Morgunblaðið - 18.12.1960, Side 16

Morgunblaðið - 18.12.1960, Side 16
MORGL N BLAÐIÐ Sunnudagur 18. des. 1960 i6 Við brunninn Við Brunninn. Ljóðabók eftir Kristján frá Djúpalæk. Prentsmiðjan Leiftur. KRISTJÁN frá Djúpalæk er löngu kunnu þjóð sinni sem einn af betri skáldum meðal þeirra yngri. Ljóð hans hafa verið les- in og lærð af ljóðavinum, en yngri kynslóðin þekkir Kristján bezt fyrir hans ágætu danslaga texta, sem eru sungnir um land allt, frá yztu nesjum til innstu dala og sennilega taka sjómenn- irnir okkar undir út á hafinu. Kristján var barn að aldri er hann byrjaði að setja saman vís- ur og hafði hann þá strax ótrú- lega næmt brageyra og fann fljótt ef smíðagalli var á fer- skeytlunni. Að vonum var þetta ekki mikill skáldskapur hjá hon- um fyrst í stað, en það leyndi sér varla hvað í honum bjó. Með öðrum orðum. Skaparinn gaf Kristjáni skáldagáfuna í vöggu- gjöf. Fyrsta ljóðabók Kristjáns frá Djúpalæk, Frá Nyrstu-Ströndum kom út á Akureyri 1943 og var Kristján þá enn ungur að árúm. í þessari bók fannst mér ég heyra vængjaþyt Þorsteins Erl- ingssonar og lækjarnið Páls Ól- afssonar. Yfir mörgum kvæðun- um var heiðríkja og sólarbirta. Við ferðuðumst með unga skáld- inu inn í fagra veröld, sem að vísu var ekki mjög stór. í þess- ari bók er að finna hið gull- fallega kvæði Engjadagur. — Þa* er rakaS og slegið í ölluni engjum. ÞaS er ómur og gleði í loftsins strengjum. Næsta bók Kristjáns kemur svo út 1945 og ber nafnið Villt'ur vegar og ber hún nafnið með rentu, því í þessari bók villtist Kristján af þeirri braut, er hann hóf göngu sína á. Viðhorfið er breytt og víða ber skugga á um- hverfið, sem er honum býsna framandi. Þó glampar á skærar perlur hér og þar. Lítil breyting verður á næstu fjórum bókum Kristjáns, önnur en sú, að hann er orðinn lærður í faginu, meitl- ar og mótar af meiri hagleika en áður og er djúpskyggnari. Við Brunninn er 7. bók Krist- jáns, og leggur hann nú bogann á nýja strengi, sem eru sumir tónfagrir. Nafnið lætur vel í eyr um ljóða-vina og lofar miklu. Reyndar vitum við, að það er ekki Gvendarbrunnavatn í öllum brunnum. En nú skulum við setj- ast við brunn Kristjáns og vita hvað hann hefur upp á að bjóða. Fyrsta kvæði bókarinnar ber nafnið Við Brunninn og er skipt í sex kafla. Fyrsti kaflinn hljóð- ar þannig; en þar tek ég 3 fyrstu erindin. Svo fátækt, er oft um ísland sagt. Hver á sér j>ó dýrri sjóö? Er Edda þá gleymd, er Njáía ei neitt og nútímans sögur og ljóö? Vor auðlegð er glæst. Og gæt ltennar, unga þjóð. Vér höfum svo mjög í vali villst. Hvert vogrek og sprek er hirt, af framandi slóð, er á fjörur ber, en föðurieifð einskis virt. Því hefur nú yfir sjálfstæði voru syrt. Þótt hnígi hvert fijót í hafsins gröf á heiðin eilífan brunn. Og sagan er frónskum aðfallsæð, sem aldrei mun tæmd í grunn. Og leggur oss heimsíns máttkvust sið í munn. Fyrra erindið úr seinasta kafl- anum hljóðar svo: Minn hrunnur var dulur, dimmur; og dauðinn var botn hans og endir. Uns dag einn þú Drottinn, frá himni í djúp hans mér stjörnu sendir. Skáldið og Huggast við hörpu eru snotur kvæði. Kvöld við lækinn er vel ort og hljómfag- urt. Jahve, Dauði og Kólumbux er ágæt hugvekja og djúphugs- uð. Vornótt nyrðra, Gamall hestamaður og Haustþangar, þar fer höf. högum höndum með efn- ið og kann vel til verks og eru þó Haustþankar bezta kvæðið. En veigamesta kvæði bókarinnar tel ég vera Hugsað til Jakobími. Afmæliskveðja til Ríkarðs, sýn ir að Kristján kann tökin á rím- inu ekki síður en aldamótaskáld- in okkar. Hagleik áttu hamra dvergs hvergi dráttur slakur. Stolta háttu heina bergs hljóma láttu spakur. Kristján er gæddur góðri kímni gáfu þó hann hafi lítt beitt henni í bókum sínum. Þó gægist hún fram á milli línanna á stöku stað í þessari bók og hittir í mark. Draumur Pygmalions Höfundur: B. Merkator. Þýðandi: Séra Magnús Guð- mundsson, Setbergi. Útgefandi: Leiftur. ÞESSI bók er sérstæð. Hún er að vísu ástarsaga, saga um pilt og stúlku, sem fella saman hugi, mæta tálmunum, ná saman, — og þó. Það er þetta þó, sem er hin mikla gáta — og lausn sög- urnar. Draumur Pygmalions er draumur, sem minnir á draum- ana í íslendingasögunum. Hann er eins og spádómur um gang sögunnar, virðist í fyrstu auð- ráðinn, en rætist þó svo undar- Iega. Helios er grískur piltur, þræll Pygmalions, auðugs kaupmanns í Týrus um daga Krists. Hera, dóttir kaupmannsins og konu hans, grískrar, ber af dætrum Fönikíu. Pygmalion leitar sann- leikans, Helios frelsis og Hera kærleikans. Þau finna öll það, sem þau leita, en æðra og göf- ugra en þau hugðu. Um það má vafalaust deila, hvort höfundi hefur tekizt að lýsa rétt öllu því, sem menning og trúarbrögð sögunnar snertir. En augljóst er, að rannsóknir liggja að baki. Trúarbrögð Fön- ika koma mikið við sögu, sömu- leiðis gyðingadómur og kristin- dómur. Það er alltaf hæpið að leggja Kristi orð í munn, önnur en þau, sem heimildir greina, og hjá því er sneitt að mestu. Þessi bók á heima í flokki með Ben Húr, Quo vadis og Drengnum frá Galíleu. Hún á vafalaust eftir að hlýja mörgum um hjartaræturnar. Magnús Runólfsson. EGGERT CLAESWEN og GUSTAV A. SVEINSSON hæstaréttarlögmen Þórsharori við Templarasund. Við fundum lausn á lífs þíns kvöl, sem löngum svaltst í nauðum. Við gerðum kommu, gerðum púnkt og gengum af þér dauðum. Rabbað við lík, þar er þetta að finna: Óiíkt er sagt hjá okkur, félagi Stalin og ekk' út í bláinn. Hér telst ég lifandi, hlaðinn allskonar löstum. En heilagur dáínn. Þú varst álitinn Guð, i lifanda Iui, og líkur til þrifa. En dauður ert þú sagður álíka helvítis hundur og hinir, sem Hfa. Kristján er þjóðlegur í túlkun sinni og gerð ljóðanna í þessari bók sinni og er það mikill kost- ur. Allur frágangur bókarinnar er hinn prýðilegasti. Hún er 100 blaðsíður og í henni eru 52 kvæði. Allir Ijóðaunnendur, sem meta rím og þjóðlega túlkun, ættu að lesa þessa bók. Kennið börnunum jóla- lögin úr 50 fyrstu söngvum Ingólfur Guðbrandsson söngnámsverkstjóri, valdi lögin, Barbara Árnason, myndskreytti. Prentað í fjórum litum. Fögur og gagnleg jólagjöf. Fæst í bókaverzlunum og hljóðfæraverzlunum eftir helgina. Aðalsöluumboð: Hljóðfæraver/lun SIGRlÐAR HELGADÓTTUR Vesturveri. CTGEFANDI. Jakob Jónasson. BfLPALLAR ÞÝÐA A U K I N N HAGNAÐUR PER BlL Bygging aluminium palla í stað stáil eða timbur palla færist nú mjög í aukana. ALCAN INDUSTRIES LDT. Bush House, Aldwych London, W.C. 2. UMBOÐSMENN: O R K A H. F. Laugavcgi 178. ÆVINTYRABÆKIIR p) iv^tow ÆVINTÝRABÆKURNAR eru vinsælustu barna- og. unglingabækur, sem út hafa komið á íslenzku um langt skeið, eftirsóttar jafnt af drengjum sem telpum á öllum aldri. Ævintýrabækumar eru prýddar samtals á þriðja hundrað afbragðsmyndum, en bækurnar átta eru þessar: Ævintýraeyjan Ævintýrahöllin Ævintýradalurinn Ævintýrahafið • Ævintýrafjallið • Ævintýrasirkusinn 9 Ævintýraskipið • Ævintýrafljótið Óskadraumur allra barna og unglinga er að eign- ast allar Ævintýrabækumar. Það er enn þá hægt en hversu lengi það verður veit enginn. I Ð U N N - Skeggjagötu 1 — Sími 12923.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.