Alþýðublaðið - 05.12.1929, Blaðsíða 2
B
AisÞÝÐUfi&ASIS
Frá sjómönnunum.
FB., 4. dez.
Liggjum á Önundarfirði. Vel-
líðan. Kveðjur til vina og vanda-
manna.
Skipshöfnin á „Ver“.
KlofningnF pízkra Djóöernis-
sinna.
FB., 5. dez.
Frá Berlín er símað: Lagafrum-
varp Hugenbergs, flokksformanns
'þjóðernissinna, um að banna að
staðfesta Youngsamþyktina, hef-
ir valdið klofningi meðal ’þjóð-
emissinna. Allmargir þingmenn
þeirra eru andvígir frumvarpinu.
Tólf merkustu ’þingmenn þjóðern-
issinna hafa sagt sig úr flokkn-
um. Westarp, foringi þjóðemis-
sinna í ríkisþinginu, hefir afsalað
sér formenskunni.
vinnú, sem að einhverju leyti er
upp á ameríska ferðamenn kom-
in, hafa beðið stórkostleg töp,
þar eð amerískum ferðamönnum
í Evrópu hefir fækkað til mikilla
, muna. Demantasala í Suður-Af-
ríku er hætt eins og stendur.
Demantagrafarar þar krefjast
styrks frá rikinu.
Nýtt íeldgos i Vestur-Indíum'
Frá Forte de France á Mar-
tinique í Vestur-Indíum er símað:
Nýtt gos kom úr Pelé-eldfjall-
inu. er stóð yfir í hálfa klukku-
stund. Mikill reykjarmökkur
breiddist yfir 1,0 kílómetra breitt
svæði.
Boðskapur Hoovers til
þjóðjjugs Bandarikjanna.
Hermálaútgjöld prefalt hærri
’ en 1914. — Verðhrunið veldur
atvinnuleysi.
Kröfur um vaxtalækkun
og þjóðgagnlegri lán.
Þingmálafundir, sem haldnir
vom í gær á Eyrarbakka og
Stokkseyri, samþyktu í einu
hljóði svofelda áskorun:
„Fundurinn skorar fastlega á
landsstjórnina að sjá mn, að út-
lánsvextir banka verði nú þegar
lækkaðir.“
Á í þingmálafundi í Borgarnesi
var nýlega samþykt þessi álykt-
un:
„Fundurinn lýsir megnri óá-
nægju sinni yfir því, að fé bank-
anna hefir verið mjög lánað ein-
stökum „spekúlöntum" trygging-
arlítið, svo að tapast hefir og
vaxtahækkun hlotist af. Skorar
fundurinn á stjórn, alþingi og
aðra forráðamenn bankanna að
lána fé þeirra einkum til eflingar
framleiðslu, er skapar sem flest-
um einstaklingum- sjálfstætt
starf.“
Lækknn á mjólknrverði.
Mjólkurbú Flóamanna tekur til
starfa í dag. Hefir það vélar af
allra nýjustu gerð til þess að
gerilsneyða mjólkina án þess að
hún missi nokkuð verulega ný-
mjólkurbragðið. Hafa Flóamenn
fengið danskan mann, Jörgensen
að nafni, æfðan mjólkurbús-
stjóra, til þess aÖ standa fyrir
búinu. Er gerilsneydd mjólk nú
seld á 54 aura frá Mjólkurfélag-
inu, en mjólkin frá Flóabúinu
verður seld að eins á 44 aura. Er
þetta talsverð lækkun á mjólk-
inni, og hlýtur þetta fyrst og
fremst að leiða til þéss, að geril-
sneydda mjólkin lækkar hér í
Reykjavík og í öðm lagi hlýtur
þetta að leiða til þess, að önnur
mjólk lækki að mun í verði. Al-
þýðubrauðgerðin og ýmsar
mjólkurbúðir i sambandi við
hana hafa þessa mjólk til sölu í
fyrra málið, og taka framvegisi á
móti pöntunum á mjólk frá
Mjólkurbúi Flóamanna. Auk þess
mun búið hafa í hyggju að setja
á stofn sérstaka búð hér í
Revkjavík fyrir afurðir þess.
Ifaínarkjörðup.
Verkakvennafélagið, Framtiðin*
í Hafnarfirði heldur árshátíð sína
annað kvöld í Góðtemplarahús-
inu. Hátiðin hefst kl. 8 með kaffi-
drykkju. Ýmislegt verður til
skemt'unar. Talað verður fyrir
minni félagsins, góður söngvari
syngur, ágætur ræðumaður talar,
sjónleíkur verður sýndur og síð-
an verður danzað. fram eftir
nóttu. Verklýðsskemtanir í Hafn-
arfirði. eru beztu skemtanir, sem
þar eru haldnar, og ekki eru
skemtanir verkakvenna síztar. Er
líka fullvíst, að fjölment verður
á árshátíðinni annað kvöld.
Nauðsynlegt er að allir komi
stundvíslega.
Úr Borgarfirði.
Skemdir af völdum ofveðursins.
FB., 4. dez.
Frá Borgarnesi er símað: f of-
viðrinu fauk hlaða á Amarstapa í
Álftaneshreppi. Einnig fauk hláða
á Snorrastöðum og hey í Syðstu-
Görðum. Víðar í Hnappadalssýslu
urðu hey- og hús-skaðar. Á Litlu-
þúfu og Stóruþúfu í Míklaholts-
hreppi fuku hey. í Miklaholtsseli,
sem stendur undir Hafursfelli,
fletti af öllum þökum, baðstofu
og úthúsum. Einnig varð þar
einhver heyskaði. Þar er byljótt
mjög undir fellinu.
Erfiðlega hefir gengið með
uppmoksturinn hér vegna áhalda-
bilana á uppmokstursskipinu og
ótíðar. Varð margra daga töf um
dagínn af þessum orsökum og nú
aftur. Nú eru komnir hingað
tveir viðgerðarmenn úr „Hampj“.
til þess að gera við áhöldin á
skipinu.
Bráðapest er engin í héraðinu,
að því er vitað er hér. — Heilsu-
far manna er gott og vellíðan.
Brlemd sÍMSskeyti.
FB., 3. dez.
Afleiðingar brasksins.
Frá Lundúnum er símað: Af-
leiðingar verðhrunsins í kauphöll-
inni í Bandaríkjunum koma stöð-
ugt betur í ljós beggja megin At-
lantshafsins. Síðustu hagskýrslur
sýna, aö framleiðsla ýmiss konar
varnings og efnis hefir minkað
töluvert vegna verðfallsins: Eru
til nefndar bifreiðar, vefnaðar-
vörur, ýmislegt til húsagerðar,
skófatnaður, baðmullarvörur og
stáliðnaðarvörur.
Eigendur gistihúsa í Frakklandi
og Sviss og fleiri Evrópulöndum,
þeir sem verzla með munaðar-
vörur, og ýmsir, er stunda at-
FB., 4. dez.
Frá Washington er símað:
Hoover forseti hefir sent þjóð-
þingi Bandaríkjanna hinn árlega
forsetaaboðskap. Kveður Hoover
ófriðarbannssáttmála Kelloggs
hafa styrkt friðinn, en hins vegar
valdi vaxandi hermálaútgjöld
Bandarikjanna stjórninni miklum
áhyggjum. Otgjöld þeirra til her-
mála eru á þessu fjárhagsári 770
milljónir dollara eða þrefalt
hærri en árið 1914. Þau eru auS
þess langtum meiri en her-
málaútgjöld nokkurs annars ríkis
í heiminum. Telur Hoover það
undir flotamálafundinum komið,
sem haldinn verður í janúar,
hvort hægt muni aÖ lækka her-
málaútgjöldin. Hoover er bjart-
sýnn á fjárhagsástandið í
Bandaríkjummi, þrátt fyrir
verðhrunið, sem hefir valdið tals-
verðu atvinnuleysi.
Hoover telur takmörkun inn-
flutnings fólks til Bandaríkjanna
hafa reynst heppilega, en kveðst
samt vpra mótfallinn núverandi
fyrirkomulagi (the quota system)
og vonar, að hægt sé að finna
annað fyrirkomulag, sem reynist
enn betur.
Ógnrlegir knldar í Chícaco
og víðar.
60 manns frjósa til bana.
FB„ 4. dez.
Frá Chicago er símað: Miklir
kuldar eru hér sem stendur og
snjókoma. I Illinois og næstu
ríkjum hafa 60 manns frosið til
bana. Skipaferðir á Michigan-
vatni hafa stöðvast.
Hormulegt slys.
Barw brennur til bana.
„Lögberg“ skýrir frá því, að
sjúkrahúsið í Shoal Lake í Mani-
toba hafi brunnið til kaldra kola
30. okt. 1 eldinum fórst fárm
daga gamalt bam, dóttir J. Ás-
grímssonar bónda að Gerald í
Saskatschewan. Allir aðrir, sem
í byggingunni voru, björguðust ó-
meiddir. Jafnskjótt og eftir þvl
var tekið, að eitt af bömunum
hafði orðið eftir í byggingunni,
fóm dr. Sigurgeir Bardal sjúkra-
hússlæknir og Miss M. Avison, yf-
irhjúkrunarkonan, enn inníbygg-
dnguna, þrátt fyrir alvarlegar að-
yaranir viðstaddra. Lögðu þau sig
í mikla lífshættu til þess að
bjarga barninu, en eldurinn og
reykurinn voru þá orðnir svo
magnaðir, að ekki var viðlit að
komast þangað, sem bamið var.
(FB.þ
Sendinefnd Bandaribjanna
á algingishátiðiM*
FB. hefir áður getið um, hverjir
'valdir hafi verið í nefnd þá, sem
stjóm Bandaríkjanna sendir á
alþingishátíðina að ári. Til viðbót*
ar þvi, sem áður var sagt um fs-
lendingana tvo, sem em í nefnd-
inni, skal þess getið, að Svein-
björn Johnson er nú prófessor í
lögum við háskólann í Chicago,
en Friðxik Fjozdal er forseti al-
þjóðasambands jámbrautarþjóna,
sem bedir aðsetur í Detroit í
Michigan. (FB.)
Ilm ásiggÍKiM oy voyiiaas.
STIGSTOKUFUNDUR föstudag
kl. 81/2 í G.-T.-húsinu við Voh-
arstræti. Pétur Zophoníasson
talar.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Laugavegi 49, sími 2234.
Bæjarstjórnarfundur
er í dag í Góðtemplarahúsinu
og byrjar kl. 5. Á dagskránni
eru framhaldsumræður um hús-
næðismálið, frh. 2. umr. um eft-
irlaunasjóð starfsmanna Reykja-
víkur, sem lagt er til að heiti
Eftirlaunasjóður Reykjavíkur-
borgar, 2. umræða um fjárhags-
áætlanir bæjarsjóðs Reykjavíkur
og háfnarsjóðs fyrir næsta ár,
tilkynning dóms í máli vatns-
veitufélags Skildinganesskaup-
túns við Reykjavíkurborg, sem
ekki komst að á síðasta bæjar-
stjórnarfundi, o. fl.
Húsasmiðui.
Byggingarnefndin hefir viður-
kent Ebeneser Bergsveinsson,
Bragagötu 27, fullgildan til að
veita forstöðu húsasmíði í
Reykjavík.
Bygglngaríeyfl.
Síðusíu tvær vikur hefir aó