Morgunblaðið - 16.12.1960, Síða 23

Morgunblaðið - 16.12.1960, Síða 23
Föstudagur 16. des. 1960 MORCVNBLAÐIÐ 23 — Bæjarstjórn Framh. af bls. 13. bryggju. Þeir, sem útgerð stund- uðu, mundu vera á verði um það, hvað hagkvæmt yrði í þess- um efnum, en í svipinn virtist annað brýnna. Þá taldi hann ekki brýna tillögu er Alþ.bdl.menn hefðu flutt varðandi strætisvagn ana. Sú þjónusta viS bæjarbúa hefði aukizt til mikilla muna á undanförnum árum. Fyrir 10 ár- um hefðu strætisvagnamir getað flutt í einu 772 farþega en nú rúmuðu 49 vagnar SVR 3015 far- þega; aukningin hefði því verið um 400% á sama tíma og bæjar- búum hefði fjölgað um 30%. Skipulag á rekstrinum hefðu er- lendir sérfræðingar talið mjög gott. Þorvaldur Garðar Kristjánsson gerði hiálflutning Alþ.bl.manna einkum að umtalsefni og sýndi með skýrum rökum fram á, hversu ábyrgðarlaus afstaða þeirra og tillöguflutningur væri, svo langt sem hann næði. T.d hefði Alfr. Gíslason í langri ræðu ekki minnzt á tekjuöflun bæjar- félagsins, en í fyrradag hefði hann hins vegar flutt á Alþingi tillögu um helmingslækkun á söluskattinum, sem veitti bæjar- sjóði tugmilljóna tekjur. Það væri aftur á móti athyglisvert og minni hluta bæjarstjórnarmnar til lofs, að tillögur hans til breyt- inga næmu aðeins smávægilegri upphæð miðað við heildartölu. Mikið skorti reyndar á, að fram hefði komið nokkur viðhlítandi rökstuðningur fyrir breytingun- um, t.d. að því er snerti tillögur um lækkaðan kostnað við skrif- stofuhald bæjarins og hlvti sam- þykkt þeirra því að leiða til lak- ari þjónustu. Ágreiningur milli þeirra og meiri hlutans um út- gjöld bæjarins snerist í rauninm aðeins um 2% af heildarupphæð- inni — og þeir virtust vera al- gjörlega sammála um það, hve mikið ætti að krefja bæjarbúa um til sameiginlegra þarfa. Einar Thoroddsen benti á, að um 2ja ára skeið hefði verið unn- ið að áætlunum og athugunum varðandi stækkun hafnarinnar og niðurstaðna af því starfi að vænta áður en langt liði. Til- lögur um það efni væru því þarf- lausar. Auður Auðuns vék að tillög- um, er lagðar hefðu verið fram um byggingu barnaheimila, leik- valla, heilbrigðismál o. fl. Gerði hún grein fyrir nýjustu fram- kvæmdum x þeim efnum og áformuðum aðgerðum. Báru þær upplýsingar vott úm ötult starf bæjarfélagsins að þessum málum og um leið þá sýndarmennsku, sem að baki var tillögum minni hlutans þar að lútandi. Magnús Jóhannessot. gerði stað hæfingar fulltrúa Alþýðubanda- Jagsins og Framsóknar um yfir- vofandi og á skollið atvinnuleysi að umtalsefni og sýndi fram á að reyndin væri önnur. Með þess- um málum mundi verða fylgzt og þær ráðstafanir gerðar, sem tilefni gæfust til. Hann lýsti undr un sinni yfir því, að á sama tíma og fulltrúar minni hlutans héldu þessu fram, bæru þeir fram eigi færri en 17 tillögur er í fælust launalækkanir, sem alls næmu 2,9 millj. kr. eða sem svaraði árs- aunum um 60 verkamanna. Borgarstjóri Geir Hallgríms- son tók siðan til máls aftur og svaraði ýmsum þeirra ádeilna, sem fram höfðu komið af hálfu minnihlutans. Hann benti á, að Guðm. Vigfússon hefði til skipt- is haldið því fram, að áætluð hækkun útgjalda sýndi út- þenslu „bæjarbáknsins“ eða væri afleiðing viðreisnarinnar. Það sem þyngst væri á metunum væri hins vegar aukið framlag til verklegra framkvæmda, er »æmi 53% af hækkuninni; þar við bættust svo lögboðin hækkuð framlög til félagsm., löggæzlu, fræðslm. o.fl. - G.H. vísaði því algjörlega á bug, að tekjur væru vísvitandi of lágt áætlaðar og lærði fyrir því skýr rök. Borg- arstjóri ræddi nokkuð sýndar- tillögur Alþbl.fitr. um lækkun skrifstofukostnaðar og skírskot- aði í því sambandi m. a. til sam- róma álits nefndar, er þeir áttu fulltrúa í, en hún taldi ekki ástæðu til breytinga. Lagði nefndin til að hagsýsluskrif- stofu bæjarins yrði gert kleift að fylgjast sem bezt með rekstr inum. Meðal þess, sem þeir Alþ. bdl.menn legðu nú til væri svo það að draga verulega úr fjár- veitingu til hagsýslustarfseminn ar. í sambandi við tillögu Kristj. Thorl. um skipulagsmál benti borgarstjóri á, að engu væri líkara en hann hefði ekkert fylgzt með gangi þeirra mála í bæjarstjórn. Að öllum þátt- um þeirra mála hefði verið ötullega unnið síðan tillaga um þau var samþykkt í bæjarstjórn 19. febr. sl. Þá drap G. H. á það, að þótt margar tillögur hefðu komið fram um staðsetn- ingu ráðhúss Reykjavíkur væri þetta í fyrsta skipti, sem fram kæmi sú hugmynd, að reisa það utan bæjarins, I raforkumál- unum skýrði borgarstjóri m. a. frá áformum um jarðgufurafstöð í Hveragerði og virkjun Hvítár, en möguleikar væru nú á, að nýjar virkjanir, sem framleitt gætu um 83 þús. kw yrðu komn ar upp árið 1968 eða ’69. Að síðustu ræddi borgarstjóri svo nokkuð um áhrif viðreisnarinn- ar á útgjöld bæjarins og sýndi fram á með tölulegum upplýsmg um að þau væru mun minni en þau, sem af „bjargráðum" vinstri stjórnarinnar leiddu. Atkvæðagreiðslur um ein- staka liði fjárhagsáætlunarinn- ar hófust laust eftir kl. 11.30 og lauk klukkan eitt. Var áætl- unin samþykkt með 10 sam- hljóða atkvæðum. allar stærðir 3ja til 25 lbs. brúnir sterkir Verð mjög hagstætt Egtjert ICrist|ánsson & Co. hf. Símar 1-14-00 Vélbátar óskast Höfum kaupendur að tveimur nýjum eða nýlegum 4—7 lesta trillubátum. — Útborgun 60—90 þús. Höfum kaupánda að 60—90 lesta nýlegum vélbát. Höfum kaupanda að 100—150 lesta vélskipi. Austurstræti 10, 5. hæð. Símar 13428 og 24850 TOLEDO Vörur á gamlaverðinu Minervaskyrtur frá kr.; Herraskyrtur — — Vinnuskyrtur flúnnel — — Vinnubuxur Tvill — — Vinnuskyrtur Nankin — — Stuttar nærbuxur — — Nærbolir — — Síðar herranærbuxur — — Vz erma bolir herra — — Herrasokkar — — margar aðrar teg. á gamla verðinu Ullarhanzkar — — Herranáttföt •— — 295,00 90.00 121.00 146.00 155.00 28,75 28.50 34.50 19,60 15.50 47.50 175.00 Herrataubuxur enn á gamla verðinu 7 tegundir af drengjabuxum sumar á gamla verðinu Margar tegundir telpubuxur á gamla verðinu Drengjaskyrtur, hvítar — — Náttföt á telpur og drengi — — Síðar nærbuxur drengja — — erma bolir — — 74.50 50.00 25.50 13.50 Margar aðrar tegundir nærfata á gamla verðinu Sparið og kaupið vörur á gamla verðinu. Getur munað í sumum tilfellum helming á verði, sem þær verða dýrari næst. TOLEDO Fischersundi, sími 14891 (fyrir ofan Ingólfsapótek) Langholtsvegi 128, sími 35360 Laugarásvegi 1, sími 35360 Ásgarði 24, sími 36161 Innilegustu þakkir til allra, er minntust mín á 75 ára afmæli mínu 2. desember sl. Þorgils Þorgilsson, Grund, Vestmannaeyjum. 2ja herb. risíbúð í ágætu standi við Miklubraut til sölu. — Hitaveite Laus til íbúðar strax. — Hagkvæmir skilmálar. STEINN JÖNSSON, hdl. lögfræðistofa — fasteignasála Kirkjuhvoli— Símar 19090 — 14951 Stúlka óskast til starfa við vélabókhald hjá innflutnings- fyrirtæki. — Æskilegt að hún hafi æfingu í starfinu. Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Gott kaup — 41“. hjálbman = HANG! MSÖOT rj up ►ur KJÖTVERZLANIR TÚMASAR JÚNSSONAR Laugavegi 2 og 32 Elskulegur bróðir minn, SIGTRYGGUR JÓNSSON, Suðurgötu 13, andaðist að morgni 15. þ.m. í Landakotsspítala. Fyrir hönd aðstandenda. Jónína Jónsdóttir Tengdasonur minn og mágur okkar ALBERT KLAHN hljómsveitarstjóri andaðist 15. desember Þórunn Símonardóttir Ingibjörg og Áróra Guðmundsdætur ' Útför föður okkar, ÞÓROAR TÓMASSONAR Eystra-Hóli í Landeyjum, fer fram frá Akureyjarkirkju, laugardaginn 17. þessa mánaðar og hefst með bæn að heimili hans kl. 11 árdegis. Bílferð verður frá B.S.R. sama dag kl. 8. Fyrir hönd systkina, Þorkell Á Þórðarson Öllum þeim er sýndu okkur vinarhug og samúð við andlát og jarðarför sonar okkar og bróður, HÁKONAR HINRIKS þökkum við af alhug Þórný og Gustav kákonsen Gerða og Olga Hákonsen Hátúni 25

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.