Morgunblaðið - 21.01.1960, Page 8
8
MORCVTSJtLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. jan. 1960
Myndln
sem
birtist
ekki
v* 00000 0 0 * 0*0*0
MEÐ afmælisgrein um Hótel
Borg-, sem birtist í blaðinu í
gær, átti að vera mynd af
starfsfólki Borgarinnar 1930,
en mistök oliu því, að röng
mynd kom með greininni.
Hér birtist hins vegar sú
rétta mynd af starfsfólki
Borgarinnar fyrir þrjátíu ár-
um. Við báðum Jóhannes á
Borg og Pétur Daníelsson, nú-
verandi gestgjafa þar, að veita
okkur upplýsingar um fólkið
iá myndinni, en því miður
kváðust þeir ekki þekkja allt
starfsfólkið með fullu nafni,
þó þeir myndu eftir fornafni
eða gælunafni sumra.
Þeir gestgjafarnir gátu samt
gefið okkur upp nöfn karl-
mannanna í öftustu röð og fara
þau hér á eftir, en lesendur
geta reynt að muna eftir hinu
fólkinu og yljað sér við gaml-
ar endurminningar frá Borg-
inni.
Mennirnir í öftustu röð eru:
Frímann Guðjónsson, Árni
Kristjánsson, Guðmundur Kr.
Guðmundsson, Guðmundur
Bjarnason, Ásgeir (föðurnafn
ið vantar), Ólafur Jónsson,
Vilhjálmur (föðurnafnið vant
ar), Pétur Daníelsson, Guð-
jón Einarsson, Gestur Bene-
diktsson, norskur maður og
Ólafur Ólafsson.
Hljómsveitin er dönsk og
var kölluð „Donda-band“.
Eins og kunnugt er, hefur
Kiljan skrifað fræga smásögu,
sem heitir ,,Ósigur ítalska loft-
flotans í Reykjavík 1933“ og
gerist hún m. a. á Hótel Borg.
Aðalhetja sögunnar er Stebbi
pikkóló. Vann hann það afrek
að grípa Pittigrilli herforingj.i
Mússólínis fangabrögðum, þeg
ar sá síðarnefndi hafði slegið
til hans með staf sínum, og
hafa hann undir.
Fremst á myndinni er
Stebbi pikkóló, sem raunar
var kallaður Halli og setti tals
verðan svip á bæinn á sínum
tíma. Pétur Daníelsson skýrði
frá því í gær, að þessi ágæti
pikkóló Hótel Borgar væri nú
látinn
0..0 *<0.*i0*. &t0*0*0t0^<0-.00
Ökumenn þurfa að
eera tilhliðrunarsemi
— segir nýskipaður framkvæmdastjóri
umferðarnefndarinnar
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á þriðjudaginn, var ráðinn
nýr framkvæmdastjóri umferð-
arnefndar Reykjavíkur. Var sam
þykkt að Guðmundur G. Péturs-
son, sem verið hefur fulltrúi hjá
Slysavarnafélagi íslands, skuli
ráðinn til starfsins. Það verður
nú aðalstarf Guðmundar, og
hann mun láta af störfum sem
fulltrúi hjá Slysavarnafélaginu.
í stuttu samtali við Mbl. í gær,
sagði Guðmundur frá því að
hann hefði átt sæti í umferðar-
nefnd bæjarins sem fulltrúi
S.V.F.l. undanfarin þrjú ár og
teldi sig hafa staðgóða þekk-
ingu á störfum nefndarinnar að
umferðarmálum bæjarins. Þá
hefur Guðmundur einnig verið
formaður í félagi ökukennara
hér í bænum.
Mörg vandamál
Guðmundur sagði að mörg og
tnargvísleg vandamál steðjuðu
nú að umferðinni í bænum. —
Hann kvaðst telja meðal þeirra
brýna nauðsyn á enn frekari
gerð bílastæða. Aðkallandi er að
sem fyrst verði komið upp bíla-
geymslu hér við Miðbæinn,
sagði Guðmundur. — Bíla-
geymslu, sem getur veitt bíla-
eigendum alla venjulega þjón-
ustu á sviði benzin- og olíusölu,
með smurstöð og þvottastöð.
Guðmundur hefur verið ytra,
í Danmörku og Svíþjóð til þess
að kynna sér umferðarmálin í
borgum þar. Kvaðst Guðmundur
telja heppilegan stað fyrir slíka
bílageymslu þar sem nú eru
bilastæði við Garðastræti og
Vesturgötu.
Eitt vandamálið er að koma
umferðinni sem greiðast úr
Austurbænum yfir í Vesturbæ-
inn, eftir hinum gömlu götum,
eins og Laugavegi og Austur-
stræti. Kvaðst Guðmundur telja
að banna þyrfti sem fyrst akstur
stærri vörubíla um Laugaveg-
inn. Gera aðrar þær ráðstafanir
þar til þess að bílar geti komizt
þar áfram án verulegra tafa, eins
og nú er. Umferðin við höfnina
að aðliggjandi götum er einnig
stórmikið vandamál og er knýj-
andi að gera miklar endurbætur
á bílaakstri á þessum götum.
Annað óhugsandi
Þá er það skoðun mín að öku-
menn almennt eigi að sýna lip-
urð — hætta að böðlast áfram í
umferðinni í skjóli þess að við-
komandi „eigi bóginn“. Þetta er
með öllu að hverfa á götum stór-
borganna, annað er bókstaflega
óhugsandi, sagði Guðmundur.
Þessa tilhliðrunarsemi tel ég að
leggja eigi mikla áherzlu á.
Blöðin ættu jafnvel að leggjs
Guðmundur Pétursson
málinu lið. Þegar ökumenn bæj-
arins hafa allir tileinkað sér til-
litssemi, tilhliðrunarsemi, og
gætni, er vist að mikill og gleði-
legur árangur myndi nást. A ég
þar við að slysum og hverskonar
óhöppum myndi stórlega fækka
hér í bænum. Það er nú að verða
nær daglegur viðburður að
fjöldi bíla stórskemmist í árekstr
um, að slepptum hinum tíðu slys-
um á fólki. Það er kominn tími
til að spyrna við fótum, og það
er hægt að ná verulegum ár-
angri með því að sýna lipurð,
tillitssemi og gætni, sagði hinn
nýskipaði framkvæmdastjóri
umferðarnefndar að lokum.
Skákþing Reykjavíkur
Listamenn fordœma
SKÁKÞING Reykjavíkur hefst
sunnudaginn 24. þ.m. kl. 2 e.h. í
Þjóðleikhúskjallaranum. Teflt
verður um titilinn Skákmeistari
Reykjavíkur 1960. Teflt verður
í þremur flokkum, meistara-, 1.
og 2. flokki. í öðrum flokki verð
ur teflt eftir svissneska kerfinu
og einnig í fyrsta flokki, ef þátt
takan verður mikil.
Búizt er við mikilli þátttöku í
meistarafloíki og ef svo verður,
verða tefldar undanrásir í tveim
ur eða fleiri riðlum. Síðan tefla
efstu menn úr hverjum riðli
til úrslita um titilinn. Mikl-
ar likur eru til þess að Friðrik
Ólafsson stórmeistari verði með-
al þátttakenda í úrslitakeppn-
inni, en hann hefir ekki tekið
þátt í skákmóti hérlendis síðan
1957. Meðal annarra þátttakenda
í meistaraflokki sem þegar hafa
tilkynnt þátttöku sína má nefna
Benóný Benediktsson, Eggert
Gilfer, Ólaf Magnússon, Braga
Þorbergsson, Bjarna Magnússon,
Hrlldór Jónsson og hina ungu
og upprennandi skákmenn Jónas
Þorvaldsson, Björn Þorsteinsson
og Guðmund Lárusson. Innritun
þátttakenda lýkur á fimmtudags
kvöldið 21. þ.m. Bikar sá er teflt
hefir verið um undanfarin ár og
gefinn var af Þorsteini Gíslasyni
vannst til eignar á síðasta skák-
þingi, Nú verður teflt um nýjan
mjög fallegan bikar, sem Trygg-
ingamiðstöðin hf. hefir gefið. Til
þess að vinna hann til eignar
þarf að vinna hann þrisvar í röð
í eða fimm sinnum alls.
Blaðinu hefur borizt eftir-
farandi frá Bandalagi ís-
lenzkra listamanna.
A STJÓRNARFUNDI Bandalags
slenzkra listamanna var nýlega
samþykkt einróma ssvohljóðandi
ályktun:
„Stjórn Bandalags íslenzkra
listamanna tekur eindregið undir
þau orð, sem forseti Bandalags-
ins, Svavar Guðnason, lét falla
í Ríkisútvarpinu í byrjun þessa
mánaðar, þar sem hann for.
dæmdi á ótvíræðan hátt spreng
ingu „Hafmeyj arinnar“■ í Reykja
víkurtjörn á nýársnótt. Stjórn
Bandalagsins samþykkir enn-
fremur einróma vítur á Ríkisút-
varpið fyrir að hafa látið við-
gangast, að flutt var í útvarpinu
erindi . uppdiktaðra saka og
ósæmilegra aðdróttana á hendur
íslenzkum listamönnum.
Hér er átt við erindi Högna
Torfásonar „Um daginn og veg-
inin“, flutt 11. janúar 1960. Þar
segir m.a. svo:
„Þessu vígi (þ.e. sprengingu
líkneskis í Reykjavikurtjörn)
verður aldrei lýst á hendur al-
menningi. Hin siðferðilega á-
stæða hvílir á listamönnum vor-
um sjálfum. Það voru þeir, en
ekki almenningur, sem upphófu
deiluna um þessa styttu . . , “
o. s. frv.
Sætanýting
Loftleiða
70,4 pr.
SÆTANÝTING hjá Loftleiðum
varð meiri á síðasta ári en
nokkru sinni fyrr. Hún varð þá
70,4% miðað við 69,7% árið áð-
ur, og er það mjög gott miðað
við það sem aigengast er hjá
öðrum flugfélögum. í fréttatil-
kynningu frá Loftleiðum segir
ennfremur, að farþegatalan 1959
hafi reynzt 35,407. Miðað við
næsta ár á undan er hér um
32,6% aukningu að ræða, því þá
var farþegafjöldinn 26.702. Vöru
flutningar uxu um 26% miðað
við fyrra ár, eða úr 250 tonnum
upp í 315 tonn. Sama er að segja
um póstflutninga. Þar var aukn-
ingin 33,6%, úr 24,4 tonnum í
32,6 tonn. — Árið 1959 flugu
flugvélar Loftleiða 4.476,843 km
og er það 36,9% aukning frá
1958. — Hinn 1. apríl gengur
nýja áætlunin í gildi. Þá koma
Cloudmastervélarnar tvær inn í
áætlun og verða auk Skymast-
er-vélanna tveggja í förum í
sumar.
Oss er kunnugt, að ýms dag-
blöð hafa skrifað um líkneski
Nínu Sæmundsson, „Hafmeyjan
í Reykjavíkurtjörn“ á síðast-
liðnu sumri og hausti svo sem
,Frjáls þjóð‘- Alþýðublaðið og
fleiri. Eru greinar þessar undir-
ritaðar af þekktum blaðamönn-
um eða ónafngreindar og því á
ábyrgð ritstjóra viðkomandi
blaða.
í framangreindum ummælum
um nefnda styttu hefur komið
fram gagnrýni á þessu verki og
staðsetningu þess. Sú gagnrýni
verður ekki rakin til félagssam-
taka listamanna þar sem enginn
meðlimur þessara samtaka kom
þar við sögu fyrr en síðar er
myndlistarmenn létu í ljós álit
sitt á störSum listaverkanefndar
bæjarins og viku m.a. að þessu
verki. Það er því fölsun stað-
reynda er Högni Torfason segir:
listamenn „upphófu deiluna um
þessa styttu“
Meðan spellvirkið á Hafmeyj-
imni í Reykjavíkurtjörn hefur
enn ekki upplýstst eða sökin sann
azt á einn eða neinn eru það
hinar ósæmilegustu aðdróttanir,
er Högni Torfason lýsir því
„vígi“ á hendur listamannastétt-
inni.
Við rekjum hér ekki fremur
efni eða 'ósannindi þessa hatur-
fulla erindis Högna Torfasonar,
þótt af nógu sé þar að taka, en
væntum þess 3ð forráðamenn
Ríkisútvarpsins finni fulla
ástæðu til að afsaka það sem hér
hefur átt sér stað“.
Vísindomenn
mólmæla
RÓM, 19. jan. (Reuter) — ítalsk.
ir kjarnorkuvísindamenn hafa
varað við „hugsanlegum alvar-
legum afleiðingum“ fyrir ítölsku
þjóðina af kjarnorkusprengingu
þeirri er Frakkar fyrirhuga í
Sahara í lok febrúar.
Prófessor Roberto Fieschi, sem
er formaður félags þeirra vísinda
manna er vinna að eðlisfræði-
rannsóknum, sagði í viðtali við
dagblaðið II Messaggero:
„Það er sennilegt að franska
kjarnorkusprengjan geti haft
skaðleg áhrif á íbúana hér.
Þetta segjum við vegna þess að
við vitum að geislavirk aska frá
kjarnorkusprengingum getur bor
izt með vindunum vikum saman.
Ekki er óalgengt, sérstaklega
í suður Italiu, að jafnvel eyði-
merkursandur berist þangað með
sunnanvindi.