Morgunblaðið - 03.09.1960, Side 19
Laugardagur 3. se^f. 1960
MORGUNBLAÐIÐ
19
— Kongó
Framh. af bls. 11.
ánægju: „Kongo hugsar fyrst og
fremst um verfclegt og raurihæít
takmark og er tortryggið gagn-
vart hinuim óhlutlægu bugsjón-
um, sem hafa hvarvetna amnars-
staðar í Afríku borið skaðvæn-
legan árangur".
Spegilmynd af vöm landsliðsins í „Pressuleiknu m“.
Eftir hverju fer valið
í landsliðið?
(Ljósm.: Sv. Þormóðsson)
f GÆR valdi landsliðsnefnd
KSf menn til írlandsferðar-
innar, en ísland á að Ieika
landsleik við írland í Dublin
11. sept. n.k. —
Val landsliðsnefndarinnar
er á þessa leið:
Markm. Helgi Daníelsson,
Akranesi, h.bakv. Árni Njáls-
son, Val; v. bakv. Rúnar Guð-
mannsson, Fram; h. framv.
Sveinn Teitsson, Akranesi;
m.framv. Hörður Felixsson,
KR; v. framv. Helgi Jónsson,
KR; h. útherji Örn Steinsen,
KR; h. innh. Þórólfur Beck,
KR; miðherji Ingvar Elíasson,
Akranesi; v. innherji Guðjón
Jónsson, Fram og v. útherji
Þórður Jónsson, Akranesi,
★
Það er vandasamt verk 'að
velja í landslið, og margar og
misjafnar eru skoðanir manna
um það hvaða menn eigi þar að
vera hverju sinni, og út frá hvaða
sjóriarmiðum velja skuli.
Oft hefur val landsíiðsnefnd-
arinnar verið gagnrýnt og komið
mönnum á óvart ■ og svo er
einnig að þessu sinni.
Engu er líkara, en að landsliðs-
nefndin hafi með þessu vali sínu
þótzt þurfa að ganga í berhögg
við allt réttlasti.
Akureyringar eru nýbúnir að
„bursta“ tvö af stigahæstu lið-
um 1. deildarinnar, en landsliðs-
nefndin telur samt engan Akur-
eyring nógu góðan til að vera í
aðalliðinu.
Steingrímur Björnsson, Akur-
eyri, lék á móti Þjóðverjunum,
samkvæmt vali landsliðsnefndar-
innar, og eftir leikinn var hann
af landsliðsnefndarmönnum jafnt
sem öðrurn ttalinn hafa fyllilega
uppfyllt þær kröfur, sem til hans
voru gérðar. Síðan hefur Stein-
grímur verið með Akureyringum
í leikum 1. deildarinnar og átt
einna mestan þátt í sigrum þeirra
yfir sterkustu Reykjavíkurfélög-
unum. — Að taka Stéingrím
Björnsson út úr landsliðinu er
firra, sem enginn skilur.
Guðjón Jónsson hefur ekki
þótt nógu góður til að leika inn-
herja með sínu eigin félagi í sum
ar, en landsliðsnefndin sér
ástæðu til að telja hann full-
góðan til að leika þá stöðu í
landsliði Islands. — Þetta fá fáir
skilið.
Rúnar Guðmansson á ekki
heima í landsliðinu í stöðu bak-
varðar.
Nei, það sem knattspyrnuunn-
endur vonuðust eftir að sjá í vali
landsliðsnefndarinnar voru nöfn
eins og Bjarni Felixson, Hreiðar
Ársælsson, Steingrímur Björns-
son, Jakob Jakobsson, Ellert
Schram og Jón Stefánsson. Og í
þetta sinn er val nefndarinnar
meir.Jitað félaga- og hreppapóli-
tík en riokkru Sinni fyrr.
Sú Spurning fer að vakna fyrir
alvöru, eftir hvaða reglum lands-
liðsnefndin -fer, Eftir svona val
fara menn að trúa þvi að félaga-
og hreppapólitík ráði þar miklu.
A. A.
HVERS VEGNA?
Hvað var það þá sem mistókst?
Hvers vegna lögðu Belgir niður
völdin með meiri flýti en nokk-
urt annað nýlenduríki? Og hvers
vegna komu þeir sér, er þeir
höfðu lagt niður völdin, í þau
vandræði, sem raun ber nú vitni?
Svarið hlýtur að vera að finna
í paternalisma. Allar nýlendu-
stefnur hafa í sér ögn af paternal
isma, en Belgir hófu hann upp í
heimspeki. Nú fyrir skemmstu
skrifaði belgiski utanxíkisráð-
herrann M. Wigny um það sem
„göfuga hugmynd".
Paternalismi þeirra var harð-
stjórn og þeir héldu harðstjórn-
inni við með sameinaðri framlínu
hvítra manna — „Trinity“. Þeir
litu á stárf sitt sem útbreiðslu
menningar og siðmenntunar: að
gera gott og gera vel.
Belgir skildu það raunverulega
aldrei, að það þarf tvo, til þess
að halda sönnu paternalisfcu sam
bandi. Þegar eitthvað mistekst
milli föður og sonar, verður sá
fyrrnefndi að geta annaðhvort,
beitt harðstjórn eða breytt um
framkomu. f báðum tilfellunum
breytist sambandið milli þeirra.
Þegar til kastanna kom, hötfðu
Belgir enga löngun til að beita
harðstjórn. Þeir reyndu að breyta
framkomu sinni, en sú tilraun mis
tóJtst og að lokum urðu þeir rugl-
aðir, búnir til varnar, gremju-
fullir og áhrifalausir.
Löngu áður en reiðarslagið
dundi yfir þá, höfðu Belgir við-
urkennt þörf þess að taka með í
reikninginn vaxandi pressu frá
öðrum hlutum Afríku, efcki síð-
ur en frá þeirra eigin trúboðs-
æfðu évolués, millistéttinni sem
leyst hafði verið úr pólitisikum
höftum og vanizt vestrænum hátt
um og siðum. En þeir rangdæmdu
gersamlega atburðahraðann og að
miklu leyti væri nauðsynlegt að
gera tilslakanir.
Gís/i Einarsson
héraðsdómslögmaður.
Málfiutningsstofa.
Laugavegi 20B. — Simi 19R3L
EINAR ASMUNDSSON
hæstaréttarlögmaður
HAFSTEINN SIGURÐSSON
héraðsdómslögmaður
Skrifstofa Hafnarstr. 8, H. hæð.
Sími 15407, 19113.
Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig með gjöfum
og skeytum á 80 ára afmæli mínu 22. ágúst.
Sigríður Normann.
Þrefaldur sigur
Bandaríkjamanna
RÓM, 2. sept.: — Bandarísku
I frjálsíþróttamennirnir byrjuðu
daginn í dag glæsilega, er þeir í
Tamara Press vann
með yfirburðum
ROM, 2. sept. — Hin kraftalega
rússneska stúlka Tamara Press
vann kúluvarp kvenna og setti
nýtt Olympíumet, 18,32 metra,
og aðeins 10 centimetrum
styttra en heimsmetið.
Bandaríska stúlkan Earlene
Brown vann forkeppnina, sem
fór fram fyrir hádegi í gær,
kastaði þá lengst 16,15 metra. í
forkeppninni var það auðséð að
Tamara lagði ekki hart að sér
og lét sér nægja að kasta yfir
lágmarkið til að geta haldið á
fram í keppninni.
Þegar að úrslitunum kom dró
hún hins vegar ekkert af sér.
Hin sanna Tamara Press kom í
Ijós, og áhorfendur þurftu efcki
lengur að efast um hvaða kona
væri bezti kúluvarpari heimsins,
svo voru yfirburðir hennar mikl-
ir.
Undrun vakti dugnaður þýzku
stúlkunnar Johanna Muttge, er
hún komst upp á milli Tamara
og Earlene Brown með 16,61 m
varpi, en Brown náði lengst
16,42 metra og hlaut bronsið.
Fjölskyldustyrkleiki
Systurnar Irina og Tamara Press
vekja mikla og verðskuldaða at-
hygli á Olympíuleikunum. Þær
hafa unnið sitt gullið hvor og ef
þær kepptu sem þjóðarheild
myndu þær skipa 18. sætið á stiga
lista þjóðanna, sem taka þátt í
leikunum.
Systurnar myndu sem sagt vera
ofar á stigalistanum en lönd eins
og Frakkland, Júgóslavía, Finn-
land og Kanada.
Tamara er fulltrúi kraftanna
í Pressfjölskyldunni og það var
eingin heppni sem færði henní
sigurinn í gær, því á æfingu í
Róm hafði hún kastað yfir heims-
metið, og þar fyrir utan á hún
þriðja bezta kringlukastsárangur
í heiminum.
Irina er ein af fóthvötustu
stúlkum veraldarinnar og vann í
fyrradag gullið í 80 m grinda-
hlaupi kvenna, að vísu særði
hún stollt fjölskyldunnar með að
setja ekki heimsmet, en bót er
í að hún jafnaði það nýlega.
gærmorgun unnu þrefaldan sig-
ur í 400 metra grindahlaupinu.
Glenn Davis í sérflokki
Glenn Davis, Ólympíumeistar-
inn frá Melbourne og heimsmet-
hafinn, kom fyrstur í mark á
nýju Ólympíumeti, 49.3 sek. Silf-
urverðlaunin hlaut C. Cushman
(49.6) og bronzverðlaunin R. Ho-
ward, á 49.7.
Tíminn í hlaupinu var það góð-
ur að alls voru sett 5 met. Auk
Ólympíumetsins, setti Þjóðverj-
089
inn H. Janz þýzkt met og Ev-
rópumet, en hann varð 4. á 49.9
sek., og Finninn J. Tintamaki,
sem varð 5., setti finnskt met og
Norðurlandamet, 50.8 sek. Tími
Glenn Davis er aðeins 1/10 úr
sek. frá heimsmetinu, sem hann
á sjálfur, en hann bætti Ólympíu
metið frá Melbourne um 8/10 úr
sek. —•
Landarnir tveir Cliff Cushman
og Dick Howard, börðust um
annað sætið. Þeir voru hnífjafnir
er þeir nálguðust markið, en er
þeir voru við markið kastaði
Cushman sér fram og endasend-
ist fram yfir sig á brautinni. —
Hann var dæmdur annar.
Eftir hlaupið kunnu Banda-
ríkjamennirnir sér ekki læti og
föðmuðust og kysstust
Móðir okkar
KRISTlN ARNADÓTTIR
lézt að Elli og hjúkrunarheimilinu Grund 2. þ. m.
Margrét Kjartansdóttir,
Guðbjöm Kjartansson, Bjarni Kjartansson.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR
Barmahlíð 55,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
6. september kl. 1,30 e.h.
Fyrir hönd vandamanna.
Jónína og Anna Bjarnardætur.
Útför föður okkar
ÓLAFS SIGURÐSSONAR
kaupmanns,
sem andaðist 27. ágúst fer fram frá Fossvogskirkju
í dag 3. september kl. 10,30. Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Sigfrið Ólafsson, Margrét Óiafsdóttir.
Þökkum innilega alla samúð við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu
PÁLlNU SIGRlÐAR STEINADÓTTUR
Þórliallur Baldvinnson, Halldór Þórhallsson,
Þórhallur Baldvinsson, Halldór Þórhallsson,
Innilega þökkum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og jarðarför mannsins míns,
föður okkar og lengdaföður
PETURS iiannessonar
fyrrverandi póst- og símstjóri, Sauðárkróki.
Sigríður Sigtryggsdóttir,
börn og tengdaböm.
Þökkum innilega öllum nær og fjær auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför
vilhjAlms jónssonar
Miðhúsum, Grindavík.
Jóhanna Bjarnadóttir,
og börn hins Iátna.