Morgunblaðið - 26.10.1960, Qupperneq 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 26. okt. 1960
Utg.: H.l. Arvakur Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar5 Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, simi 33045.
Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
FJÁRLAGARÆÐA
1PYRIR stuðningsmenn rík-
istjórnarinnar voru út-
varpsumræðurnar í fyrra-
kvöld. mjög ánægjulegar, því
að vart getur hjá því farið að
þeir, sem á þær hlýddu, hvaða
flokki sem þeir annars fylgja,
hafi gert sér ljósa grein fyrir
málefnafátækt stjórnarand-
stöðunnar og hinum mikla
styrkleika núverandi ríkis-
stjórnar. Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, ræddi
vandamálin af festu og ein-
urð en þó fullri prúðmennsku
eins og honum er lagið. Hann
drap á nokkuð af því, sem
þegar hefði á unnizt í sparn-
aði ríkisins og benti á, að nú
hefði verið brotið blað í fjár-
málastjórn landsins með all-
mikilli lækkun útgjalda
flestra gjaldagreina fjárlaga,
en áfram væri unnið að því
að draga úr ofvexti ríkis-
báknsins. Hér skal aðeins
drepið á fátt eitt af því, sem
ráðherrann skýrði frá.
I öllum ráðuneytum er
unnið að rannsókn sem mið-
ar að því að leggja niður
óþarfaí- nefndir og fjármála-
ráðuneytið eitt hefur ákveðið
að leggja niður hvorki meira
né minna en 250 nefndir.
Hér hafa viðgengizt þau
fráleitu vinnubrögð að birta
ekki ríkisreikninginn fyrr en
hann var orðinn tveggja eða
þriggja ára gamall og hefur
gagnrýni þá verið orðin
tilgangslítil. Á þessu verð-
ur nú gagngerð endurbót, því
að frumvarp að ríkisreikn-
ingi fyrir árið 1958, hefur
þegar verið lagt fyrir Al-
þingi og reikningur ársins
1959 verður lagður fyrir þing-
ið á næstunni og væntanlega
afgreiddur fyrir áramót.
Þá drap ráðherrann á það
að fjárveitingarnefnd hefði í
samráði við vegamálastjóra
fækkað fjárveitingum til
vega en aukið jafnframt fé
til þeirra verkefna, sem
hverju sinni er að unnið. Hef-
ur þetta sparað mikið fé í
flutningi verkfæra og vinnu-
flokka og talið að fjórðungs
fækkun verkefna hafi sparað
ríkissjóði a. m. k. hálfa millj-
ón króna. Er einsýnt að
lengra ber að ganga inn á
þessa braut. Þa benti ráð-
herrann á, að sameining Tó-
baksverzlunar ríkisins og
Áfengisverzlunariuuar gæti
sparað 11 manna starfshald
og mikinn skrifstofukostnað,
og væri þess vegna gert ráð
fyrir slíkri samemingu.
Fram kom í ræðu fjármála-
ráðherra, að rekstur Skipaút-
gerðar ríkisins væri svo ó-
hagkvæmur, að spara mætti
hvorki meira né minna en
fimm milljónir króna án þess
að draga úr þjónustu þeirri,
sem Skipaútgerðin veitir. Og
margt fleira var athygilsvert,
sem hér er ekki tóm til að
rekja, enda hefur sumt af því
áður verið rætt. En megin-
atriðið er, að nú er gerð al-
varleg tilraun til að spyrna
við fótum, og vissulega má
fjármálaráðherra og ríkis-
stjórn treysta því að allur al-
menningur stendur þétt að
baki stjórninni, er hún held-
ur áfram þessa braut sparn-
aðar og hagsýni. Vart fer held
ur milli mála að víðar muni
pottur brotinn en hjá Skipa-
útgerð ríkisins, og þeim ríkis-
fyrirtækjum, sem sérstaklega
hafa verið tilnefnd.
Ræður stjórnarandstæð-
inga, þeirra sálufélaganna
Eysteins Jónssonar og Lúð-
víks Jósefssonar, stungu mjög
í stúf við málflutning stuðn-
ingsmanna ríkisstjórnarinn-
ar. Falsanir þeirra voru svo
augljósar að hvert manns-
barn hlaut að sjá í gegn um
þær, og furðulegt að vanir
stjórnmálamenn skuli halda
að hin heimskulegustu ósann-
indi séu líkleg til pólitísks
framdráttar. Nokkur dæmi
skulu nefnd.
Því var haldið fram að
ríkisstjórnin hefði eytt á
fimmta hundrað milljóna af
yfirdráttarlánunum hjá Ev-
rópusjóðnum og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, þótt allur
landslýður viti að minna en
ekki neitt af því fé hefur far-
ið til vörukaupa, heldur ein-
göngu til að greiða óreiðu-
skuldir frá tímum vinstri
stefnunnar.
Þá var sagt að bi’ó, hótel og
bankahús þytu nú upp sem
afleiðing af afnámi fjárfest-
ingareftirlits, þó að sannleik-
urinn sé sá að á öllum þess-
um byggingum hafi verið
byrjað meðan fjárfestingar-
eftirlit var í gildi. Reynt var
að falsa tölur um sparifjár-
aukninguna með því að taka
með fyrstu mánuði ársins áð-
ur en efnahagsráðstafanirnar
voru gerðar o. s. frv.
Að lokum undirstrikaði Ey-
steinn Jónsson svo tryggð
Framsóknarmanna við komm
úniskar starfsaðferðir „al-
þingis götunnar“ með því að
segja að stöðva þyrfti lög-
mætar aðgerðir ríkisstjórnar-
innar með „nógu skörulegri
andstöðu almennings í land-
, inu“.
UTAN UR HEIMI
Sally, Amy og Moe á blaðamannafundi eftir geimferðina.
■
ÉiBi I
Mýs í methœð
ÞRJÁR svartar mýs, Sally,
Amy og Moe, settu nýlega
nýtt heimsmet. Þeim var
skotið í bandarískri eldflaug
frá Canaveralhöfða, komust í
rúmlega 1100 kílómetra hæð
og fóru samtals um 8.000 km.
vegalengd. I síðustu viku
voru mýsnar þrjár til sýnis
á blaðamannafundi, og virt-
ist ekki hafa orðið meint af
ferðinni.
Dr. H. C. Clamman, sem er sér
fræðingur í geimferðasjúkdóm-
um, sagði á blaðamannafundin
um, að sennilega hefði maður
eins lifað ferðina af.
Hann sagði blaðmönnunum að
það eina, sem fyrir mýsnar hefði
komið í ferðinni, væri það að
hjartsláttur þeirra hefði aukizt
nokkuð við flugtak eldflaugar-
innar.
Eins og fyrr er sagt komust
mýsnar í 1100 kíiómetra hæð og
er það meiri hæð en nokkur lif-
andi vera hefur náð. í ferðinni
fóru mýsnar m. a. um Van Allen
geislabeltið.
Of breið fyrir
breiðtjald
„KLEOPATRA“ verður ein-
hver stórkostlegasta kvik-
mynd, sem tekin hefur verið
— ef hún þá verður nokkurn
tima tekin. Þessi stórmynd,
sem 20th Century Fox félagið
hefur undirbúið töku á í Pine-
wood Studios utan við Lond-
hefur vakið mikið umtal
on
kvikmyndaáhugamanna
allan heim.
um
EIRÐARLEYSI
Áætlað er að myndin kosti fuil
gerð um 220 milljónir króna og
verði dýrasta mynd, sem tekin
hefur verið í Englandi. En nú heí
ur starfsfólkið beðið í sex vikur
og ekkert hefur gerzt. Stjórnand-
jinn, Walter Wagner, hefur dag-
| lega mátt horfa á Peter Finch,
! sem á að leika Sesar, og Stephan
Boyd, sem á að leika Markús
Antoníus, ráfa eirðarlausa um
leiksvæðið ásamt 1000 aukaleik-
urum.
VEL BORGAÐ!
Ástæðan yrir eirðarleysinu er
sú að verið er að bíða eftir aðal-
leikkonunni, bandarísku stjörn-
unni Elizabeth Taylor, sem leika
á Kleopötru. Þótt Elizabeth fái
sem svarar rúmlega 20 milljónum
króna fyrir að leika í myndinni,
hefur hún verið í felum undan-
farið. Hún kom til Englands fyrir
mánuði ásamt manni sínum
Eddie Fisher og kom þá snöggv-
ast til að láta reynslumynda sig,
en síðan lítið látið sjá sig.
LEIKSVIÐIÐ TILBÚIÐ
Árangurinn er að sjálfsögðu
stóraukinn kostnaður fyrir kvik-
myndafélagið, sem þarf að greiða
um 65.000 krónur á viku í leigu
fyrir vinnupalla, sem halda leik-
sviðinu uppi, auk venjulegra
vinnulauna starfsfólks og leikara.
Leiksviðið, sem er hin forna,
glæsilega borg Kleopötru, Alex-
andría, er löngu fullgert og stend
ur umlukið gulnuðu ha'ustlaufi
skóganna í Buckinghamshire.
Meðfylgj andj mynd er tekin úr
flugvél af leiksviðinu.
En hvers vegna 511 þessi bið?
Opinbera skýringin er sú að Eliza
beth Taylor hafi verið orðin of
feit og sé nú að megra sig. Við
komuna voru teknar af henni 17
reynslumyndir í búningum og
þegar hún sá þær lýsti hún því
yfir að 16 myndanna væru gjör-
samlega óhæfar.
ER AÐ MEGRA SIG
Myndin er tekin með Todd-AO
vélum sem krefjast mikillar ná-
kvæmni í hlutföllum milli hæðar
og breiddar leikaranna, og sýndu
reynslumyndirnar að Elizabeth ‘
var of breið. Nú er beðið meðan
hún grennir sig. Það getur tekið
viku enn, það getur eins tekið
lengri tíma. Á meðan beðið er,
ganga leikarar og aukaleikarar
um í eirðarleysi og spyrja sjálfa
sig hvort þessi stórmynd verði
nokkurn tíma að veruleika. Það
einasta sem víst er, er að leik-
sviðsborgin Alexandría stendur
þarna eftir að 1.000 reistu hana
á 14 vinkum.En borgin er í eyði,
og brezka haustveðrið er á
næstu grösum með tilheyrandi
þokum og úrkomu, sem útiloka
alla kvikmyndatöku.
Leiksviðsborgin Alexandría séð úr loftL