Morgunblaðið - 01.06.1961, Síða 10
10
MORGVNBLAÐ1Ð
Fimmíudagur 1. júní 1961
Veizlan á
Hótel
f GÆRKVÖLDI héldu forseti
fslands og forsetafrú Dóra Þór
hallsdóttir Ólafi konungi Nor
egs veizlu á Hótel Borg. Voru
þar boðnir 186 gestir, þar á
meðal ráðherrar, sendiherrar
erlendra ríkja, fylgdarlið kon
ungs o.fl.
>f
KI. hálf átta tóku prúðbún
ir gestir að streyma að suður
dyrum á Hótel Borg og kl.
8:05 komu íslenzku forseta-
hjónin um aðaldyr. Margt
manna var fyrir utan til að
sjá gesti koma. Forsetafrúin
var klaedd sínum fallega skaut
búningi með víravirkiskoffri
og sporabelti og bar fálkaorðu
í borða með íslenzku fánalit
unum. Forseti var klæddur
kjólfötum með fjölmargar
orður, þar á meðal keðju Ólafs
orðunnar. í anddyrinu tóku
við yfirhöfnum þrjár konur í
upphlutum og með hvíta
hanzka.
Skömmu seinna kom kon-
ungur, klæddur einkennisbún
ingi með keðju Fálkaorðunnar
og fjölmargar aðrar orður.
Fögnuðu forsetahjónin honum
í anddyrinu og gengu með
honum inn. Hljómsveit lék,
en gestir stóðu við sæti sín.
• Falleg skreyting — prúð-
búnir gestir.
Gyllti salurinn var fagur
lega skreyttur, mest í rauð-
um, bláum og hvítum litum,
fánalitum íslands og Noregs.
Með suðurvegg var háborðið
og út frá því sex borðarmar
út í salinn og að auki tvö
langborð í áfasta salnum. Suð
urveggurinn var tjaldaður
hvítu og skreyttur rauðum og
bláum borðum og fallegum
blómalengjum, þar sem mest
bar á rauðum blómum af ýms-
um gerðum. Höfðu blómaverzl
anir í Reykjavík séð um
skreytinguna, sem mun fá að
standa óbreytt í 1—2 daga.
Norðurveggurinn var tjaldað
ur bláu með hvítum og rauð
um borðum, en þar voru
blómaskreytingar í gulu og
bleiku. Á endavegg voru þjóð
fánarnir,_ sá norski og sá ís-
lenzki. Á borðum var hvítt
postulín, krystalglös, allt
skreytt gylltu og rauðleitir
blómvendir í vösum og laus
blóm á borðum.
Borg
• Góðtur matur.
Fyrir miðju háborði sat
Ólafur konungur og forseta-
hjónin til beggja hliða og til
hliðar við þau forsætisráð-
herra og frú hans. Undir borð
um lék hljómsveit, m.a. Eine
kleine Nachmusik eftir Moz-
art, syrpu af íslenzkum lögum
í útsetningu Emils Thorodd-
sen, norskar rapsódíur eftir
Svendsen o.fl. Fyrst var á
borð borin skjaldbökusúpa
(Pötage Tortue Claire), þá
laxréttur (Saumon bouilli
sauce Hollandaise).
Forseti íslands reis úr sæti
sínu og flutti ræðu, sem birt
er annars staðar. Á undan báð
um ræðum var blásin fornald
armúsik.
Að ræðum loknum kom kjöt
rétturinn, endur með steikt
um eplum (Caneton roti sauce
Normande) og ábætir, rjóma
rönd (Bavarois Diplomate).
Tilheyrandi vín voru með
hverjum rétti, sherry, hvít-
vín, rauðvín og köníak eða
liqueur. *
*
f veizlunni var margt prúð-
búinna gesta, karlmenn í kjól-
fötum með orður, eins og fyrir
var mælt á boðskorti, ráðherr-
ar flestir með stórkross Ólafs-
orðunnar, konur í alsíðum
kjólum. Mest bar á ljósum
kjólum og 15 konur voru í
íslenzkum búningum. 13 skaut
uðu og tvær voru í fallegum
peysufötum, biskupsfrúin í
glæsilegum flaujelspeysuföt-
um með gulllamesvuntu og
slifsi. Af konum við háborð-
ið má nefna, að forsetafrúin
var í ljósbláum siffonkjól,
utanríkisráðherrafrúin í ljós-
lilla litum kjól með stein-
ísaumi, frú Auður Auðuns,
forseti bæjarstjórnar í sæ-
grænum satínkjól með stein-
útsaumi og bar fjölmargar
orður, konur landbúnaðar- og
félagsmálaráðherra í mjög
fallegum kjólum. Of langt
yrði að telja upp fleiri.
Ólafur konungur yfirgaf
veizlusalinn kl. 11.30 og aðrir
gestir fóru úr því. Talsverður
mannfjöldi var samansafnað-
ur fyrir utan til að sjá gest-
ina yfirgefa veizlusalinn.
(Á bls. 15 er listi yfir veizlu
gestina).
Viö styttu
Jöns forseta
Á HÁDEGI lagði Ólafur Noregs-
konugur blómsveig að styttu
Jóns Sigurðssonar, . forseta á
Austurvelli. Þar hafði safnazt
saman mikill mannfjöldi, sem
stóð allt í kringum völlinn og í
gluggum og á svölum húsanna í
kring, og var konungi fagnað
með lófaklappi er hann kom ak-
andi að Alþingishúsinu með for-
seta íslands, Ásgeifi Ásgeirssyni,
og föruneyti sínu.
Á grasflötinni framan við
styttuna höfðu tekið sér stöðu
íslenzku ráðherrarnir, ráðuneytis
stjórar, borgarstjóri, foxseti bæj-
arstjórnar o. fl.
Konungur og forseti fslands
gengu ásamt Lange utanríkisráð-
herra og öðru fylgdarliði að
styttunni og Ólafur konungur
lagði að fótstallinum fagran blóm
vönd úr lyngi, skreyttan rauðum,
bláum og nvítum blómum og
borða í fánalitum Noregs með
áletruninni: Kongen av Norge.
Þá sungu Karlakór Reykjavíkur
og Fóstbræður norska þjóðsöng-
inn og íslenzka þjóðsönginn
undir stjórn Ragnars Björnsson-
ar og Sigurðar Þórðarsonar. Var
athöfnin öll ákaflega hátíðleg.
| Meðan á henni stóð brauzt sólin
. frarri, og skein í heiði.
| Við Aiþingishúsið tóku á móti
könungi forsetar Alþingis, Friðj-
ón Skarphéðinsson, Sigurður
Óli Ólason og Jóhann Hafstein.
Skoðaði konungur Alþingishúsið
undir þeirra leiðsögn og komu
hann og forseti íslands út á svalir
hússins.
Meðan konungur Og forseti
stóðu á svölunum, söng kórinn
norska konungssönginn og mann*
fjöldinn bauð Ólaf konung vel*
kominn, með ferföldu húrrahrópi
undir stjórn Jónasar B. Jónsson-
ar skátahöfðingja.
Síðan óku konungur, forseti fa
lands og fylgdarlið aftur að Ráð«
herrabústaðnum, þar sem fram»
reiddur var hádegisverður.