Morgunblaðið - 03.07.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.07.1962, Blaðsíða 13
Þirðjudagur 3. júlí 1962 1 ' MORCZJNBIAÐIÐ 13 Sjálfsævisaga Hannesar Þor- steinssonar, þjóöskjalavarðar . 1 nóvembermánuði 1926 rit- aði dr. Hannes Þorsteinssón þjóðskjalavörður allrækilegt ágrip af ævisögu sinni í til- efni af því, að Háskóli íslands hafði kjörið hann heiðursdokt- or í heimspeki. Ágrip þetta var ætlað til prentunar í Ár- bók háskólans samkvæmt venju við slík tækifæri, en reyndist of langt til þeirra nota Var það birt eftir lát höfund- ar í Blöndu, timariti Sögufé- lagsins, árið 1940 og er 35 prentaðar síður að lengd. Aftan við handrit sitt af æviágripi þessu hafði dr. Hannes bætt við svofelldri athugasemd: „Á árunum 1926-1928 reit ég all- ýtarlegar endurminningar mín- ar, sem hvorki eiga né mega birtast fyrr en á aldarafmæli mínu (1960), ef þær þá þykja þess verðar. En eitthvað gæti verið á þeim að græða um menn og málefni þeirra tíma, sem ég hef haft nánust kýnni af.“ Af þessum ummælum, sem prentuð voru með æviágripinu, varð mönnum kunnugt um hina rækilegu ævisögu dr. Hannesar ásamt ákvæðum þeim, er henni fylgdu. Vakti þetta rit þá þegar forvitni margra, og þótti ýmsum súrt í broti að þurfa að bíða í fulla tvo áratugi eftir því að fá for- vitni sinni svalað. En því varð eigi um þokað, og urðu menn að láta sér lynda að vera góð- ir í biðum. A aldarafmæli höf- undarins 30. ágúst 1960 var handritið loks dregið fram úr fylgsni sínu í þjóðskjalasafni að viðstöddum fáum mönnum og innsigli þess rofið. Nú er ævisagan komin út sem apríl- bók Almenna bókafélagsins 1962, vel og smekklega úr garði gerð, 425 bls. að stærð auk 18 myndasíðna. Hulunni er svipt af þessu verki. Full ástæða var til þess, að ýmsir biðu með nokkurri eft- irvæntingu eftir þessari bók. Hannes Þorsteinsson var lengi þjóðkunnur maður á sinni tíð, og æviferill hans var á marg- an hátt sérstæður og söguleg- ur. Hann var af fátæku, en duglegu og vel gefnu bænda- fólki kominn austur í Biskups- tungum og ólst þar upp hjá foreldrum sínum við kröpp og erfið lífskjör, eins og þá var hlutskipti alls þorra alþýðu- fólks hér á landi, takmarkað- an aðbúnað til fæðis og klæð- is og mikið erfiði, smala- mennskur, heyannir, gegning- ar, ferðalög, útróðra og hvers konar störf önnur, er til bjarg- ræðis máttu horfa. Mitt í dag- legum önnum er þessi gáfaði sveitapiltur haldinn óstjórn- legri löngun til að menntast og læra, og vonleysið um, að sá draumur megi nokkurn tíma rætast, gerir honum lífið enn þungbærara en ella, umkomu- leysið í tilverunni enn átakan- legra. Fáeinar bækur sem hann komst höndum yfir, eink- um sögulegs og ættfræðilegs efnis, gleypir hann í sig, fest- ir efni þeirra í stáltraustu minni og gerist snemma fróð- ur. Þegar hann er orðinn 19 ára gamall, gerist ævintýrið í lífi. hans. Fyrir röð tilviljana eða kannske æðri forsjón ræt- ist menntadraumur hans. Hann kemst til náms i Latínuskól- ann, tekst að brjóta hömlur fátæktarinnar, flyzt bekk úr bekk og skipar jafnan efsta eæti, verður stúdent með háu prófi 1886. En enn á ný verð- ur féleysið þrándur i götu hans Hugurinn stefnir til háskólans í Kaupmannahöfn til náms í málfræði, en honum tekst hvergi að fá styrk eða stuðn- ing til utanfarar. Hann ræð- ur af að lesa guðfræði í presta- skólanum sem hálfgildings neyðarúrræði og lýkur guð- fræðiprófi sumarið 1888 með hárri einkunn. Nú hefði mátt ætla, að bbaut Hannesar Þorsteinssonar hefSi legið beint út í prestskap, og sjálfur hafði hann líka hug á því, úr því sem komið var, að leggja út á þá braut. En hér er sem forlögin grípi í taum- ana.Hann sækir um hvert brauðið eftir annað, en jafn- an fer svo, að þessum efnilega kandidat er hafnað. Þegar svo hafði gengið til þrisvar, hélt hann því með sjálfum sér, að hann skyldi aldrei sækja um prestakall framar, og það efndi hann. Á þessum árum kvænt- ist Hannes ágætri konu, Jar- þrúði, dóttur Jóns Péturssonar háyfirdómara, er verið hafði einn helzti styrktarmaður Hannesar á skólaárum hans. Samtímis vann hann fyrir sér með kennslu og ritstörfum. 1 árslok 1891 kaupir Hann- es blaðið Þjóðólf og gerist út- gefandi hans og ritstjóri frá næstu áramótum. „Og var þetta þó ekki sérlega álitlegt, sérstaklega af tvennum ástæð- um: að ég hafði ekkert þá handa á milli til að kaupa blaðið fyrir og varð því að taka allt kaupverðið að láni, og að ég var öldungis óviðbú- inn og þóttist sjálfur lítt fær um að takast á héndur rit- stjórn á pólitísku blaði,“ segir Hannes sjálfur um þetta fyrir- tæki sitt. Þetta heppnaðist þó vel. Eftir skamman tíma var hann búinn að borga kaup- verð blaðsins og hafði hann af því vel lífvænlegar tekjur í þau 18 ár, sem hann var eig- andi þess og ritstjóri, enda óx Þjóðólfur mjög að útbreiðslu og áhrifum í tíð Hannesar. Hannes skipaði sér snemma í fylkingu þeirra manna, sem gengu lengst í kröfum Islend- inga gagnvart Dönum, studdi drengilega stefnu Benedikts Sveinssonar sýslumanns um endurskoðun stjórnarskrárinn- ar, snerist harðlega gegn val- týskunni, sem honum þótti ekki ganga nógu langt í sjálf- stæðisátt, einkum það að hafa hinn íslenzka róðherra búsett- an í Kaupmannahöfn. Gerðist Þjóðólfur þá undir ritstjórn Hannesar aðalmálgagn heima- stjórnarmanna sem börðust fyr ir því og fengu því til leiðar komið, að stjórnin var flutt inn í landið. Á þeim baráttu- árum var Hannes Þorsteinsson kjörinn á þing fyrir Árnessýslu og var hann síðan þingmaður kjördæmisins í samfleytt 11 ár. Fyrstu árin, sem Hannes Haf stein sat að völdum, naut hann eindregins stuðnings af Hann- esi Þorsteinssyni og blaði hans. En er Hannes ráðherra mælt- ist til þess við nafna sinn að hann gerði þjóðólf að flokksblaði heimastjórnar- manna, færðist Hannes rit- stjóri undan því, var of sjálf- stæður í skoðunum til þess að bindast flokki þannig. Stofn- uðu nokkrir heimastjórnar menn þá nýtt blað, Lögréttu, sem varð hið eiginlega mál- gagn flokksins. Þótti Hannesi Þorsteinssyni þar heldur farið á bak við sig og gerðist hann nú enn óháðari í blaðamennsku sinni. Fór svo, að hann snerist algerlega gegn flokksbræðrum sínum í afstöðunni til uppkasts ins fræga 1908, og urðu þeir gömlu höfuðandstæðingar Hannes og Björn Jónsson rit- stjóri ísafoldar samherjar í því að fella uppkastið. Var það fellt með miklum liðsmun í kosningunum sama ár. Leiddi þetta til stjórnarskipta, er þing kom saman í febrúar 1909. Hannes Hafstein sagði af sér, en allir þrír forsetar þingsins, þeir Björn Jónsson, Hannes Þorsteinsson og Kristján Jóns- son voru boðaðir á konungs- fund. Var Björn þá skipaður ráðherra samkvæmt tilnefn- ingu flokksbræðra hans: Eftir hinn mikla kosninga- sigur uppkastsandsstæðinga, sem Hannes Þorsteinsson átti hvað drýgstan þátt í og þá skipun mála, sem sigurinn hafði í för með sér, er sem Hannes missi áhugann á frek- ari þátttöku í stjórnmálaþras- inu. Hann var kominn í and- stöðu við sína gömlu flokks- bræður og sýnt, að þar mundi seint gróa um heilt, en á hinn bóginn gat hann hvorki né vildi gerast stuðningsmaður hins nýja ráðherra. Það varð því ráð Hannesar að selja sitt gamla góða blað Þjóðólf, og lét hann af ritstjórn hans í árslok 1909. Þó bauð Hannes sig enn fram til þings í Árnes- sýslu 1911, raunar með hang- andi hendi, og sótti enga kjör- fundi, enda náði hann eigi kosn ingu. Hét hann því þá að bjóða sig aldrei framar fram til þings, og aldrei steig hann fæti sínum inn í þinghúsið eftir það, meðan þing stóð yfir. Eftir að Hannes seldi Þjóð- ólf hafði hann enga launaða atvinnu um tveggja ára skeið. Tók hann þá af alefli að leggja stund á söguleg fræði, persónusögu og ættfræði, sem varð að meira eða minna leyti ævistarf hans síðan. Árið 1909 voru samþykkt lög um stofn- un háskóla hér á landi. Hafði Hannes Þorsteinsson lagt því máli öflugt lið í blaði sínu og á alþingi og bjó sig undir að takast á hendur kennslu við þá virðulegu stofnun. Er há- skólinn var stofnaður tveim ár um síðar, var Hannes líka sett- ur dósent í sögu íslands. En er skipað var í kennslustólana síðar um sumarið, var gengið fram hjá Hannesi og annar maður, Jón Jónsson (Aðils), skipaður í embættið. Þetta urðu Hannesi að sjálfsögðu mikil vonbrigði. Um það bil mánuði síðar kom ráðherrann, sem þá var Kristján Jónsson, á fund Hannesar og kvaðst allt vilja gera til þess að bæta úr þessu. Bauð ráðherra hon- um m.a. aðstoðarmannsstöðu við landsskjalasafnið, og afréð Hannes að taka því boði, þótt staðan væri lítt launuð (960 kr. á ári). Upp frá því var starf Hannesar helgað safhinu og þeim fræðum, sem hugur hans hafði löngum stefnt til. Eftir lát dr. Jóns Þorkelsson- ar 1924 tók Hannes við af hon- um sem þjóðskjalavörður og gegndi þv£ embætti til dauða- dags 10. apríl 1935. Var hann þá fyrir löngu orðinn einn af mest virtu fræðimönnum þjóð- arinnar og Nestor íslenzkra ætt fræðinga. Ég hefi rakið hér í mjög stuttu máli helztu æviatriði Hannesar Þorsteinssonar til þess að gera það skiljanlegra, að hann var maður, sem kom víða við sögu samtíðar sinnar og hafði frá mörgu forvitnilegu að segja. Saga hans er líka á margan veg girnileg til fróð- leiks. Hún túlkar afdráttarlaust sjónarmið höfundar og mat hans á mönnum og málefnum, og enginn getur borið honum á brýn, að' hann sé myrkur í máli. Ekki þarf því að koma á óvart, þótt ýmsir af andstæð- Dr. Hannes Þorsteinsson. ingum hans í stjórnmálabar- áttu aldamótaáranna fái all- harða dóma, svo og aðrir fleiri sem honum gazt ekki að eða höfðu lagt .stein í götu hans. Hannes var harðskeyttur bar- áttumaður og gat verið næsta þykkjuþungur, ef því var að skipta. Hygg ég, að bersögli hans muni flestum þykja kost- ur á ævisögunnd fremur en galli. Að minnsta kosti er ó- líku hressilegra að lesa ævi- sögur eins og þessa heldur en loðmullur þær, sem mest eru tíðkaðar, þar sem allir eru gerð ir að hálfgildings englum, auðvitað oftast án verðskuld- unar. Aftur á móti finnst mér það nokkur ljóður á ævisögu Hann esar, hve drýgindalegur hann er í frásögn sinni og sjálfum- glaður. Þetta kemur svo víða fram, að þarflaust er að benda á dæmi. (Sjá þó t.d. bls. 185- -186). Stundum slær hann þann varnagla, að hann segir ekki þetta eða hitt til þess að hrósa sjálfum sér, heldur sem blákalda staðreynd, sem vel má satt vera. Eftir ævisög- unni að dæma, mætti helzt ætla, að Hannes hefði verið svo að kalla óskeikull. Víst er um það, að í fræðilegum atr- iðum átti hann mjög bágt með að viðurkenna, að sér hefði skjátlast, jafnvel þótt um smávægileg atriði væri að ræða. Þessa eigind hefir hann smám saman tamið sér, * unz hún varð hluti af honum sjálf um. 1 heild sinni er mikill feng- ur að þessari bók. Hún er skemmtilega rituð, efnismikil og fræðandi. Útgáfan er prýði- lega úr garði gerð, og hefir bróðir höfundarins, ^r. Þor- steinn Þorsteinsson fyrrv. hag- stofustjóri, annast það verk af alúð og ræktarsemi. Guðni Jónsson Kynning n íslenzkii list d Kielnrvikunni í Þýzknlnndi DAGANA 17.—24. júní er haldin í Kiel í Þýzkalandi svonefnd Kielarvika. Borgarstjórnin í Kiel bauð frú Auði Auðuns, forseta borgarsitjórnar, að vera viðstödd hátíðahöldin og dvaldist hún þar í nokkra daga. M. a. var hún viðstödd opnun íslenzkrar list- sýningar, sem haldin var í sam- bandi við hátíðarvikuna, en þar voru sýndar 77 vatnslitamyndir og teikningar eftir 15 íslenzka myndlistarmenn. Fréttamaður blaðsins átti nýl. tal við frú Auði, og spurði hana um förina. Þetta var í 80. sinn sem Kielarvika er haldin og var þessvegna sérlega vandað til hennar nú. Upphaflega var aðal- uppistaðan í hátíðahöldunum siglingar á Kielarfirði, sem er langur og mjór fjörður og þykir sérlega vel fallinn til þess. Enn er mikið tun siglingar og aðrar íþróttir á hátíðinni, en á síðari árum hefur verið lögð mikil á- herzla á að gera þetta að menn- ingarviku. Voru leiksýningar, óperusýningar og tónileikar á hverju bvöldi, flutt af frægu listafólki hvaðan æva að. t. d. sá frú Auður óperuna Töfra- flautuna futta af söngvurum frá Vín og La Boheme flutt af söngv urum frá Scala óperunni í Míl- anó. fslenzku verkin fá góða dóma í sambandi við' þessa hátíðar- viku er venjulega kynning á er- lendri list. Áður hefur t. d. verið kynnt list frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og í þetta sinn frá ís- landi. Stóð Deutehes Auslands- gesellshaft, sem beitir sér fyrir menningarsambandi við önnur lönd, að sýningunni í samvinnu við Germaníu í Reykjavík. Sýningin var í Pavillon der Muthersiusschule og Pétur Egg- erz, sendiráðsritari í Bonn, opn- aði hana, að viðstöddum mörgum ^estum. Á sýningunni eiga verk þau Ásgeir Bjarnþórsson, Ás- grímur Jónsson, Barbara Árna- son, Bragi Ásgeirsson, Eggert Guðmundssion, Finnur Jónsson, Guðmundur Einarss. Gunnlaugur Blöndal, Hafstein Austmann, Jón Engilberts, Pétur Friðrik Sigurðs son, Ragnar Páll Einarsson, Sig- urður Sigurðsson, Sveinn Þórar- insson og Veturliði Gunnarsson. Var gefin út sýningarskrá, þar sem Birgir Kjaran skrifaði um menn og málaralist á íslandi og þar var einnig kynning á mál- Urunum frá íslcmdi. Frú Auður þurfti að fara frá Kie! mjög fljótlega, en áður en hún fór, hafði hún séð í einu dagblaðanna mjög vinsamlega umsögn um sýninguna, þar sem m. a. er talað um hinar sterku andstæður, heitar og kaldar, í verkunum og minni það á is- lenzka náttúru og einnig um ferska liti vatnslitamyndanna. — Minnzt er á abstrakta komposi- sjón Braga Ásgeirssonar, sem minni á vinnubrögð Mondrians um 1916, sagt að fersbur blær stafi frá hinum bláu vatnslita- myndum Gunnlaugs Blöndals. Að yngsti listamaðurinn, Ragnar' Einarsson, veki athygli með á- kveðnum sveiflubogum og Sig- urður Sigurðsson með heitum, jarðarlitum. Minnzt er sér- staklega á tvær eftirtektarverð- ar touchmyndir eftir Finn Jóns- son, sex myndir eftir Braga Ás- gei /sson, sem séu undir sterkum áhrifum frá Picasso, en eigi þó sjálfstæðan sköpunarkraft í myndbyggingu. Og talað er um vel út færðar hugmyndir Banb- öru Árnason. Að lokum segir blaðið að án efa hafi Ásgrímur Jónsson, hinn látni öldungur, mesta hæfileika sinna lands- manna, landslag og sögupersónur hans þunglyndar eða heitar í skapi — allt hafi þaðan fullan hljóm, innri glóð og eigin sköp- unarljóma. Óveður siglingadaginn Auður sagði að veður hefði verið gott meðan Kielarvikan stóð yfir. nema daginn, sem mik- il kappsigling fór frarn og henni var boðið ásamt nokkur hundruð gestum á skipi til að horfa á. Allt í einu skalll á ógurlegt óveð- ur með þrumum og steypiregni og fólk hafði miklar áhyggjur af keppendum í þessum litlu bátskeljum út á firðinum. En engin stórvægileg slys urðu samt af þeim sökum. Sagði Auður að Kielarborg hefði tekið ákaflega vel á móti gestum sínum og hún hefði notið vel þessarar farar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.