Morgunblaðið - 21.01.1960, Síða 15

Morgunblaðið - 21.01.1960, Síða 15
Fimmtuáagur 21. jan. 1960 MORGUNBLAÐIÐ 15 s. u. s. Framh. aí bls. 13. Heimdallur að starfrækja sum- arleikhús og var það hið fyrsta, sem hóf starfsemi sína hér í bænum og hefur það starfað á hverju sumri síðan, að undan- teknum kosningasumrum. Þar hafa verið sýnd leikrit og söng- leikir eftir ýmsa þekkta höf- unda, m. a. Bernhard Shaw og Mozart. Við munum halda áfram á sömu braut og hefja sýningar með vorinu. Hefur Gunnar Eyj- ólfsson þegar verið ráðinn til að hafa umsjón með þessari starf- semi, en leikritaval er enn ekki ákveðið. Hafið þið citthvað fleira á prjónunum? Já, eins og undanfarið munu í vetur starfa nokkrir fræðslu- hópar eða leshringir, sem fjalla bæði um stjórnmál og önnur á- hugamál ungs fólks. Ennfremur verður væntanlega efnt til al- mennra funda eftir því sem til- efni gefst til. Það hefur jafnan þótt farsæl regla, að taka nokkurt tilliti til sérsjónarmiða kvenna. 1 fyrra var því tekinn upp sérstakur þáttur, föndurnámskeið kvenna. Sérmenntuð kona leiðbeindi þar stúlkum um vinnu úr basti og öðrum slíkum efnum, og varð þetta mjög vinsælt af kvenþjóð- inni. Félagið mun halda þessari starfsemi áfram í vetur og verða þessar æfingar væntanlega viku- lega. Liggur ekki gríðarmikið starf á bak við svo fjölbreytt félags- Hf? Jú, ekki skal því neitað. Hér hefur þó ekki verið nefnt allt hið pólitíska starf, sem auðvitað er mest, þegar kosningar eru í nánd. Þá hefur Heimdallur t. d. rekið allmikla útgáfustarfsemi auk alls annars kosningastarfs. Skipulag félagsins hefur hins vegar farið batnandi með ári hverju, þannig að æ fleiri fé- lagsmenn taka nú virkan þátt í þeim störfum, sem vinna þarf fyrir félagið. Þess má geta, að á annáð hundrað manns starfa nú í stjórn, fulltrúaráði og nefnd- um Heimdallar. Telur þú, Birgir, að ungt fólk hafi mikinn áhuga á stjórnmál- um? Eftir þeim kynnum, sem ég hef haft af stjórnmálalífi erlendis, þá tel ég að ungt fólk á íslandi hafi mun meiri áhuga á þessum efnum heldur en víðast hvar annars staðar. Má í þessu sam- bandi m. a. benda á, að á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins við síðustu alþingiskosningar hér i Reykjavík voru 8 af 24 fram- bjóðendum undir 35 ára aldri. Þrír þingmenn flokksins eru á þessum aldri og annar borgarstjórinn einnig, svo að eitthvað sé nefnt. Þróunin virðist ganga í þá átt, a. m. k. í Sjálf- stæðisflokknum, að hinir yngri menn hafi æ meiri áhrif á störf og stefnu flokksins. Fréttamaður tekur undir þessi orð Birgis Gunnarssonar og þakkar þeim félögum síðan greinargóð svör, en þeir hverfa aftur að fyrri störfum. — o — Það kemur glöggt fram af því, sem að ofan greinir, að auk hinnar pólitísku starfsemi þá leggur Heimdallur sífellt meiri áherzlu á allskyns tóm- stundastarf meðal félaga sinna. Hér er Heimdallur tvímælalaust á réttri braut, sem mun gefa starfsemi félagsins mun meira gildi er fram líða stundir. 1 ört vaxandi borg eins og Reykjavík er jafnan hætta á, að allskyns los, slæpingsháttur og miður uppbyggilegar skemmtanir setji mark sitt á æskulýðinn. Hér hef- ur Reykjavíkurbær reynt að bæta úr með stofnun Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur og hinni stór- merku starfsemi þess. En full þörf er á, að æskulýðsfélögin •jálf vinni slíkt starf meðal fé- laga sinna, og þár hefur Heim- dalur riðið á vaðið með góðum árangri. ' ÉLÚ., :i I Geymslupláss Geymslupláss fyrir vöruafgreiðslu óskast um tveggja mánaða tíma. Þarf að vera upphitað. Mætti vera hæð I húsi í smíðum. Helzt sem næst Háloga- landshverfi eða Vogunum. Upplýsingar í síma 12800. N auðungaruppboð % eftir kröfu Agnars Gústafssonar, hdl., verður íbúð í smíð um í Austurenda annarar hæðar í húsinu nr. 23 við Mið- braut á, Seltjarnarnesi, sem auglýst var í 96., 97. og 98. tölubl. Lögbirtingablaðsins seld á nauðungaruppboði. sem haldið verður á eigninni sjálfri laugardaginn 23. þ.m. kl. 11 árdegis. Sýslumaðurinn í GuIIbringu og Kjósarsýslu. Austfirðingoi Reykjuvík Spilakvöld verður haldið í Breiðfirðingabúð annað kvöld kl. 8,30. 1. Spiluð Félagsvist 2. Dansað til kl. 2. • Austfirðingar fjölmennið og takið með ykkur gesti. STJÓRNIN. Ú T S ALA Útsalan heldur áfram Nýjar birgðir af töskum koma fram í dag. Notið þetta einstæða tækifæri til að kaupa yðuir ódýra tösku. Aðeins ein útsala á ári hverju. Toskubúðin Laugavegi 21 4ra herb. íbúð óskast til kaups. íbúð í smíðum getur komið til greina. Ólafur Þorgrímsson hrl. Austurstræti 14 — Sími 14332. Tií sölu Skemmtileg og góð 4 herbergja kjallara- íbúð á Kleppsveg 52, með risherbergi og og einkageymslum ásamt sameiginleg- um þægindum. Upplýsingair gefa: Egill Sigurgeirsson, hrl. Austurstræti 3, sími 1-5958 Eyjólfur Konráð Jónsson, hdl. og Jón Magnússon, hdl. Tjarnargötu 16, símar 1-1164 og 2-2801. T ómstundaflokkar Æskulýðsráðs Reykjavíkur Taka til starfa 1. febrúar víðs vegar um bæinn. Upp- lýsingar og innritun að Lindargötu 50. Sími 15937 næstu viku. Æskulýðsráð Reykjavíkur. Sólar-kalfi Isfirðingafélagsins verður í Sjálfstæðishúsinu sunnu daginn 24. þ.m. kl. 8,30 síðd. Bæjarins beztu skemmtikraftar. Aðgöngum. á kr. 50,— seldir og borð tekin frá í dag og á morgun kl. 5 til 7síðd. Isfirðingafélagið. Húnvetningar Spilum í Tjarnareafé í kvöld kl. 8,80. Skenmitinefndia.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.