Morgunblaðið - 16.10.1960, Side 1

Morgunblaðið - 16.10.1960, Side 1
> II Sunnud. 16. okt. 1960 ueislavir 1. Elimin- plastið í APRÍL í vor hitti ég Kjarval í Austurstræfi. Veður var gott, logn, loft skýjað en bjart af sólmistri. Meistari Kjarval og Bjöm Hallgrímsson, forstjóri, voru á leið austur götuna og ég þóttist vita að meistarinn væri að segja Birni af einhverjum stórfurðum veraldarsögunnar, en svo færðist hann allur í aukana, steig fastar til jarðar og ekki eins afsakandi, sló báðum hönd- um út í loftið og varð þungur í dómum, þá vissi ég hann var að tala um örlög Hvitaness- goðans, sem var eins konar bandingi sinna föðurmorðingja: „Þetta er ekki gott“, sagði hann við mig síðar, „það vantar intellí gensíufrymið í þetta fólk, við skulum vara okkur á því“. Ég gekk í humátt til þeirra og þegar Kjarval kom auga á mig kippti hann í ermina á Birni, eins og hann hefði séð sjálfan Skarphéðin, og ætlaði að laum- ast yfir Austurstræti að Lands- bankatröppunum. Hann gaut til mín hornauga og þá veifaði ég og hann vissi það var ekki und- ankomu auðið. Þá brosti hann og beið eftir mér, svo leiddi hani. mig vestur Austurstræti. „Ég hef verið að lesa Heims- kringlu í nótt“, sagði hann, „það er meiri viðbjóðurinn. Og hugs- aðu þér, það var einhver páfi í Bóm sem alltaf var reiðubúir.n að tala við Norðmennina. Það var meiri kjarkurinn". „Þú ætlar að fara að sýna, Kjarval?" „Nei, ég er hættur við bað. Ég held þessar myndir séu allar 6 fullgerðar. Ég hef verið að leita að sjálfum mér í þessum mynd- um, en hef ekkert fundið. Menn eiga ekki að taka þátt í opin- beru lífi, nema þeir hafi uppá eitthvað að bjóða, það getur ver- ið móðgun við umhverfið að hafa ekki fundið neinn samhljóm í fyrirbrigðinu. „Hefurðu ekkert ort nýlega?" spurði ég útúr. „Ég hef verið að yrkja kvæði um Skarphéðin" svaraði hann. „Hundar geta verið skemmtileg- ir. Þeir eru oft miklu greindari en eigendurnir, þó þeir haldi að þeir hafi í fullu tré við þá. En það er ekki rétt, það er miskalkúlerað. Það er hund- ur austur á Héraði, sem ég sendi stundum roð í póstkröfu. Það er skemmtilegur hundur og garað- ur. Hann er að minnsta kosti ekkert verri en eigandinn. Veiztu hvað ég skrifa utan á póstkröfuna til hans? Ég skrifa: To my friend, hund“. „Heldurðu ekki að þú -ýnir, Kjarval?" „Ætli ég verði- mér ekki til skammar? En það væri þá kom- inn tími til“. „Má ég eiga samtal við þig, þegar sýningin verður?“ „Viltu ekki bara birta mynd- ir?“ „Jú, myndir eru ágætar, en við verðum að tala saman líka“. „Jæja, kannski. En það verð- ur þá að vera um ópraktíska hluti eins og himinsplastið. Ver- ið þér sselir, herra minn“. ★ Ég hitti Kjarval nokkrum dög um síðar. Hann tók undir hand- legginn á mér og við gengum enn eftir Austurstræti. Þá segir hann allt í einu við mig: „Heyrðu, nú er ég búinn að gerbreyta Listamannaskálanu n. Nú er fyrst hægt að halda í hon- um sýningar. Þú verður að koma með mér og sjá hann. Ég er búinn að eyða öllum pening- unum mínum í að smíða stalia á veggina. Nú er þetta loksins orðið gott pláss og samiboðið list- inni. Ég sagði Valtý Péturssyni að nú væri nokkuð öruggt að sýna í skálanum. En þetta hefur kostað mig stórfé og ég verð að fara að selja myndir til að geta borgað brúsann“. „Ætlarðu þá að halda sýn- ingu?“ „Nei, það ætla ég ekki. Ég hef verið að athuga hvað ég á en það dugar ekki, það gerir verðfallið á krónunni. Maður verður að fara varlega, það geta verið hættulegir tímar framundan". Við fórum yfir Austurvöll. Kjarval vildi ganga fyrir aftan styttu Jóns Sigurðssonar: „Aldrei hann fyrir aftan kýr, orustu háði neina“, raulaði hann lágt, horfði svo stríðnislega upp á forsetann og tók virðulega of- an. „Er ég ekki mátulegur núna“, hélt hann áfram, „enginn intellí- gensíustrengur sleginn, allt græskulaust og mátulegt, fianst þér það ekki? Maður á ekki ailt- af að vera upp á intellígensíuna, það er eins og reyta úr úttroðn- um poka, en það dugar ekki, maður verður að vera mátuieg- ur líka. Já, þetta er eins og að tína hey úr poka, samanber ailt hold er hey“. VIÖ Við gengum að Listamanna- skálanum og hann var óvenju- þögull það sem eftir var ieiðar- innar, en þegar við vorum komn ir inn í skálann, benti hann á veggina, baðaði út höndum og sagði: „Nú getur hver sem er haldið hér fallega sýningu". Við skruppum síðan upp í vinnustofuna hans í Austur- stræti, þangað hafði ég ekki áð- ur komið. Hann tók fram nokkr- ar myndir sem hann hafði verið að vinna við og sýndi mér. Svo gekk hann afturábak og kíkti á myndirnar. skyggði hönd fyrir auga, flutti þær til og athugaði þær gaumgæfilega. Ég fylgdist með þessu bram- bolti hans af áhuga, standandi á nokkrum Morgunblaðsárgöng- um, og sú hugsun hvarflaði auð- vitað að mér að prentsmiðja blaðsins væri einskonar gó'f- teppagerð líka. Og ég sem hélt þetta væri allt svo merkilegt og til þess gert að það væri bundið í þungar skinnbækur! Ég leit á útsíðurnar á tveimur eða þremur blöðum sem ég stóð á: Stefán Jóhann skipaður sendi- herra í Kaupmannahöfn. Mink- ur á Hótel Borg. Á gömlum kex kassa við hlið mér voru myndir af Eggerti Stefánssyni og Einari Benediktssyni. Kjarval lát bað afskiptalaust, hvernig ég ' út- spíóneraði vinnustofu hans. „Þessi mynd er ekki nógu góð“, sagði hann eins og við sjáiían sig. Svo sneri hann sér að mér og bætti við: „Það er önnur mynd undir henni og hún er lík- lega miklu betri. Maður veit aldrei hvenær það gamla er betra en það nýja. Ég skal sýna þér hvernig við förum að þessu. Nú helli ég terpentínu yfir þessa mynd og þá rennur hún burf, eri samta Meistarinn og dóttir ha,ns. arva gamla myndin verður eftir. Svona fáum við stundum að sjá liðna daga í lífi okkar, þá er það forsjónin sem hellir“. Svo sótti hann málningardollu, lagðist á fjóra fætur á gólfið sem var í öllum regnbogans lit- um og hellti terpentínu yfir myndina, svo hun rann af og gamla myndin kom í ljós. Þá stóð hann upp, gekk afturábak, kveikti í sígarettu og sagði há- tíðlega: „Þarna sérðu góði. lífið er terpentína, ég segi þér satt“. afbrýðissamur?" „Nei“, svaraði ég. „Ekki afbrýðissamur?, nú það vantar þá eitthvað í þetta hjá ipér“. sagði hann. „Má ég ekki birta þetta í Morgunblað- inu?“, spurði ég. Hann leit á mig tortrygginn, svo sagði hann eftir stutta um- hugsun: „Þeir hafa verð að biðja um þetta í Hólaprenti, en maður verður að fara varlega — mað- ur verður að gaeta þess að skyggja ekki á aðsa“. drýgðir í Neskaupstað eða Kongó, vertu sæll“. Þegar við hittumst nokkru síð- ar í vinnustofunni hans að Sig- túni 6 sem hann var nýfluttur í, stóð hann á miðju gólfi og virti fyrir sér fimm eða sex myndir sem hann málaði í sumar. Hann virtist heldur ánægður með myndirnar og það var gott hljóð í honum. Ég vildi taka þátt i sigri hans og sagði: „Ég held bara þú sért meist- ari, Kjarval“. „Já, þetta er að lagast", sagði hann, „líttu bara á þær þessar, stendur í brekku brúsaskeggur og bíður mín þar . . Ég sagði: ! r r „Mér finnst þetta vera ný mó- tíf hjá þér, það er meiri trú á landið í þessum myndum, þær eru grænni en gömlu myndirn- ar . . .“. „Þetta er nóg“, greip hann fram í, „við þurfum ekiki að samtala meira í dag, þetta var gott hjá þér“, — og horfði á mig eins o.g hann væri í senn hissa og þakklátur: „Ég hélt ekki að þú værir svona gáfaður“, bætti hann við, „stendur í brekku brúsa- skeggur . . .“. Ég sagði við yrðuim að tala saman í dag. „Það eru svo margir mektar- menn í bænum að það er betra að fara varlega, já fara sér reglu lega hægt“, hvíslaði hann. „Það er oft. nauðsynlegt að fara sér hægt. Ég var nývaknaður þegar þú/ komst og skammaðist mín fyrir að hafa sofið svona lengi frameftir í þessu góða veðri, en þú verður að afsaka það. Svo þú heldur að landið sé að grænka? Já, kannski er það rétt hjá þér. Kannski hefur landið samið vopnahlé við augun í okk- ur, svo þau eru nú loksins farin að sjá hvernig það er í raun og veru. Þetta er eins og að sjá konuna sína allt í einu í nýju ljósi, af því maður hefur komizt á snoðir um að einhver annar er nýbúinn að uppgötva hana. En það eru margir mektarmenn í bænum núna og við skulum tala alvarlega, því það er mikil al- vara í kringum svoleiðis fólk. Þetta er nú einu sinni fólkið sem gefur okkur hinum að éta, þraut segl um rímvelli . . .“. „Það hefur verið gott veður undanfarna daga“, skaut ég inn í. „Nújá, þú hefur tekið eftir því“, sagði Kjarval. „Það er einkennilega blátt him inplastið núna“, sagði ég. „Er það ekki“, sagði hann, „ég ■n» Saqt Hann sótti pensil og fór að dunda við nýja mynd, sagði það vantaði hvítan lit hér, gulan þar og spurði hvort ég væri ekki sammála. — Jú, ég var það. „Þú ert séní“, sagði hann þá, og eftir svo sem 10 mínútur tók hann ofan hattinn og tilkynnti mér að myndin væri búin. „Þú hefur bjargað þessari mynd, ég þakka þér fyrir það góði, að þú skyldir hafa bjargað þessari mynd sem ég er búinn að glíma við árum saman. Fyrir starf þitt í þágu þessarar mynd- ar skal ég gefa þér eins mikið af gömlum Morgunblöðum og pú vilt og ég skal líka lesa íyrir þig síðasta kvæðið sem ég hef ort“. Hann tók upp blöð úr vasan- um og hóf lesturinn. Eftir fyrsta erindið gaut hann til mín aug- unum og spurði: „Ertu orðinn 2. Að tapa skóla Svo leið sumarið og það var komið fram í september, þegar ég hitti Kjarval næst. Ég hringdi til meistarans og spurði, hvort hann gæti ekki skroppið til mín. Nei, hann sagði það væri ekki hægt — „en hittu mig á Hótel Borg í fyrramálið klukkan hálf tíu“, bætti hann við. „Nei, það vil ég ekki“. svaraði ég, „ég vil ekki hitta þig þar. Hótel Borg hefur sömu ókosti og kvenfólk, hún er hættuleg og hún þreyiir og getur breytt virðulegu sam- tali í praktíska hluti“. Kjarval sagði: „Ja, ég veit þá ekki, nvort ég get talað við þig, lífið er svo radíóaktíft núna að mér finnst ég eiga hlut í glæpum sem eru finn það er veiðináttúra í þér núna, vinur“. „Hvernig er það, Kjarval. Er aldrei hægt að fá þig til að setj- ast niður?" „Jú, stundum". „Hvenær helzt?“ „Þegar ég les blöðin, en finnst þér ekki þessi himinblámi dálít- ið góður?“ og svo benti hann á myndina sem hann var að föndra við. „Hvað heitir hún?“ spurði ég. „Ja, hvað á ég að kalla hana, Milli hrauns og hlíða? Lízt þér ekki nokkuð vel á það? Mér er sagt að þetta séu góðar myndir og sumum finnst þær töfrandi. Ég er orðinn gamall maður og verð að slóra við mynóirnar mín- ar og stúdera þær og má ekki selja þær eins ört og ég hef gert, því ég þarf að horfa á þær og læra af þeim þess vegna er allt Frh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.