Morgunblaðið - 16.12.1960, Qupperneq 22
22
MORGUNfíL .4 Ð I Ð
Föstudagur 16. des. 1960
I Vesturvíking
ævisaga Jóns Oddssonar skipstjóra,
skráð af Guðmundi G. Hagalín.
Þetta er ein fjölbreyttasta ævisaga, sem Hagalín hefur
skráð. Jón Oddsson var frækin aflakló og fengsæll skip-
stjóri. Hann segir frá hafróti og vetrarstormum við ísland
og í Hvítahafinu, stórbúskap á eynni Mön og fangavist
sinni sem stríðsfangi Breta á styrjaldarárunum siðari.
Þetta mun öllum þykja merkileg bók og mikillar gerðar,
og mun hún flestum reynast eftirminnileg.
Thule til Ríó
eftir Peter Freuchen
Þessi bók skiptist í rauninni i tvo hluta. í öðrum segir
frá ferðum hans og ævintýrum á heimskautaeyjum milii
Grænlands og Kanada, þar sem hann háði þrotlausa bar-
áttu við ísa og hríðar. í hinum segir hann frá Suður-
Ameríku og Mið-Ameriku og ferð sinni um þessi frjóu
og miklu sólarlönd.
En hispursleysið er samt við sig og skopskyggni hans
sívakandi. Þetta er skemmtileg bók, full af hjartahlýju,
bók, sem enginn hinna fjölmörgu unnenda Freuchens
vill missa af.
Sfe/p/ð sekkur
eftir Alvin Moscow •
Þetta er saga voveiflegasta sliiptapa síðari ára, frásögn
af ásiglingu Stockholm og Andrea Doria. Bókin hefur
þegar vakið feikna athygli, og segir PÉTXJR BJÖRNS-
SON SKIPSTJÓRI, í ritdómi:
„Það er Iangt siðan ég hef lesið bók með jafnmikilli
athygli, og þegar ég var búinn með bókina las ég hana
aftur.---—
-------Tilgangur minn var aðallega sá, að vekja at-
hygli allra skipstjórnarmanna á þessari merkilegu bók“.
(Morgunblaðið 11. des 1960
Skipið sekkur er æsispennandi bók, saga mannlegra mis-
taka og fádæma hetjulundar. Bókin snertir strengi í
brjóstum allra sem hana lesa.
ULU heillandi heimur
eftir Jörgen Bitsch
Jörgen Bitsch segir frá frumskógarför um fljótaleiðir
Borneó — dvöl hjá dvergþjóð, sem alræmd er fyrir eit-
urörvar sínar — straumþungum, skerjóttum fljótum,
með krókódílatorfum og móskítóusæg — ferlegum hausa-
veiðurum og yndisfögrum skógardísum.
Þetta er töfrandi fögur bók, með fjölda litmynda, sem
allar eru úrvalsmyndir.
Ský yfir
eftir Margit Söderholm
Þetta er einhver skemmtilegasta saga höfundarins og án
efa sú sem mest spenna er i.Lesandinn fylgir söguhetj-
unni í baráttu hennar við ókunnar hættur, þar til lausnin
er fundin og hamingjan og ástin ráða aftur ríkjum á
gamla herragarðinum.
tveggja elda
eftir Theresa Charles
Hann var eiginmaður hennar . . . en hún þekkti hann
ekki . . . Hvert var hið nm++tif a afl, sem í senn dró
þau hvort að öðru og hratt s—*— trá hvoru öðru? Elskaði
hún bróður eiginmanns súu, A var það eiginmaðurinn,
sem hún elskaði? — Þetta w táfrandi saga um ástir og
hatur og brennandi ástríður.
SKUGGSJÁ
Hellubœ
JOHNSON'S barnaþvottaefnið inniheldur sérstakt
bakteríudrepandi efni sem helzt í bleyjunni og
verndar húð barnsins gegn óþægindum enda þótt
bleyjan vökni.
JOHNSON’S barnaþvottaefnið hvítþvær barnaþvott-
inn og gerir hann mjúkan.
JOHNSON’S barnaþvottaefnið fjarlægir gersamlega
öll óhreinindi úr barnaþvottinum svo ekkert er eftir
er getur valdið barninu særindum.
Reynið JOHNSON’S barnaþvottaefnið og þér munið
sannfærast um að betra þvottaefni hafið þér eigi
notað á barnaþvottinn.
Fæst víða.
Heildsölubirgðir:
Friðrik Bertelsson & Co., H.f.
Laugavegi 178 — Sími 16620
Daitskur stofuskápur
(dökkpólerað birki) til sölu með tækifærisverði.
Húsgagnavinnustofa HELGA SIGURÐSSONAR
Njálsgötu 22 — Simi 13930
Bótagreiðslur
almannatrygginga i Reykjavik
Greiðslur fjölskyldubóta til 1 og 2 barna
fjölskyldna hefjast strax laugardaginn 17.
þ.m. og verða frá þeim degi allar tegundir
bóta greiddar til aðfangadags.
Milli jóla og nýárs verða engar bætur
greiddar. Fólk er því hvatt til að sækja
ógreiddar bætur sem fyrst. Bótagreiðslur
fara fram óslitið kl. 9,30—3 e.h. virka daga,
nema laugardaginn 17. þ.m. verða bætur
greiddar kl. 9,30—6 e.h. Á aðfangadag lýk-
ur bótagreiðslum kl. 12 á hádegi.
Tryggingastofnun ríkisins