Morgunblaðið - 04.12.1960, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.12.1960, Blaðsíða 6
6 M O tt c rnv n r 4 ÐlÐ Sunnudagur 4. des. 1960 Indverzkar fisk- veiðar á kvikmynd í Reykjavík %%%%%%%%%%%4l t%%%%%%%%%%% SEM kunnugt er hafa íslend-1 ingar kennt ýmsum suðurlanda- þjóðum fiskveiðar á undanförn- um árum. Norðmenn hafa einn- ig tekið þátt i þessari leiðbein- ingarstarfsemi á vegum FAO, en þeir hafa gengið sýnu lengra en Islendingar, því í Suður-Indiandi eru þrjú fiskiþorp, sem Norð- menn hafa reynt að koma fót- unum undir hvað fiskveiðar snertir. Þessi indversku þorp eru nokkru fjölmennari en ís'enzk fiskiþorp, því samanlagður fólks fjöldi þessara þriggja er 15 þús- und manns. Nýlega hitti fréttamaður Mbl. að máli norskan sérfræðmg í fiskveiðahagfræði, Gerhard M. Gerhardsen, fyrrum prófessor, sem að undanfömu hefur dvalizt hér á landi. Gerhardsen var í Indlandi á árunum 1956 til 1958 og vann að skipulögðum leið- beiningum við fiskveiðar á svæðinu; sem nefnt var, Skrifaði hann bók um veru sína þar, sem nefnist „Norska tilraunin". — Þessum löndum var mikil nauðsyn á að læra fiskveiðar með nýtízku aðferðum, sagði Gerhardsen. Hjálparstarfsemin, sem FAO hefur rekið í því skyni, er mjög mikilvæg, því ef ekkert hefði verið að gert blasti hung- urvofan við á næsta leiti. Þegar ég kom frá Indlandi skrifaði cg bók, sem ég nefndi „Vopn frið- arins“. í þeirri bók leitaðist ég við að sýna fram á hve mikil- væg þessi leiðbeiningarstarfsemi sé og hvern skerf hún leggi til friðsamlegrar sambúðar á jörð- inni. Hungurvofan hefur komið mörgum styrjöldum af stað. Mig langar til að geta þess, að ég hitti íslendinga þama suður frá, heldur Ger- hardsen áfram, m. a. Guðjón lllugason, skipstjóra. Hann var að kenna þeim fiskveiðar eins og þér vitið. Veiðiaðferðirnar, sem þeir stunduðu áður voru á- kaflega frumstæðar. Á sunnu- daginn (í dag) verður sýnd hér í Gerhard M. Gerhardsen fiskveiða- hagfræðingur Reykjavík kvikmynd frá fiski- þorpunum í Indlandi, sem var tekin meðan ég dvaldist þar og mun ég flytja skýringar með henni. Myndin nefnist „Svip- myndir frá Indverskum fiski- veiðum", eða eitthvað í þá áttina og er sýnd hér á vegum Norsk- íslenzka félagsins. — Mig langar til að taka það fram að lokum, að mér fellur dvölin hér á landi sérlega vel, segir Gerhardsen. Ég kom hing- að til lands í október, en þetta hefur líka verið einmuna tíð, bætir hann við. Góðvon, Grænlandi, 29. nóv. — (Reuterú - Grænlendingar furða sig á þeirri óvanalegu góðu tíð sem verið hefur í haust. En nú hefur komið upp vandamál hjá þeim. Ef ekki snjóar neitt fyrir jól, geta skíðaflugvélar ekki lent hjá Góðvon og þá kemst enginn jólapóstur þangað. ÚRSLIT: Bókabúð Keflavíkur (Guðm. Ingólfsson) 508 st., Jökull' h.f. (Ragnar Karlsson) 494 st., Dráttarbraut Keflavíkur (Gunn- ar Sveinsson) 491 st., Trésm.v. Þórarins Ólafss. (Guðni Bjarna- son) 489 st., Olíusamlag Kefla- víkur (Þórhallur Helgason) 487 st., Keflavík h.f. (Sæmundur Einarsson) 480 st., Verzl. Stapa- fell (Jón G. Pálsson) 479 st., Olíufélagið Skeljungur (Sigurð- ur Árnason) 478 st., Verzl. Aggi & Guffi (Jón Nordquist) 475 st., Verzlunin Fons (Gestur Auð- unsson) 465 st., Rafveita Kefla- víkur 464 st., Matstofan Vík 461 st., Gunnarsbakarí 459 st., Bif- reiðastöð Keflavíkur 457 st., Sérleyfisb. Keflav. 451 st., Verzl. Breiðablik 450 st. A ¥ ♦ * EINS og öllum er kunnugt er mikill áhugi fyrir bridge í Bandaríkjunum. Fara því oft fram keppnir milli hinna ýmsu ríkja, svo og milli stórborga. — Nýlega fór fram keppni milli New York og Los Angeles, sem endaði með mjög naumum sigri Los Angeles 115—106. Nokkrir af beztu spilurum Bandaríkj- anna voru meðal keppenda og var þá eftirfarandi spil, sem er einkar skemmtilegt, spilað. A — ¥ Á D 9 8 4 ♦ K D G 6 2 ♦ 10 6 3 A Á ADG63 N ¥7652 ¥ G 10 3 V A4 Á 10 7 5 ♦ 9 8 4 s 3 * G 5 2---------* Á 9 7 AK 10 987542 ¥ K ♦ — * K D 8 4 Á báðum borðum sagði Suður 4 spaða eftir að Austur hafði opnað á einum tigli. Vestur tvö- Frh á bls. 23 I MANNLEGUM heimi hefur öllu verið snúið við. Það er ekki neitt sérlega þægileg aðstaða. Sú var tíðin, að heimurinn var siðmenntaður, sem merkir það, að samningar voru haldnir í heiðri og sáttmálar virtir. Öryggi gerði gleði og starf mögulegt. Auðvitað ól heir' urinn þjófa og morðingja, en þeir voru fyrirlitn- ir, hundeltir og látnir sæta refsingu að lokum. Frá 1914 hefur menningunni sífellt hnignað og í dag er hún á barmi algers hruns. Á því herrans ári 1960 tákna hátíðlegir samningar sumstaðar í heimin- um alls ekki neitt. Þjóð undirritar sáttmála og rýfur hann tveimur vikum síðar. Maður gæti ætlað, að al- þjóðadómstólar og ráð myndu skerast í leikinn, til efl- ingur lögum og rétti. Alls ekki. Fórnardýrinu er sagt að samþykkja ránið. Þangað til nú fyrir skemmstu var hægt að reisa verksmiðjur og gera skurði í öðru landi, með sam- þykki stiórnar þess og fá leyfi til fleiri ára. Hagnað- urinn var gagnkvæmur. Þeir, sem framkvæmdirnar gerðu, vonuðust eftir gróða; landið efldist og auðgað- ist. Arið 1960 getur ríkisstjórn hrifsað til sín erlendar eignir og rekið erlenda tæknifræðinga fyrirvaralaust úr landi, gegn allri góðri trú, velsæmi og heilbrigðri skyusemi. Hvað skeður? Alls ekki neitt! Borgaraleg- um iögum er ekki lengur beitt. Réttur frumskógarins er allsráðandi. Sumir tala um „pólitísk hyggindi“ og ráðleggja sjálísánægju. Við skulum ekki láta okkur detta í hug, að menning geti lifað og þróazt við slík skilyrði. — Menning var byggð á virðingu fyrir lögum og sam- eiginlegri siðfræði. Enginn dómstóll í menningarlandi, hvorki austrænu né vestrænu, heimilar neinum að steia re’ðhjóli, meðan eigandi þess er fjarverandi. — Engin menning getur, sér að skaðlausu, einskisvirt helgi sáttmála og borgaralegra samninga. Hlutverk Sameinuðu þjóðanna er að halda við verðmætum, sem sannað hafa gildi sitt í gegnum ald- irnar Þær reyna mjög viturlega að koma aftur á lög- um og reglu í róstursömum heimshlutum. En þær munu aldrei ná neinum varanlegum árangri nema því aðeins að þær komi líka einlægni og trúnaði í heiðurs- sessmn aftur. Ef samningur, sem undirritaður er af frjálsum vilja, hefur ekkert gildi, ef menn og eignir njóta engrar verndar, þá hverfum við aftur til sið- leysis. — Svo eftir hrun menningar okkar munu þeir fáu, sem eftir lifa, harma þá tíma, þegar lög voru virt. Svo murm þeir hægt, hægt, á mörgum öldum, reyna að endurreisa það, sem við áttum — það sem við látum nú Hrörna og eyðast, ekki af slæmum vilja, heldur vegna þrekleysis og heimsku. Einstaklingur eða heimur getur kannski lifað .... en ekki lengi. • * Nokkur næturgestur Gamansögur ganga nú manna á milli um yfirheyrsl- ur fulltrúa manntalsins og svörin sem þeir eiga að hafa fengið sums staðar, er þeir gengu í hús 1. des. Teljari heimsótti unga stúlku, sem býr ein. Hún gaf greið svör við því hvernig erni hún hefði, hvernig hún hún baðaði sig; hvernig sal- eldaði ofan í sig matinn o. s. frv. Þó sagði hún Vel- ☆ vakanda, að sér hefði ekki farið að lítast á blikuna þeg- ar spurt var: — Verður nokk- ur næturgestur hér í nótt? • Hálka gerð af mannavöldum í vetur hefur ekki oft verið hált á götunum hér í Reykja vík, sem betur fer. En komið hefur þó fyrir að einstaka verzlanir hafi sinn eigin hálkublett fyrir utan hjá sér. Það verður með þeim hætti, að sýningargluggarnir eru þvegnir úr vatni, sem svo frýs_ á gangstéttinm. Slíkir hálkublettir eru þeim mun hættulegri, að fólk varar sig ekki á þeim, þegar gatan er annars skraufþurr. Fyrir nokkru sá ég konu detta illa á slíkri hálku fyrir framan verzlun eina. Hún féll á hnén, setti sundur sokkana sína og hruflaði sig á fót- um, en virtist sem betur fer ekki haf^, hlotið meiri meiðsli af þessari byltu. Vil ég því koma þeirri áskor un á framfæri við buðarfólk, að það þvoi ekki sýningar- gluggana úr vatni, ef til mála getur komið að það frjósi. Ekki þurfa gluggarnir að vera óhreinir fyrir það, því eins má heinsa rúðurnar með efn- um, sem þorna á þeim og síðan eru þurrkuð af. • Mögugilshellir í hættu 1 nýútkomnu hefti af Nátt- úrufræðingnum skrifar Guð- mundur Kjartansson grein, þar sem hann bendir Nátt- úruverndarráði á að Mögu- gilshellir í Fljótshlíð sé í hættu, ef ekki verði að gert og geti þá og þegar gereyði- lagst af völdum aurburðar lækjarins, sem rennur fyrir hellismunnan, en allt heillis- gófið liggur lægra en lækur- inn. Um helli þennan seglr hann: „Ég held, að flestir, sem skoðuðu Mögugilshelli, vel upp lýstan með kertaljós- um, yrðu mér sammála, að hann sé ekki aðeins sérkenni- legasti, heldur einnig einhver fegursti hellirinn hér á landi“. Og um hættu þá sem hell- inum er búin: „Ekki þarf nema eitt hlaup í viðbót, sams konar og þar varð í vet- ur, til þess að hellismunninn fari í kaf í aur. Hellirinn mun þá enn fyllast af vatni, og hæpið er, að það sigi nokkum tíma úr honum aftur, þegar lækjarbotninn er orðinn hærri en hellismunninn. Ef til vill eru nú í haust síðustu forvöð að skoða Mögugils- helli. Þó getum við vonað, að hann þrauki af þennan vetur og jafnvel nokkra hina næstu“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.