Morgunblaðið - 16.12.1960, Síða 1

Morgunblaðið - 16.12.1960, Síða 1
24 síðtnr 47 árgangur 289. tbl. — Föstudagur 16. desember 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins Krónprinsinn stjórnar byltingunni — og sagður konungur Eþiópíu London, Kóm, Nairobi og Aden, ' 15. des. — (Reuter-NTB-AFP). Z.JÓST er nú orffið, aff stjórnar- bylting var gerff í Eþíópíu í gær •g, aff krónprinsinn Asfa Wass- en er einn af forvígismönnum hennar. Hafa óljósar fregnir bor- izt af vopnaviðskiptum í Addis Ababa. Útvarpiff í Addis Ababa til- fcynnti snemma í dag, aff Wassen væri nú konungur land ins, en forsætisráffherra hinnar nýju’ Frh. a bls. 2. Flóttamaðurinn Peter Klatt (t. h.) á Skjaldbreiff, en Sigurður Norffdahl fulltrúi útlendingaeftirlitsins er meff honum. — z Undirbjó flótiann í tvö til þrjú úr Flóttamaðurinn lýsir flokks- einræðinu í Austur Þýzkalandi Flóttamaffurlnn á lelð til yfir- heyrslu hjá sakadómara, í fylgd meff fulltrúa útlendinga eftirlitsins. Hann bíður nú úrskurðar um þaff hvort hann fái hæli hér. — ÉG hafði ákveðið og und- irbúið að flýja frá Austur- Þýzkalandi fyrir tveimur til þremur árum, sagði ungur og ákaflega viðfelldinn mað- ur við fréttamenn Mbl. Blaðamennirnir höfðu gengið upp á herbergi á Hótel Skjaldbreið, þar sem austur-þýzki 21 árs gamli Konungur Nepals tekur alrædisvald Katmand.hu, Nepal, 15. des. — (Reuter — NTB) — MAHENDRA, konungur í Nepal, lét í dag taka stjórn landsins höndum, leysti upp þingið og tók sér í hendur alræðisvald. t I útvarpsávarpi, sem hann flutti í dag kvaðst hann ekki eiga annars úrkosta en taka sér öll völd um sinn. Atburður þessi kemur mönnum víðast á óvart, enda þótt orðrómur væri á kreiki fyrir skemmstu um að skor- Framhald á bls. 12. flóttamaðurinn Peter Klatt bjó og beið eftir því að ís- lenzk lögregluyfirvöld felldu úrskurð um það, hvort hann fengi hér hæli sem pólitísk- ur flóttamaður. Eintóm ósannindi. — En skipstjórinn á þýzka togaranum sagði okkur í gær- kvöldi, að þér hefðuð verið tældur með víni, tóbaki og kven fólki til að strjúka. Það væri félagsskapur eða samsærismenn, sem störfuðu hér að því að ginna, austur-þýzka sjómenn í land. — Þetta eru allt tóm ósann- indi. Ég hafði fyrir löngu ákveð- ið að flýja, af því að ég gat ekki sætt mig við ógnarstjórn sósíal- ista í Austur-Þýzkalandi. Með þetta í huga fór ég að ráða mig sem matsvein á fiskibáta. Fyrst komst ég aðeins á litla fiskibáta, sem veiða með ströndinni, en ég vonaði að einhvern tíma kæmist ég á stærri skip, sem sigldu til fjarlægari landa. Þá vonaði ég að skipipð sem ég væri á kæmi einhvern tíma í útlenda höfn og þá ætlaði ég að láta kylfu ráða kasti. — Svo hefur yður orðið að von yðar. — Já( eftir að ég hafði lokið sumarfríinu nú í haust, var ég ráðinn matsveinn á nýtt skip og var það úthafstogarinn Er- furt. Auðvitað hafði ég ekki hugmynd um það fyrirfram, að hann myndi koma í höfn á ts- landi, en vonaði það bezta, og tók með mér ýmsa muni sem ég vildi hafa með mér. Svo gekk þetta allt eins og í sögu. í fyrstu ferðinni bilaði skipið og ég varð frjáls maður í Reykjavíkurhöfn. Fangelsi og eriíðleikar. — Enginn á skipinu hafði hug mynd um flóttaáætlunina? — Nei, þá hefði ég verið í mikilli hættu. Þá hefði ég aldrei fengið að fara í land, heldur verið lokaður inni. — Og er það rétt, sem skip- stjórinn sagði, að þér gætuð komið aftur á skipið, eins og ekkert hefði ískorizt, haldið áfram vinnunni og þyrftuð ekki að óttast neinar ofsóknir. Framh, á bls. 3. Prinsesson trúlofnst STOKKHÓLMI, 15. des. — (NTB). — Sænska prinsess- an, Brigitta, næstelzta dótt- ir Sibyllu prinessu og hins látna Gustafs Adolfs hefur trúlofast þýzkum prinsi, Johanni Georg af Hohen- zollern. Trúlofunin var kunngerff opinberlega í dag. Þrjú skip brenna á Bosporussundi 90 farast Istambul, lJf. desember. — (NTB — Reuter) — M I N N S T 90 manns hafa farizt í stórbruna er varð á Bosporussundi í dag, er tvö tankskip, júgóslavneskt og grískt, rákust saman. Miklar sprengingar urðu í skipun- um, sem loguðu brátt stafna í milli. Þau festust saman við áreskturinn og rak þann- ig á þriðja skipið, tyrkneskt vöruflutningaskip. Brcnnandi olíu bar að ströndinni og flýði fólk hús sín, þau er næst voru ströndinni, af ótta við að í þeim kviknaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.