Morgunblaðið - 24.02.1962, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.02.1962, Blaðsíða 11
Laugardagur 24. febrúar 1962 MORGUNBLAÐIÐ 11 Jón Ingimarsson: k leið til Bríissel Leikritið „Gestagangur" eftir Sigurð A. Magnússon var frum- sýnt í siðustu viku í Þjóðleikhúsinu. Leikurinn hefur hlotið ágæta dóma og undirtektir áhorfenda hafa verið mjög góðar á sýningunum — Myndin er af Gunnari Eyjólfssyni og Her- dísi Þorvaldsdóttur í hlutverkum sínum. — Næsta sýning verður í kvöld kl. 8. L í>að er nú orðið fullvíst, að Noregur sæikir á næsfcunni um aðild að Efnaihagsbandalagi Evrópu, og hafa þá öll EFTA- löndin sjö sótt um einhjverskonar aðild að bandalaginu. Takist þessir samningar standa aðeins Æjögur vesturevróiniríki utan bandalagsins, þ.e.a.s. Spánn, Portúgal, Finnland og ísland. Tvö þau fyrstnefndiu uppfylia væntanlega ekiki skilyrði fyrir aðild, eins og þau voru sett fram af stjórnmálanefnd banda- lagsins í s.l. miánuði. En þar var m.a. krafizt, að land sem fengi inngöngu 1 bandalagið yrði að lúta lýðræðisstjórn. Finnland gæti sennilega uppfyllt skilyrðin sjö fyrir aðild, en hæpið er að Finnar leggi í að ögra Rússum með samstarfi við bandalagið að sinni. ísland ætti að geta upp- fyllt öil skilyrðin fyrir inngöngu, þó að vafi kunni að leika á iðn- aðarkröfunni, og þróunarhæfni felen2Íka iðnaðarins á mæli- kvarða háþróaðra iðnaðarlanda. , fíamkomulagið, sem náðist inn- an bandalagsins, um 2. áfanga í 12 ára áætluninni hefur styrkt mjög aðstöðu sexveldanna, sem stofnuðu bandalagið og álit þess út á við. Nú er svo komið, að bandalagið er talið hafa skotið rótum og verði varla upprætt úr því sem komið er. Talað er um það í fullri alvöru, að hér sé á ferðinni fyrsti vísirinn að Banda- ríkjum Evrópu, ríkjasamsteypu, sem yrði fljótlega stórveldi á efnahagssviðinu, samhærilegt bæði við ríkjasamsteypu Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna. ! Hin smærri íiki sexveldanna eru andvíg samningum um auka- aðild að bandalaginu, eins og einkum kom fram af háltfu full- trúa Belgíu á nýafstaðinni ráð- stefnu þingmannanefndar banda- lagsins. Danir eru þessa dagana að semja um aðild. Þeir reikna méð fullri aðild en áskilja sér samt rétt lil að standa við áður gerða samninga svo sem um norrænan vinnumarkað o.fl., sem kann að stangast við samþykiktir Efnahagsbandalagsins. Þráitt fyrir samning bandalagsins við Grikkland, er nú orðið almennt álitið, að erfitt verði fyrir ríki utan bandalagsins að ná samn- ingum um aukaaðild með veru- legri sérstöðu svo sem Norðmenn höfðu upphaflega hugsað sér. í Noregi virðist sú skoðun ríkj- andi að ekki sé til setunnar boð- ið fyrir Norðmenn, þegar Bretar, írar og Danir hafla gerzt fullgild- ir meðlimir. Reiknað er með að a.m.k. 140 meðlimir Stórþingsins eéu fylgjandi aðild Noregs í ein- hverri mynd. Hægri flokkurinn Stendur óskiptur með fullri að- iild en aðrir flokkar virðast meira og minna skiptir milli fullrar aðildar og aukaaðíldar. Allt bendir samt til þess, að Norðmenn feti nokkuð í fótspor Dana, þ.e.a.s. velji fulla aðild mieð áskilnaði um framhald nor- rænnar samvinnu á ýmsum svið- um sem snerta stanfsemi Efna- hagsbaindalagsins. i í Noregi hefur verið rekinn mjög viíðtækur áróður bæði fyrir eðild og gegn. Verkamanna- flokkurinn heflur kynnt málið með víðtækum fundarhöldum í fiokksfélögunum og í fagfélög- um. Á fiestöll'um þessara funda hafa verið gerðar samþyikktir fylgjandi aðild í einhverri miynd. í byrj-un marzanánaðar mun Stórþingið svo væntanlega hefja umræður um málið, m.a. með því «ð fjaiíla um framkomna tillögu til breytingar á stjórnanskrá Noregs. ■ Innganga Noregs og Bretlands I Efnahagsbandalagið gerir að- ■töðu íslandis enn verri en orðið var með samikomulaginu um 2. étfanga. Að því hlýtur að koma í næstu framtíð, að ísland gerist að einhverju leyti aðili að þess- ari efnahagssamvinnu. Vaknar þá sú spurning, hvort aðild fs- lands að Efnahagsbandalaginu sé samrýmianleg ílslenzikuim lög- um eða heimil samkvæmt stjórn arskrá lýðveldisins. Ýmsar þjóðir hafa talið nauð- synlegt að breyta sínum stjórn- anskrárákvæðum til þess ótví- rætt að heimila þátttöku í Efna- hagsbandalaginu. Verður nú vikið að íslenakum viðhorfum í þessu efni og uppbyggimgu banda lagsins og framkvæmdastofnana þess. II. Efnahagsbandalag Evrópu var stofnað með Rómar-sáttmálanum 25. marz 1957. Helztu atriði sátt- málans eru ákvörðun um afnám tolla og inn- eða útflutnings- hafta í milli sexveldanna (Belgíu, Frakklands, Hollandis, ftalíu, Duxemburg og Þýzka- lands, samræming tolla og sam- eiginleg verzlunarstefna gagn- vart ríkjum utan bandalagsins, ákvörðun um sameiginlegan vinnumarkað, gagnkvœmt fjár- festingarírelsi í atvinnurekstri svo og stofnun fjárfestingar- banka til fjármagnsmiðlunar. Loiks má t.d. nefna stofnun al- mannasjóðs, til þess m.a. að standa undir kostnaði við nauð- synlega umsókn, fagþjálifiun eða flutninga, sem launþegar æskja milli vinnustaða innan landa- mæra bandalagsins. Auk þessa er t.d. gert ráð fyrir saimeigin- legri stefnu bandalagsríkjanna í landbúnaðarmálum og flutninga málum. Tilgangur bandalagsins er settur fram í 8 liðum í inn- gangi Rómarsáttmálans. Segja má, að höfuðtilgangurinn sé að tryggja þegnunum núverandi lífs kjör og reyna að bæta þau með útvílkkun atvinnu-, framleiðsiu- og fjármagnsmarkaðsins með auknuim möguleikum til arðs- sköpunar og þar af leiðandi vax- andi launum og vaxandi kaup- mætti. Til þess að sjá um fraimkvæmd samvinnunnar vOru settar á ^agg irnar þessar fjórar stofnanir: a) L’assemlblée, sem er nefnd 142 þingmanna og eru þeir valdir af viðkomandi lög- gjafarþingum. Frakkland, ftalía og Þýzkaland eiga 36 fulltrúa hvert, Belgía og Holland 14 hvort og Liuxem burg 6 fulltrúa. b) Le Conseil, sem er ráð eða nefnd 6 ráðherra úr ríkis- stjómum sexveldanna, einn úr hverri ríkissjórn og er hann valinn af henni. c) La Commission, sam er framkvæmdanefnd, skipuð 9 mönnum, sem rókin velja sameiginlega. d) La Cour de Justice, sem er dómstóll, skipaður 7 dóm- endum, sem ríkin velja sameiginlega. Verkaskiping stofnanna er að mestu byggð á reglunni um þrí- skipting valdisins í löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Þingmannanefndin befur fyrst ög fremst ráðgjafarvald og ýmiss ákvörðunaratriði verður ráðið að bera undir þingmannanefndina, áður en ákvörðun er tekin. Þó er t.d. hægt að samþykkja van- traust á framfcvæmdanefndina á flundum þingmannanefndarinn- ar, með sömu afleiðingum og vantraust, sem samþykkt er á einstakar ríkisstjórnir á viðkom- andi löggj af arþingi. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður oftast við atkvæðagreiðslu í þing- mannanefndinni, þó þarí t.d. % hiluita til samþykktar vantrausts á framikvæmdanefndiina. Ráðið eða ráðherranefndin er valdamesta stofnun Efnahags- bandalagsins og hefur innan ramma Rómar-sáttmálans bein- línis löggjafarvald á sviði Efna- hagsbandalagsins. Á fyrstu á- áföngum 12 ára áætkmar banda- lagsins er þess víða krafizt í sáttmálanum, að ráðið samþykki ákvörðun mótatkvæðalaust, þ. e. a. s. hægt er að beita neitunar- valdi. f öðrum tilfellium ræður meirihluti atkvæða, þó oftast aukinn meirihluti og fara ráð- herrarnir þá með mismörg at- kvæði, fulltrúar Frakklands, íta- líu og Þýzlkalands fara með 4 atkvæði hver, fulltrúar Belgíiu og Holilandis fara með 2 atkvæði hvor og fulltrúi Luxemburg 1 atkvæði. Þannig geta komið fram 17 atkvæði í atkvæða- greiðslu um ákvörðun, sem þarf samþykki aukins meirihluta. Er þá krafizt 12 atkvæða og ocft- ast verða þau að vera frá a.m.k. 4 meðlimaríkjanna til þess að samþylkkja bindandi ákvörðun. Framkvæmdanefndin, sem hef ur aðsetur í Brussei, stjórnair starflsemi bandalagsins miMi ráðsfunda. Framkvæmdanefndin hefur sjálfstætt ákvörðunarvald í nokkrum tilfellum en aðal- verksvið hennar er framlkvæmd ákvarðana ráðsins, tillögu- og skýrslugerð til ráðsins og þing- mannanefndarinnar og eftirlit með framkvæmd einstakra ríkja og stofnana á ákvörðunum banda lagsins. í framkvæmdanefndinni skulu ekki eiga sæti fleiri en tveir menn frá einu og sama landi. Þeir skulu starfa sjálf- stætt og óbáð öliuim rákisstjórn- um og öllu nema samiþýkktum bandalagsins. Dómstólinum er m.a, æitlað að skera úr deilum, sem rísa kunna á sviði bahdalagsins, túlka á- kvæði Rámar-sáttmálans, kveða á um lögmæti ráðstafana hinna stofnana bandalagsins og ákvarða embættistakmörk yfirvalda þeirra, sem bandalaginu stjórna. IH. Framangreind uppbygging bandalagsins sýnir, að treyst er á mjög nána samvinnu meðlima- rlkjanna og fuMikamin heilindi allra samlstarfsaðilanna. Hin sameiginlega yfirstjórn mála bandalagsinis er á mörgum svið- um sett ofar stjórnvöldium ein- stakra rikja. Ákvarðanir, sem teknar eru þannig af öðrum en innlendum stjórnarvöldum, hafa bein áhrif á hag þegnanna, án þess að trúnaðarmenn þeirra (kosin eða á annan hátt valin stjómvöld) hafi tækifæri til aflskipta. Ráðið og framkvæmda- nefndin geta sett ríkjunum regl- ur og lög viðkomandi landis skulu vikja fyrir reglum þessum, ef ákvæðin eru ósamrýmamleg. Sumar af ákvörðunium þessum taka ekki gildi fyrr en þær hafa hlotið samþykki á viðkomanidi löggjafarþingi. Aðrar (Les régl- ements) eru almennar og taka gildi óháð samþykki einstakra ríkja. Þessar síðastnefndu áfcvarðanir eða reglugerðir geta kveðið á um verðlag, svo sem um lág- marksverð landibúnaðarafurða, um samkeppni á sviði verzlunar og annarrar þjónustu, um jafn- rétti þegna innan bandalagsins án tillits til þjóðernis o.s.frv. Greinilegt er, að þama er um að ræða vald, sem óheimilt vœri skv. stjórnarskrá íslands að fram selja. f 2. grein lýðveldisstjórnar- skrárinnar segir að Alþingi og forseti í slands fari saman með löggjafarvaldið. Hvergi í íislenzik- um rétti er gert ráð fyrir fram- sali löggjafarvaldsins úr hendi þessara tilteknu stjórnarvalda. í 21. grein stjórnarskrárinnar segir að forseti lýðveldisins geri samninga við önnur ríki. Þó get- ur hann enga samninga gert, ef þeira horfa til breytinga á stjórnarhögum eða fela í sér af- sal eða kvaðir á landi eða land- helgi, nema samþykki Ailþingis komi til. Samikvæmt Rómar-sátt- málanum geta stofnanir Efnahags bandalagsins gert samninga við aðila utan bandalagsins og slík- ir samningar eru bindandi fyrir öll ríki bandalagsinis. Samningar þessir geta m.a. fjallað um gagn kvæm tollafríðindi, inn- og út- flutningiákvöta, afniám hafba o.s. frv. Hér er efnnig greinilegt, að stofnunum bandalagsinis er ætlað vald, sem stjórnarskráin skipar í hendur forseta og Alþingis. Að vísu er í stjórnarskránni kveðið á um framsal á þessu valdi for- seta í hendur ráðherrum (13. grein) en í sömu grein er sagt, að ráðherrar þeir, sem vald for- seta er framiselt til, ráðuneytið, Skuli hafa aðsetur í Reykjavílk. Ekki er ætlazt tM þess, að vald þetta sé framseit út fyrir lands- steinana. í 2. grein í f. stj órnarSkrárinn- ar segir, að dómendur fari með dómsvaldið. f Rómar-sáttmálan- um er dómstóll bandalagsins gerður hæfur til að dæma og fella úrskurði í ýmsum einka- málurn, sem geta beint og óbeint snert einstaka þegna bandalags- ríkjanna. Ekki er gert ráð fyrir áfrýjun dóma dómstólsins enda eru ekki fleiri diómstig. Einstök meðlimaríki eru skuldbundin til að annast fullnustu dóms hivert innan sinna landamæra og eftir því sem við getur átt hverju sinni. Enn er hér um að tefla vald, sem stjórnarskráin ætlar íslenzk- um stjórnarvöldum. Orðið „dóm endur“ í stjórnarskránni merkir að sjálfsögðu aðeins þá, sem á hverjum tíma uppfyMa skilyrði laga til þess að geta orðið og hafa verið skipaðir dómarar á íslandi. Óþarfi er að reka fleiri dæmi. En nefna má ákvæði eftirtaHnna laga, sem öll stangast á við að- ild að Rómar-sáttmálanum: Lög 63/1919 um eignarrétt og afnota- rétt fasteigna, lög 39/1951 um rétt erl. manna til að stunda at- vinnu á íslandi, lög 59/1936 um eftirlit með útilendingúm og lög urS verziunaratvinnu og um iðju og iðnað, 54/1925 Og 18/1927 svo að nokkuð sé nefnt, það sem fyrst kemur manni í hug. Samningurinn um aukaaðild Grikklands að Efnahagsbanda- lagi Evrópu, sem taka á gildi 1. marz 1962, bendir eindregið til þess, að auikaaðild stangist líka á við ákvæði íslenzkra laga. Þannig verður Grikkland t.d. að taka upp sömu tollaákvæði og bandalagsríkin gagnvart öðrum ríkjum og fella niður tolla gagn- vart bandalagsrikjunum í sömiu áföngum og þau. Ýmissar ákvarð anir frá stofnunum bandalagsins verða því bindandi fyrir Grikk- land þótt það eigi engan full- trúa í stofnunum þessum. IV. Samtímis því sem hugsað er til aðildar íslands, að Efnahags- bandalagi Evrópu, þarf þvi að gera ráðstafanir tM stjórnarskrár breytingar, til þess að heimila slíka aðild, ef samningar um hana takast. Einfaldasta leiðin er að taka upp í stjórnarskrána heimildair ákvæði sem heimilar alþingi, t.d. með % hluta atkvæða, að sam- þykkja aðild fslandis að ríkja- samtökunum, þótt því kunni að fylgja takmarkað valdaframsal á afmörkuðu veríksviði, enda sé það þá skýrt fram tekið, að í því felist ekki vald til að breyta stjórnarskránnd. Þessa leið hugsa Norðmenn sér að fara. Strax á árinu 1951 kom fram hjá þeim hugmynd að stjórnarskrárbreytingu, sem segja má að hafi beinlínis sprott- ið upp úr sívaxandi samstarfi, alþjóðlegu og milli einstakra rikja eða ríkjahópa. Sú skoðun nýtur æ meira fylgis nú orðið, að valdaframsal, eins og rakið hefir verið hér að framah, bæði á sviði þjóðréttar- ins og persónuréttarins, geti sam rýmst fullveldi viðkomandi rík- is. Enda eru dæmin nærtæk um ótalmörg ríki, sem hafa gengist undir að hlýta sameiginlegu valdi. Fyrir meðlimaríki Sam- einuðu Þjóðanna eru ákvarðanir Öryggisráðsins bindandi, þótt viðkom.andi rilki eigi ekki full- trúa í ráðinu. Kola og stálsam- steypa Evrópu og Eurafom eru samtök, sem lúta valdamiklum stjórnum. Að mörgu leyti haÆa stjórnir þessara síðastnefndu sam taka meiri völd' heldur en stofn- anir Efnahagsbandalagsins hafa. Aðildarríikin eru þau sömu, þ.e. a.s. Beneluxlöndin, ftalía, Frakk land og Þýzkaland og dettur víst engum í hug að fullveldi þessara Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.