Morgunblaðið - 18.12.1960, Qupperneq 4
4
MORGVISBL AÐIÐ
Sunnudagur 18. des. 1960
G/n- og klauíaveiki
tefur jólainnkaupin
Átta manns algerlega einangraðir
á búgarði á eyjunni Mön
Kawpmannahöfn, 13. des.
) (Einkaskeyti frá frétta-
ritara Morgunblaðsins) —
F Y R I R nokkrum dögum
varð vart við gin- og klaufa-
veiki í kú á búgarði einum
á eyjunni Mön — og til þess.
að reyna að hindra útbreiðslu
veikinnar var öllum (rúm-
lega 90) skepnum bóndans,
Svend Jörgensen, lógað. —
Er búgarðurinn nú algerlega
einangraður og öllu fólkinu
þar, 8 manns, stranglega
bannað að hreyfa sig þaðan.
— Við landamerkin hefir
verið komið fyrir skiltum,
þar sem öllum er bannað að
fara inn í landareignina. —
Dýralæknirinn einn fær að
heimsækja búgarðinn. Þegar
hann kemur þangað, klæðist
hann gúmmífötum, sem hann
skilur síðan eftir, þegar hann
fer aftur.
ÍC Alger cinangrun
Blaðið BT birti í dag við-
tal við bóndann og segir hann
m. a.: — Þetta hefir orðið til
þess, að við erum ekki enn far-
in að geta gert jólainnkaupin.
Við ætluðum í kaupstaðinn fyr-
ir jólin, en nú veit ég ekki,
hvenær við fáum ferðafrelsið á
ný — kannski verður það þó
eftir svo sem viku. Vörur eru
aðeins fluttar að heimreiðinni,
þar sem skiltið stendur. í>ar
verðum við svo að hirða þær
og flytja heim. Ef einhver fer
inn í landareignina, verðum við
að tilkynna lögreglunni um
það.
ie Bjóst við meiru
Við vinnum nú að því að
sótthreinsa gripahúsin, en að
því búnu verður dýralæknirinn
að leggja blessim sína yfir verk
ið. Þegar því er lokið, vænt-
um við þess, að ferðabanninu
verði létt af okkur. — Nú eru
engar skepnur hér — nema tveir
kettir, sem lokaðir eru inni.
Við höfðum hvorki hænsn né
svín. Fimmtíu kúm og rúmlega
fjörutíu ungviðum var umsvifa-
»aust slátrað, þegar veikinnar
varð vart — hjá aðeins einum
grip. Allar skepnurnar voru
grafnar í einni risastórri gröf
— 50 metra langri, tveggja
m breiðrí~og 3 m djúpri. — Eg
var að vona, að mér yrði hlíft
við að vera viðstaddur niður-
skurð gripanna minna — en
það reyndist þó ekki hægt. —
Matsmennirnir úrskurðuðu, að
ég skyldi fá 122 þús. kr. skaða-
bætur. Eg hafði búizt við meiru.
Framleiðslutapið er mikið — og
ný áhöfn verður ekki gripin upp
af götunni í einu vetfangi.
Menn eru nú mjög á verði
gegn því, að gin- og klaufa-
veikin nái að breiðast út, og er
nú hvarvetna unnið að bólu-
setningu við veikinni. Veirur til
framleiðslu bóluefnisins eru
keyptar frá Spáni og ítalíu fyr-
ir um eina milljón króna á ári,
en kílóið kostar 4000 kr. — Ekki
vita menn með neinni vissu,
á hvern hátt gin- og klaufaveik-
in breiðist út, en grunur leikur
á, að fuglar kunni að vera
helztu smitberarnir. — Heyrzt
hefir frá Englandi, þar sem
sjúkdómur þessi hefir valdið
gífurlegu tjóni undanfarið, að
menn telji, að starar hafi borið
veikina frá meginlandinu.
M ALFLUTNIN GSSTOF A
Einar B. Guðmundsson
Guðlaugur Þorlaksson
Guðmundur Pétursson
Aðalstræti 6, III hæð.
Símar 12002 — 13202 — 13602
Sunnudagskrossgátan
Fiskibátur til sölu
Höfum verið beðnir að selja nýtt 180 lesta fiski-
skip úr stáli tilbúið til afhendingar síðari hluta
janúar 1961.
Skipið er með öllum nýtízku útbúnaði og í alla
staði mjög vandað. Mjög fullkominn togútbún-
aður.
Allar upplýsingar í skrifstofu vorri.
Eggert Kristjánsson & Co. hf.
3ja herb. íbuð
3ja herb. nýleg, góð kjallaraíbúð við Granaskjól. —
Sér inng. og sér hiti. Vandaðar harðviðarinnréttingar.
MALFIJTTNINGS- og FASTEIGNASTOFA
Siguiður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Petursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, II. — Símar 19478 og 22870.
Til leigu í vesturbænum
alveg ný 3ja herb. íbúð í fjölbýlishúsi. Fyrirframgreiðsla
til eins árs áskilin. Uppl. gefur.
MALFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Reynír Pétursson hrl.
Agnar Gustafsson, hdl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, II. Símar 2-28-70 og 1-94-78