Morgunblaðið - 01.06.1961, Síða 22
22
M ORGVfl BLAÐ1Ð
Fimmtudagur 1. júní 1961
Derby-hlaupið og Skot-
arnir á ritstjórn Mbl.
Laugardalsvöllurinn likist bezta
velli Skotlands
UM miðjan dag í gær fékk Morg-
unblaðið skemmtilega heimsókn.
Þar voru komnir um tíu af
skozku kmattspyrnumönnunum
St. Mirren með þjálfara sínum
Mc Garvey og Mc Murdo sem
lengst starfaði hér á landi við
þjálfun íslenzkra knattspyrnu-
manna.
★
Þeir komu til fréttamannanna
og skýrðu frá því að þá um dag-
inn færu fram hinar heimsfrægu
Derby veðreiðar. — Eigið þið
ekki sterkt útvarpstæki, svo við
getum fylgzt með veiðreiðunum.
★
Það leið ekki á löngu þar til
Skotarnir höfðu safnazt kringum
útvarpstækið og hlustuðu fullir
af ákafa Og spenningi á lýsingu
veðreiðanna. Það var engin furða
þó þeir væru æstir, því að sumir
Iþeirra höfðu veðjað stórfé á
uppáhaldshestinn sinn. Knatt-
spyrnumennirnir undruðust það
ekki þótt þeir gætu heyrt út-
varpslýsinguna, en þeir ráku upp
stór augu, þegar þeir komust að
því að úrslit veðreiðanna komu
á fjarritann frá Reuter næstum
því á sömu sekúndu og keppn-
inni lauk. Verst var að þeir
kvöddu í lakara skapi en þeir
komu, enginn hafði unnið neitt
í veðmálunum.
Skotarnir sögðusj hafa haft
mikla ánægju af því að fylgjast
með konungskomunni. Ég hafði
myndavélina með sagði einn og
náði mynd af konunginum og for
setanum.
★
Þeir létu í ljósi mikla ánægju
með grasvöllinn í Laugardalnum.
Hann er fjaðurmagnaður og
miklu sléttari en okkar völlur.
Hann er einna líkastur grasvell-
inum við Aberdeen, sem er bezti
völlur Skotlands.
Nýtt tannkrem með munnskol-
unarefni í hverju rauðu striki
Signal er fremra öllu öðru tannkremi.
bví aðeins bað gerir tennur vðar skínandi hvítar
og gefur vður hressandi munnbragð.
Sérhvert gott tannkrem hreinsar
tennurnar, en hið nýja SIGNAL
gerir miklu meira!
Hvert og eitt hinna rauðu strika
SIGNALS inniheldur Hexa-
Chlorophene. Samtímis því,
sem hreinsunarefni SIGNALS
gætir og verndar tennur yðar,
blandast þetta kröftuga rotvarn-
arefni munnvatninu og um leið
og það hreinsar munninn.
Burstið því tennur yðar reglu-
lega með SIGNAL og njótið
þar með bezta fáanlega tann-
kremsins, sem inniheldur hvort-
tveggja í senn, ríkulegt magn
hreinsunar- og rotvarnarefna.
Látið alla fjölskyldu yðar nota
þetta nýja undra-tannkrem, með
munnskolunarefni í hverju rauðu
striki. Byrjið að nota SIGNAL
strax í dag.
Petta er ástæðan fyrir því, að SIGNAL
inniheldur munnskolunarefni í hverju
rauðu strikl.
X—SIG 1/IC 9658
Ingmar er
ekki hœttur
ÞAÐ HAFA heyrzt raddir um að
sænski hnefaleikakappinn Inge
mar Johanson vildi hætta keppni
í hnefaleikum. Nú síðustu daga
hafa hins vegar borizt fregnir um
að hann hafi samið um frekari
leiki og í fyrradag var gefin
út tilkynning um að hann hefði
skrifað undir samning um kapp
leik við Sammy Liston — banda
rískan blökkumann — og á leikur
inn að fara fram í septembermán
uði. Sammy hefur sigrað á rot
höggi í langflestum leikjum sín-
um til þessa — en sömu sögu er
að segja um Ingemar.
Svíar
unnu
SVÍAR UNNU Sviss í knatt-
spyrnu á sunnudaginn með 4:0.
Leikurinn var liður í undan-
keppni heimsmeistarakeppninnar
en í þeim undanrásum eru Sví-
þjóð, Sviss og Belgía.
Leikurinn á sunnudaginn var
ójafn. Svíar áttu mun meira í
leiknum Og voru vel að sigrinum
komnír, Þeir hefðu jafnvel átt
stærri sigur skilinn.
4
W
BIKARKEPPNI Bridgesamband*
íslands lauk nú nýlega. 15 sveitir
tóku þátt í keppninni, sem er
úrslitakeppni og í undanúrslit
komust sveitir Laufeyjar Þor-
geirsdóttur, Brands Brynjólfssoa
ar, Mikaels Jónssonar og Jakobs
Bjornasonar. f úrelitakeppnimd
fóru leikar þannig að sveit
Jakobs vann sveit Laufeyjar
82:69 og sveit Brands vann sveiít
Mikaels 96:56. Til úrslita spiluðn
því sveitir Jakobs og Brands og
sigraði sveit Jakobs 12'8:124. f
sveitinni eru auk Jakobs, Hilmar
Guðmundsson, Jón Björnsson,
Rafn Sigurðsson, Jón Arason og
Vilhjálmur Sigurðsson. Sveitir
Mikaels og Laufe yjar spiluðu um
þriðja sætið og sigraði Mikaela
86:80. í kep’pni þessari er keppt
um fagran bikar er Stefán Stef-
ánsson, Akureyri gaf til keppn-
innar. Árið 1960 sigraði sveit
Hjalta Elíassonar í keppni þess-
ari.
Guðjón Eyjólfsson
löggiltur endurskoðandj
Skólavörffustíg 16
Sími 19658.