Morgunblaðið - 21.12.1962, Qupperneq 1
48 sidur (I og II)
49 árgangur
287. tbl. — Föstudagur 21. desember 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Enn er rætt um
Skybolt í Nassau
Nassau, 20. desember.
— NTB-AP —
KENNEDY, Bandaríkjafor-
eeti, og Macmillan, forsætis-
ráðherra Breta, néldu í dag
áfram viðræðum sínum. Sner
ust þær nær eingöngu um
Skybolt-eldflaugarnar, sem
hvað mest hefur borið á góma
að undanförnu.
NTB-fréttastofan sagði í
kvöld, að haft heiði verið eft-
ir áreiðanlegum heimildum í
Nassau, að nokkuð hefði mið-
að í samkomuiagsátt í dag, á
þriðja fundinum, sem þeir
Kennedy og Macmillan hafa
haldið Segir enn fremur í
þeim fréttum, að talið sé, að
á morgun muni nást sam-
komulag um, að hætt verði
við framleiðslu og sendingar
Skybolt-flauganna, en Bretar
fái í staðinn aðrar flaugar.
Tekið er þó fram, að hér sé
ekki um staðfestar fregnir að
ræða. (Sjá grein um Skybolt-
flaugarnar og deilu Breta og
Bandaríkjamanna á 12. síðu).
I>á er frá því skýrt, að Mac-
millan hafi boðað til fundar
brezku stjórnarinnar í London á
inorgun, föstudag. Verður þá
eldflaugamálið rætt og munu
lögð fram á þeim fundi gögn frá
viðræðunum í Nassau.
Landvarnaráðherrarnir Robert
S. MacNamara og Peter Thorney-
croft ræddu í dag um Polaris-
kafbátaeldflaugar og munu nið-
urstöður þeirra viðræðna lagðar
fyrir Kennedy og Macmillan á
morgun.
Talsmenn bandarísku nefndar-
innar sögðu hins vegar í dag, að
rætt hefði verið um ýmis mál
önnur en Skybolt-flaugar, m. a.
alþjóðamál, og breytt viðhorf
vegna Kúbudeilunnar. Þá var
látið að því liggja, að árás- Kín-
verja á Indland hefði verið á
dagskrá í dag.
Macmillan er sagður hafa lýst
yfir þeirri skoðun sinni í dag, að
Bretar muni ekki hverfa frá
þeirri stefnu sinni að verða
kjarnorkuveldi innan NATO.
Fjárhagsaætlun 1963 til afgreiðslu í borgarstjorn
Framlög til barnaheimila hækka
um 77 prdsent
FRUMVARP að fjárhagsáætl
un Reykjavikurborgar fyrir
árið 1963 var til 2. umræðu í
borgarstjórn Reykjavíkur í
gær. Gerði Geir Hallgrímsson
borgarstjóri þá sérstaklega
grein fyrir hinum stórhækk-
Fiskimenn í Mor-
egi boðq verkfaSI
Einkaskeyti til Morgunblaðsins,
Nesby, 20. desember.
N O R S K A fiskimannasam-
bandið hefur boðað til verk-
falls á fiskiskipaflotanum frá
og með næstu áramótum. —
Kemur verkfahsboðunin í
kjölfar þess, að slitnað hefur
upp úr viðræðum við stjórn-
ina um ríkisstyrk.
Fulltrúar stjórnarinnar hafa i
beðið um frest til vors, þannig,
að ákvarðanir um fiskverð geti
haldizt í hendur við breytingar á
öðrum launum á næsta ári. —
Skyldu þær hækkanir, sem þá
yrði samið um, gilda frá 1. jan.
Skilríki Ungverja
ekki samþykkt
New York, 20. desember — AP
— NTB: Kjörbréfanefnd Allsherj
arþings SÞ felldi í dag að við-
urkenna skilríki fulltrúa Ung-
verjalands, þar eð landið neitaði
að fara eftir samþykiktium sam-
takanna. Var tillagan komin frá
fulltrúa Bandaríkjanna, og sam-
þykikit með 5 atkvæðum gegn 4.
nk., hvað viðvíkur fiskimönnum.
Fiskimannasambandið hafnaði
þessari tillögu stjórnarinnar, en
húr virðist ósveigjanleg í af-
stcðu sinni. Því hefur verið boð-
að til verkfallsins, og því lýst
yfir af hálfu fiskimanna, að
frekari viðræður nú muni ekki
eiga sér stað.
Því hefur verið lýst yfir af
opinberri hálfu, að ef gengið
yrði að kröfum fiskimanna,
myndi það kosta ríkið 190 millj.
norskra króna. — Skúli.
uðu framlögum borgarsjóðs
til verklegra framkvæmda,
sem ráð er fyrir gert í áætl-
uninni, en við fyrri umræðu
hafði hann skýrt einstaka
liði hennar og gert almenna
grein fyrir stefnu meirihluta
borgarstjórnar í fjármálum
borgarinnar. Mesta athygli
vakti hin gífurlega aukning
til framkvæmda á sviði fé-
lagsmála, sem nemur 151.4%
frá yfirstandandi ári. Vegur
þar mest hækkun framlaga til
bainaheimila í 7.5 millj. kr.
1963 úr 2.7 millj. kr. 1962. Er
'þar um að ræða 77.8% hækk-
un. Þá lágu fyrir fundinum
nokkrar breytingartillögur,
sem borgarráð hafði komið
sér saman um, og mikill
fjöldi breytingartillagna frá
fulltrúum minnihlutaflokk-
anna við einstaka liði áætlun-
arinnar auk roargra ályktun-
artillagna þeirra. Var við því
búizt, að utnræður miíndu
Hækkun til heilbrigðismála nemur
49.47» - til nýrra gatna og holræsa
32.5*70 - félagsmála 151.4*7o - húsnæðis-
mála 31.6*7o - íþróttamála 41.37o
- áhaldakaupa 53.37«
standa í alla nótt í borgar-
stjórn, og fjárhagsáætlunin
verða samþykkt einhvern
tíma undir morgun.
Geir Ilallgrímsson borgarstjóri
gerði sérstaklega að umræðuefni
í framsöguræðu sinni, hina stór-
felldu hækkun framlaga til verk
legra framkvæmda, sem áætlun-
in gerir ráð fyrir.
Hækkun til húsnæðismála
nemur 31.6% miðað við yfir-
standandi ár. Arið 1962 var á-
ætlað 1.776.000.00 kr. til Bygg-
ingarsjóðs verkamanna og 9.000.-
000.00 kr. til Byggingarsjóðs
Reykjavíkurborghr, eða samtals
10.776.000.00 kr. í fjárhagsáætl-
un ársins 1963, eins og hún ligg-
ur nú fyrir, er hins vegar gert
ráð fyrir 4.184.000.00 kr. til Bygg
ingarsjóðs verkamanna og 10.-
000.000.00 kr. til Byggingarsjóðs
Reykjavíkurborgar, eða samtals
14.184.000.00 kr.
í fjárhagsáætlun 1963 eru ætl-
aðar 55 millj. kr., til nýrra gatna
og holræsa, en á árinu 1962 41,5
millj. kr. Hækkun til þessara
framkvæmda nemur því 32,5%.
Árið 1962 var varið 14 millj.
kr. til skólabygginga úr borgar-
sjóði, en að meðtöldu framlagi
ríkissjóðs var varið 2® millj. kr.
til skólabygginga í borginni á
árinu 1963 verða hins vegar
veittar 15 millj. kr. til skóla-
bygginga úr borgarsjóði gegn
jafnháu framlagi ríkissjóðs, þann
ig að alls mun hér varið 30 millj.
kr. til skólabygginga á næsta ári.
Gat borgarstjóri þess sérstak-
lega, að undanfarin 4 ár hefði
verið komið hér upp tvisvar sinn
um meira skólahúsnæði en næmi
fjölgun nemenda á sama tíma.
Á árinu 1963 verður varið 7,36
millj. kr. til íþróttamála. Nemur
hækkunin frá yfirstandandi áxi
41,3%, en þá var varið 5,2 millj.
kr, til þessara mála.
Framlög til heilbrigðismála úr
borgarsjóði námu á árinu 1962
8,5 millj. kr., en að meðtöldu
Framhald á bls. 2
Gjaldeyrisstaðan yfir þúsund milij.
Sparifjáraukning 527 milljónir
GJALDEYRISSTAÐA bank-
anna hefur á þessu ári batn-
að meir en dæmi eiu til og er
nú gjaldeyriseign bankanna
erlendis orðin hvorki meira
né minna en 1010 millj. kr.
Sparifjáraukning hefur einn-
ið orðið geysimikil eða 527
millj. kr. fyrstu ellefu mán-
uði ársins.
Um síðustu áramót var gjald-
eyriseign banKanna eriendis 527
millj. kr., en hinn 30. nóvember
sl. var hún orðin xOlO millj. kr.
og hafði þannig á ellefu mánuð-
um batnað uni 483 millj. kr., eða
um nær því 44 millj kr. á hverj-
um mánuði að meðaltali.
Sparifjáraukningin fyrstu ell-
etu mánuði ársins hefur orðið
527 millj. kr., en var í fyrra 360
millj. Veltiinnlán hafa verið
svipuð eða 289 millj *. ái, en 298
millj. í fyrra.
Eins og þessar tölur bera með
sér, verður árangur vioreisnar-
•innar mun meiri á þessu ári en i
fyrra, og er þannig lagður grund-
völlur að velmegun og fram-
kvæmdum á næstu árum.