Morgunblaðið - 16.12.1960, Qupperneq 24
8
DAGAR
TIL JÓLA
C7á
ri j
4.
l#rjpíil>W»il» L8
289. tbl. — Föstudagur 16. desember 1960
DAGAR
TIL JÓLA
Eitt kall
SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt einu
sinni út í gær. Hafði kviknað í
vinnuskúr við gömlu verbúðar-
bryggjuna út frá kolaofni. Eldur-
inn var strax slökktur, og
skemmdir urðu smávægilegar.
Opið til
7 í kvöld
Á MORGUN, síðasta laugardag
íyrir jól, verða verzlanir bæjar-
ins opnar að venju til kl. 22 um
kvöldið. Til athugunar fyrir hús-
mæður og aðra viðskiptavini
verzlananna skal þess getið að
þetta breytir ekki lokunartíma
sölubúða í kvöld. Þær eru opnar
til kl. 7.
. . ■
Gripinn með
138 rokvélosetl
SL. þriðjudagskvöld gripu
tollgæzlumenn skipverja af ’
Gullfossi á hafnarbakkanum,
þar sem hann var að reyna að
smygla varningi á land.
Þegar að var gáð reyndist
hann vera með 138 stykki af
rakvélasettum í leðurveskj-
um. Mun það vera nokkuð
dýr vara. Rakvélasettin eru
þýzk, en Gullfoss kom frá
Hamborg, Kaupmannahöfn
og Leith í þessari ferð.
Vonandi verða allir vel rak
aðir á jólunum, þó skipverj-
anum á Gullfossi hafi mistek-
izt að koma þessum ólöglega
varningi á jólamarkaðinn.
Austur-þýzki togarinn
Togarinn sigldi
matsveinslaus
KLUKKAN liðlega 11 í gærmorg
un sigldi ausíur-þýzki togarinn
Erfurt út úr Reykjavíkurhöfn,
matsveinslaus. Matsveinninn, Pet
er Klatt, hafði í fyrrakvöld gefið
sig fram á lögreglustöðinni, beð-
ið um hæli á íslandi sem pólitísk
ur flóttamaður og óskað eftir
vernd íslenzku lögreglunnar, eins
Rækjan í Djúpinu
oð ganga til þurrðar
ÍSAFIRÐI, 15. des.: — Níu stórir
bátar stunda héðan fiskveiðar.
í gær fiskuðu þeir frá 4 upp í
14 tonn. Sautján bátar stunda
rækjuveiðar í Djúpinu, en hafa
lítið fengið undanfarna daga. —
Óttast menn að rækjumiðin séu
að gangá til þurrðar, vegna of-
Bifreið kopor-
þjófonno
fundin í Rvík
KOPARÞJÓFARNIR svo-
nefndu, sem sá)tu í gæzluvarð-
haldi í Keflavík, en hurfm úr
fangageymslunni sl. miðviku-
dag, voru enn ófundnir, er
blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi.
Hins vegar fannst bifreið,
sem þeir höfðu til umráða og
stóð skammt frá fangageymsl-
unni í Keflavík, inni á Klepps
vegi í Reykjavík síðd. í gær.
Bendir þetta til þess, að þeir
séu hér í bæ, þar sem vitað
er, að þeir tóku bifreiðina eft-
ir að þeim hafði tekizt að
brjótast út úr fangageymsl-
unni i Keflavík.
Annar piltanna, Kristinn
Traustason, var sviptur öku-
leyfi í Ólafsvík 13. júní sl. í 6
mánaiði, og fékk því ökuleyfi
aftur sl. þriðjudag. Hinn pilt-
urinn, Arnór Hannesson, mun
ekki hafa ökuleyfi. Bifreiðin,
sem er 6 manna Chevrolet, er
nú í vörzlu lögreglunnar í
Reykjavík.
veiði. Nýrra miða hefur verið
leitað, en ekki fundizt. Er illt
til þess að vita, að rækjan er
gengin til þurrðar, því hún hef-
ur veitt bæjarbúum mikla at-
vinnu.
í nóvembermánuði í fyrra
voru veidd 80—90 tonn af rækju
en í sama mánuði í ár voru
veidd 360 tonn. Það er því ekki
að ástæðulausu, að sjómenn
kenna ofveiði um, þar sem aukn
ingin er svona mikil og svæð-
ið, sem hún hefur veiðzt á, ekki
takmarkalaust.
Þeir, sem mest hafa fengið
undanfarna daga hafa verið með
12 kassa, en það eru um það
bil 360 kg. — G.K.
og skýrt var frá í blaðinu i gær.
Rannsökuðu iögregla og útlend-
ingaeftirlit mál hans til bráða-
birgða þá strax, en siðan var hon-
um komið fyrir á Hótel Skjald-
breið undir eftirliti. f gærmorgun
kom hann svo fyrir sakadómar-
ann í Reykjavík og gaf skýrsliu.
Síðan var málið sent dómsmála-
ráðuneytinu til afgreiðslu.
Pilturinn er 21 árs gamall frá
litlum bæ nálægt Rostock í A,-
Þýzkalandi, og er viðtal við
hann annars staðar í blaðinu.
Fréttamaður blaðsins var stadd
ur niðri á Grandagarði í gær-
morgun, þegar togarinn fór. Þar
voru menn frá útlendingaeftirlit-
inu, því tveir nýir menn vo: .1
skráðir á skipið, Spánverjinn
Marcelo Mula Urosa, sem kom
hingað með skipi fyrir mánuði,
og Vestur-Þjóðverjinn Lothar
Franz, sem mun vera stúdent, er
kom hér seint í sumar. Ættaiðu
þeir að vinna sér þannig fyrir
farinu út aftur. Þeir voru undir
þiljum og sáust ekki.
Á veiðar — síðan heim
Brottför skipsins var ákveðin
kl. 11 og hafnsögumaðurinn kom-
inn fyrir þann tíma, en skipstjór-
ann vantaði. Eftir nokkra bið
kom hann í bíl frá austur-þýzku
verzlunarskrifstofunni, og með
honum þrír Þjóðverjar. Kvaðst
hann nú fara út á veiðar, senni-
Mjaðmagrindarbrotn*
aði umdir dráttarvél
NESKAUPSTAÐ, 15. desember
— Laust fyrir hádegi í dag kom
varðskipið Þór með slasaða
konu frá Borgarfirði eystra, til
Neskaupstaðar. Hafði mjaðmar-
grind hennar brotnað, er drátt-
arvél rann yfir hana.
Konan heitir Henny Nielsen,
ensk og færeyisk að uppruna,
en hefur verið búsett í Borgar-
firði um nokkurra ára skeið. —
Hún var á leið upp svonefnda
Jökulsiárbrekku á dráttarvél,
ásamt karlmanni, er slysið varð.
Dráttarvélin stöðvaðist í brekk-
unni og féll konan aftur af
henni. Um leið rann dráttarvél-
in aftur á bak og fór yfir kon-
una, þar sem hún lá( og hvolfdi
síðan. — Manninn, sem var með
henni á dráttarvélinni( mun ekki
hafa sakað.
Varðskipið Þór tók síðan kon-
una og flutti hana til Neskaup-
staðar. Liggur hún í sjúkrahús-
inu hér, og er líðan hennar ssemi
leg eftir atvikum.
■—Svavar.
Kosnir í Norður-
landaráð
I GÆR var kosið í Norðurlanda-
ráða í neðri deild Alþingis. Aðal-
menn voru kjörnir: Gísli Jóns-
son, Sigurður Ingimundarson,
Einar Olgeirsson. Varamenn:
Matthías A. Mathiesen, Birgir
Finsson, Hannibal Valdimarsson.
Erfurt lætur úr höfn.
lega við Grænland og sigla að
því búnu heim. Hann vatt sér um
borð, kvaddi í snarheitum og lét
leggja frá landi.
Meðan beðið var, hafði frétta-
maðurinn snöggvast tal af einum
skipverja og spurði um álit hans
á flótta félaga hans. Hann hló og
afgreiddi málið með því að ungir
menn væru haldnir ævintýraþrá
og dytti sitthvað í hug. Sagði
hann að enginn matsveinn hefði
verið skráður á skipið, í stað þess
sem fór.
Rigning kom sér
vel
AKRANESI, 15. des.: — Rigning
in núna kom sér sannarlega vel
fyrir Aandakílsvirkjunina. Dá-
lítið rennsli er komið á í Skorna-
dalsvatini, en fyrir rigningnna
var að því komið að farið væri
að skammta rafmagnið.
Tollpóststofan
opin til kl. 6 síðd.
MIKLAR annir hafa verið í Toll
póststofunni undanfarna daga,
því mikill bögglapóstur berst er-
lendis frá. Til að greiða fyrir af-
greiðslunni hefur verið ákveðið
að hafa stofuna opna til kl. 6 síð-
degis í dag, föstudag, og á morg-
un, laugardag. Væntir Tollpóst-
stofan þess, að fólk sem pakka á
þar, noti sér þessa þjónustu til
aukins hagræðis.
Nýtt sigl-
ingatœki
fyrir
flugvélar
MENN veittu þvi athygli síð-
degis í gær, að bandarísk her
flutningavél var á sveimi yf í
ir bænum og í nagrenni hans.
Stóð þetta flug í sambandi
við prófanir, sem nú fara
fram á nýju aðflugskerfi M
Keflavíkurflugvelli. Hefur
það ekki einungig gildi fyrir
Keflavíkurflugvöll, heldur og
fyrir alla flugumferð um ís-
land. Eru þar sameinuð
tvenns konar tæki, VOR og
TACAN, eins og þau eru
nefnd, en með því að stilla
móttökutæki sín á aðflugs-
kerfi þetta, geta flugvélar,
sem t. d. eru á leið til ís-
lands, fundið á svipstundu
í hvaða átt Keflavík er- og
hve langt þangað er, að því
er upplýsingafulltrúi Varnar
liðsins tjáði blaðinu. — Þessi
tæki eru ný af nálinni, mjög
fullkomin og verða til afnota
bæði fyrir farþegavélar og
hervélar, enda hafa íslend-
ingar og Bandaríkjamenn
haft samvinnu um uppsetn-
ingu þeirra. Það voru VOR-
tækin, sem verið var að prófa
í gær.
Þegar koparþjófnaðurinn
upplýstist á dögunum
RÉTT eftir að rannsóknarlög-
reglan hér í Rcykjavík hafði
fengið tilkynningu um kopar-
þjófnaðinn mikla í Keflavík á
dögunum, hafði henni tekizt að
hafa hendur í hári mannanna. —
Mun rannsóknarlögreglan sjald
an hafa þurft að fara jafn
Drengur slasast
í GÆRKVÖLDI kl. um hálf sjö
varð lítill drengur fyrir strætis-
vangi á Réttarholtsvegi, skammt
frá gatnamótum Hólmgarðs. —
Hálka var þar og er hún talin
eiga nokkra sök á slysinu. Hafði
litli drengurinn, að sögn, hlaupið
á strætisvagninn. Kvartaði hann
einkum um þrautir í fæti. Hann
heitir Hifnir Sigurbjörnsson,
Hólmgarði 19. Var hann fluttur
í Slysavarðstofuna.
skamma leið, frá bækistöð slnnl
til þess að finna sakborninga.
Einn af rannsóknarlöreglu-
mönnunum fór inn .í portið við
„Storkklúbbinn" (Framsóknar.
húsið). Þar sá hann bílinn( sem
grunsamlegur hafði verið talinn
af Keflavlkurlögreglunni. Er
hann kom að bílnum, þar sem
hann stóð við bílskúrsdyr, sá
hann að á bílinn var verið að
setja heilmikið af koparvír og
inni í bílnum hafði sæti verið
rifið úr bílnum til að geta flutt
meira. Þarna var vírinn, sem
stolið hafði verið í Keflavík. A.
m. k. annar þeirra, sem var vi3
þj ófnaðinn var þar að verki.
Það var þess vegna sem tókst
að hafa upp á koparnum áður
en hann komst á markað, eins
og sagt var í frétt blaðs^us aí
þjófnaðinum.