Morgunblaðið - 21.12.1962, Page 12
12
Föstudagur 21. des. 1962
JftrodnitMðMfe
Otgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Hf. Árvakur, Reykjavlk.
Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakið.
MIKIÐ FÉ TIL VEGA
k uknar framkvæmdir viðf>
vega- og gatnagerð eru
sameiginlegt áhugamál allra
[MORGUNBLAÐIÐ
Deilan um Skybolt-flaug-
arnar er enn þá óleyst
Óstaðfestar fregnir herma þó, að einhvers
konar samkomulags sé að vænta í dag '
landsmanna. Þess vegna er
eðlilegt, að miklar innræður
séu um þessi má), ekki sízt
í sambandi við afgreiðslu
fjárlaga.
Framlög til framkvæmda
við gatnagerð hafa víða verið
aukin í kaupstöðum, en sér-
staka athygli hefur þó vakið
hið stórfelda átak, sem
Reykjavíkurborg hefur hafið
til þess að fullgera allar göt-
ur í borginni á 10 árum.
Af hálfu ríkisins hafa fram-
lög til samgöngumála líka
verið aukin stórlega á síðustu
árum. Þannig voru framlög
til nýbygginga vega á árinu
1958 24,9 millj.,- en í frum-
varpinu fyrir 1963 er gert ráð
fyrir 42,3 millj. framlagi. Er
það 70% hækkun. Til við-
halds var árið 1958 ætlað 33
millj. en nú 63 millj. eða 91%
hærra en þá var.
Sama er uppi á teningnum
að því er varðar framlög til
brúa. Þau voru árið 1958 16,3
millj. en 1963 er ætlað til
þeirra 25,2 millj. Er þar um
að ræða 55% hækkun.
Með hliðsjón af þessum
staðreyndum er furðulegt, að
stjórnarandstæðingar skuli
halda því fram, að Viðreisn-
arstjómin vanræki samgöngu
málin og verji alltof litlu fé
til þeirra. Sjálfir höfðu þeir
ekki meiri áhuga á þessum
rnálum, þegar þeir réðu í
vinstri stjóminnni, en fram-
angreindar fjárveitingar til
vega og brúa bera með sér.
Hitt er svo annað mál, að
Viðreisnarstjómin hyggst
ekki láta við þessi framlög
sitja, þótt þau séu svo mikl-
um mun hærri en áður var.
Eins og kunnugt er hefur
stjórnin undirbúið fnrmvarp
að nýjum vegalögum og er
gert ráð fyrir að reynt verði
að afgreiða þau þegar á þessu
þingi. Mun þar verða um að
ræða gjörbreytingu til hins
betra í samgöngumálum, líkt
og Reykjavíkurborg hefur
haft forystuna um, þegar hún
gerði áætlun sína um að full-
gera allar götur í nöfuðborg-
inni.
Hinar barnalegu yfirboðs-
tillögur Framsóknarmanna
byggjast líka á því, að þeir
gera sér grein íyrir þeim
stórfelda mismun, sem er á
jákvæðri stefnu Viðreisnar-
stjórnarinnar í þessum mál-
um og aumingjaskap vinstri
stjómarinnar á bes«u sviði
eins og öðrum.
HAFNARFJARÐ-
AR- OG KEFLA-
VÍKURVEGUR
CJamhliða stórauknum fram-
^ lögum til nýbygginga
vega um land allt er nú haf-
izt handa um gerð stein-
steyptra vega, þar sem um-
ferð er mest. Hefur Keflavík-
urleið fyrst orðið fyrir val-
inu, og þar hefur þegar tölu-
vert verið unnið eins og
kunnugt er.
Komið hefur til orða að sér-
stakt gjald verði heimt af
ökutækjum, sem aka um hina
nýju steinsteyptu vegi, eins
og víða er gert erlendis. Er
ekkert við því að segja, enda
mundu bifreiðaeigendur ekki
telja eftir sér að greiða smá-
upphæð fyrir það að aka um
slíka vegi, í stað þess að
hrista ökutækin í simdur á
lélegum malarvegum.
En þegar rætt er um Kefla-
víkurveginn er rétt að minna
á það, sem Morgunblaðið
hefur áður rætt um í rit-
stjórnargrein, að Hafnar-
fjarðarvegurinn er bæði orð-
inn mjög slæmur og auk þess
stórhættulegur, eins og því
miður hefur margsinnis sann-
azt svo hryggilega. Umferð
xim vissa 'hluta Hafnarfjarð-
arvegar er margföld á við
það, sem verður á hinum
nýja Keflavíkurvegi. Hefði
því verið fyllsta ástæða til
þess að fullgera tveggja ak-
brauta veg til Hafnarfjarðar,
áður en hafizt var handa um
framkvæmdir sunnan Hafn-
arfjarðar.
Vonandi verður þess ekki
langt að bíða að forystumenn
vegóunála geri sér grein fyrir
þessari brýnu nauðsyn og
hefjist handa um gerð nýs
Haf narf j arðarvegar.
SÍÐASTA VINNU-
DEILAN LEYST
17mnnudeila sú, sem reis
” milli starfsfólks á véit-
ingahúsum og Sambands veit
inga- og gistihúsaeigenda, er
nú leyst. Mun þetta vera síð-
asta vinnudeilan á þessu ári,
þar sem krafizt er svipaðra
kauphækkana og aðrar stétt-
ir hafa fengið að undanfömu.
Athyglisvert er við þessa
samninga, að þeir eru gerðir
til tveggja ára, og virðast
báðir aðilar þannig vilja
leggja sig fram um að koma
í veg fyrir nýjar deilur. Þá
BRETAR eru nú í miklum
vanda staddir. Þeir eiga við
erfiðleika að etja, bæði á sviði
efnahags- og hermála. Frakk-
ar reynast þeim erfiðir í við-
ræðunum um aðild að Efna-
hagsbandalaginu og Banda-
ríkjamenn gera þeim erfitt
um vik í kapphlaupinu um
kjarnorkubúnað. Sumir telja
jafnvel, að Bretar eigi ekki
lengur neinu hlutverki að
gegna í hópi stórþjóðanna.
Þessi atriði ræða þeir
Kennedy, Bandaríkjaforseti,
og Macmillan, forsætisráð-
herra, í Nassau á Bahama-
eyjum. — ViðræÖur þeirra
munu standa degi lengur, en
ákveðið hafði verið. Þær snú-
ast einkum um það, hvort
Bandaríkjamenn vilja veita
Bretum þá aðstoð, sem nauð-
synleg reynist til að þeim
takist að koma upp kjarn-
okruher. Er þar fyrst og
fremst vun að ræða Skybolt-
eldflaugarnar, sem eru í raun
réttri árásarvopn, á svipaðan
hátt og langdrægar eldflaug-
ar á jörðu niðri, en eiga að
geta komið í þeirra stað, verði
hinar óvirkar sakir árása á
eldflaugastöðvar.
er þess einnig að gæta, að
gildistími samninga starfs-
fólks á veitingahúsum hefur
verið samræmdur, því að áð-
ur hafði verið samið við
þjóna til 31. desember 1964,
en hinir nýju samningar við
annað starfsfólk miðast einn-
ig við þann dag.
Á fleiri sviðum þyrfti að
stefna að því að samningar
allra þeirra, sem vinna í á-
kveðnum starfsgreinum,
rynnu út á sama tíma, svo að
komið yrði í veg fyrir, að fá-
mennir hópar manna stöðvi
rekstur þýðingarraikilla at-
vinnugreina.
Þrjár spurningar hefur mjög
borið á góma, allt frá því til-
kynnt var um fund þeirra Ken-
nedys og Macmillan, fyrir nokkr-
um vikum.
# Geta Bandaríkjamenn stað-
ið undir þeim gífurlega kostnaði,
sem leiðir af viðleitni Banda-
ríkjamanna til að styrkja hern-
aðaraðstöðu Breta?
# Ríkir ótti, bæði meðal
sovézkra og bandarískra ráða-
manna, vegna kjarnorkuvigbún-
aðar annarra ríkja, hvort sem er
austan eða ves-tan „járnfjaldsins"
# Hafa Bretar ekki lengur
neinu hlutverki að gegna í hópi
stórþjóðanna, eins og fram hefur
komið af ummælum Dean Ache-
son?
Allt frá þvi tilkynnt var, að
fundur Kennedys of Macmillans
yrði haldinn í Nassau, hafa farið
fram miklar umræður í báðum
löndunum, auk þess, sem skipzt
hefur verið á skoðunum.
Landvarnaráðherrar beggja
landanna, Peter Thorneycroft og
Robert McNamara, hafa ræðzt
við. Ræddu þeir aðallega um Sky
bolt-eldflaugarnar, og þá skoð-
un Bandaríkjamanna, að hætta
bæri við að afhenda Bretum þær.
Enginn sérstakur skriflegur samn
ingur mun hafa verið fyrir hendi
um afhéndingu þeirra, en Bretar
munu talið sig eiga rétt til þeirra,
samkv. nokkurs konar þegjandi
samkomulagi.
Thorneycroft er sagður hafa
tekið mjög illa sjónarmiði Banda
ríkjamanna, varðandi flaugarnar,
er þau mál voru rædd. Segir
'bandaríska tímaritið „U.S. News
& World Report", að Thorney-
croft hafi skýrt MaoNamara frá
því, að ef Bandaríkjamenn hættu
við að afhenda eldflaugarnar, þá
gæti svo farið, að leggja yrði
niður herstöðvar bandaríska
hersins í Bretlandi.
Bandaríkin hafa varið um 500
milljónum dala til smíði Sky-
bolt-eldflauga, frá því teikningar
að þeim lágu fyrir 1957.
Þær eru ætlaðar til að festa
undir vængi sprengjuflugvéla.
Þaðan er þeim skotið, og eiga
þær að ná um 7000 mílna hæð, og
ná til skotmarks í allt að 1000
mílna fjarlægð. Er drægni þeirra
svipuð og skammdrægra eld-
flauga, af þeirri gerð, sem Rúss-
ar sendu til Kúbu.
Skybolt-flaugarnar eru að
visu skæðari vopn, vegna þess,
að þær er hægt að flytja þús-
undir mílna í lofti, áður en þeim
er skotið.
Bretar hafa reynt smíði slíkra
flauga, „Blue Streak“, en hættu
við hana, þar eð kostnaður varð
þeim ofviða. Þó telja Bretar sér
mikla þötf á því að eignast slffle
vopn, þar eð land þeirra sé
mjög þéttbýlt, og því sé ekki
nóg fyrir þá að eignast eldflaug-
ar, sem skotið er frá jörðu.
Hefði brezki flugherinn yfir
að ráða Skybolt-flaugum, gætu
flugvélar hans flogið allt að
landamærum kommúnistaríkj-
'anna, og þaðan hæft skotmörk
innan Sovétríkjanna.
Fram til þessa hefur ekki geng
ið vel, er tilraunir hafa verið
gerðar með Skybolt-flaugarnar.
Fimm tilraunir mistókust, hver
á eftir annarri. Gert hafði verið
ráð fyrir, að smíðaðar yrðu rúm-
lega 400 slíkar flaugar, og myndi
heildarkostnaður við þær hafa
orðið 3000 milljónir dala (um
130.000 milljónir ísl. króna). Er
þá aðeins gert ráð fyrri þeim
fjölda flauga, sem Bandaríkja-
menn myndu þurfa til eigin
þarfa, en kostnaður yrði miklu
meiri, ef Bretar eiga einnig að
fá iþær.
Sakir þess, hve kostnaður hef-
ur reynzt mikill, og hve illa hef-
ur gengið með tilraunir, þá hafa
heyrzt háværar raddir í Washing
ton, um að hættá verði við smiði
Skyboltflauganna. Þess í stað
verði varnir frekar byggðar á
Polaris-kafbátaeldflaugum og
Minuteman-flaugum, sem skotið
er af jörðu.
MacNamara mun hafa tilkynnt
ThorneycrOft, að Bandaríkía-
menn væru reiðubúnir að fela
Bretum alla yfirumsjón með
smíði Skybolt-flauganna. Teldu
Bretar sig ekki geta gengið að
því, þá gætu þeir fengið í stað-
inn skeyti af gerðinni „Hound-
Dog“, sem nú eru þó almennt
talin úrelt.
Bretar geta ekki tekið fyrri
kostinn, vegna fjárskorts,
Þeim má því að nokkru leyti
líkja við veiðimann, sem hefur
skotin, en ekki byssuna, þ.e. þeir
eiga kjarnorkusprengjur, en vant
ar eldflaugar til að flytja þær.
Tilgangur fundarins í Nassau
er því fyrst og fremst sá, frá
sjónarmiði Macmillans, að reyna
að fá einhverja þá aðstoð, sem
kemur í veg fyrir að fótunum
sé kippt undan kjarnorkuvæð-
ingu Breta — og að leita aðstoð-
að Bandaríkjamanna til að ná
hagkvæmari kjörum í samning-
um við EBE.
Þetta eru sennilega stærstu
vandamál brezku stjórnarinnar
og íhaldsflokksins, sem tapað
hefur fylgi undanfarnar vikur
og mánuði.
Santo Domingo,
19. desemlber —AP
í fyrsta skipti í 30 ár verða nú
haldnar frjálsar kosningar £
Dominikanska lýðveldinu. Fara
kosningarnar fram á morgun,
fimmtudag. Þykir þetta mikill
viðburður í landi, þar sem ein-
ræði hefur verið um langt skeið.
Kosið er um nýjan forseta, og er
einn sigurstranglegasti framtojóð
andinn rithöfundurinn Juan
Bosch, sem sat 24 ár í fangelsi,
meðan Trujiilo ættin var við
völd.
Skyholt-flaug, deiluefni Macmillans og Kennedys.