Morgunblaðið - 03.07.1962, Síða 24
Fiértasímar Mbl
— eftir lokuo —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendai fréttir: 2-24-84
uímmiMaíiiíi
Hannes Þorsteinsson
Sjá bls. 13
I
148. tbl. — Þriðjudagfur 3. júlí 1962
Sjálfstæðismenn og Framsókn-
armenn mynda meirihluta
Mafsleinn BaSdvinsson bæjarslj.
1 GÆR náðist samkomulag
milli bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins í Hafnar-
firði um myndun meirihluta
og stjórn bæjarmála í Hafn-
arfirði næsta kjörtímabil. —
Gamli Garðskagavitinn
fuglarannsóknarstöð
DÝRAFRÆÐIDEILD Náttúru-
gripasafnsins fékk við síðustu
úthlutun úr Vísindasjóði 50
þús. kr. til efniskostnaðar við
lagfæringu á Garðskagavita,
sem verður notaður sem fugla-
rannsóknarstöð. Blaðið leitaði
upplýsinga um þessa fyrirhug-
uðu fuglarannsóknarstöð hjá
dr. Finni Guðmundssyni, sem
sagði að aetlunin væri að gera
gamla vitann, er lagður var
niður árið 1944 og ekki hefur
verið ráðstafáð öðru vísi, hæf-
an í sumar sem vísi að fugla-
rannsóknarstöð, en þar í kring
er mjög auðugt fuglalíf og
þetta því með betri stöðum á
fslandi til þeirra hluta.
Fuglarannsóknarstöðvar af
þessu tagi eru kunnar víða í
nágrannalöndunum, t.d. eru 22
slíkar stöðvar í Bretlandi. Þar
er m.a. unnið að skipulögðum
athugunum á ferðum farfugla,
að fuglamerkingum og ýmsum
sérrannsóknum á fuglum. —
Þeim er því venjulega valinn
staður þar sem fuglalíf er auð-
ugt, en þannig er einmitt á-
statt kringum Garðskagavitann,
einkum um fartímann, eins og
oft er á annnesjum, þar sem
fuglar safnast mjög saman. —
Stöðvarnar eru opnar öllum
þeim sem vinna að einhvérs
konar rannsóknum á fuglalífi.
og þar geta menn dvalizt í
langan tíma. Venjulega eru
stöðvarnar mannaðar ungum á-
hugamönnum, haust og vor, og
vinna þeir að merkingum, en
fræðimenn hafa þar bækistöð
sína meðan þeir vinna að sér-
stökum rannsóknum. SHkar
stöðvar eru komnar í ná-
grannalöndum okkar og sagði
dr. Finnur að eyða væri nú hér
í kerfi athuganastöðva með
samræmdar athuganir við norð-
anvert Atlantshaf, en ísland
væri þannig staðsett að það
væri mjög slæmt.
Vitinn reistur 1897
Garðskagavitinn er mjög
gamall. Árið 1884 var hlaðinn
siglingavarða á Garðskaga og
sett í hana ljósker (skrið-
bytta), en 1897 var vitinn reist-
ur. Var þetta lítill blossaviti,
en sigurverkið í honum var
svo lélegt að draga varð það
upp á fjögurra stunda fresti.
Eftir því sem árin liðu, braut
sjór meira og meira land
þarna og var svo komið að
vitinn stóð á hólma eða skeri
og ekki nema mjó steinbrú
mdlli hans og lands. Varð ó-
fært í vitann í brimi og vita-
vörður oft veðurtepptur þar.
Var því horfið að því að reisa
miklu betri og stærri vita uppi
á landi og var það gert 1944.
Dr. Finnur sagði að gera
mætti vitann nokkuð góðan, en
hann þarf talsverða viðgerð,
þar eð engar innréttingar eru í
húsinu. Er gert ráð fyrir að
ahugamenn leggi fram vinnu
við viðgerðina og styrkurinn
nægi fyrir efniskaupum. Á
neðstu hæðinni þyrfti að gera
vísi að rannsóknarstofu með
allra nauðsynlegustu tækjum,
en svefnloft uppi. Yrði það
gífurlegur munur að fá slíka
Samkomulag varð um að
kjósa Hafstein Baldvinsson,
lögfræðing, fyrir bæjar-
stjóra. Verður fyrsti funöur
hinnar nýju bæjarstjórnar
haldinn í dag.
Úrslit bæjarstjórnarkosn-
inganna í Hafnarfirði urðu
sem hér segir: Alþýðuflokk-
ur 1160 atkv. og 3 fulltrúa,
Framsóknarflokkurinn 407
atkv. og 1 fulltrúa, Sjálf-
stæðisílokkurinn 1557 atkv.
og 4 fulltrúa, Alþýðubanda-
lag 378 atkv. og 1 fulltrúa.
Hafa bæði Sjálfstæðisflokk-
urinn og Framsóknarflokk-
urinn unnið stórlcga á.
Mannlaus bíll
rennur a mann
Kl. 18:45 á mánudag varð það
slys á móts við Rauðarárstíg 20,
að mannlaus bíll rann á mann,
sem var að vinna við hann. Mun
bækistöð mitt í fuglalífinu, og i maðurinn hafa meiðzt eitthvað
ætlunin að reyna það í sumar. | á fæti.
Varðar-
ferðin
I Varðarferðin, sem farin var
sl. sunnudag, var mjög fjöl.
menn og hin ánægjulegasta að
1 öllu leyti Á fimmta hundrað
I manns fór í ferðina í 11 stór-
I um langferðabílum. Nánar
, verður sagt frá þessari ferði
í blaðinu á morgun.
Flugvélakaup
Landhel^is-
gæzlunnar
P É T U R Sigurðsson, forstjóri
Landlhelgisgæzlunnar er kominn
heim, en eins og Mbl. hefur skýrt
frá, fór hann suður til Portúgals
til þess að athuga um kaup á
Skymaster-flugvél fyrir Land-
'helgisgæzluna. Með honum í för-
inni var Gunnar Loftsson yfir-
flugvirki og danskur verkfræð-
ingur, sem starfar á verkstæðum
SAS í Kastrup. Pétur mun nú
gefa dómsmálaráðuneytinu
skýrslu um förina, og verður síð
ar tekin ákvörðun um það, nvort
af kaupunum verður.
Fáar sóBarsfundir
og mikil rigning
MÖRGUM finnst að júnímánuð-
ur hafi verið einhver sá versti,
sem þeir muna, hvað veðurfar
snertir. — Mbl. leitaði því upp-
lýsinga hjá skýrsludeild Veður-
stofunnar. Enn sem komið er^
eru aðeins komnar fullkomnar
skýrslur frá Reykjavík og skýrsl
ur um meðalhita og úrkomu frá
Akureyri.
Skv. þeim hefur meðallhitinn
í Reykjavík verið 9,2 stig í júní-
mánuði, en meðaihiti mánaðar-
ins er 9,5 stig og hefur bví oft
verið kaldari júnímánuður. Úr-
koman í mánuðinum er nokkuð
mikil, 56 mm, en er 41 m-m í
meðalárferði. Hefur 5 sinnu-m
rignt meira en þetta sl. 30 ár og
mest 91 mm. En sólarstundirnar
í júní vor-u fáar í Reykjavík eða
119,2 klst., en meðaltal sl. 20 ára
er 187,5 sólarstundir. Árið 1925
Bíl livolíir við
Hafnarfjörð
Kl. 16 í gærdag ók bíll frá
varnarliðinu út af hinum- nýja
Keflavíkurvegi hjá Óttarsstaða-
rauðamöl fyrir sunnan Hafnar-
fjörð. Hvolfdi bifreiðinni og slös-
uðust tveir af f jórum, sem í henni
voru, bílstjóri og farþegi. íslenzk
lögregla, herlögregla, sjúkrabíll
og læknir komu á vettvang. —
Hinir slösuðu voru fluttir á
sjúkrahús á Keflavíkurfiugveni.J is og bæja).
BSRB vill kaup-
hækkanir
í BRÁÐABIRGÐAÁKVÆÐI laga
nr. 55 1962, um kjarasamninga
opinberra starfsmanna, er gert
ráð fyrir, að ef alménnar og veru
legar kauphækkanir verða, þar - sólarstundir fæstar. 95,4 i
til kjaraákvæði samkvæmt lög-1 júnímánuði, en síðan miklu
unum koma til framkvæmda 1.1 fleiri þangað til árið 1958, þá
júlí næsta ár, þá geti Bandalag j-afnfáar og nú og 1960 færri eða
starfsmanna ríkis og bæja kraf- 116,4 klst.
izt launahækkunar ríkisstarfs-
manna í.heild.
Þar sem stjórn BSRB telur, að
orðið hafi almennar og veruleg
ar kauphækkanir síðan lögin um
kjarasamnii.ga opinberra starfs-
manna voiu samþykkt hefur
bandalagsstjórnin ákveðið að
nota heimild laganna og krefjast
launahækkunar ríkisstarfsmanna. [ GUnnar Böðvarsson og Örn Garð
Hefur orðið samkomulag um arsson. H-afa þeir meðferðis bæði
að viðræður um þær kröfur fari ^ jarðbor og málmleitartæki, sem
fram um næstu mánaðamót. | er öflugra og nákvæmara en það,
(Frá Bandalagi starfsmanna rík- sem notað var við leitina í fyrra.
Feikna rigning á Akureyri
Á Akureyri var hitinn í júní-
mánuði 8,9 stig, en meðalhitinn
er 9,3 stig, en þar hefur rignt
mjög mikið eða 75,8 mm. Meðal-
rigning í júní er ekki nema 22,2
mm, og hefur sú geysimikla rign
ing sem varð 14.—15 júní hleypt
tölunni mikið upp, þá var úrkom
an 24 mm frá kl. 17 og til kl.
5 um morg-uninn.
Ný brú á Gljúfurá
Nú er verið að byggja nýja
brú á Gljúfurá í Borgarfirði, 63
metra langa og 8,8 m breiða
bitabrú. Þessi nýja brú er
byggð aðeins neðar en gamla
brúin. Brúarsmíðin hófst um
mánaðamótin maí-júní og henni
á að ljúka í nóvember í haust.
Yfirsmiður er Kristleifur Jó-
hannesson. Starfsmenn eru nú
17, en mun fjölga í 25. Gamla
brúin á Gljúfurá var byggð 1909
undir stjórn Jóns heitins Þor-
lákssonar.
henni
La»t upp í gullleit
Kirkjubæjarkl-austri, 4. júlí.
BERGUR Lárusson lagði upp kl.
4 í dag á tveimur skriðbílum
austur á gullleitarsvæðið á
Skaftafellsfjöru. f för með hon-
um eru m. 'a. verkfræðingarnir
G. Br.
HÉRAÐSMÓT
Sjálfstæðismanna
í Dalasýslu 7. júlí
IIÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Dalasýslu verður hald*
ið að Staðarfelli 7. júlí kl. 8.30 e. h.
Ingólfur Jónsson, landbún-
aðarráðherra, og Jón Árna-
son, alþingismaður munu
flytja ræður á þessu móti.
Þá verður sýndur gaman-
leikurinn „Heimilisfriður“,
eftir Georges Courteline, í
þýðingu Árna Guðnasonar,
magisters. — Með hlutverk
fara leikararnir Rúrik Har-
aldsson og Guðrún Ás-
inundsdóttir. — Ennfremur verður til skemmtunar ein-
söngur og tvísöngur. ' Flytjendur eru óperusöngvararnir
Guðmundur J'ónsson og Sigurveig Hjaltested og píanó-
leikari F. Weisshappel.
Dansleikur verður um kvöldið.
Jón A.
Ingólfur