Morgunblaðið - 16.12.1960, Síða 20

Morgunblaðið - 16.12.1960, Síða 20
20 MORGUNBT.AÐIÐ Fðstudagur 16. des. 1960 I 37 daginn minn, þegar ég varð tuttugu og eins árs, en sjálf hafði ég gleymt honum. Hann hringdi mig upp til Universal. — Hversvegna kemurðu ekki út eftir til mín. Við getum borðað kvöldverð og haft svo einhvem gleðskap á eftir. — Það þætti mér gaman, sagði ég. — Með hverjum ætti maður að hálda afmælisdaginn sinn há tiðlegan ef ekki fjölskyldunni? Hann kom svo og sótti mig og George ók eftir Sunset Boule- vard. — Þetta er ekki leiðin heim til þín, sagði ég. — Eg veit, svaraði pabbi. — Við skulum að eins koma við hjá Decker. John Decker, málarinn, var einn mesti vinur pabba, en leit út eins og hrumur Adolphe Menjou. Þegar við við komum heim til hans, varð ég mest hissa á að finna Þar köku með tuttugu og einu kerti í. Pabbi varð eins og smástrákur, og ó- skaplega hrifinn af þessari upp áfinningu vinar síns. — Jæja, Treepee, hvernig lízt þér á kök- una þína? Ó, pabbi, sagði ég óg fór að gráta. Þetta var fyrsti afmælis- dagurinn, sem við pabbi vor- um saman. Þessa mánuði lék ég tvisvar með honum og komst að raun um, hve stórkostlegur hann gat verið. Við æfðum í hálftima út- drátt úr Romeó og Júliu — atrið ið á svölunum — fyrir Rudy Vallee útvarpsþátt. Eg reyndi að leika Júlíu eins og Katherine Cornell, og leggja aðaláherzluna á þrá og innileik. En þar tók pabbi fram í fyrir mér. —- Vertu ekki með þennan uppgerðar leikkonumálróm, sagði hann hvasst. Þegar hann var kominn á leiksviðið og í hlut verk, sýnist hann vera mörg- um árum yngri en gamli maður inn, sem ég hafði eytt svo mörg um stundum með heima hjá honum. — Eg skal segja þér Sjálfsævisaga DíonuBarrymorc &xb í letur af^eroldTrank leikrit á Broadway var tvennt ó líkt. Hann var of þreyttur. — En þegar það erum við tvö, pabbi . . . Hann hugsaði sig um, upphátt. Hann sat eins og honum var þægilegast — aftur á bak í stólnum með hnén í sundur og hendurnar — þessar merkilegu ólistamannslegu hendur — hang andi niður milli hnjánna. Hversu hreyfanlegt sem andlitið á hon Erroll Flynn sem John Barrymore nokkuð um Shakespeare, hélt hann áfram. — Eina ástæðan til þess að ég hafi leikið hann vel, var sú, að ég lék eins og mér fyndist Shakespeare hefði skrif að hlutverkið handa mér. Það hlutverk hefði aldrei verið leik ið fyrr. Hugsaðu þér nú það sama. Þetta er ekki neitt klass- iskt, heldur hlutverk, sem Noel Coward hefur samið handa þér. Þú hefur ekkert fordæmi að fara eftir. Þegar þú ferð með þetta hlutverk fyrir áhorfendur, er það í fyrsta skipti, sem það er rnælt fram opinberlega. Hann æfði mig mjög vandlega, enda þurfti ég þess með. Og það fór líka vel hjá okkur báðum. Þegar ég opnaði TIME, var mér lýst þar sem „Ijómandi og til- finninganæmari Júlíu“. Eg faðm aði pabba. — Það var þér að þakka, sagði ég. — Þú gafst mér — V ð erum í póstmannaleik. Þetta eru gömlu ástarbréfin þín! — það. — Nei, svaraði hann — þú gerðir það sjálf, Treepee. Undirtektirnar voru svo frá- munalega góðar, að Rudy vildi reyna annan þátt með þremur Barrymorunum. Og 5. marz 1942, þrem dögum eftir afmælið mitt, komum við fram öll þrjú. pabbi, Lionel frændi og ég í Júlíusi Cæsar — pabbi sem Brutus, Lion el var Cæsar og ég Calpurnia, kona Cæsars. Lionel frændi sat í hjólastólnum sínum til hægri við hljóðnemann, pabbi til vinstri með pappaspjöldin sín og ég á milli þeirra. Eftir leikinn fórum við sitt í hverja áttina. Pabbi ásamt George heima til sín, Lionel í bílnum sínum, sem var þannig útbúinn, að hann gat stýrt hon um, þrátt fyrir máttleysið í fót unum. — Góða nótt, væna mín, sagði hann. — Við stóðum okk ui öll prýðilega. Eg reyndi að halda uppi þessu persónulega sambandi við pabba, næstu vikurnar. Eg hafði orðið svo hrærð og glöS yfir samvinnu okkar í útvarpinu. Dick Aldrich hafði sent mér leikrit Emlyn Wiiliams, Ljós Hjartans, en það var átakanleg saga um áður til beðinn leikara, sem nú varð að vinna fyrir sér sem jólasveinn í leikfangabúð, til þess að lifa. Ef þú færð pabba þinn til að leika í því og leikur svo sjálf dótturina, máttu semja reikning inn sjálf, hafði Dick sagt. Eg sýndi pabba handritið, og honum leizt líka vel á það. — En leikhúsiðf Eg reyndi að tala um fyrir honum. — Eftir þetta hræðilega leikrit, sem þú lékst í á Broad- way, langar þig ekki til að leika í einhverju almennilegu? Því að þú getur það vel. Það sá ég bezt í Rómeó og Júlíusi Cæsar. Hann var í vafa. Hálftíma at- riði í útvarpi og þriggja tíma um var, hversu sem hann reyndi að gera sér læti, gat ekkert dul ið þennan dimma og skuggalega dapurleik í augum hans. Sjáöldr in voru orðin afskaplega útvikk uð af drykkjuskap. Svo sagði hann: — Já, ef ég gæti komið fram aftur í þessu leikriti . . . það á svo vel við mig . . . það líkist svo sjálfum mér . . . þá mundi ég sennilega ekki drekka neitt fyrr en eftir sýningu. — Og kannske ekki einu sinni þá, pabbi, sagði ég. Hann hugsaði enn. — Hvers- vegna gat það ekki verið kvik mynd? Þá hefði ég getað gert það hérna. Eg vissi vel, hvað fyrir honum vakti. í kvikmynd gat hann les ið hlutverkið af pappaspjaldi, án þess að myndavélin sæi það. — Hversvegna ekki? spurði ég. Eg vildi allt til vinna að koma honum aftur til sjálfs sín sem leikara — ekki sem fífli. — Já, það væri dásamlegt. Hann eins og lifnaði við. — Heldurðu virkilega, Treepee? Eg ætla að hringja til hans Darr yls. Síminn var úti í hinu horn inu á herberginu. Eg heyrði, að hann sagði: — Halló, Darryl. Það er Jack. Svo varð andartaks þögn. Auðsjáanlega hafði hr. Zanuuk spurt, hvaða Jack, því að pabbi sagði: — Jack Barrymore. Aftur þögn. Pabbi sagði: — Dótt ir mín er hjá mér og við höfum verið að lesa stórkostlegt leik- rit, sem ég veit að gæti orðið ágætasta mynd. Pabbi hlustaði, og sneri við mér bakinu. Svo sagði hann, dá lítið snöggt: — Já, ég skil. Jæja, þakka þér fyrir Darryl, og lagði svo símann. Hann endur tók ekki samtalið fyrir mér, að eins sagði hann: — Það Mtur ekki út fyrir, að þeir þurfi á mér að halda, Treepee. — Það eru nú fleiri til en Zanuck, sagði ég hughreystandi. THERH'S AN EXAMPLE, GEORGE, OF WHAT I MEAN...THAT DOWDY LOOKING WOMAN AND HER DULL HUSBAND...TyPICAL FISH CAMP TYPES t a r k ti ó — , . . og ef þú verður að stunda útilíf, hvers vegna ferð þú ekki í einhvern klúbbinn þar sem fína fólkið er? — Heyrið bið, flugvélin er að lenda! — Þarna er dæmi um það hvað ég á við Georg . . . Þessi ósmekklega kona og sviplausi maður klær) Uppmálaðar veiði- — Hversvegna reynirðu ekki við Louis B. Mayer? Hann hristi höfuðið. — Nei, ég ætla engan að hringja í framar Þú getur gert það, ef þú vilt. Hann kveykti sér í vindlingi með skjálfandi höndunum. — En ég leik ekki í þessu, . . . get það beinlínis ekki. Eg lagði hart að honum. Ef hann kæmist í annað umhverfi og væri innan um vini í staðinn fyrir sníkjudýr — ég hljóp tilí hans, kraup við stólinn hans og lagði höfuðið á hné hans. — Ó, pabbi! Viltu láta „Blessuð börn in mín“ verða það sem fólk man þig bezt í sambandi við! Komdu nú á Broadway aftur og leiktu í leikriti. Við getum það áreiðan lega. Eg veit við getum það. Það mundi líka hjálpa mér svo mik ið að vera á sviðinu með þér. Það er nokkuð, sem mig hefur dreymt um alla ævina, held ég, en ég hef aldrei haft uppburði til að segja þér það. Hann horfði niður á mig, andar tak, en svo reis hann upp úr stóln um og rétti fram hendurnar. — Stattu upp, sagði hann, og faðm aði mig að sér. Þegar hann kom upp orði, var röddin lág og hás, það var rödd, sem öll uppgerð var horfin úr. — Treepee, þú átt mikil afrek fyrir höndum, en ég er þegar dauður. aitltvarpiö Föstudagur 16. desember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón» leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.30 „Við vinnuna“: Tónleikar. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.00 Fréttir. — 16.00 Fréttir og veð- urfregnir). 18.00 Börnin heimsækja framandi þjóð ir: Guðmundur M. Þorláksson segir frá hvítum mönnum meðal Mongóla. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Daglegt mál (Oskar Halldórsson, cand. mag.). 20.05 Efst á baugi (Haraldur J. Ham* ar og Heimir Hannesson annast þáttinn). 20.35 Islenzkt tónlist: „Fyrir kóngsins mekt“, músík eftir Pál Isólfsson við leikrit Sigurðar Einarssonar (Þorsteinn Hannesson, Ævar R. Kvaran, Þjóðleikhúskórinn og Sinfóníuhljómsveit Islands flytja; dr. Victor Urbancic stjórnar). 21.00 Upplestur: Kristinn Reyr Péturs son skáld les úr ljóðabók sinni „Teningum kastað“. 21.10 „Harpa Davíðs“: Guðmundur Matthíasson söngkennari kynnir tónlist Gyðinga; VII. og síðasti þáttur. 21.30 Utvarpssagan: „Læknirinn Lúk- as“ eftir Taylor Caldwell; XXII. (Ragnheiður Hafstein). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Erindi: Töfraspil auglýsinganna Asgeir Júlíusson teiknari). 22.30 I léttum tón: Bing Crosby syngur og Benny Goodman og hljóm- sveit hans leika. 23.00 Dagskrárlok. Laugardagur 17. desember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.00 Oskalög sjúklinga (Bryndís Sig- urjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 Fréttir). 15.20 Skákþáttur (Guðmundur Arn« Jaugsson). 16.00 Fréttir og veðurfregnir. 16.05 Bridgeþáttur( Stefán Guðjohn- sen). 16.30 Danskennsla (Heiðar Astvalds- son). 17.00 Lög unga fólksins (Þorkell Helga son). 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Jólin koma“ eftir Þórunni Elfu Magn- úsdóttur; II. (Höfundur les). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ung- linga. (Jón Pálsson), 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: Atriði úr óperunnl „Don Pasquale“ eftir Donizetti (Renato Capecchi, Bruna Rizzoli, Giuseppe Valdengo, Petre Munt- eanu, Claudio Adorni, kór og hljómsveit San Carlo óperunnar í Napólí flytja; Francesco Molia ari-Pradelli stjórnar.) 20.30 Upplestur úr bókum — og einnig j tónleikar. 22.00 Fréttir og veðurfresr»* 22.10 Danslög. 24.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.