Morgunblaðið - 20.12.1960, Side 2

Morgunblaðið - 20.12.1960, Side 2
2 MORGVNBL4Ð1Ð Þriðjudagur 20. des. 1960 Lagaafgreiðsla I GÆB voru langir fundir á Al- þingi, í báðum deildum og einn- ig í sameinuðu þingi. Voru fjár- lög afgreidd frá sameiruuðu þingi eins og segir í annarri frétt í blaðinu. Lög um veð og efnahagsmál Efri deild lauk störfum fyrir jól og skiptust forseti og þing- menn á kveðjum og jólaóskum í fundarlok svo sem títt er. Voru tvö mál á dagskrá deildarinnar, frv. um veð, og frv. um efna- hagsmál, sem bæði voru til ann- arrar umræðu. Urðu nokkrar umræður um bæði málin, en er þau höfðu verið samþykkt við aðra umræðu var settur nýr fundur og þriðju umræðu lokið. Vill tíu ára griÖasamn- ing UI.BRICHT, leiðtogi aust- ur-þýzkra kommúnista, hef ur lýst því yfir, að hann bjóði stjórn Vestur-Þýzka- Iands að gera við hana griðasamning til tiu ára. — Samkvæmt þeím samningi skuli hvor aðili um sig skuldbinda sig til að forð- ast hvað eina sem túlka megi sem árásarundirbún- ing. í blaðagrein, sem Ul- bricht hefur ritað um þetta < efni, segtf hann, að full- trúar ýmissa landa á ráð- stefnu kommúnistaforingj- anna í Moskvu, hafi verið þeirrar skoðunar, að heims styrjöld muni aðeins flýta fyrir falli kapitalismans. — Hinsvegar segir Ulbricht það liggja í augum uppi, að sú skelfilega eyðilegg- ing, sem fylgja mundi í kjölfar kjarnorkustyrjaldar hlyti óhjákvæmilega að hefta framkvæmd sósial- ismans um óratima. Segir hann stefnu þeirra manna, er dýpri skilning hafi á þessu máli, hafa sigrað á ráðstefnunni í Moskvu. Dagskrá Alþingis 1. Kosning þriggja yfirskoSunar- manna ríkisreikninganna 1960, að við- hafðri hlutfallskosningu, samkv. 43. gr. stjórnarskrárinnar. 2. Kosning 4 manna og jafnmargra í húsnæðismálastjóm, allra til 3 ára, frá 1. jan. 1961 til 31. des. 1963, að víð- hafðri hlutfaliskosníngu, samkv, 1. gr. 1. nr. 42 1957, um húsnæðismálastofn- un. byggingarsjóð ríkisins, sparnað til íbúðabygginga, breyt. á I. kafla 1. nr. 36/ 1952 o. fl. 3. Kosning 5 manna nefndar til að skipta fjárveitingu til atvinnu- og framleiðsluaukningar, að viðhafðri hlutfallskosningu, samkv. 20. gr. Út XXIII. í fjárlögum fyrir árið 1961. Voru bæði þessi mál því afgreidd sem lög frá þinginu í gær. Skipzt á heillaóskum í lok síðari fundarins í efri deild ávarpaði forseti deildarinn- ar, Sigurður Óli Ólafsson, þing- deildarmenn, og sagði að lokið væri siðasta fundi í deildinni fyr- ir jól. Árnaði hann þingmönnum allra heilla í jólafríinu og ósk- aði þeim góðrar heimferðar og afturkomu ,sem fara úr borginni um jólin. Karl Kristjánsson þakk aði fyrir hönd þingdeildarmanna og árnaði forseta og fjölskyldu hans alls góðs. Söluskatturinn lögfestur f neðri deild var söluskatts- frumvarpið til annarrar umræðu. Urðu um það nokkrar umræður og orðaskipti milli stjórnarand- stæðinga og fjármálaráðherra. Verður þess getið nánar í blað- inu á morgun. Að annarri um- ræðu lokinni var settur nýr fund ur og þriðja umræða höfð um söluskattinn, sem að henni lok- inni var afgreiddur sem lög frá þinginu. Er nú mjög sigið á seinni hluta þeirra mála, sem fyrirhugað er að afgreiða á þinginu fyrir jól og munu þingmenn fara í jolafrí í dag eða á morgun. Opinberlega orðinn forseti New York, 19. des. JOHN F. Kennedy hefur nú op- inberlega og endanlega verið kjörinn forseti Bandaríkjanna Til kynning þess efnis barst hon- um í hendur kl. 20,35 (ísl. tími) í kvöld. Höfðu kjörmenn komið saman í höfuðborg hvers ríkis í Bandaríkjunum í dag og kosið forsetann, en úrslit þeirra kosn- inga voru síðan send til Washing- ton. Urslit talninga atkvæða kjör- mannanna voru ekki fyllilega kunn í kvöld, en þó fullvíst, að Kennedy hafði að minnsta kosti fengið þau 269 atkvæði er með þurfti. Einn brást Nixon Kjörmenn frá Misisippi og Ala- bama lýstu því yfir í dag að þeir myndu greiða Harry Byrd, öld- ungardeildarþingmanni frá Virg- iniu atkvæði sin og skoruðu þeir á aðra kjörmenn suðurríkjanna að gera hið sama. Hafði sú áskor un þau áhrif, að einn kjörmaður frá Oklahoma, sem lofað hafði að kjósa Nixon, kaus nú Byrd, Kennedy og Lyndon Johnson hefja í kvöld viðræður í Florida um undirbúning lagasetningar í ýmsum málum, er hin nýja ríkis- stjórn hyggst beita sér fyrir svo og fjárlagafrumvarpið. Viðstadd- ir viðræður þeirra verða foringj- ar demokrata í báðum þingdeild- um Bandaríkjaþings. Unglinga vanfar til blaðburðar við Framnesveg Fálkagötu Skeggjagötu Hjallaveg ísland aðili að Efnahags- samvinnu- og framfara- stofnuninni 14. þ. m. var gengið frá að- ild íslands að hinni nýju Efnahagssamvinnu- og fram- farastofnun. Samningar voru undirritaðir í París. Undir- búningsfundi sátu af íslands hálfu Jónas Haralz, ráðu- neytisstjóri, Tómas Á. Tómas son, sendiráðsritari, og Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráð herra. Skýrði hinn síðast- nefndi lauslega frá stofnun þessari í fréttaauka í Ríkis- útvarpinu í gærkvöldi. Fyrirrennari þessarar stofnun- ar var Efnahagssamvinnustofnun Evrópu, sem stofnuð var 1948 af flestum ríkjum Norður-, Vestur- og Suður-Evrópu. Tilgangurinn var upphaflega sá að hagnýta hina miklu fjárhagsaðstoð, sem Bandaríkin höfðu boðið fram til endurreisnar atvinnu- og við- skiptalífi í Evrópu eftir styrjöld ina. Upphaflega var til þess ætl- azt, að Austur-Evrópuríkin yrðu þátttakendur í þessu samstarfi, en af því varð þó ekki. Svo- nefnd „hlutlaus“ ríki, eins og Sviss og Svíþjóð, hafa verið að- ilar að þessu samstarfi frá upp- hafi. Ríkin urðu alls 18, og verk svið stofnunarinnar jókst smám saman. Þegar sex- og sjöveldin komu til sögunnar, virtist hætta á klofnun samtakanna. Kom þá fram sú hugmynd að efla þau heldur og styrkja, fá þeim ný verkefni og fá Bandaríkin og Konada til virkrar þátttöku. Að þessu hefur verið unnið undan- farna mánuði, og náðist að lok- um fullt samkomulag með öllum ríkjunum 20. Árangurinn er hin nýja stofnun: Efnahagssamvinnu og framfarastofnunin. Hlutverk hennar er í höfuðatriðum hið sama og hinnar fyrri, auk þess, sem vinna skal að því að efla framfarir í löndum, sem skammt eru á veg komin, innan stofn- unarinnar og utan. Þann 14. des. sl. voru samning- ar svo undirritaðir í París. Æðstu völd stofnunarinnar verða í hönd um ríkisstjórna aðildarríkja, en annars verður henni stjórnað af ráði í Paris og nefndakerfi. For- seti ráðherrafundarins nú var danski utanríkisráðherrann Jens Otto Krag. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar er fyrrv. fjár- málaráðh. Dana, Thorkil Kristen sen. Þess má geta, að íslenzku full- trúarnir fengu samþykkta tillögu um stofnun sérstakrar sjávarút- vegsmálanefndar innan vébauda stofnunarinnar. AKRANESI, 19. des. — Hér er Brúarfoss og losar 10 þús. tóm- ar tunnur. — Allir trillubátar reru á sjó héðan í dag. Aflinn er frá 300 upp í 1200 kg á bát. Blíðfari og Hagsæll voru afla- hæstir og jafnir. Allir síldarbátar utan tveir fóru út á veiðar í dag. Á öðrum þeirra, sem ekki fóru, urðu á- flog, og gekk stýrimaður í iand. Kindum tvivegis misþyrmt Blaðamaður tekur prestsvígslu EINS og skýrt hefur verið frá í blaðinu, fór prestvígsla fram í Dómkirkjunni sl. sunnud. Vígð-j ur var cand. theol. Jón Hnefill | Aðalsteinsson til Eskifjarðar-J prestakalls, Jón Hnefill lauk guðfræðiprófi á sl. vori, en áður hafði hann lokið fil. kand. prófi frá háskólanum í Stokkhólmi. Jón Hnefill hefur verið blaða- maður við Mbl. í þrjú ár og m. a. skrifað þingfréttir um þing- tímann. Séra Jón Hnefill er kvæntur Svövu Jakobsdóttur prests Jónssonar, og eiga þau einn son barna. Þess má geta, að séra Jón Hnefill Aðalsteinsson er þriðji blaðamaðurinn við Morgunblaðið sem tekur prestsvígslu. Hinir fyrri voru séra Jens heitinn Benediktsson og séra Bjarni Sig- urðsson á Mosfelli. HAFNARFIBÐI: — Nú hefir aá atburður gerst hér tvívegis með skömmu millibili, að brotizt hef- ir verið inn í kindakofa og haft kynmök við gimbur. Ekki hefir hafst upp á þeim, sem verknað- inn framdi, en allt virðist benda til þess, að um sama manninn sé að ræða í bæði skiptin, því að handbrögð eru mjög lík við bæði innbrotin. Þá er talið útilokað að sá hinn sami sé mjög ungur að árum, því að sterkan mann hefir þurft til að brjóta upp kofana, eins og gert var. í fyrra skiptið, sem var 18. nóv. var brotizt inn í kindakofa og haft kynmök við gimbur, og var hún mjög illa útleikin eftir at- burðinn: Stóð á tæpu að ekki þyrfti að lóa henni. Var kallað á dýralækni, og staðhæfði hann að þessi atburður hefði átt sér stað. — Þetta var í kofa, sem var uppi í Kaplakrika. — Seinni atburð- urinn átti sér stað 6. des. og er Halda fast á rétti sínum Bonn, London, Wa&hington, 19. des. (Reuter/NTB) STJÓRN Austur-Þýzkalands hef ur tilkynnt, að hún muni stöðva alla flutninga til Vestur-Berlín- ar frá áramótum, verði ekki við- skiptasamningur Vestur-Þýzka- lands og Austur-Þýzkalands end urnýjaður fyrir þann tíma, en hanrr fellur úr gildi um áramót væru byggð á fjórveldasamn- ingum við Rússa og því væri við þá að ræða um þetta mál en ekki stjórn kommúnista í A- Þýzkalandi. sá kofl hér fyrir ofan kirkju- garðinn. Var fyrst brotizt inn i hesthús og þaðan komizt inn í kofann. Sá, sem verknaðinn framdi, dró eina kindina inn í hesthúsið og batt þar. Fann eig. andinn hana af einskærri tilvilj. nn. Var kindin það illa farin, að lóga varð henni. Lögreglan biður nú alla þá, sem kynnu að geta gefið) einhverjar upplýsingar um ódæð isverk þetta eða verða varir við grunsamlegar mannaferðir ■ við fjárhús, að gefa sig þegar fram, G. E. — Frásögn Framh. af bls. 1 um ýmsar aðrar leiðir að velja. Þá er þess getið í fréttinni, að fyrir nokkru hafi komið fram hugmynd um að setja upp fastar hlustunarstöðvar í hafinu beggja vegna Islands til að fylgjast með ferðum kafbáta. Var ætlunin að þessar stöðvar yrðu sjálfvirkar og festar í botninn. Nú eru sér- fræðingar hinsvegar komnir á þá skoðun, að þetta yrði of dýrt, enda gætu hlustunartækin slitn- að upp í stórviðrum. Segir að lokum í fréttinni, að öruggasta aðferðin til að fylgj- ast með rússneskum kafbátum sé að nota kafbáta með hlustunar tækjum og könnun úr lofti. £ IA /5 hnúfar $ V 50 hnútar ¥ Sn/óÁoma > OSi \7 S/eúrir IS Þrumur W/.Z, KuUaskil ^ Hilaskil H Hmt 1 L LagS 1 Ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna hafa báðar lýst yfir því, að þær muni halda fast á rétti sínum í Vestur-Bsrlín. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í dag. að réttindi Vesturveldanna í Berlín Á FIMMTA tímanum á laugar- dag var slökkviliðið kvatt að Mat stofu Austurbæjar á Laugavegi 118. Þar hafði kviknað í útvarps- tæki og brann það, en eltki komst eldurinn í annað. ( í GÆRMORGUN var norðan- S áttin, sem geisaði með hríðar- • veðri norðanlands á sunnudag, ^ gengin niður að mestu, o'g eft- S ir hádegi var hægviðri og úr- • komulaust um allt land, en ( farið að þykkna upp með sunn S anátt vestanlands. • Frost var allhart í innsveit- ( um, mest 16 stig í Möðrudal í s gærmorgun. Lægðin yfir ■ Grænlandshafi olli 12 stuhda j regni á veðurskipinu Alfa. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi . SV-land til Norðurlands og ' miðin: Sunnan kaldi eða stinn s ingskaldi og snjókoma fyrst, i SV stinningskaldi og skúrir ^ með morgninum en síðar él. s NA-land og miðin: SV-kaldi ) og skýjað í nótt en vestan eða ^ NV-kaldi og él á morgun. s Austfirðir, SA-land og mið- ) in: Sunnan kaldi og slydda ^ þegar líður á nóttina en léttir s til nrveð NV-áfct á morgun. )

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.