Morgunblaðið - 03.04.1960, Síða 15
Sunnudaerur 3. anríl 1960
MORGUNRLAÐ1Ð
15
Ákveðið hefur verið að skíra
Andrew litla Bretaprins 8. apríl
og stendur mikið til. Skírnarat-
höfnin á að fara fram í tónlistar-
salnum í Buckinghamhöll og erki
biskupinn af Kantaraborg, Geof
frey Fisher, að annast skírnarat
höfnina. Gyllti silfurfonturinn,
sem öll konungleg börn hafa ver-
ið skírð upp úr síðan 1840, verð
ur notaður. Nú er sem sagt kom
in hefð á að skíra konungsbörnin
í tónlistarsalnum en ekki í kap-
ellunni, því bæði Anne og Charl-
es voru skírð þar, eftir að kapell
an var skemmd á stríðsárunum.
Ekki hefur verið tilkynnt hverj-
ir verða guðfeður eða guðmæður
barnsins, en fólk lætur sér detta
í hug að Armstrong-Jones, unn-
usti Margrétar verði þess heiðurs
aðnjótandi. Andrew litli er ann-
ÍTALSKI kvikmyndastjórinn i eiginkona hans, Guilietta Masina,
frægi, Fellini, sem gerði „La sú sem lék aðalhlutverkið í „La
Strada“, hefur nú vakið mikið Strata“.
ar ríkisarfi Bretaveldis. Gengur
næst Charles bróður sínum, en
kemur á undan Anne systur
sinni til ríkiserfða.
★
í fréttunum
Paul Newman og Joanne Wood
ward leika aðalhlutverkin í kvik
myndinni „Ástríður í sumarhita"
sem sýnd er í Nýja Bíó um þess-
ar mundir, en myndin er gerð
eftir skáldsögu Williams Faulkn
ers „The long hot summer". Þess
ir frægu leikarar eru hjón, en
sjaldan svo heppin að leika í
sömu myndinni og geta verið
samvistum marga mánuði í einu.
Þessi mynd var tekin af þeim
á Lundúnaflugvelli fyrir
skömmu, er þau voru þar á ferð
með Nell litlu dóttur sína. Paul
Newman var á leið til ísrael, þar
sem hann á að leika í kvikmynd-
inni, sem Otto Preminger er að
gera eftir sögunni Exotus eftir
Henry Miller.
Af kvikmyndastjóranum Otto
Preminger er það að segja að
hann brá sér í hjónabandið, í
þriðja sinn, suður , Haifa, áður
en kvikmyndatakan hófst, kvænt
ist 29 ára gamalli enskri sýning-
arstúlku Hope Bryce.
umtal og gremju í Rómaborg.
Nýjasta mynd hans „Dolce Vita“
þykir segja fullmikinn sannleika.
Hneykslin í henni minna nefni-
lega óþægilega mikið á atburði,
sem gerzt hafa á ítalíu á undan-
förnum árum, eins og þegar Anita
Ekberg dansaði berfætt í nætur-
klúbb og lögreglan hirti hana, og
Montesi-hneykslismálið, svo eitt-
hvað sé nefnt. Ræðst Fellini
ótrauður með kvikmynd sinni
gegn spillingunni, sem á sér stað
hjá fyrirfólkinu í Rómaborg. Hér
sést Fellini koma af frumsýningu
myndarinnar, þar sem einn áihorf
anainn var svo reiður að hann
brækti á hann. Með honum er
Þessi stúlka, Irene Jordan,
missti unnusta sinn í flóðunum
i Frejus, en brúðkaupið hafði
verið ákveðið um miðjan desem
ber s.l. Hún sótti um að fá að
giftast unnustan, þó dáinn væri,
og var búin að fá leyfi de Gaulles
Frakklandsforseta til þess. En
unnusti hennar hafði verið sonur
heldur auðugra foreldra og syst-
hans tvær vlija ekki gefa leyfi
sitt til þess að látinn bróðir þeirra
gangi í hjónaband, því þá ætur
hann eftir sig erfingja. Jafnvel
þó hægt sé að ganga frá því að
Irene verði arflaus, gengur hún
með barn hins látna unnusta
síns, og það hlýtur að erfa hann.
Og íbúar Frejus skiptast alger-
lega í tvo hópa, með. og móti
„Jordan-málinu". Irene er fátæk,
og þykjast sumir sjá „hvað hún
ætlar sér“, en aðrir hafa samúð
með þessará 19 ára gömlu stúlku.
Op/ð ðréf til yðar!
Þa5 er vor í lofti og rétt
að gefa gaum ú sumar-
ferðalögunum.
Nú er hægur vandi að finna ferð við hvers manns hæfi!
Við bjóðum yður 452 ferðir frá Jþrgensens Rejsebureau
í Kaupmannahöfn: Langar og stuttar — ódýrar og dýrar
-— fyrir unga fólkið — fyrir eldra fólkið — með flug-
vélum, járnbrautum, langferðabifreiðum, lystisnekkjum
og hafskipum.
Með öðrum orðum — ertthvað fyrir alla!
Auk vel skipulagðs og þægilegs ferðalags, gefst yður ein-
stakt tækifæri til þess að kynnast skemmtilegu sam-
ferðafólki frá hinum Norðurlöndunum í ferðum þessum.
Þvi miður höfum við tæplega efni á að taka margar heil-
síðuauglýsingar til þess að telja upp og lýsa öllum ferð-
unum nákvæmlega, en hér er nokkur forsmekkur að því
sem um er að ræða:
Páskaferðir
12/4 Mallorca, flugferð 15 dagar frá kr. 4862.00
14/4 Paris 8 — — 2753.00
10/4 Róm 10 2753.00
104 Lugano 10 — 4340 00
Nokk'rar aðrar f e r ð i i r:
Helgileikarnir í Oberammergau . . frá kr. 35.66.00
Hringferð um Italíu, 15 dagar .. — — 7497.00
Mallorca, flugferðir 15 dagar .. — — 4862.00
Parísarferðir, 8 dágar — — 2753.00
Rínarferðir, 8 dagar — — 2571.00
Júgóslavia, flugferð 15 dagar .. •— —* 6524.00
Grikkland, flugferð 16 dagaf .... — — 7162.00
Spánn og Portugal, flugferð 22 dagar Egyptaland með langferðaskipi _—. __i_ 13545.00
23 dagar . . 15425.00
Olympíuleikarnir í Róm ........ Oberammergau-Tíról- 3320.00
Norður ítalia 12 dagar .. — — 4690.00
Harzen-Hamburg, 7 dagar — — 2311.00
— og margt fleira. •
(Öll verð eru reiknuð frá Kaupmannaihöfn og aftur til
Kaupmannahafnar — allt innifalið umreiknað úr dönskum
krónum á sölugengi).
Komið og lítið á heildaráætlunina — Það kostar ekkert —■
Dragið ekki að panta, því færri munu komast með en vilja.
Beztu kveðjur
Ferðaskrifstoían SAGA
(Ingóllsstræti — gegnt Gamla Bíó — simi 17600).
P.S. Við svörum símanum í allan dag, nema í hádeginu.