Morgunblaðið - 03.04.1960, Blaðsíða 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 3. apríl 1960
TTtg.: H.f Arvakur Reykjavík
I'ramkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
JRitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045. ,
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SKATTAR
OG ÚTSVÖR
HHEK JU SKATTSLÆKK-
UNIN, sem ríkisstjórn
in beitir sér fyrir, hefur í för
með sér stórfelldar hagsbæt-
ur fyrir allan almenning í
landinu. Sest það greinilega
á þeirri staðreynd, að hjón
með tvö börn og 90 þús. kr.
tekjur þurfa samkvæmt hin-
um nýju lögum engan tekju-
skatt að greiða.
Þessi lækkun tekjuskattsins
léttir mjög verulega byrði
opinberra gjalda á yfirgnæf-
andi meirihluta þjóðarinnar.
Skattabyrðin hefur á undan-
förnum árum stöðugt verið
að þyngjast. Hefur það haft
margvísleg og óheillavænleg
áhrif á efnahagsstarfsemina í
landinu. Menn hafa leitað
allra bragða til þess að svíkja
undan skatti og framtak og
viðleitni einstaklinganna til
þess að leggja sig fram um
tekjuöflun og sköpun verð-
mæta hefur lamazt.
Gunnar Thoroddsen fjár-
málaráðherra minntist nokk-
uð á þetta í framsöguræðu
sinni fyrir tekjuskattslækk-
uninni á Alþingi sl. föstudag.
Þegar svo væri komið, að t.d.
70% tekna, 7 kr. af hverjum
10, færi í tekjuskatt og útsvar,
minnkaði áhugi margra, ef
ekki flestra á að halda áfram
störfum, sagði fjármálaráð-
herra. Fiskimenn gengju í
land af skipum sínum og fólk
í landi fengist ekki til að
vinna ýmis þjóðnýt og nauð-
synleg störf.
Lækkun útsvaranna
Af öðrum ráðstöfunum
ríkisstjórnarinnar mun einn-
ig leiða verulega lækkun út-
svaranna. Með breytingunni á
útsvarslögunum er það m. a.
lögleitt að útsvör skuli veraj
frádráttarhæf. Ennfremur er;
nú gert ráð fyrir að sam-
vinnufélög skuli skyld til þess
að greiða veltuútsvör af allri
veltu sinni, hvort sem um er
að ræða viðskipti þeirra við
innanfélagsmenn eða utan-
félagsmenn.
Með þessari breytingu er
afnumið það einstæða rang-
læti að auðhringur eins og
SÍS skuli ekki greiða einn ein-
asta eyri í útsvar í bæjarsjóð
Reykjavíkur. Hefur þetta
ranglæti m. a. haft í för með
sér verulega hækkun útsvara
á öðrum bæjarbúum. Verður
þessi breyting ekki einungis
Reykvíkingum í hag heldur
íbúum í ýmsum öðrum bæj-
arfélögum, til dæmis á Akur-
eyri, þar sem samvinnufélög-
in hafa haft víðtækan út-
svarsfrjálsan atvinnurekstur.
J öf nunars j óðurinn
Þá hefur það einnig mikla
þýðingu fyrir bæjar- og
sveitarfélögin að ríkisstjórn-
in hefur ákveðið að Vs hluti
söluskattsins skuli ganga til
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Fjármálaráðherra upplýsti
á Alþingi á föstudaginn, að
gera mætti ráð fyrir, að út-
svörin í Reykjavík mundu á
þessu ári lækka um 10—15%.
Lækkun tekjuskatts og
útsvars er einn liðurinn í
viðreisnarráðstöfunum rík
isstjórnarinnar. Er óhætt
að fullyrða að þessar
lækkanir munu eiga sinn
þátt í því að gera almenn-
ingi ljóst, að stefnt er í
rétta átt með því víðtæka
viðreisnarstarfi, sem stjórn
in hefur hafið.
DR. BANDA
IT'YRIR örfáum vikum kom
hingað sendinefnd Njass-
lendinga undir forystu Kany-
ama Chiume. Erindi hennar
hingað var að leita stuðnings
Islendinga til þess að fá upp
tekið í mannréttindanefnd Ev
rópu mál landa síns, dr. Hast-
ings Banda, sem setið hefir í
fangelsi Breta undanfarna
mánuði.
Blöð og almenningur hér á
landi tóku fulltrúum þessarar
undirokuðu þjóðar vel. Mál-
staður þeirra átti ríkan hljóm
grunn á íslandi. Það vekur
því vissulega einlægan fögn-
uð hér, að brezka stjórnin
hefur nú neyðzt til þess að
sleppa dr. Banda úr fangels-
inu. Hún hefur gert sér það
ljóst, að á meðan hann situr
í tukthúsi er vonlaust að
semja við Njasslendinga um
mál þeirra. Dr. Banda er hinn
kjörni leiðtogi þeirra.
Um það þarf ekki að fara
í neinar grafgötur, að það er
almenningsálitið í heiminum
sem hefur knúð Breta til þess
að sleppa dr Banda. íslend-
ingar fagna því að hafa átt
sinn litla þátt í því að skapa
þetta almenningsálit.
Berjast gegn kúgun hvítra
Luthuli brennir persónuskírteini sín — en slík skjöl skyldaði
Verwoerd-stjórnin alla blökkumenn tii að bera.
í HÁLFA aðra öld hafa blökku-
menn Suður-Afríku verið skyld-
aðir til að bera vegabréf, þar
sem skráð eru nöfn þeirra, fæð-
ingarstaðir og hvaða ættflokki
þeir tilheyra. í vegabréfunum er
einnig gert ráð fyrir kvittunum
fyrir skattgreiðslum, skrá yfir
handtökur viðkomandi manns og
mánaðarlegar undirskriftir vinnu
veitenda hans til að staðfesta að
hann hsfi atvinnu. Ef undirskrift
vantar í vegabréf, má viðkom-
andi eiga von á því að verða
handtekinn. Hvar sem blökku-
maðurinn er staddur, verður
hann að bera vegabréf. Ef hann
stendur fyrir utan heimili sitt
án vegabréfs, leyfir lögreglan
honum ekki að hlaupa inn til að
ná í það, heldur er hann tafar-
laust handtekinn og fluttur á
næstu lögreglustöð, án þess að
fjölskylda hans eða vinnuveit-
andi séu látin vita.
SHARPEVILLE
Barátta blökkumannanna gegn
vegabréfaskyldunni hefur staðið
í mörg ár og oft leitt til árekstra
milli þeirra og lögreglunnar. En
alvarlegustu árekstrarnir urðu
fyrir nærri hálfum mánuði í
Sharpeville, um 45 kílómetrum
fyrir suðvestan Jóhannesborg,
þegar lögreglan hóf skothríð með
rifflum og vélbyssum á hóp
blökkumanna, sem safnazt höfðu
saman í mótmælaskyni, með
þeim afleiðingum að rúmlega 70
blökkumenn féllu en hundruð
særðust. Mótmælum rigndi yfir
ríkisstjórnina alls staðar að úr
heiminum og öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna var kvatt saman
sérstaklega til að ræða atburðinn.
Síðan hefur daglega komið til
árekstra í Suður Afríku, þrátt
fyrir það að ríkisstjórnin hafi
nú fangelsað flesta leiðtoganna í
baráttunni fyrir rétti blökku-
manna.
VEGABRÉFASKYLDA
AFNUMIN
Um síðustu helgi var svo kom-
ið að ríkisstjórnin sá sig til-
neydda að fella niður vegabréfa-
skyldu blökkumannanna, en það
tekið fram að sú ráðstöfun væri
aðeins til bráðabirgða. En þessi
ráðstöfun kom of seint og hefur
ekkert dregið úr óspektum.
Tvö félög blökkumanna standa
aðallega að baráttu þeirra; Al-
afrísku samtökin og Afrísku
þjóðarsamtökin, og er allmikill
munur á stefnum þeirra.
Al-afrísku samtökin eru rót-
tækari, og stóðu þau að mótmæla
göngunni í Sharpeville, sem lauk
á svo hryllilegan hátt. Foringi
þess félags er Robert Mangaliso
Sobukwe, 35 ára gamall fyrrver-
andi skólakennari, sem nú er í
fangelsi. Vígorð samtakanna er
„Afríka fyrir Afríkumenn", og
vilja þau nú hrekja hvítu íbúana
burt með valdi.
LUTHULI
Afrísku þjóðarsamtökin, undir
öruggri leiðsögn Alberts Luthuli,
hafa hingað til valið aðrar leiðir
til að vinna að hugsjónum sínum,
sem eru aukin réttindi fyrir
blökkumenn, án þess að hrekja
þá hvítu burt. Albert Luthuli
situr einnig í fangelsi, og eru
margir sem álíta að það sé mikill
misskilningur hjá ríkisstjórn
Verwoerds, því Luthuli sé eini
maðurinn, senrhaft geti hömlur
á blökkumönnum.
Albert Luthuli er 61 árs að
aldri, og hefur í áratugi verið
einn af leiðtogum í baráttu inn-
fæddra fyrir jafnrétti. Hann ólst
upp á bandarískri trúboðsstöð í
Natalhéraðinu, en þar vann faðir
hans sem túlkúr. Luthuli gekk í
skóla og varð kennari, en árið
1935 var hann kjörinn höfðingi
yfir Zuluættflokki, og barátta
hans fyrir bættum kjörum þegna
sinna varð fordæmið fyrir seinni
tíma baráttu hans fyrir jafnrétti
allra landa sinna. Hann varð
einn af leiðtogum Afrísku þjóðar
samtakanna, en í þeim eru nú
einnig þúsundir hvítra manna.
Árið 1952 var hann kjörinn for-
seti samtakanna.
Árið 1953 var hann dæmdur í
eins árs ræðu- og ferðabann og
þrem árum síðar var hann einn
af 156 mönnum, bæði hvítum og
svörtum, sem handteknir voru og
ákærðir fyrir landráð. Ari síðar
var ákæran á hendur Luthuli
felld niður.
ÖRVÆNTING
RÍKISSTJÓRNARINNAR
Á síðasta sumri stóð Luthuli
fyrir því að blökkumenn hættu
að verzla við þá kaupmenn er
höfðu sérafgreiðslu fyrir blökku-
menn, en þetta hefur haft í för
með sér stórkostlegt fjárhagslegt
tjón fyrir kaupmennina í Jó-
hannesarborg, þegar til stóð að
hækka fargjöldin,- Sýndu þessi
mótmæli vel samheldni hinna inn
fæddu og völd Luthulis, og hefði
ríkisstjórnin mátt af því læra. 1
stað þess varð ríkisstjórnin grip-
in örvæntingu og hóf lögregluað-
gerðir, sem einungis geta leitt til
blúóðsúthellinga og sundrungar.
Luthuli er nú aftur í fangelsi.
Afbrot hans er það að of margir
'\tu upp til hans. Jafnvel stuðn-
ingsmenn ríkisstjórnarinnar hugg
uðu sig með því að á meðan hans
nyti við, þyrfti ekki að óttast
blökkumannauppreisn. Hvað skeð
ur nú, þegar áhrifa hans gætir
ekki lengur?
Orka sólar
til frystingar
SINGAPORE. — Það vakti
mikla athygii, er fulltrúar í
sendinefnd frá Sovétríkjun-
um, sem situr efnahags-
málaráðstefnu Asíulanda,
lýstu því yfir, að Rússum
hefði nú þegar tekizt að
hagnýta sólarorkuna til
þess að reka frystikerfi —
og á annan hátt við geymslu
matvæla.
Rússneski nefndarformað
urinn, I. I. Adamorsky, upp
lýsti það í ræðu á fundi sér-
fræðinga, að í Sovét-Ar-
meníu væri orka sólar nú
talsvert notuð í sambandi
við frystingu kjöts, fisks og
grænmetis, en einnig væri
hægt að hagnýta hana við
þurrkun matvæla.