Morgunblaðið - 16.12.1962, Blaðsíða 15
ÝT"
Sunnu'dagur 16. des. 1962
MORGVNBLAÐIÐ
Nobels
bátíðin
MÁNUDAGINN 10. desem-
ber voru Nobelsverðlaunin
fyrir árið 1962 afhent við
bátíðlega athöfn í hljóm-
leikahöllinni í Stokkhólmi.
Eru meðfylgjandi myndir
teknar við það tækifæri.
Nobelsverðlaunahafamir 1962 taldir frá vinstri: Prófessor Maurice Wilkins frá Englandi,
Iæknis- og lífeðlisfræði; Dr. Max Perutz frá Englandi, eðlis- og efnafræði; Prófessor
Francis Crick frá Englandi, læknis- og lífeðlisfræði; John Steinbeck rithöfundur frá
Bandaríkjunum, bókmenntir; Dr. James Watson frá Bandaríkjunum, læknis- og lífeðl-
isfræði og Dr. John Kendrew frá Englandi, eðlis- og efnafræði. Á myndina vantar pró-
fessor Lev Landau frá Sovétríkjunum, eðlis- og efnafræði, en sem kunnugt er gat hann
ekki komið til Stokkhólms vegna veikinda sinna.
Myndin sýnir konungsfjölskylduna rétt áður en verðlaunaafhendingin hófst. — Frá vinstri: Désirée, prinsessa; Bertil,
prins; Louise, drottning; Gustaf Adolf, Svíakonungur; Sibylla, prinsessa og prinsessurnar Margaretha og Christina.
John Steinbeck, rithöfundur
hefur tekið við verðlaunun-
um úr hendi Svíakonungs.
Myndin sýnir, er Professor Francis Crick frá Englandi tekur við sínum þriðja hluta af
verðlaununum í læknis- og lífeðlisfræði úr hendi Svíakonungs. Að baki hans sjást verð-
launahafarnir Dr. Perutz, Dr. Kendrew, Prófessor Wilkins og næst hljóðnemanum Dr.
Watson, er næstur gengur fram fyrir konung.
Dr. Max Perutz hefur tekið við sínum þriðja hluta af verð-
laununum í eðlis- og efnafræði og hneigir sig fyrir hans
hátign Gustaf Adolf.