Morgunblaðið - 21.01.1960, Síða 9

Morgunblaðið - 21.01.1960, Síða 9
Fimmtudagur 21. jan. 1960 MOR CTITSHLAÐIÐ 9 Davíð Stefánsson 65 ára i dag Hann hlýtur fyrstu heiðursverðlaunín úr gulli úr sjóði Daða Hjörvar S V O F E L T símskeyti barst Davíð Stefánssyni í gærkvöldi: Davíð skáld Stefánsson frá Fagraskógi. Akureyri. Dómnefnd fyrir heiðursverðlaunasjóð Daða Hjörvar varð full- skipuð í dag, þannig: Helgi Hjörvar, formaður, tilnefndur af út- varpsráði; Guðni Jónsson prófessor, tilnefndur af heimspekideild Háskólans; Lárus Pálsson leikari, tilnefndur af leikurum Þjóðleik- hússins; Þóroddur Guðmundsson skáld, tilnefndur af rithöfundum; Broddi Jóhannesson dr. phil, kosinn af dómnefndinni eftir sérstök- um ákvæðum skipulagsskrárinnar. Dómnefndin hefur ákveðið einum rómi að veita yður hin fyrstu Og sérstöku heiðursverðlaun úr gulli á 65 ára afmæli yðar, eftir 12. grein skipulagsskrárinnar. Dómnefndin færir yður kærar kveðjur og hamingjuóskir. Helgi Hjörvar, formaður dómnefndar. Davíð Stefánsson ★ Kærj vinur, Davíð skáln! Ég tek mér leyfi til að lengja þessa kveðju fáum orðum. Þessi sjóður, sem kenndur er til nafns Daða Hjörvar, er stofn- aður til að heiðra þá menn sem fegurst tala íslenzka tungu í út- varp. En svo mun reynast, ef að er hugað, að vandgerðara er við hljóðnemann en ræðustólinn eða leiksviðið. Yfirburðir þínir á þessu sviði eru fágætir og engum álitamál- um háðir. íslenzkur maður hefur lýst því fyrir mér, er þú eitt sinn gekkst fram fyrir einn hinn valdasta og vangæfasta skara áheyranda úti í Svíþjóð og hófst upp rödd hins íslenzka skálds á framandi tungu, hversu hinn mikli salur varð í einni andrá fylltur ókennilegri andakt og undrun, þá er Yggjar full ýranda kom að hvers manns hlusta munnum. Sá sem slíka íþrótt hefur af sínum guði fengið, hann geym- ir hinn dýrasta hlut. Þessi þjóð hefur engan hlut dýrari átt en hina römmu tungu Egils, og hina fagurkveðnu tungu: Það ber eg út úr orðhofi mærðar timbur máli laufgað. Og tungu Hallfreðar: Norður eru öll of orðin auð lönd at gram dauðan. Og orðlist Óttars svarta, sem flutti kvæði sin hinni sænsku hirð meir en níu öldum á undan þér, tungutak skáldsins, sem kr.úði blóðga strengi hjarta síns og kvað sér líf undir öxarmunni Ólafs digra. Og allir þessir töluðu hina sömu tungu og þú. Aðrar þjóðir hlýða á slíkt og taka ekki í al- vöru svo fáheyrilega vizku. En vér sjálfir teljum svo undursam- lega hluti yfris sjálfsagða, svo að hvorki þökkum vér guði né mönnum. Málsnilld þín, hið fágæta tungutak hirðskáldsins, hefur hafið íslenzkt mál á hærra stig fyrir samtíðarmönnum þínum, fengið þína kynslóð til að trúa því af eigin raun, að orðstir hinna fornu skálda vorra var meira en orðfrægð ein og hetju saga. Þeir knúðu Orfeushörpu norrænna þjóða með málfarinu einu, þeirri heitu hrönn blóðs- ins sem rödd skáldsins endur- ómar, með dularfullum kliði í stefjum málsins. Nú á íslenzk tunga alein þennan heilaga arf aldanna. Þú hefðir, einn af fáum, getað tekið þér á varir orð Arnórs: Gefið rúm skáldi konunga! En þú hefur hvergi hrundið neinum til hliðar. Þú hefur tekið hjarta þjóðar þinnar með stáli málstefj anna, silfurstrengjum raddar þinhar, þegar svo bar til og þeg- ar aðrir þokuðu þjer fram. Við hjónin þökkum þér inni- lega og óskum þér góðra daga. Við samfögnum þér við þessa sæmd, með öðrum sæmdum. Við blessum minningu móður þinnar göfugrar, sem fyrst kenndi þér þína tungu, og minningu föður þíns, hins hjartaheita bænda- höfðingja. Og megi þér enn „frá morgni lífsins mildir geislar streyma um minninganna Fagraskóg“, eins og þú hefur sjálfur sagt. 20. jan. 1960 Helgi Hjörvar. * KVIKMYNDIR * 0 0 0 0 0 0 0 Tripólibíó: ÓSVIKIN PARÍSABSTÚLKA EINHVERSSTÁÐAR hef ég lesið það að Brigitte Bardot afli Frökk um með kvikmyndaleik sínum, meiri gjaldeyris, en þeir fá fyrif vínútflutning sinn. — Ég sel sögu þessa ekki dýrar en ég keypti, en víst er um það, að Brigitte Bardot nýtur um heim allan geysivinsælda sem kvikmynda- stjarna, enda er hún óvenjulega heillandi og sérstæð ung kona. Hefur hún haft feiknamikil áhrif á framkomu og „stíl“ ungra stúlkna á aldrinum frá 13 árum til tvítugs víðs vegar um heim, sem stæla hana eftir beztu getu. Má sjá þess ótal dæmi, einnig hér á landi, en einkum þó í höfuð- borginni. Mynd sú, sem hér ræðir um, er ósvikin frönsk kvikmynd, engu síður en Brigitte Bardot, sem leikur aðalhlutverkið er „ósvikin Parísarstúlka“. Segir þar frá ungri stúlku, ráðherradóttur, sem er yfir sig ástfangin af einka ritara föður síns. Hún einsetur sér að vinna ástir þessa mikla kvennagulls, sem er síður en svo við eina fjölina felldur í ásta- máium. Og henni tekst það að lokum, en sá sigur hefur kostað hana margskonar brösur og skemmtilegar brellur, sem hér verður ekki greint frá. Myndin er ærið djörf í sumum atriðum en þó aldrei gróf, og Brigitte Bardot hefur aldrei ver- ið meira heillandi en í þessari mynd. Auk hennar leika í mynd 'inni aðrir mjög þekktir leikarar, svo sem Charles Boyer, Henri Vidal o. fl. Vel gerð og prýðilega skemmti leg mynd. Austurbæjarbíó: ÉG OG PABBI MINN ÞETTA er þýzk mynd tekin í lit- um. Segir þar frá Teydd Lenke, sem eitt sinn var víðfrægur trúð ur, en hætti trúðleik sínum er hann missti son sinn barnungan, sem hafði leikið með honum. Hann er nú eigandi að lítilli verzlun og býr hjá miðaldra kven manni, sem hefur lítinn dreng í fóstri. — Hefur móðir drengs- ins flutzt til Ameríku, en komið drengnum fyrir hjá þessari konu. — Teddy hefur tekið miklu ást- fóstri við drenginn, sem veit ekki annað en að Teddy sé faðir sinn. — Vegna sérstakra atvika ákveð ur Teddy að hefja aftur trúðleik sinn með aðstoð Úlla litla ,en svo heitir drengurinn, vinur hans. En nú kemur alvarlegur bobb í bát- inn. Móðir drengsins hefur gifzt í Ameríku, og kemur nú til Þýzkalands til þess að sækja spn sinn. Verður þetta Teddy mikið áfall og er honum hið sama og sonarmissir í annað sinn. Og eins og svo margir trúðar, fyrr og síðar, sendur hann að lokum á sviðinu og leikur skrípalistir sín ar með sáran harm í hug. Hinn góðkunni þýzki gaman- leikari, Heinz Rúhmann leikur Teddy, og sýnir með leik sínum að hann er jafnvígur á hvort- , tveggja, gaman og glettni og að túlka sorg og trega. — Úlla litla j leikur drengurinn Oliver Grimm svo vel að furðu sætir um svo ungt barn. Myndin er yfirleitt skemmti- leg og aðlaðandi, en nokkuð til- finningasöm á köflum. Gólfslípunin Barmahlið 33. — Simi 13657. 34-3-33 6» 09 Þungavinnuvélar MÁLFLUTNINGSSTOFA Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pétursson Aðalstræti 6, III. hæð. Símar 12002 — 13202 — 13602. Bændur athugið Vil taka góða bújörð á leigu með allri áhöfn og vél- um. Tilboð sendist blaðinu fyrir 15. febrúar merkt: „Fardagar 1960 — 8260“. Húsnæði ó ógætum stnð til sölu Húsnæðið er útbúið fyrir: iðnað í kjallara Verzlun á 1. hæð Iðnað eða skrifstofur á 2. hæð. Þeir sem óska að kynna sér eignirnar með kaup fyrir augum, sendi beiðni um upplýsingar í bréfi til Morgunblaðsins auðkennt: „Góð eign við Miðbæinn — 9417“ fyrir n.k. sunnudag 24. þ.m. Hlíðarbúar Efnalaugin Glæsir, Blönduhlíð 3 hefur afgreiðslu á skyrtum fyrir okkur. Leggjum sérstaka áherzlu á vandaðan og góðan frágang. Fljóta og örugga af- greiðslu. Höfum fullkomnustu vélar. Festum á tölur. Aðrir afgreiðslustaðir: Efnalaugin Glæsir Fatapressan Hafnarstræti 5 Austurstræti 17 Efnalaugin Glæsir Laufásveg 19 Efnalaugin Glæsir Reykjavíkurvegi 6 Hafnarfirði Efnalaug Austurbæjar Tómasarhaga 17 Verzlunin Anita Bugðulæk. Þvottahúsið Skyrtur og Sloppar hf Brautarholti 2 — Sími 15790. Skrifstofustúlka óskast allan eða hálfan daginn á m.álflutningsskrif- stofu. Tilboð með upplýsingum sendist afgr. Mbl. fyrir 27. þ.m. merkt: „Vélritun — 4235“. MÓTORROFAR 25x60 og 100 A. MÓTORROFAR m/ afslætti 25 A — 15 A. TENGLAR vatnsþ. 25 A - 3 fasa TENGLAR utanaligg. 10A — 3 fasa frá hinu velþekkta firma Nordisk Elektrilefets Sel- skab Köbenhavn. Höfum fyrirliggjandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.