Morgunblaðið - 26.10.1960, Page 16

Morgunblaðið - 26.10.1960, Page 16
16 MORGVNtlAÐIÐ Miðvikudagur 26. okt. 1960 — Mér þykir það svo leiðin- legt, stamaði hún loksins. Hana langaði svo til að segja eitthvað, sem gæti glatt hann, en kom eng um orðum að því. — Æ . . bara ekki þetta, sagði hann biðjandi, og lágri rödd. En á þessari vandræðastund missti Sylvia þolinmæðina. Hún haíði án árangurs reynt að vekja á sér athygli, en nú lagði hún framlappirnar á handlegg- inn á Paige. I>au urðu bæði fegin þessari truflun. — Hún er fegin að sjá yður, sagði Phyllis, og var nú rólegr: í málrómnum. — Já, það er líka orðið langt síðan. . . Það er heldur engin mynd á að fara svona með vin sinn, en. . . Skýring hans endaði með ógreinilegu: — En það verð ur ekki hjá því komizt. Svo stóð hann kyrr og klappaði tíkinni, en sneri svo aftur að Phyllis. — Mér þykir leitt að hitta yður á þessum- stað, sagði hann alvarlega. — Þá fer ég bara aftur. — Þér vitið vel, hvað ég á við Hann svaraði án þess að brosa, og henni fannst hún vera niu ára krakki. — Það eru allskonar menn hérna í skóginum. Voruð ■ þér ekki vöruð við því? — Sylvia gætir mín. — Það næði nú skammt. Sylvia gengur ekki með byssu, og það þarf litla kunnáttu til að hitta hana. Þér verðið að lofa mér að gera þetta ekki aftur, góða mín. Orð gátu verið nokkuð merki- leg. Þarna þóttist maður vita upp á hár hvað hvert orð þýddi, en svo var hægt að segja þau í þeim tón að þau fengu alveg nýja merkingu. ,,Góða mín“. . þetta lét svo vel í eyrum og gaf svo mikla öryggiskennd. — Ég skal ekki gera það oftar, hr. Paige, svaraði hún alvörugef- in, — og nú fer ég . . . enda var ég alveg að snúa við . . bætti hún við, til þess að hann skyldi ekki halda, að hún væri að flýj? hann. — Það er engin hætta meðan ég er hérna, og ég skal gjarna fylgja yður á leið, ef ég má. En getum við ekki beðið dálitið og talað saman, úr því að við höfum hitzt hér? Hann brosti ekki, er. augun voru biðjandi. Phyllis kinkaði kolli, eftir andartaks hik, og þau gengu aft- ur að klettinum þar sem hún hafði áður setið með drauma sína. —Hér er fallegt: sagði Phyllis og horfði yfir dalinn. Sylvia lagðist niður á milli þeirra og það var eins og hún andvarpaði af gleði. Paige lét vel að henni. — Það er eins og hún sæki til yðar, sagði hann og strauk rauða hausinn á tíkinni. Phyllis kinkaði kolli, eins og viðutan. — Það er merkilegt, sagði hann, eins og við sjálfan sig. — Nokkuð svo. Röddin í Phyll is var hálf-ertnisleg, en bros hennar var innilegt. — Þér vitið vel, hvað ég á við, hélt Paige áfram með dálít- illi óþolinmæði. — Sylvia hefur aldrei gefið sig að kvenfólki. Seg ið méb . . . Phyllis leit á hann spurnar- augum. — Viljið þér svara mér einni spurningu — bara fyrir forvitni mína? Þekkti Sylvia yður aftur, þegar þér komuð til Gibson-hjón anna? Phyllis hætti að horfa á dalinn og gat ekki annað en hlegið þeg- ar hún minntist þessarar ein- kennilegu móttöku .... Hún rétti út höndina og klappaði Sylviu. — Það þykir mér vænt um, sagði Paige. — Það hlýtur að hafa verið gaman fyrir yður að hitta gamla kunningja, þegar þér komuð. — Já, það var það sannarlega, og Sylvia fagnaði mér vel þegar ég kom. — Hún er stundum óþarflega nærgöngul manni, það veit ég vel, sagði Paige. Hún hefur oft vakið mig á nóttunni og reynt að stökkva upp í rúmið til mín. — Ekki er hún mér neitt til ama. Hann hló og hún gat ekki skilið, hvað honum hafði fundizt skrítið. — Hún er alveg einstök, þegar maður á viðtal við hana, hélt Paige áram og ræðumannstónn- inn hjá honum gaf tii kynna, að hann ætti bágt með að halda sér við hættulaus umtalsefni. — Það er vegna þess, hvað hún er góð að hlusta. Það hefur yður víst aldrei dottið í hug. — Haldið þér það ekki? Phyll is fannst á öllu, að viðræður þeirra ætluðu alveg að stranda. Paige hallaði sér aftur, studd- ist á annan olnbogann og strauk sig um ennið. Sylvia ieit við og horfði á hann. — Þú er skynsöm, sagði hann lágt. — Einhverntíma þegar þú ert orðin þreytt á að hlusta, segirðu frá öllu, sem þú hefur heyrt, er það ekki? — Það ætla ég að vona, að hún geri ekki, sagði Phyllis. Paige rétti aftur úr sér, eins og eftirtekt hans væri vakin, og unga stúlkan var sér þess meðvitandi, að nú mundi hann koma að efninu, sem þau höfðu svo mjög forðazt að nefna á nafn. Hann laut í áttina til hennar. Hún hristi höfuðið og sneri sér undan með hálflokuðum aug um. Rödd hans hafði verið mjög viðkvæmnisleg. Hún vildi ávarpa hann en gat ekki. Nú beið hann eftir svari hennar. Eftir andartak hristi hún aftur höfuðið. Hann andvarpaði. — Eg get það ekki, sagði hún og stökk upp. — Það er líka tími til kominn að fara heimleiðis. Gibsonhjónin fara að verða hrædd um mig. Viljið þér fylgja mér svolítið áleiðis? En er það kannski ómak fyrir yður? Voruð þér á upp- eða niðurleið? Hann kannaðist við, að hann hefði verið á upplcið, en það gerði ekkert til. Ekki nefndi hann neitt, hvert hann hefði ver- ið að fara. Líklega í kofann, þar sem hann vaf með Stafford . . . Var gaman að vera þar uppi? . . . Ekki sérlega . . . Fóru þeir mikið á veiðar? . . . Stundum . . . Veiddu þeir vel? . . . Ekkert sér lega. Þetta var hálf-vandræðalegt samtal. Hann sagði svo lítið frá sjálfum sér, að Phyllis átti bágt með að leyna vonbrigðum sínum og óþolinmæði. Auðvitað varðaði hana ekkert um þetta, hugsaði hún, og ef svo væri, að hann skammaðist sín fyrir þetta iðju- leysi sitt, þá . . . hann um það. — Þetta hlýtur annars að vera leiðindalíf hjá ykkur, sagði hún og dálítið hvasst. — Hafið þið nokkuð að lesa þarna uppi, ykk- ur til dægrastyttingar? — Aumingja Lúðvík. Hann eyðir öllum sinum peningum í hesta •g kvenfólk! — Ojá, svaraði hann kæruleys- islega. — Og þér eruð ánægður? — Einhversstaðar verður mað- ur að vera, er það ekki? í. ína — var þannig samanbrotið, að síðastasetningin í því mætti fyrst auganu og vakti eftirtekt , hjá Phyllis. „Eg fer kl. 10,40 í I kvöld til að ná tali af Endicott Nú blasti Wembleton við þeim. ' yfirlækni. Vona, að það beri ein- Eftir fimm mínútur komin í bæinn. yrðu þau hvern Sonja“ árangur. Beztu kveðjur. — Eg ætla nú ekki að tefja yð- ur lengur, Paige læknir, sagði Phyllis og nam staðar. — Mér þykir vænt um að hafa hitt yður, af því að ég skammaðist mín fyr- ir, hvað ég kom illa fram við yður þegar þér sýnduð mér vin- semd. — Fæ ég að sjá yður aftur, meðan þér verðið hérna? spurði hann, en röddin var vonlitil. — Hver veit. Eg hef nú tals- vert að gera við skólann minn og þér hafði vúyxuna yðar uppi í kofanum. Hann leit einkennilega á hana. — Hvað eigið þér við með því? Hún sá þegar, að hún hafði móðgað hann. En hann átti sannarlega skilið, að hnippt væri í hann fyrir að eyða ævinni eins og hann gerði. Það mátti líka finna, að hann var eitthvað næm ur fyrir þessu, með öðrum orðum fann hann til þess sjálfur — en svo vildi hún ekki skilja við hann ósátt. — Mér þykir það leitt, sagði hún blíðlega. — Er það ætlun yðar að skilja aftur við mig með þessari kveðju? sagði hann í mótmæla- tón. Hún sneri sér frá honum. — Þetta er ekki nema sann- leikur, sagði hún og -öddin var alvarleg og sannfærandi. — Mér þykir það ennþá leiðara nú en þá. — Eigið þér við mín vegna? — Já, einmitt. Hversvegna eyð ið þér ævinni svona? Umræðuefnið var sýnilega þrot ið. Kveðjan hjá Phyllis hljómaði eitthvað einkennilega, af því að hún var að reyna að hafa hana eðlilega, eins og ekkert hefði í skorizt. Hann svaraði dauflega og horfði á eftir henni, þegar hún fór. Hvorugt þeirra hafði munað eftir Sylviu, sem fyrst stanzaði hjá Paige og gelti á eftir Phyllis en þaut síðan af stað til hennar' og stöðvaði hana. Phyllis sneri sér við og beið eftir Paige. Bæði voru eins og hálfringluð. Þessar kveðjur þeirra áðan höfðu valdið þeim báðum vonbrigðum, en nú hitt- ust þau aftur. Hann brosti afur- lítið. — Haltu áfram, Sylvia! sagði hann í skipunartón. — Hversvegna hafið þér hana ekki með yður? spurði Phyllis. Veiðimenn eru ekki vanir að skilja hundinn sinn við sig. —Það skiljið þér ekki, Phyllis svaraði hann dapurlega. — Verið svo væn að kalla á hana . . . Farðu, Sylvia! Hann sneri við þeim baki og gekk upp eftir stígn um. — Komdu, Sylvia, sagði Phyll is og varð nú allt í einu hrygg og niðurdregin. — Hann þarf þín ekki með. Tíkin leit kring um sig, og brokkaði svo skömmustu- leg við hlið hennar. Fyrir neðan brekkuna ýlfraði hún og horfði til baka. — Hann kemur og sækir þig einhvern daginn, sagði Phyll is, huggandi, en augu hennar voru ful'l af tárum, sem hún réð ekki við. Hvað þetta gat allt verið vonlaust. —O— Gibsonhjónin ætluðu að hafa samkvæmi á allraheilagramessu, og allir, sem eitthvað stóðu nærri nýja skólanum voru boðnir, for- eldrar, kennarar og svo auðvitað börnin sjálf, og Phyllis hafði orð ið gefa skólanum frí af þessu til- efni. , Þegar hún kom niður til morg- unverðar, lá bréfið frá Sonju á borðinu í forstofunni, og hún flýtti sér aftur upp í herbergið sitt og opnaði það. Sonja var ekki vön að skrifa svona þykk bréf. — Við vitum nú með fullri vissu, að þessi mistök sem urðu við uppskurðinn á henni mömmu SHÍItvarpiö Miðvikudagur 26. október 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. -*■ 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8,30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir* — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 FréttiT og tilkynningar). 13.00 ,,Við vinnuna": Tónleikar. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.00 Fréttir. — 16.00 Fréttir og veður- fregnir). 18.00 Utvarpssaga barnanna: ,,A flótta og flugi“ eftir Ragnar Jóhannes- son; II. (Höfundur les). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Upplestur: Séra Jón Thoraren- sen les úr nýrri skáldsögu sinni, ,,Marínu“. 20.20 Islenzkt tónlistarkvöld: Karl O. Runólfsson sextugur 24. þ.m. — Flytjendur að verkum eftir tón- •káldið: Þorvaldur Steingríms- son, Jón Nordal, Sigurveig Hjaltested, Hjálmar Kjartansson, Einar Vigfússon, Jórunn Viðar, karlakórinn Kátir félagar, Sin- fóníuhljómsveit Islands og dr. Hallgrímur Helgason, sem flyt- ur einnig inngangsorð. 21.10 Vettvangur raunvísindanna: Úr sögu erfðafræðinnar (Ornó.lfur Thorlacius fil. kand. sér um þátt inn). 21.30 Utvarpssagan: ..Læknirinn Lúk- as“ eftir Taylor Caldwelí; I — (Hagnheiður Hafstein þýðir og les). * 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 ,,Rétt við háa hóla“: Ur ævisögu Jónasar Jónassonar bónda á Hrauni í öxnadal, eftir Guðm. L. Friðfinnsson (Höf. les). 22.30 Djassþáttur, sem Jón Múli Arna- son sér um. 23.00 Dagskrárlok. Fimmtudagur 27. október 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.00 ,,A frívaktinni1', sjómannaþáttur (Guðrún Erlendsdóttir). 14.40 ,,Við, sem heima sitjum"; nýr heimilisþáttur (Svava Jakobsdótt ir B.A. hefur umsjón með hönd- um). 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.00 Fréttir. — 16.00 Fréttir og veður- fregnir). 18.00 Fyrir yngstu hlustendurna (Gyða Ragnarsdóttir og Erna Aradóttir sjá um tímann). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Söngvar frá fjarlægum löndum: Vaclav Kútséra og hljómsveit hans leika lög frá Suður-Ame- ríku, Indónesíu og Suðurhafseyj- um. Bréfið — þetta mikilvæga bréf, sem var skrifað báðumegin á örk 20.30 Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Lárentíusar saga Kálfssonár; I. (Andrés — Herra Blakely, þér vilduð ef til vill koma á veiðar, þeg- ar þér hafið lokið við morgun- verðinn? Komið þér með okkur [ þetta að vera heitar skonsur? ungfrú Blakely? — Þetta eru okkar gömlu og — Nei . . . Og segðu mér, eiga góðu súrdeigslummur! — Súrdeig! Oj! . . . Þær eru á bragðið eins og rakur þerri- pappir! Björnsson). b) Kvæði eftir séra Sigfús Guð- mundsson (Njörður P. Njarð- vík, stud. mag.). c) Islenzk tónlist: Guðmundur Jónsson syngur lög eftir Skúla Halldórsson; höfundurinn leik ur undir. d) Yfir vötn og sanda; — ferða- þáttur (Sigurður Jónsson frá Brún). 21.45 Islenzkt-mál (Dr. Jakob Bene- diktsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Upplestur: „Félagarnir í stofu 13“, smásaga eftir Ingu Skarp- héðinsdóttur (Valdimar Lárusson leikari). 22.25 Kammertónleikar: Samleikur á fiðlu og píanó (Wolfgang Schnei derhan og Carl Seemann leika). a) Sónata í C-dúr eftir Paul Hindemith. b) Duo Concertant eftir Igo Stravinsky. 23.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.