Morgunblaðið - 21.01.1960, Síða 19

Morgunblaðið - 21.01.1960, Síða 19
Fimmtudagur 21. jan. 1960 MORGVTUtLAÐlÐ 19 — Nautaberklar Framh. af bls. 1. sé_ 1 apríllok voru prófin endur- tekin á nautgripunum, og varð niðurstaðan sú sama, frekar veik jákvæð útkoma. er gaf til kynna, að vart gæti verið um nauta- berkla að ræða. enda voru allir gripirnir hraústlegir útlits og báru engin einkenni berklaveiki. 1 rannsóknarskyni voru felldir þrír gripir. Við krufningu á gripum þessum fundust ekki nautaberklar, en innyfli voru tek in til frekari rannsóknar. Aftur á móti fannst garnaveiki í einum gripnum, fullorðinni kú, er reynzt hafði jákvæð við blóðpróf Við garnaveiki og auk þess fannst garnaveiki í líffærum úr öðrum grip, sem slátrað hafði verið nokkru áður á Hólum, en garna- veikir gripir geta í vissum til- fellum gefið jákvæð svör við berklaprófi. Sú tegund berkla í nautgrip- um, sem mönnum stafar mest hætta af, eru nautaberklar, Þeir virðast allt að því jafnhættulegir mönnum og mannaberklar og geta auðveldlega borizt úr sjúk- um gripum í menn. Hins vegar geta nautgripir smitazt bæði af mannaberklum og fuglaberklum, en sú smitun leiðir yfirleitt ekki til sjúkdóms í nautgripum, og eru því naut- gripir, þótt fengið hafi slíkt smit, ekki taldir hættulegir. — í nágrannalöndum okkar, Norður- löndunum, Þýzkalandi og Bret- landi hafa nautaberklar til skamms tíma verið mjög út- breiddir, en aldrei fundizt hér á landi, eins og áður er sagt. Aftur á móti hafa fuglaberklar nokkrum sinnum fundizt hér á landi í hænsnum. svínum og ein- stöku sinnum í nautgripum og sauðfé. Eru þeir taldir svo til hættulausir mönnum. Örðug rannsókn Rannsókn á innyflum naut. gripanna frá Hólum reyndist örð- ug og er enn ekki að fiullu lokið. Hefur bæði verið reynt að rækta sýklana og einnig að sýkja með þeim tilraunadýr, svo sem kan- ínur, naggrísi og hænunnga í því skyni að greina þá betur. Hafa rannsóknir þessar verið gerðar að tilraunastöðinni að Keldum, á Rannsóknarstofu Há- skólans við Barónsstíg og að litlu leyti á dönsku dýralæknastofn- uninni í Kaupmannahöfn. Ýmis- legt virðist benda til þess, að sýklar þeir, sem valda þessari smitun, séu afbrigðilegir, þ. e. verði trauðla flokkaðir til manna- nauta. eða fuglaberklasýkla, enda þótt þeir geti verið skyldir þeim á ýmsan hátt. Af þessum sökum hefur berkla prófunum á nautgripunum á Hólum verið haldið áfram. Við berklapróf í sumar og siðar í haust svöruðu æ fleiri gripir já- kvætt og hefur þeim jafnóðum verið fargað, bæði í varúðar- og rannsóknarskyni. Var síðustu gripunum, sem jákvæðir reynd- ust, fargað rétt fyrir síðustu ára- mót í sláturhúsinu á Hofsósi. Hefur Guðbrandur Hlíðar, hér- aðsdýraæknir á Sauðárkróki, haft aðgerðir þessar með hönd- um. Alls hafa nú 57 nautgripir verið felldir í sambandi við áð- urnefndar rannsóknir. Hafa grip irnir verið hraustlegir og í góð- um holdum og eigi sýnt nein ein kenni berklaveiki önnur en já- kvæða svörun við berklapróf. Bólgur. Við krufningu á þessum grip- um fundust í fjórum þeirra bólgu breytingar í lungum og brjóst- himnu, sem líkjast mjög berkla- bólgu. 1 26 gripum fundust óveru legar og afmarkaðar bólgubreyt- ingar, í flestum tilfellum aðeins smáir bólguhnútar í eitlum. í 27 gripanna, eða tæpum helming þeirra, sem felldir voru, var ekki við krufningu hægt að finna nein sjúkdómseinkenni. í fáein- um gripanna fannst þó garna- veiki. Enginn þessara gripa hafði sjúkdómseinkenni í júgri, eins og títt er hjá nautgripum, sem haldnir eru nautgripaberkl- um. Enginn svaraði jákvætt Þó að ætla megi, að nú hafi náðst fyrir smitim þessa í naut- gripunum á Hólum, verður eft- irliti og berklaprófum haldið á- fram þar í öryggisskyni enn um hríð. Skal það sérstaklega tekið fram, að við berklapróf á heim- ilis- og skólafólkinu, sem fram fór í lok októbermánaðar sl. svar aði enginn jákvætt af þeim, sem áður hafa verið neikvæðir á heimilinu, og ekkert fannst at- hugavert við röntgenrannsókn. Góður árangur. í nautgripum hefur nokkrum sinnum áður fundizt svipuð smitun hér á landi, en þá verið um örfáa eða einstaka gripi að ræða í hvert sinn. Orsökin mun oftast hafa verið fuglaberklar, þegar greining hefur verið gerð. Á sl. ári var t.d. gert berkla- próf á öllum nautgripum á svæð inu frá Borgarfirði suður og aust ur í Mýrdal, alls um 20 þúsund. E: þá nær lokið að prófa alla nautgripi í þexm sveitum, sem að jafnaði senda mjólk til Reykja víkur. Af þeim svöruðu 38 grip- ir jákvætt. Voru þeir allir felld- ir. Við krufningu á gripum þess um hafa ekki fundizt einkenni berklaveiki, nema í einum þeirra vottur af fuglaberklum. Þessi umfangsmiklu berklapróf hafa því enn á ný staðfest þá skoð- un, að berklar í nautpeningi hér á Iandi eru ákaflega sjaldgæfir, og að nautgripaberklar hafa enn eigi fundizt, svo að öruggt sé. Lislkynning Mbl. ,i winm y. í sýningarglugga Mbl. eru nú til sýnis 7 myndir (tússteikning- ar) eftir Elías B. Halldórsson. Elías er fæddur 2. des. 1930, að Snotrunesi, Borgarfirði eystra. Hann stundaði nám í Handíða- og myndlistarskólanum á'rin 1955— 1957 og er nú nýfarinn til frekara náms í Stuttgart í Þýzkalandi. Allar eru myndirnar til sölu og gefur afgreiðsla blaðsins nán- ari upplýsingar. — Ofsaveður Framh. af bls. 1. grenndinni, en í kvöld hafði ekki tekizt að koma bjarglínu um borð í hið strandaða skip. — Norska olíuskipið Tank-Empress var í hættu statt á Norðursjó og bað um aðstoð. Síðast er fréttist voru skip komin á vettvang, en ekki vitað, hvað hinu norska skipi leið að öðru leyti. — Mörg önn- ur skip lentu í vandræðum og hlutu aðstoð til þess að komast til hafnar eða í var. • Skemmdir á flóðgörðum. Illa leit út í Hollandi í dag, er flóðgarðar tóku víða að láta und- an fyrir óveðrinu. — Meðal ann- ars braut hafrótið nær 100 metra breitt skarð í nýlegan flóðgarð við Vliessingen. Þrjú skörð komu í aðalvarnargarðinn við Walc- heren, en þar urðu aðalflóðin 1953, sem urðu 1835 manns að bana. Víðar við Hollandsstrend- | ur urðu skemmdir á flóðgörðum, , en alls staðar tókst að fram- : kvæma viðgerð til bráðabirgða I með sandpokum og grjóti. Flokk | ar hermanna og verkamanna vaka yfir görðunum, til þess að reyna að hindra frekari skemmd ir. • Tré rifna upp með rótum Mikil snjókoma er í Bretlandi, Svíþjóð og fleiri löndum, og hafa samgöngur mjög truflazt. Eru jafnvel heilar borgir og hér- uð í Skotlandi alveg eða nær alveg sambandslaus við umheim inn. — Frá Hollandi, Belgíu og Þýzkalandi berast fregnir um talsvert eignatjón. Þök hafa fok ið af húsum, reykháfar brotnað, hús í byggingu skemmzt stór- lega, tré rifnað upp með rótum — og sva mætti lengi telja. Stakk á sig listaverki VEITINGASTOFAN Rauða mill- an á Laugavegi 22 kynnir verk listamanna. sem hengja myndir sínar upp í veitingastofunni. Nú eru þar til sýnis teikningar efitir Arthúr Ólafsson og myndir sem hann gerði úr trjáberki. Einhverjum gesti í veitinga- stofunni hefur litizt svo vel á eina barkmyndina í gær, að hann hefur ekki getað stillt sig um að hafa hana á brott með sér. Er myndin ekki stærri en það, að stinga má henni inn á sig. Hefur þjófnaðurinn verið framinn á tímabilinu frá síðdegiskaffitíma og fram að kvöldverðartíma. Bevan versnar Lœknar hans áhyggjufullir LONDON, 20. jan. — (Reuter- NTB) — Aneurin Bevan, sem skorinn var upp við innvortis- meini hinn 29. des. sl., versnaði í dag, en undanfarið hefur hann verið talinn á góðum batavegi. 1 tilkynningu frá Royal Free- sjúkrahúsinu í London, þar sem Bevan liggur, segir að ástand hans nú „valdi miklum áhyggj- um“. — Talsmaður sjúkrahúss- ins sagði, að heilsu Bevans hefði hrakað skyndilega síðdegis í dag, en í gær var sagt, að honum liði allvel — og fyrir nokkrum dög- um var hann það hress, að hann gat setið í stól og lesið. — Þegar talsmaðurinn var spurður frekar um líðan og ástand Bevans, kvað hann ekki unnt að segja, hve mikil alvara væri á ferðum, en læknarnir væru áhyggjufullir, eins og fyrr segir. Kona Bevans, Jennie Lee, sem er þingmaður, hefur setið við hlið manns sins lengst af í dag, annars hafa ekki aðrir en lækn- arnir fengið að koma til hans? — Honum hafa borizt mörg skeyti frá stjórnmálamönnum og þjóðarleiðtogum, sem óska honum góðs og skjóts bata. Krús- jeff, forsætisráðherra Sovétríkj» anna, sendi t. d. slíkt skeyti í dag. — Bevan, sem er annar aðalleiðtogi Verkamannaflokks- ins, er nú 62 ára gamall. Það hefur aldrei verið látið uppi op- inberlega, við hverju hann var skorinn upp, en haft er eftir Gaitskell, foringja Verkamanna- flokksins, að Bevan gangi ekki með krabba. — 80 ára Framh. af bls. ð. — £n þú ferð samt alltaf að kjósa? — Já, og kýs alltaf Sjálfstæð- isflokkinn. Eg var fyrst Heima- stjórnarmaður og fylgdi síðan Jóni Þorlákssyni. Fyrstu kynni mín af pólitík voru þau, að ég lærði Alþingisrímurnar. Annars hef ég alltaf haft gaman af að lesa eftir ritfæra menn, hvar í flokki, sem þeir hafa staðið. — En stóðstu ekkert í fjár- málabraski? — Nei, aldrei. Hins vegar var það svo skrítið, að ég var á tveimur víxlum þegar Islands- bank, — þú veizt, þarna sem kommúnista-djöflarnir eru núna til húsa, —Jór á hausinn. Mér tókst hins vegar að sanna að ég hafði í bæði skiptin verið stadd- ur úti á sjó, þegar víxlamir voru teknir og slapp því alveg við að borga. — En hvað um framtíðina og dauðann. Kvíðirðu honum ekki, svona trúlaus eins og þú ert? — Nei, Eg vildi helzt fara í dag. Hvað eiga svona gamlir skröggar eins og ég að gera með að lifa lengur? vig. Innilegt þakklæti fyrir margháttaðan vináttuvott og hlý- hug í sambandi við áttræðisafmæli mitt. Guðrún Gróa Jónsdóttir. Magnús Thorlacius hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa. Aðalstræti 9. — Sími 1-1875. ÞÓRARINN JÓNSSON LÖGGILTUR DÓMTÚLKUR OG SKJALAÞÝÐANDI í ENSKU KIRKJTJHVOLI — SlMI 12966. SÖNGLEIKURINN Rjúkandi rúð 41. sýning Sýning í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala frá kl. 2 í dag. Sími 22643. NÝTT LEIKHÚS Hotel Kongen af Danmark — Köbenhavn HOLMENS KANAL 15 C. 174 í vetur til 3A ’60. — Herb. með morgunrétti frá kr. 12—16 pr. rúm. — í miðborginni — rétt við höfnina Fóstra mín GUÐRÚN JAKOBSDÓTTIR Hávallagötu 3 lézt í Landakotsspítala 19. þ.m. Erna Öskarsdóttir Jarðarför eiginmanns míns og föður MAGNCSAR JÓNSSONAR Langholtsvegi 41, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. janúar kl. 10,30. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsam- legast bent á Dvalarheimili aldraðra sjómanna. Athöfn- inni í kirkjunni verður útvarpað. Þuríður Kristjánsdóttir, Guðmundur Magnússon. Móðir mín, tengdamóðir og amma INGIBJÖRG NIKULASDÓTTIR Árvegi, Selfossi, sem lézt 14. jan. verður jarðsett laugardaginn 23. jan. og hefst athöfnin kl. 1,30 e.h. frá heimili hinnar látnu. Elías Kristinsson. Bjarndís Jóhanna Nikulásdóttir, Ólafur Nikulás Elíasson. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar ÓLAFAR BJÖRNSDÓTTUR F.h. fóstursystra, bræðra, fjarverandi systkina og annarra vandamanna. Sigríður Axelsdóttir, Soffía Axelsdóttir, Ketill Axelsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu við útför HELGU AUÐUNSDÓTTUR frá Eyvindarmúla. Systkinin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.