöld. Þyrill er á leið til Fredrikstad frá Siglufirði. Herjólfur fór frá Rvík 1 gær t:l Vestmannaeyja og Hornafjarðar. Baldur fer frá Reykjavík í dag til Sands og Stykkishólms. Eimskipafélag Rvíkur h.f.: — Katla hefur væntanlega farið í gær frá Helsingborg til Ventspils Askja hefur væntanlega farið í gær frá Kingston til Havana. H.f. Jöklar: — Drangajökull er í Reykjavík. Langjökull er vænt anlegur til Austur-Þýzkalands í dag. Vatnajökull fór frá Vest- mannaeyjum í fyrradag á leið til Grimsby. Hafskip. — Laxá er í Ýstad. Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell fór frá Hafnarfirði 20. þ.m. áleið- is til Rostock. Arnarfell er á ísa- firði, fer þaðan í dag til Rvíkur. Jökulfell kemur til Rostock í dag. Dísarfell er í Malmö. Litla- fell er í Reykjavík. Helgafell fór frá Ibiza 18. þ.m. áleiðis til Vest- mannaeyja og Faxaflóahafna. — Hamrafell fór frá Batumi 12. þ.m. áleiðis til Reykjavíkur. Flugvélar Flugfélag íslands h.f.: — Gull- faxi er væntanlegur til Rvíkur kl. 16:10 í dag frá Kaupmanna- höfn og Glasgow. — Innanlands- flug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Bíldu- dals, Egilsstaða, ísafjarðar, Kópa skers, Patreksfjarðar, Vestmanna eyja og Þórshafnar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar Fagurhólsmýrar, — Hólmavíkur, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkju bæjarklausturs og Vestmanna- eyja. Loftleiðir h.f.: — Edda er vænt- anieg kl. 7:15 frá New York. Fer til Osló, Gautaborgar, Kaitp- mannahafnar kl. 8645. — Hekla er væntanleg kl. 19:00 frá Ham- borg, Kaupmannahöfn, Gauta- borg og Stavanger. Fer til New York kl. 20:30. ESi Félagsstörf Æskulýðsfélag Laugarnessókn- ar: — Fundur í kirkjukjallaran- um í kvöld kl. 8,30. Fjölbreytt fundarefni. Séra Garðar Svavars- son. — Kvenfélagið Aldan heldur fund föstudaginn 22. jan. kl. 8,30, í Grófinni 1. Takið með ykkur handavinnu. — y^Aheit&samskot Flóðasöfnunin: — Tveir litlir k.. 30,00. — SBYmislegt Orð lífsins: — Til þín, Drott- inn, hrópa ég. Þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér, að ég ekki, er þú þegir við mér, verði sem þeir, er til grafar eru gengn ir. Heyr þú á grátbeiðni mína, er ég hrópa til þín, er ég lyfti hönd- um mínum til þíns allra helg- asta. (Sálmur 28). 4. hefti tímaritsins Nýjar kvöldvökur er komið út. í heft- inu eru m. a. greinar eftir Þór- móð Sveinsson, Hólmfríði Jónas- dóttur, Björn R. Árnason og Ein- ar Guttormsson. Saga eftir Björgvin Guðmundsson, og þætt ir úr endurminningum Gísla á Hofi. — Dýraverndarinn, 5. og 6. hefti er komið út. Þar er m. a. sagt frá 25 ára afmæli Dýralækna félags íslands, Ársþingi Sam- bands dýraverndunarfélaga ís- lands og samþykktum þess, og fleira efni er í blaðinu. Dagskráin hefst eftir þrjár mín- útur — þú verður vonandi búinn þá. Ung stúlka hafði beðið viku- blað um ódýra aðferð til þess að iá mjúkar hendur: --Mýkið hendur yðar í upp- þvottabalanum þrisvar já .dag, meðan móðir yðar tekur sér hvíld, var svarið. • — Hvernig gengur með hjóna* bandið hjá þeim Elfridu og Friðrik? — Eeiginlega ansi illa — þau eru ekki einu sinni sammála svo lengi í einu, að þau geti skrifað undir skilnaðarplöggin. — John, þú hefðir alls ekki átt að koma með Pettersen til miðdegisverðar, þegar þú vissir að ég væri í stórhreingerningu, sagði konan öpug. — Uss, sagði maðurinn, ég veit að hann er nógu sterkur til að flytja með mér stóra skápinn. Pennavinir: — Richard Mac Donald, 270 Granite Street, Swinwy 69, Massaschusettes, U. S. A. — Skrifar ensku og óskar eftir að skrifast á við dreng eða stúlku, 14—15 ára. Gary Wallington, jr. 27 Lomb- ardy Crescent, Scarboro, Ontario Canada. Er 10 ára gamall og skrifar ensku. Læknar fjarveiandi Kristján Sveinsson, augnlæknir verö ur fjarverandi 1 til 2 mánuði. Stað- gengill: Sveinn Pétursson, Hverfisg. 50. Viðtalstími 10—12 og 5.30—6.30, nema laugardaga kl. 10—12. Ofeigur J. Ofeigsson. læknlr veröur fjarverandi frá 7. jan. í tvær til þrjár vikur. — Staðgengill: Gunnar Benja- mínsson. Olafur Þorsteinsson, fjarverandi frá 5 jan. til 19. jan. Staðg.: Ctefán Olafss. pórður Möller verður fjarver- andi til og með mánud. 18. jan. — Staðgengill: Gunnar Guð- mundsson, Frakkastíg 6a. Söfn BÆJARBÓRASAFN REYKJAVÍKUB Simi 1-23-08. Aöaisafnið, Þingholtsstræti 29A: — Útlánadeild: Alla virka daga kl. 14—22, nema laugard. kl. 14—19. Sunnud. kL 17—19. — Lestrarsalur fyrir fullorðna: Alla virka daga kl. 10—12 og 13—22, nema laugard. kl. 10—12 og 13—19, og sunnudaga kl. 17—19. Útibúið Hólmgarði 34: — Útlánadeild fyrir fullorðna: Mánudaga kl. 17—21« aðra virka daga nema laugard. Ki. l’»— 19. Lesstofa og útlánsdeild fyrir börn: "Pf e3epae3nei euiau e3ep esjj\\ euv kl. 17—19. Útibúið Hofsvallagötu 16: — Útláno- deild fyrir börn og fullorðna: Alla virka daga, nema laugardaga, kL 17.30—19.30. Útibúið Efstasundi 26: — Útlánsdeild fyrir börn og fullorðna: Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 17—19. Tæknibókasafn IMSÍ (Nýja Iðnskólahúsinu) Útlánstimi: Kl. 4.30—7 e.h. þriðjud.. fimmtud., föstudaga og laugardaga. — Kl. 4,30—9 e.h. mánudaga og mi5- vikudaga. — Lesstofa safnsins er opin á vanalegum skrifstofutíma og út- lánstíma. Listasafn rlkisins er opið þriðjudaga. fimmtudaga og laugardaga kl. 1--3, sunnudga kl. 1—4 síðd. ÞUMALÍNA — Ævintýri eftir H. C. Andersen Hún leit upp. Þarna var svalan komin, og hún varð mjög glöð, þegar hún sá Þumalínu litlu. — Þumalína sagði henni, hversu ófús hún væri að ganga að eiga mold- vörpukarlinn ljóta — þá yrði hún alltaf að búa djúpt niðri í moldinni, þar sem aldrei sæi til sólar. Hún gat ekki tára bundizt. — Nú kemur bráðum kald- ur vetUr, sagði svalan. — Þá flýg ég langt í burt, til heitu landanna. Viltu koma með mér? Þú getur setið á bakinu á mér, ef þú bindur þig fasta með mittislindanum þínum. Svo fljúgum við burt frá óhræsis moldvörpukarlinum og myrkrastofunni hans, langt í burt — yfir fjöllin, til fjarlægra landa, þar sem sólin skín enn fegur en hér og alltaf er sumar og fegursta blómaskrúð. — Fljúgðu nú bara með mér, Þumalína mín litla — þú, sem bjargaðir lífi mínu, þegar ég var næstum því frosin í hel í dimma moldar- kjallaranum. FERDBIM AIMD Eftir 20 ár Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudagfc kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 1—3. Náttúrugripasafnið: — Opið á sunnu- dögum kl. 13:30—15, og þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14—15. Bókasafn Lestrarfélags kvenna, • — Grundarstíg 10, er opið til útlána mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 4—6 og 8—9. Bókasafn Hafnarfjarðar Opið alla virka aagc* Ki 2—7. Mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga einnig kl 8—10 síðd. Laugardaga kl. 2—5. — Lesstofan er opin 4 sams tíma. — Sími safnsins er 30790 Bæjarbókasafn Keflavíkur Utlán eru á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum kl. 4—7 og 8—10 ennfremur á fimmtudögum kl. 4—7. Lestrarsalurinn opinn mánud., mið- vikud., fimmtud., og föstud. kl. 4—7 Minjasafn Reykjavíkur: — Safndeild in Skúiatúni 2 er opin alla daga nema mánudaga kl. 2—4. Arbæjarsafn ei lokað. Gæzlumaður sími 24073. • Gengið • Sölugengi: 1 Sterlingspund ........ kr. 45,70 1 Bandaríkjadoilar ...... — 16,32 1 Kanadadollar ......... — 17,11 100 Danskar krónur ....... — 236,30 100 Norskar krónur — 228,50 100 Sænskar krónur........ — 315,50 100 Finnsk mörk ........ — 5,10 1000 Franskir frankar ..... — 33,06 100 Belgískir frankar .... — 32,90 100 Svissneskir frankar __— 376,00 100 Gyllini .............. — 432,40 100 Tékkneskar krónur ........ — 226,67 100 Vestur-þýzk mörk ........ — 391,30 1000 Lírur ................ — 26.02 100 Austurrískir schillingar — 62.7b 100 Pesetar .............. — 27.20 ÖRN CLAUSEN héraðsdómslögmað ur Málf'utningsskrifstofa. Bankastræti 12. — Sími 18499.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.