Morgunblaðið - 03.04.1960, Side 22
22
MORCUlSfíLAÐIÐ
Sunnudagur 3. aprfl 1960
Skíðamót
á Siglufirði
f*0 t tatfré t tir fjlcryijh í lahiwá
Stefán er líka íþróttakennari
við Kennaraskólann, og sýndi
leikfimiflokkur þess skóla sem
gestir.
Atta hundruð börn og ungling-
ar mættu að Hálogalandi til að
vera viðstödd íþróttasýninguna
og hvetja skólafélaga sína í
keppni skólanna.
Laugarnesskólanemandi stekkur kistustökk, af stökkbretti
. og yfir snúru.
Athyqlisverð skóla-
keppni að Háloga-
landi
NEMENDUR gagnfræðadeilda
Laugarness og Réttarholtsskólans
efndu til fimleika og íþrótta-
keppni að Hálogalandi s.l. föstu-
dag. Iþróttakennari skólanna er
Stefán Kristjánsson, og átti hann
frumkvæðið að þessari sýningu,
sem er önnur í röðinni, er þessir
skólar efna til. í fyrra efndu nem
endurnir einnig til slíkrar sýn-
ingar og var ágóði hennar not-
aður til kaupa á íþróttabúningum
fyrir skólana.
og með aðstoðar stökkbrettis og
þriðja atriðið höfuðstökk og svif-
stökk á dýnu.
Að sýningu lokinni kepptu
skólarnir í boðhlaupi, hástökki og
handknattleik. — Boðhlupskeppn
in va r mjög tvísýn. Allt frá byrj-
un til enda voru sveitirnar svo
hnífjafnar að ógerningur var að
sjá hver myndi vinna, og síðustu
menn voru svo jafnir í mark, að
ekki varð á milli séð.
Hástökkskeppnin var mjög at-
hygiisverð. Þarna flugu dreng-
irnar hver af öðrum yfir 1,30 —
1.40 — 1.45 og 1.50, en þá fóru,
manna
KASTKLÚBBUR stangaveiði-
manna í Reykjavík, hélt aðal-
fund sinn 16. marz s.l.
Af skýrslu formanns, Alberts
Erlingssonar, var það ijóst, að
áhugi stangaveiðimanna fyrir
kastíþróttinni hefur farið mjög
vaxandi, bæði sem sjálfstæðri
íþrótt og sem nauðsynlegri þjálf-
un í notkun veiðitækja, sem er
grundvöllur fyrir sportlegum
veiðum.
Eitt aðalverkefni stjórnar
klúbbsins hefur verið og er það
að tryggja félagsmönnum full-
nægjandi æfingar- og keppnis-
svæði, en í því sambandi hefur
klúbbufinn haft mjög ófullnægj-
andi aðstöðu. Formaður tók það
fram, að vonir stæðu nú til þess
að úr þessu mundi rætast á næst
unni, en á því byggist framtíðar-
starf félagsins.
Kastmót voru haldin á árinu og
tekið þátt í heimsmeistaramótinu
í Scarborough, Englandi, s.l.
haust.
Verðlaunpeningar voru afhent-
ir fyrir ísl. met sett á árinu þeim;
Halldóri Erlendssyni í tvíh.
beituköstum með 17,72 gr. lóði:
97.00 metra, með 30 gr. lóði:
130.10 m og í einh. beitukast með
10.5 gr. lóði: 79.35 m og Sverri
Eíassyni í tvíh. flugukasti: 46.03
metra og einh. flugukasti: 42.07
Stjórnin var öll endurkosin, en
hana skipa: Albert Erlingsson,
Karl Bender og Sverrir Elíasson.
Eins.og venja er voru sýndar
kast- dg veiðikvikmyndir á fund
Laugarnesskólanemandi í stökki
af kistu
Eftir að Jón Sigurðsson, skóla-
stj. Laugarnesskólans hafði flutt
stutt ávarp hófst sýningin.
Tuttugu og sex manna flokkur
drengja, þrettán frá hvorum
skóla sýndu léttar staðæfingar,
eftir hljómlist af segulband'i. Ann
ar þáttur sýningarinnar var
þrenns konar stökk á kistu, án
Hér sést Réttarholtsnemandi skora mark hjá Laugarnesskói-
anum. Myndin ber glöggt merki þess að drengirnir kunna til
verka sinna, enda flestir þekktir kappliðsmenn, í 3. flokki
Reykjavíkurfélaganna.
þeir fyrst að fella, og allir nema
einn felldu 1.55, var það Jakob
Hafsteinn, nem. Laugarnesskól-
ans. Jakob reyndi við 1.60 — var
vei yfir hæðinni, en felldi er
hann sló fæti í rána, er haruí var
á ieið niður.
Lokaatriði keppninnar var
handknattleikur. Liðin voru mjög
jöfn, en lið Réttarholtsskólans þó
ákveðnara og skipað betri skot-
mönnum, enda sigraði Réttar-
holtsskólinn leikinn með 9—7.
— Sýningin og keppnin var í alla
staði skólanum og íþróttakennar-
anum, Stefáni Kristjánssyni, til
hins mesta sóma, og vafalaust
eiga margir af þeim, er þarna
komu fram eftir að skipa fremstu
raðir íþróttamanna á komandi
árum. — A.A.
■0■ Molar í
„A botninum"
í SPÖNSKU knattspyrnukeppn-
inni er Kanarieyjaliðið Las
Paimas neðst að stigum og svo
langt á eftir öðrum að ekkert
nema kraftaverk getur bjargað
liðinu frá falli niður í aðra deild.
Út af þessu er sögð sú gaman-
saga, að þjálfari liðsins hafi skrif
að skipstjóranum á kafbátnum
sem angraði Argentínumenn sem
mest fyrir skömmu, og spart
hann um ráð sem dugi til að
bjarga sér „af botninum".
Gengið upp í hæsta húsið
Bandaríski hástökkvarinn Tho-
SIGLUFIRÐI, 28. marz. — Skíða
mót Siglufjarðar var haldið s. 1.
sunnudag. Keppt var í göngu í
yngstu aldursflokkunum. Dreng-
ir 13—14 ára gengu 3 km. og
varð sigurvegari Björn Björns-
son á 14 mín. og 58 sek. Drengir
11—12 ára gengu sömu braut og
sigraði Sigurjón Erlendsson. —
Drengir 9—10 ára gengu 1 km.
Þar sigraði Jens Mikaelsson og
drengirnir 7—8 ára gengu sömu
braut, þar sigraði Guðmundur
Skarphéðinsson, sonur Skarp-,
héðins Guðmundssonar, skíða-
kappa. Tími Guðmundar var 8
mín .og 58 sek. — Þá var auka-
keppni í 15 km. göngu í tilefni
af því að hér voru staddir göngu-
garpar úr Fljótum í þeirri keppni
urðu fyrstir og jafnir bræðurnir
Jón og Sveinn Sveinssynir. Tími
þeirra var 56 mín og 36 sek.
— Stefán.
Kastklúbbur
stangveiöi-
Sendisveinn
Oss vantar nú þegar röskan og ábyggilegan
sendisvein.
Verzl. O. Ellingsen hf.
Bókband
Verkstjóri óskast í bókbandsvinnustofu í Reykjavík.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir miðvikudaginn 6.
apríl, merkt: „Verkstjóri — 9426“.
Hinn marg eftir spurði
einangrunarflóki
er kominn
J. Þorláksson & Norðmann
Hér sést Hallgrímur Þor-
steinsson, ÍR (nr. 7) skora
mark hjá Val. — Hallgrím-
ur er nýliði hjá lR, en hefir
þegar sýnt að hann er kraft-
mikill og f jörugur leikmaður.
r
I.R. og F.II. keppa
í kvöld
ELLEFU leikir verða leiknir í
dag í Handknattleiksmeistaramót
inu. Mótið hefst kl. 2 e,h. að Há-
logalandi og verður þá eftirtaldir
leikir: í 2. fl. kvenna: KR—Ár-
mann, Víkingur—FH og KR—
Fram. í 3. fl. karla: Valur—.
Fram, Ármann—KR og Haukar—.
FH. í 2. fl.-karla: Ármann—Vík-
ingur og KR—FH.
Mótið heldur svo áfram í kvöld
og hefst kl. 20.15, Fyrst leika í 3.
fl. karla: Víkingur og Haukar.
Síðan keppa í Mfl. karla Fram og
Akranes og loks verður leikur
milli ÍR og FH.
Rey k j avíkurúrval
körfuknattleiks-
manna
ÚRVAL körfuknattleiksmanna
frá Reykjavík mun keppa við
úrval körfuknattleiksmanna úr
varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli n.k. laugardag. Körfukapp-
leikurinn er einn liðurinn í mikl
um hátíðarhöldum, sem efnt
verður til í sambandi við vígslu
hins nýja og veglega íþróttahúss,
sem varnarliðið hefir látið reisa
á Keflavíku-rflugvelli.
Ingi Þór Stefánsson og Viðar
Hjartarson völdu liðið fyrir hönd
körfuknattleiksráðs Reykjavíkur
og verður það skipað eftirtöid-
um mönnum. — Hólmsteinn Sig-
urðsson ÍR; Þorsteinn Hallgríms-
son ÍR; Guðmundur Þorsteins-
son IR; Helgi Jóhannsson ÍR;
Kristinn Jóhannsson ÍS; Þórir
Arinbjarnarson ÍS; Guðni Guðna
son ÍS, Birgir Birgis Á; Lárus
Lárusson Á; Einar Matthíasson
KFR, Gunnar Sigurðsson KFR;
Ólafur Thorlacíus KFR.
mas, sem sett hefur hvert heims-
metið af öðru i sinni grein, varð
fyrir því eitt sinn að meiðast illa
í lyftu. Síðan hefur hann ekki
stigið fæti inn í slíkt hjálpar-
tæki en gengið alla stiga. Nú
hefur hann heitið því, að ef hann
nái að stökkva 2.25 metra, þá
skuli hann ganga upp stigana í
Empire State Building — hæsta
húsi heims.
AKRANESI, 2. apríl. — Blíðskap
arveður er dag eftir dag og nú
í gær lönduðu 19 bátar hér 157
lestum. Aflahæstir voru Svanur
með 34 lestir og Ver með 22,5
lestir. Allir bátarnir héðan eru á
sjó eins og fyrri daginn. — Oddur