Morgunblaðið - 21.01.1960, Síða 13
Fimmtudagur 21. jan. 1960
MORCVNBLAÐIÐ
13
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA RITSTJÖRI: BJARNI BEINTEINSSON
Þróttmikil og vaxandi
starfsemi Heimdallar
Áherzla lögð á aukið
támstundastarf meðal
félagsmanna
ÓHÆTT mun að fullyrða að Heimdallur sé langöflugasta stjórn-
málafclag ungs fólks hér á landi um þessar mundir og hefur svo
verið um langt skeið. Félagið hefur jafnan verið ein styrkasta stoð
Sjálfstæðisflokksins hér í Reykjavík, og jafnframt hefur áhrifa
Heimdallar gætt um land allt, þar sem hann hefur með hinni
öflugu starfsemi sinni sýnt fram á, að æska þessa lands aðhyllist
í sívaxandi mæli stefnu Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur endurgoldið þetta traust með því að velja æ fleiri unga
menn og konur til forystu- og trúnaðarstarfa innan flokksins og
á þeim sviðum þjóðmálanna, sem hann hefur áhrif á.
Nýlega auglýsti stjórn Heimdallar áætlun sína um starfsemi fé-
lagsins síðari hluta þessa vetrar. Kennir þar margra grasa og
hyggst Heimdallur taka upp ýmsar nýjungar til þess að gera
félagslífið enn fjölbreyttara en verið hefur. Sambandssiðunni
þótti því hlýða að inna forráðamenn félagsins nánar eftir fregn-
um af starfsemi Heimdallar, og átti fréttamaður síðunnar eftir-
farandi samtal við formann félagsins, Birgi ísl. Gunnarsson, og
framkvæmdarstjóra þess, Ragnar Kjartansson.
Segið mér fyrst, hvenær er
Heimdallur stofnaður og hvað
eru félagsmenn taldir margir?
Heimdallur var stofnaður 16.
febrúar 1927 og er því nærfellt
33 ára gamall. Aldurstakmark fé-
lagsmanna er bundið við, að þeir
séu ekki yngri en 16 ára og ekki
eldri en 35. Félagsmenn munu
nú vera um 3000 að tölu og fjölg-
ar þeim stöðugt. — Hér skýtur
Ragnar því inn, að honum hafi
þá um daginn borizt 25 inntöku-
beiðnir í félagið.
Hvenær tókuð þið við stjórnar-
taumunum?
Núverandi stjórn var kosin á
aðalfundi 11. nóvember sl. Hófst
hún þegar handa um að skipu-
leggja vetrarstarfið, og voru all-
margar nefndir skipaðar til þess
að fjalla um hina ýmsu þætti
félágslífsins. Þær hafa nú skilað
áliti og tillögur þeirra verið
ræddar í stjórn félagsins og full-
trúaráði. Árangurinn er starfs-
áætlun sú, sem nú liggur fyrir.
Já, hún er býsna mikil að vöxt-
um. Viljið þið ekki skýra lesend-
um frá helztu þáttum hennar?
Málfundir verða eins og und-
anfarna vetur haldnir reglulega
og verður þar einkum rætt um
mál, sem æskulýðurinn telur sig
skipta og líkindi eru til að fjör-
ugar umræður takist um. 1 vetur
verður m. a. rætt um skólakerf-
ið; bæjarrekstur og framtíðar-
skipulag Reykjavíkur. Á fyrsta
fundinum, sem haldinn var sl.
mánudag var rætt um þegn-
skylduvinnu og urðu mjög
skemmtilegar umræður um það
mál.
Þá verður haldið málfunda-
námskeið á vegum félagsins í
vetur og er gert ráð fyrir að það
standi í einn mánuð. Stjórnandi
þess verður Ólafur Magnússon
og fer námskeiðið fram með mjög
nýstárlegu sniði. Sérfróður mað-
ur mun þar væntanlega leiðbeina
þátttakendum um framsögn,
Hinir svokölluðu klúbbfundir
voru teknir upp sl. vetur og urðu
mjög' vinsæll þáttur í félagslíf-
inu. Þeir eru haldnir að jafn-
aði einu sinni í mánuði og koma
þá þátttakendur saman í Sjálf-
stæðishúsinu og eta þar hádegis-
verð, en einhver þjóðkunnur
maður flytur erindi um eitthvert
málefni, sem mjög er rætt manna
á meðal. Að erindinu loknu eru
svo frjájsar umræður um efnið
og framsögumaður svarar fyrir-
spurnum. 1 fyrravetur voru t. d.
flutt erindi um vinnulöggjöfina,
stóriðju, unga fólkið og stjórn-
mál, alþjóðastjórnmál og al-
menningshlutafélög, en í vetur
hefur þegar verið rætt um
stjórnarskrá íslands og nú sl.
laugardag um fiskiðnaðarvanda-
mál. Aðeins þeim félögum, sem
þegar hafa tekið þátt í þessum
fundum er sent fundarboð, en
þeir, sem áhuga hafa á að bæt-
ast í hópinn, eru beðnir um að
tilkynna það skrifstofu félags-
ins.
Ég sé að þið auglýsið bæði
skákmót og bridgekeppni. Er
mikill áhugi meðal Heimdellinga
á slíkri starfsemi?
Já, það er óhætt að fullyrða
það. Fyrir nokkrum árum byrj-
aði Heimdallur að halda uppi
skákfræðslu fyrir félagsmenn og
voru nokkrir helztu snillingar
okkar í þeirri íþrótt þar leið-
beinendur. Auk þess hafa verið
haldin fjöltefli á vegum Heim-
dallar nokkrum sinnum á hverj-
um vetri og mun svo verða enn.
Hins vegar er það nýjung, að
félagið mun efna til hraðskák-
móts nú í vetur og fer það fram
sunnudaginn 24. jan. í Valhöll.
Aflað hefur verið glæsilegra
verðlauna, sem sigurvegarinn á
mótinu hlýtur.
Þá er það einnig nýjung í starf-
semi Heimdallar, að nokkur
bridgekvöld í keppnisformi verða
haldin á næstunni. Þar verða
einnig veitt verðlaun og er það
von okkar, að þessi nýbreytni
formaður félagsmönnum fyrir
þau óeigingjörnu störf, sem fé-
lagsmenn unnu fyrir og í kosn-
ingunum. 1 lok skýrslu sinnar
hvatti formaður félagsmenn til
að halda áfram hinu þróttmikla
starfi, sem verið hefði á árinu.
Síðan las gjaldkeri upp reikn-
inga félagsins og sýndu niður-
stöðutölur rúmlega 41 þús. kr.
umsetningu félagsins.
Næst fór fram stjórnarkjör og
voru þessir kosnir: Kristján
Guðlaugsson formaður. Aðrir í
stjórn voru kosnir: Páll Axels-
son, Sigurður Eyjólfsson, Ingvar
Guðmundsson og Steinþór Júlíus
son. Varastjórn: Valgeir Sig
urðsson, Jón P. Guðmundsson og
Gunnar Guðmundsson. — 1
skemmtinefnd voru kosnir Kristj
án Júlíusson, Jón P. Guðmunds-
son, Sigurður Eyjólfsson og Páll
Axelsson.
Að lokum þakkaði formaður
það traust, er sér væri sýnt með
því að endurkjósa sig til for-
manns. Síðan fóru fram nokkrar
umræður um Starfið á komandi
starfsári og var ákveðið að halda
áfram með svipuðu sniði og sl.
starfsár.
Aðalfundur
„Heimis44
í Keflavík
AÐALFUNDUR Heimis F.U.S. í
Keflavík var haldinn 17. des.
1959 í Sjálfstæðishúsinu, Kefla-
vík.
Formaður félagsins, Kristján
Guðlaugsson setti fundinn og
gaf skýrslu um starfsemina á líð-
andi starfsári. Hann gat þess
meðal annars að starfsemi fé-
lagsins á árinu hefði verið með
óvenju miklum blóma. Haldin
hefðu verið 14 skemmti- og spila-
kvöld, sem voru mjög fjölsótt.
Ennfremur sá félagið um vor-
mót, sem haldið var í Samkomu-
húsi Njarðvíkur á vegum Sam-
bands ungra Sjálfstæðismanna.
Jafnframt vormótinu sá Heimir
um fund með trúnaðarmönnum
í Reykjaneskjördæmi. Á árinu
tóku félagsmenn mikinn þátt í
undirbúningi Alþingiskosning-
anna, bæði vor og haust, og sá
Kristján Gufflaugsson
form. Heimis, F.U.S.
gjaldkeri félagsins Páll Axelsson
um rekstur kosningaskrifstof-
unnar fyrir Suðurnesin og færði
formaður honum sérstakar þakk-
ir fyrir þau störf. Einnig þakkaði
Birgir Isl. Gunnarsson, formaffur Heimdallar, og Reynir
Kjartansson, framkvæmdastjóri félagsins.
verði vinsæl meðal félagsmanna.
Verffur ekki eitthvaff um ferffa-
lög á vegum félagsins eins og
áffur?
Jú, vetrarferffir verða ef til
vill farnar, en auk þess er ráð-
gert að efna til svokallaðra inn-
anbæjarferffa, sem er nýr starfs-
þáttur. Verður þá farið í heim-
sókn til merkra fyrirtækja og
stofnana í bænum og nágrertni
hans og mönnum kynnt starf-
semi þeirra. Fyrsta ferðin verð-
ur farin nú á laugardaginn og
verður þá skoðað hraðfrysti-
hús.
Hvaff er um Ieikstarfsemi aff
segja?
Fyrir nokkrum árum tók;
Framh. á bls. 15.
Cyðingaofsóknir
fyrir 140 árum
GYÐINGAOFSÓKNIR eru því miffur ekki uppátæki nazlsta
einna, því að þær hafa tiðkazt öldum saman. 1 Klaustur-
póstinum í febrúar 1820 er þessi frásögn:
Soltinn og illviljaöur skríll, líklega framar leiddur af
öfund yfir velmegun Gyöinga fólks, enn af nœrfeldt eins
ótilhlýöilegri trúarbragöa vandlœtingu, vakti hér og
hvar óspektir í Borgum Þýöskalands gegn þessu fólki,
eptir hverjum nockrir af óvandaöasta skríl Kaupmanna-
hafnar innbúa, öndverölega t Sept. mánuöi 1819, öpuöu
af sömu röksemdum, meö því aö vekja þar upphlaup gegn
Gyöinga fólki, mölva víöa glugga rúöur úr hýbýlum
þeirra og fremja fleiri óhœfur. Ríkisstjórnin tók þvi
alvarlega í stjórnartaumana til friöar þessum þegnum
hennar og til viörjettingar opinberrar rósemdar og ó-
hultrar verndar lífi manna og eigna. Konungleg Auglýs-
ing útgeck þann 6ta Sept. s. á., sem fyrirbauö öllum
aö fylla þennan óeyröa flock og samkomu manna á strœt-
um; hjet álitlegum verölaunum þeim, er vísaöi á óspekt-
anna höfundi eöa lagsbrœöur t þeim; bauö hermanna
fjölda aö koma og skacka leikinn og aö hverr einn falla
skyldi rjettlaus uppá eigin afbrot sín, sem ecki skipaöist
strax viö boöorö Yfirvalda, en aö grunsamir og upp-
vísir aö hlutdeild í þeim óspektum, strax fángast skyldu
og dcemast appelslaust af tilskipaöri Dómara-Nefnd, til
strángs líkamlegs- og jafnvel eftir málavöxtum lífs-
straffs. Þessi ráöstöfun vors allranáöugasta Konungs
leiddi bráölega rósemd og reglu inn t Hans Aöseturs
staö. Aö tveggja daga fresti mátti telja állt t hiö forna
rósemdar- lag aptur komiö; kátlegast var aö argur skríll
í nockrum öörum stööum Sjálands, hvar máskie einn aö
eins, eöa mjög fáir Gyöingar bjuggu, hreiföu eptir á
líkum óspektum, sér til varanlegrar aöhláturs minningar,
þvi þar duttu þœr óöara niöur um sig sjálfar.