Alþýðublaðið - 25.11.1929, Page 2
2
ftfeÞ?ÐUabABI8
Húsnæðisástandið.
Fyrir nokkru hafa veriö birtir
hér í blaðinu fjölmargir útdrætt-
ir úr skýrslum húsnæðisnefndar-
innar um ástand ibúða og leigu-
kjör í bænum.
Skýrslur þessar sýna og sanna
það, sem reyndar alir áður
vissu: að ástandið er voðalegt.
Þúsundir karla, kvenna og bama
hafast við í þægindasnauðum,
rándýrum j íbúðum. Leigan ei'
geysilega misjöfn og yfirleitt
langt úr hófi há. Þrengslin eru
svo afskapleg, að stórhættulegt
er lífi og heilbrigði íbúanna,
einkum barna og unglinga. Fjöldi
íbúða eru allsendis óhæfar til að
vera mannabústaðir. Og minstu
og lökustu íbúðirnar, kjallara og
súðarherbergi, eru oftast leigðar
fyrir lang-hæsta leigu. I peim býr
látækasta fólkið, verkamennirnir
og verkakonurnar, sem hafa fyrir
stærstum barnahóp að sjá.
Síðasta alþingi samþykti lög
um verkamannabústaði. Sam-
kvæmt þeim á að veita styrk úr
ríkis- og bæja-sjóðum til að
koma upp bústöðum fyrir verka-
menn þar, sem „þörf er slíkrar
opinberrar aðstoðar‘‘ að dómi
nefnda, er bæjarstjórnir kjósa.
, Á fundi bæjarstjórnarinnar 3.
okt. s. 1., eða fyrir fullum 7 vik-
um, var húsnæðisnefndinni, sem
hefir látið semja skýrslumar um
húsnæðisástandið, falið að semja
álit um nauðsyn aukinna bygg-
inga í bænum. Mátti “ ætla að
henni væri kunnugast um þörf-
ina, svo að hún þyrfti eigi lang-
an tíma til umhugsunar.
En hvað skeður?
í fullar 7 vikur hefir nefndin
nú legið á málinu og engu áliti
skilað. Samt hafa á þessum tíma
verið gerðar viðbótarskýrslur, er
sýna, að á þridja hunclrad íbúda
eru ýmist. tvimœlalaust heilsu-
spillandi eda hœttulegar heilsu
ibúanna.
Þótt undarlegt megi virðast lít-
ur út fyrir, að einhver hluti
nefndarinnar sé í efa um, hvort
þörf sé aukinna bygginga og op-
inberrar aðstoðar. Nefndina
skipa: Jón Ásbjörnsson, sem er
formaður, Jón Ólafsson, Pétur
Halidórsson, Stefán Jóhann og
Sigurður Jónasson. Tók nefndin
málið fyrst fyrir 16. nóv., eða 6
vikum eftir að því var vísað tij
hennar, og frestaði þá ákvörðun.
Á fundi nefndarinnar 20. nóv. var
það aftur tekið fyrir og aftur
frestað.
1 gerðabók nefndarinnar á
þessum fundi er ritað:
„Stefán Jóh. Stefánsson flutti
eftirfarandi tillögu:
. „Eftir skýrslum peim um hús-
nœdi í Regkjavík, er ad tilhlutun
bœjarstjórnar hefir verid safnad
sídasilidid ár, og nú liefir verid
unnid úr, hefir þac) komid í Ijós:
1. ad í fjöldct mörgum íbúdum
bœjarins búa mikln fleiri
menn en hæfilegt er tcdid
vegna heilbrigdisástœdna,
2. ad margar íbúdir bœjarins eru
taldar heilsuspillandi eöa
vafasamar til aö búa í,
3. ad fjöldi manna býr í kjöllur-
um, sem búast má viö aö
margir verdi bannaöir til íbúd-
ar á nœstu árum eftir fyrir-
mœlum laga 57/1929, og
4. ad húsnœdi í Reykjavík er yf-
irleitt mjög dýrt og ördugt
fyrír fáitœkt fólk aö koma sér
upp íbuðum, einkum vegna
örðugleika á útvegun lánsfjár
og Ulra lánskjara.
Vegna pessa telur liúsnœðis-
nefnd, að í Reykjavík sé brýn
pörf slíkrar opinberrar aðstoðar,
sem rœðir um í lögum nr. 45
frá 14. júní 1929, um verka-
mannabústaði.“
Formaður nefndarinnar vœnti
pess að frestað vœri að taka á-
kvörðun um framkomna tillögu
og var pað pess vegna gert og
fundur í nefndinni ákveðinn
mánudaginn 25. p. m. kl. 6 síð-
degis, til pess að ganga endan-
lega frá pessu atriði.“ .
Tæplega er gerandi ráð fyrir
öðru en nefndin samþykki til-
lögu Stefáns. Að ætla henni ann-
að að óreyndu væri stórkostleg
móðgun við nefndarmennina.
Auknar byggingar fyrir verka-
menn er eina ráðið til að bæta úr
húsnæðisástandinu, tilað þvo þann
smánarblett af Reykjavíkurbæ,
sem skýrslurnar hafa gert aug-
ijósan öllum mönnum.
Eðlilegast væri að bærinn léti
byggja húsin og leigði svo eða
seldi íbúðirnar. Fáist það eigi.
verða verkamenn sjálfir að
mynda félagsskap til þess að
koma húsunum upp og krefjast.
þeirrar opinberu aðstoðar, sem
lögin áskilja þeim í þessu skyni.
Sambandsning nngra Safitaðar-
niaíina.
Það var sett í gær kl. U/t. For-
seti þingsins var kosinn Þor-
valdur Brynjólfsson og varafor-
seti Þóroddur Guðmundsson. Rit-
arar voru kosnir Haukur Björns-
son og Marteinn Skaftfells.
Fyrsta mál á dagskrá var
skipulagsmál og urðu töluverð-
ar umræður um það. Nefnd var
kosin í málið og skal hún skiia
áliti til þingsins; skulu tillögur
hennar fyrst ræddar á þinginu,
en síðan skal þeim visað til milli-
þinganefndar, er skal skila áliti á
næsta þingi. - Samþykt var eftir
nokkrar umræður að næsta þing
skyldi haldið næsta haust ó
Siglufiröi. Voru allir þeir fulltrú-
ar, er til máls tóku, þeirrar slcoð-
unar, að þaÖ myndi efla sam-
heldni innan S. U. J., að halda
þingin ekki alt 'af í Reykjavík,
heldur á félagsstöðvunum til
skiftis.
Sambandsstjórn var falið að
útvega heppileg merid fyrir sam-
bandsfélaga og athuga möguleik-
ana fyrir því að fá sérstakan
búning, er félagar notuðu við há-
tíðleg tækifæri, á fundum, há-
tiðum, í skemtiferðum o. s. frv.
Fundi var slitið kl. 5. Fundur
hefst í kvöld kl. 8 í alþýðuhúsinu
Iðnó uppi. Á dagskrá eru þessi
mál: Kjör iðnnema, börnin og
jafnaðarstefnan, útbreiðslustarf-
semi, fræðsluritaútgáfa, S. U. J.
og alþingishátíðin.
Úígerð skipa rlklslns.
Atvinnumálaráðherra (Tr. Þ.)
hefir ákveðið, að frá næstu ára-
mótum • verði útgerð ríkissjóðs-
skipanna undir sérstakri stjórn,
en útgerð „Esju“ hefir, eins og
kunnugt er, hingað til verið falin
h.f. Eimskipafélagi Islands. Tek-
ur Pálmi Loftsson, núverandj
skipstjóri á „Esju“, við útgerð-
arstjórn hennar fyrir ríkisins
hönd og sömuleiðis varðskipa
og vitaskipsins „Hermóðs".
Auk þess er það mjög í ráði,
segir ráðherrann í bréfi, sem
hann hefir sent Eimskipafélaginu
af þessu tilefni, að keypt verðj
nýtt strandferðaskip, ef á þvj
fást góð kaup. — Verður og
vonandi af því, að stjórnin notj
þá heimild, sem henni er veitt j
lögum, svo að fengið verði gott
strandferðaskip þegar á næsta
vori. Annast þá útgerðarstjórj \
ríkisins einnig rekstur þess.
Enn fremur hefir það komið
til athugunar, skrifar ráðherrann,
að einn eða fleiri af flóabátun-
um kæmi þar með í hóp til út-
geröar. > —' Útgerðarstjóranum
verður einnig falið að hafa eft-
irlit af hálfu rikisins með rekstrj
flóabáta, sem ríkið veitir fé til,
og að endurskoða skipulagið á
þeim rekstri.
Það er vel, að sú stefna hefir
nú verið tekin upp, að rikið ann-
ist sjálft rekstur skipa sinna.
Raímagnsveita Reybjavikur
er ebki útsvarsskyld í Seltjarn-
iurnesshreppi,
Úrskurður fógetaréttar.
Hreppsnefnd ' Seltjarnarness-
hrepps lagði útsvar á rafmagns-
veitu Reykjavíkur vegna afnota
af Elliðavatni, 250 ltr. Bæjar-
stjórnin neitaði að greiða út-
svarið, þar eð rafmagnsveitunnj
bæri ekki að greiða Seltjarnar-
nesshreppi neitt útsvar. Kom tij
fógetaúrskurðar um, hvort Sel-
tjarnarnesshreppur gæti látið
taka útsvarið lögtaki. Hefir fó-
getarétturinn felt úrskurð og
synjað Seltjarnarnesshreppi um,
að lögtakið megi fram fara.
SblMinganesskanptún
og vatnsveita Reykjaviknr.
Eins og kunnugt er höfðaði
Vatnsveitufélag Skildinganess
snemma í sumar’mál gegn bæj-
arstjóm Reykjavíkur og krafð-
ist þess, að því yrði heimilað að
taka vatn úr vatnsveitu bæjar-
ins um sérstaka ieiðslu handa
SMldinganesskauptúni. Reisti fé-
lagið þessa kröfu sína á ákvæð-
um, sem Jón Þorláksson, er hann
var fulltrúi Reykvíkinga á al-
þingi, kom inn í lögin um stækk-
un lögsagnarumdæmis bæjarins.
En Jón og Eggert Claessen eru,
sem kunnugt er, helztu lóða- og
land-eigendur í Skildinganesi.
Guðmundur ólafsson hæsta-
réttarlögmaður skyldi verja mál-
ið fyrir bæinn. Af einstakri
greiðasemi við sækjendurna félst
hann á, þvert ofan í gildandi
venjur, að málið yrði tekið fyrir
í réttarfríinu í sumar, og þótti
flestum slík „greiðasemi" undar-
leg mjög af bálfu verjanda bæj-
arins.
Fyrir skömmu var dómur upp
kveðinn í máli þessu. Var aðal-
niðurstaða dómsins sú, að Vatns-
veitufélagi SMldinganess skuli
heimll vatnsnotkun úr vatns-
leiðslu Reykjavíkur, svo fremi
að vatn sé nægilegt í vatnsveit-
unni, að áliti dómkvaddra
manna, og að vatnstakan valdi
eigi Reykjavíkurbœ verulega ó-
hagnaði.
Nú er það vitanlegt, að í ýms-
um hverfum bæjarins vantar
mikið á að nægilegt vatn fá-
ist, * svo að fullar líkur eru til,.
að Reykjavík, að minsta kosti
fyrst um sinn, komist hjá að
láta vatniö.
Dómnum var þegar áfrýjað tif
hæstaréttar.
Alþýðuflokksfulltrúarnir í bæj-
arstjórn beittu sér fyrir því, að
ekM yrði látið undan kröfum
Skildinganessbúa, er byggðust á
lögkrókum Jóns Þorlákssonar,
heldur leitað úrskurðar dóm-
stólanna.
Mál þetta hefir geysimikla fjár-
hagslega þýðingu fyrir Eggert
Claessen og Jón Þorláksson.
Baugur og Claessen hafa á tæp-
um 2 árum ■selt lóðir í Skiídinga-
nesi fyrir yfir 150 þús. krónur.
Er það þó að eins lítill hluti af
landi þeirra þar. Hitt er margfalt
meira, sem þeir eiga enn óselt.
Verði Reykjavíkurbær dæmdur
til að láta Skildinganessbúa fá
vatn, margfaldast lóðaverð þeirra
Jóns og Claessens. Þá græða þeir
sennilega hundruð þúsunda á
verðhækkun landsins. Vonandi.
verður það ekki fyrr en verð-
hækkunarskattur er lögfestur.
Bogi Ólafsson
hefir nýlega verið sMpaður
fastur kennari við Meníaskólann,
en áður var hann aukakennari
skólans.