Morgunblaðið - 16.12.1960, Blaðsíða 2
V
2
MORGVISBLAÐIÐ
Fostudagur 16. des. 1960
k
Vientiane er ríú
á valdi Nosavans
Núverandi stjórn Lögrreglufélagrsins: ÞórÖur Kárason, Páll
Eiríksson, Erlingur Pálsson, Óskar Ólason og Bogi J. Bjarnason.
Lögreglufélagið 25 ára
Vientiane, Manila og Nýju
Dehli, 15. des. (Reuter-NTB)
EFTIR nær þriggja sólar-
hringa samfellda harða bar-
daga fram og aftur um Vien-
tiane, höfuðborg Laos, er svo
komið, að hermenn Phoumi
Nosavans virðast hafa borg-
ina á sínu valdi. Kong Lae
heldur nú norður á bóginn
í áttina til konungsborgar-
innar Luang Prabang með
megnið af her sínum en
nokkrir hermanna hans eiga
enn í höggi við hermenn
Nosavans í útjaðri borgar-
innar.
Miklir eldar hafa geisað
víðs vegrar í Vientiane og
fólk hefur flúið hús sín unn-
Washington, 15. des.
— (NTB-AFP).
TILKYNNT var í dag, að
Bandaríkin muni styðja rik-
isstjórn þá í Laos, undir
forsaeti Boum Oum, sem
stofnuó var fyrir nokkrum
dögum.
Telur stjóm Bandaríkj-
anna að stjórn þessi, sem
þing landsins standj að og
hafi samþykki konungsins.
Savang Vatinana, muni fá
ráðið fram úr vandræðun-
um í Iandinu og komið á
friði og einingu.
■ ^ ^ ^
vörpum og haldið til smá-
þorpa utan við borgina. —
Fregnir frá Bangkok herma,
að bandariska sendiráðið i
Vientiane hafi brunnið til
grunna «g starfsfólkið verið
flutt til Thailands.
Um það bil 150 konur og
börn hafa verið flutt frá
borginni Thai i norðurhluta
landsins. Læknar sjúkrahúss-
ins í Vientane, en þeir eru
aðeins tveir, segjast hafa tal-
ið fimm hermenn fallna og
tiu særða auk fimmtíu fall-
inna borgara og 200 særðra.
Sjúkrahúsið var meðal
margra stórbygginga í borg-
inni, sem löskuðust í
sprengjuvarpinu.
Samræmd stefna
Filippseyjar, Thailand og Pak-
Vetrarhjálpin
AKRANESI, 15. des.: — Vetrar-
hjálpin á Akranesi heur byrjað
starfsemi sína. Skátar heimsækja
bæjarbúa á morgun (föstudag).
Er þess vænzt að bæjarbúar taki
þeim vel, eins og alltaf áður. Enn
eru ýmsir, sem þurfa á stuðningi
meðbræðra sinna að halda.
istan hafa komið sér saman um
samræmda stefnu varðandi
vandamáiið í Laos, en þessi ríki
eru sem kunnugt er meðlimir
í Suðaustur-Asíu bandalaginu
(SEATO). — Sagði forseti Pak-
istan, Mohammed Ayub, fyrir
nokkru, að Pakistan mundi ekki
telja eftir sér að axla einhverj-
ar byrðar, ef bandalagið ákvæði
að senda her til Laos.
Kínverjar hafa undanfarið
margsinnis kvartað yfir meintri
íhlutun Vesturveldanna í Laos,
en Bandaríkjamenn jafnan svar
að á þá leið, að Kínverjar haldi
þar aðeins gömlum ávana sín-
um, að væna aðra um það, sem
þeir geri sjálfir, en Kong Lae
hefir, sem kunnugt er, fengið
vcpnasendingar frá Rússlandi,
Kína og Norður-Vietnam.
Nefndin frá 1954 endurvakin
Nehru, forseti Indlands, skýrði
fréttamönnum svo frá í dag, að
hann hefði farið þess á leit við
Rússa og Breta að endurvakin
yrði vopnahlésnefnd er stofnuð
var 1954 til þess að binda endi á
styrjöldina í Indó-Kína. Yrði þá
að minnsta kosti unnt að fylgj-
ast með tilraunum erlendra
ríkja til íhlutunar í Laos.
Leopoldville, 15. des.
— (Reuter).
FYLGISMENN I.umumba í
Orienthéraði og Stanleyville búa
sig nú í óða önn undir aS mæta
hugsanlegum árásum herflokka
Mobutus, en einhverjir þeirra
eru sagðir komnir til héraðsins.
Antovne Gizenga, náinn vinur
og fylgismaður Lumumba lýsti
í gær yfir myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Væri hún hin eina ,,lög-
lega“ í landinu og hefði aðsetur
í Stanleyville, sem héðan í frá
yrði talin höfuðborg Kongólýð-
veldsins. Gizenga kallar sig vara
forsætisráðherra landsins og
telja menn það benda til þess
að hann líti á Lumumba sem
æðsta mann stjórnarinnar. Giz-
enga kvaddi 1300 borgara í Stan-
leyville til vopna í dag og
flokksmenn Lumumba í Orient-
héraði voru búnir einkennisklæð
um.
Fulltrúar Sameinuðu Ljóðanna
í Kongó hafa athugað gaumgæfi-
lega hina nýju stjórnaryfirlýs-
ingu. Eru þeir nú mjög uggandi
um hag rúmlega 2 þús. Evrópu-
manna, sem dveljast í Oriental.
Hafa konur verið hvattar til að
halda þaðan með böm sín.
Allt er nú með kyrrum kjörum
LÖOREGLUFELAG Reykjalvík-
ur er 25 ára í dag. Hvatamaður
að stofnun félagsins var Bjarni
Eggertsson, varðstjóri, en fyrstu
stjórn skipuðu þeir Jakob Björns
son, Matthías Sveinbjörnsson,
við Kitona herbækistöðina, sem
er um 500 km vestan við Leo-
poldville, en í fyrrinótt tóku 250
hermenn Mobutus stöðina með
valdi aí Marokkómönnum úr
liði SÞ.
Annadagur
á Alþingi
í GÆR voru langir fundir á
Alþingi ,en þar er nú unnið að
því að Ijúka afgreiðslu ýmissa
mikilsverðra mála fyrir jólin.
í neðri deild lauk 3. umr. um
frumvörp um almannatrygging-
ar. ríkisborgararétt og veð, en
þessi mál voru skömmu síðar
tekin til 1. umr. í efri deild.
í neðri deild urðu miklar um-
ræður um frv. um efnahagsmál,
sem var til annarrar umræðu.
Mælti Birgir Kjaran fyrir því
af hálfu efnahagsmálanefndar,,
en síðan töluðu Skúli Guð-
mundsson og Einar Olgeirsson,
sem höfðu sérstöðu innan nefnd
arinnar. Talaði Einar Olgeirsson
síðar og lauk máli sinu laust
fyrir kl. 11 í gærkvöldi.
Þá urðu einnig langar um-
ræður um söluskattsfrumvarpið
í neðri deild. Gunnar Thorodd-
sen, fjármálaráðherra, gerði
gvein fyrir því, en síðan töluðu
Þorarinn Þórarinsson, Lúðvík
Jósefsson og Eysteinn Jónsson.
Vantar vitni
N Ý L E G A kom í skrifstofu
rannsóknarlögreglunnar, til um-
ferðaslysadeilóarinnar, stúlka á
þrítugsaldri og skýrði frá því,
að hún hefði orðið fyrir slysi
fyrir nokkrum dögum og legið
siðan og ekki getað farið til
vinnu. Hún kvað þetta hafa gerzt
við Mjólkurstöðina. Hefði bíl-
stjóri bilsins flutt sig í slysa-
varðstofuna og síðan heim til
sín. Henni hafði láðzt að spyrja
manninn að nafni, og hún vissi
nú engin deil á honum eða bíln-
um.
Rannsóknarlögreglan vill biðja
i ökumann þennan að koma til
I viðtals, svo og þá er kynnu að
hafa komið á slysstaðinn.
Björn Vigfússon, Jón Jónsson og
Geir Sigurðsson.
Auk Jakobs hafa formenn fé-
lagsins verið: Magnús Eggerts-
son, Hallgrímur Stefánsson,
Kristinn Helgason og Erlingur
Pálsson, sem er núverandi for-
nvaður og lengst hefur gengt for-
formennku, eða 20 ár.
Með Erlingi í stjórn eru nú:
Þórður Kárason, ritari; Bogi J.
Bjarnason, gjaldkeri; Oskar Öla-
son, varform. og PáU Eiríksson,
meðstjórandi.
Lögreglufélagið hefur á þessu
tímabili unnið að margvíslegum
bótum á kjörum lögregluþjóna
svo og ýmsum öðrum málum, er
varða hag þeirra. Hefur starf-
semi þess í ýmsum menningar-
málum og íþróttum verið blóm-
leg.
Eitt af helztu baráttumálum fé
lagsins hefur þó verið bygging
nýrra lögreglustöðvar og sagði
Erlingur Pálsson, form., á fundi
með blaðamönnum í gær, að
menn væntu þess, að skriður
væri nú að komast á málið.
Erlingur tók það sérstaklega
fram, að vert væri að minnast
þess á afmælinu, að Lögreglu-
félagið hefði tekið opinbera af-
stöðu til lýðveldisstofnunarinnar
á sínum tíma — og lögregluþjón-
ar hefðu enga greiðslu viljað
þiggja fyrir störf sin við lög-
gæzlu á lýðveldishátíðinni.
Ný ljóðabók ef tir
Jón úr Vöi
ÚT ER komin ný ljóðabók eftir
Jón úr Vör, sem hann nefnir
Vetrarmávar. Hún er 60 bls. og
prentuð í 600 eintökum. Ljóðin
eru að sjálfsögðu margvíslegs
efnis, og má þar til nefna Draum
ur Þyrnirósu, Hamingja jarðar,
íslendingar, Skálholt, Draunriur
skáldsins, Páskaræða, Auð-
humla, Fangelsi, Stefniunót,
Spegill, Á meðan við lifum.
Vetrarmávar er 7. bók Jóns.
Kom sú síðasta, Með örvalaus-
um boga, út árið 1951.
— Ejb/op/a
Frh. af bls. 1
stjómar væri Ras Imru, fyrrum
sendifulltrúi í Bandaríkjunum og
sendiherra í Indlandi og Rúss-
landi. Einnig var sagt, að yfir-
maður hersins væri Mulugeta
Bullie. Sagt var, að íitjórnarbylt
ing þessi væri gerð til þess að
binda endi á þrjú þúsund ára
einræði, fátækt og menningar-
leysi. Yrði nú komið fótum undir
lýðræðislega stjórn er hafa
mundi þá stefnu, að vinna að
i góðri sambúð við allar þjóðir,
framförum í Eþíópiu og eflingu
menntunar landsmanna. Sagt var
að þingið hefði verið leyst upp,
hervörður væri við erlendar
aendiráðsbyggingar en allt væri
með kyrrum kjörum.
★
Síðdegis í dag hermdu fregnir
frá Nairobi og Aden, að útvarpið
í Addis Ababa hefði skýrt frá
því, að tveir hershöfðingjar,
Merid Mengh og Ebede Gevre
hefðu verið reknir úr hernum og
stæðu þeir nú fyrir gagnbylt-
ingu. Hefði flokkur hermanna
undir þeirra stjórn hafið skot-
árás á friðsama borgara er vildu
votta hinni nýju stjórn hollustu
sína. Skömmu síðar tilkynnti út
varpið, að bardögum væri lokið,
en Eþíópíumenn í Kemya óttast
mjög, að brottrekstur hershöfð-
ingjanna tveggja kunni að hafa
uggvænlegar afleiðingar. Hafði
flugritum verið dreift í Addis
Ababa, þar sem forseti hins keis
aralega herráðs skoraði á íbú-
ana að sýna keisáranum hollustu.
Ekki er ljóst hvar Hailie Sel-
assie er niðurkominn.
Fréttaritarar í Saö Paula segja,
að Selassie hafi, er hann fór frá
Brazilíu, verið staðráðinn í að
vinna aftur veldi sitt. Hefði hann
talið, að byltingarmenn hefðu að
eins stuðning hins keisaralega líf
varðar, en hann sjálfur ætti visa
hollustu 35 þúsund hermanna.
Utanaðkomandi öfl ekki
að verki
Sendifulltrúi Eþíópíu í Svíþjóð
tók fregninni um stjórnarbylting
una með miklum fögnuði. Hann
hélt tveggja klst. fund með frétta
mönnum í dag og skýrði frá
stjórnmálum í landi sínu. Hann
sagði að byltingarmenn mundu
kæra sig kollótta hvar Selassie
héldi sig í framtíðinni svo fremi
hann kæmi ekki til Eþíópíu.
Hann sagði, að þótt svo hefði átt
að heita að þingbundin keisara-
stjóm væri í landinu, hefði keis-
arinn í raun og veru haft öll vöid
og oft verið harður í horn að
taka.
Edward Heath, varautanríkis-
ráðherra Bretlands skýrði neðri
málstofu brezka þingsins svo frá
í dag, að Dennis Wright, sendi-
herra í Eþíópíu hefði símað, að
ekkert benti til þess að utanað-
komandi öfl væru að verki í
Eþíópíu. Sendiráð í Addis Abeba
væru opin fyrir fólki viðkomandi
þjóða, sem óskuðu eftir að leita
þar hælis. Of snemmt væri að
segja um hvort grípa þyrfti til
þess að flytja Evrópubúa á brott.
Ráðstafanir yrðu þó gerðar til
þess, að það væri unnt með
skömmum fyrirvara.
Bókasýning
guðspekinema
BÓKASÝNING var opnuð í gær
(15. des.) í Guðspekifélagshús-
inu. Þar eru til sýnis um 500
bækur á ensku, dönsku og is-
lenzku og guðspeki, sálfræði,
heimspeki, Yoga, trúarbragða-
fræði, sálarrannsóknir og margs
konar önnur hugeðlisvísindi.
Sýningin verður opin frá kl,
5—10 virka daga og 2—10 laug-
ardaga og sunnudaga og mun
standa til áramóta. Fjöldi er-
lendra bóka er á sýningunni,
sem ekki hafa sézt hér 1 bóka-
búðum.
Aðgangur er ókeypis. Félag ,
ungra guðspekinema stendur'
fyrir sýningunni.
Ungling
vanfar til blaðburðar við
FÁLKAGÖTL
Jllorgtfttliladifc
Iðnfrœðingar
Byggingafræðingar óskast til stofnunar minnar.
Nánari upplýsingar kL 11—12 daglega.
Bæjarverkfræðingurina í Beykjavík
Enn ein stjórn
— ný höfuðborg