Morgunblaðið - 21.12.1962, Qupperneq 13
Föstudagur 21. des. 1962 ^
MORGUNBLAÐIÐ
13
Hvað segia þeir í fréttum
M.s. Ketty Danielsen, sem Eimskip hefur ákveðið að kaupa.
Samningar undirritaðir
um kaup á Ketty Danielsen
ÓTTARR MÖLLER, forstjóri
Eimskipafélags íslands, er ný
lega kominn heim, en hann
hefur verið erlendis að und-
anförnu, m. a. til að semja
um kaup á danska skipinu
Ketty Danielsen.
Morgunblaðið hefur snúið
sér til Óttarrs og spurt hann
frétta af skipakaupunum. —
Hann sagði m. a.:
— í aprílmánuði sl. var
byrjað að athuga um kaup á
Ketty Danielsen. Við höfum
átt viðskipti við eiganda skips
•ins og hann lét það berast til
okkar, að til mála kæmi að
selja það.
— Skipaverkfræðingur Eim
skip, Viggó Maack, flaug til
Bordeaux í nóvembermán-
uði, þar sem skipið var statt.
Hann skoðaði það og gaf fé-
laginu svo skýrslu um ástand
þess.
— Ég fór til Evrópu í des-
emberbyrjun, m.a. til að
Danielsen, sem er eigandinn.
— Ég tel, að verðið á skip-
inu sé hagstætt fyrir Eim-
skipafélag Islands h.f.
— Sá fyrirvari var gerður
við undirritun samninganna,
að hluthafafundur Eimskip
samþykkti kaupin. I>að hefur
verið gömul hefð hjá félag-
inu, að hafa þennan hátt á
þegar samið er um skipakaup
eð smíði á skipum.
— M.s. Ketty Danielsen er
þriggja ára gamait skip. Það
er vandað og gott sjóskip og
hefur oft komið til íslands.
— Stærð þess er 1400 tonn,
sem lokað shelterdecker, en
975 tonn sem opið shelter-
decker. Lestarrými er 63.500
kúbikfet (bale). Það hefur
þungabómu, sem getur lyft
10 tonnum og það er sérstak-
lega styrkt fyrir siglingar í
is.
— Ketty Danielsen siglir
með 12 mílna hraða og er að-
alvélin af Deutz-gerð. Öll
nauðsynleg siglingatæki eru
að sjálfsögðu í skipinu.
— Það á að vera tilbúið til
afhendingar um miðjan janú-
armánuð og ætti að vera hægt
að byrja að nota það í febrú-
arbyrjun. Nafnið hefur ekki
verið ákveðið ennþá.
— Ætlunin er, að nota
skipið fyrst og fremst til að
bæta þjónustuna við strönd-
ina. Með því fæst betri nýt-
ing á flota okkar .í heild.
— Við eigum von á, í des-
emberlok, að fá tilboð frá
ýmsum skipasmíðastöðvum í
smíði á tveim skipum af líkri
stærð og Ketty Danielsen.
Síðar verður tekin ákvörðun
um, hvort og hvar skipin
verða byggð, eða hvort horf-
ið verður að því ráði að kaupa
fleiri svo til ný skip.
— Eimskip á nú 10 skip og
er burðarmagn þeirra 31.388
tonn. Ketty Danielsen verður
11. skipið okkar, sagði Óttarr
Möller.
Jón Isberg sýslumaður
* •
Búnaðarbankinn yfir■
tekur sparisjóðinn
Óttarr Möller
semja um væntanleg kaup á
skipinu.
— Samningar voru undir-
ritaðir 12. desember í Kaup-
mannahöfn af mér og Otto
SÝ SLUMAÐURINN á Blöndu
ósi, Jón ísberg, hefur ufldan-
farna daga verið í Reykjavík.
Morgunblaðið náði tali af hon
um og leitaði frétta úr Húna-
vatnssýslum.
Jón ísberg sagði m. a.:
— Við höfum verið fjórir
hér í bænum, Guðmundur
Jónasson, Ási, Ingvar Jónsson',
Skagaströnd, Herm. Þórarins-
son, sparisjóðsstjóri, og ég, til
að semja við Búnaðarbankann
um yfirtöku á Sparisjóði
Sætta sig ekki lengur við
glassúrborna plakatkúnst
THOR Vilhjálmsson, rithöf-
undur, er nýlega kominn
heim frá Italíu þar sem hann
m. a. var í boði í borginni
Sorrento um tíma og sótti
stjórnarfund í Sambandi ev-
rópskra rithöfunda. Frétta-
maður Mbl. átti tal við Thor
nú í vikunni um þessa för
hans.
— Þetta hófst á því að ég
fór með ferðamannahóp fyrir
Sunnu um Italíu í september-
lok. Þeirri ferð lauk í Suður-
Frakklandi en þaðan flaug
fólkið heim en ég hélt aftur
til Italíu, og var í boði Sorr-
entoborgar við Napólíflóa fyr-
ir milligöngu Sambands ev-
rópskra rithöfunda. Fjórum
rithöfundum býðst yfirleitt að
dveljast víðs vegar á Ítalíu
fyrir milligöngu þessara sam-
taka á hverju ári.
— í Sorrento var ég i 10
Thor Vilhjáinvsson
daga, en hélt síðan til Róm-
ar, þar sem ég dvaldist um
skeið. Þar sótti ég m. a. stjórn
arfund Sambands evrópskra
rithöfunda í stað Halldórs
Kiljans Laxness samikvæmt
•ósk hans, en hann kom því
ekki við að mæta sjálfur. —
Laxness er varaforseti sam-
takanna og nýtur þar mikill-
ar hylli og virðingar.
Tíu rithöfundar sátu fund-
inn, sem einkum fjallaði um
skipulagsmál samtakanna.
Meðal þeirra voru Ungar-
etti, eitt ágætasta ljóðsKald
ítala, André Frenaud, John
Lehmann, sem unnið hefur
merkilegt starf í bókmennta-
heimi Breta og árum saman
unnið að því að halda úti
góðum bókmenntatímaritum.
Hann átti m. a. mikinn þátt í
því að kynna ljóðskáld, sem
nú eru þekkt um allan heim,
Húnavatnssýslu og í því sam-
bandi að sett verði upp banka
útibú á Blönduósi.
— Samningaviðræður um
yfirtökuna hafa farið fram í
tvo daga og gengið árekstra-
laust. Nú er aðeins eftir að fá
samþykki bankaráðsins og
sýslunefndar Austur-Húna-
vatnssýslu til að yfirtakan
geti farið fram.
— Ástæðan fyrir því, að við
viljum leggja niður þennan 80
ára gamla sparisjóð er sú, að
við teljum að bankd geti á
margan hátt veitt okkur betri
þjónustu.
— Reiknað er með því, að
yfirtakan fari fram 1. janúar
n.k., eða miðist við þann dag.
Skortur á vinnuafli
og húsnæði
— Trefjaplastverksmiðjan,
sem tók til starfa sl. sumar á
Blönduósi, er um þessar
mundir að klæða lestar í ný-
byggðu skipi í Reykjavík með
trefjaplasti. Þessi aðferð er að
ryðja sér mjög til rúms hér á
landi.
— Rekstur verksmiðjunnar
hefur gengið vel, þótt auð-
vitað hafi verið ýmsir byrjun-
arerfiðleikar.
— Atvinna á Blönduósi hef-
eins og t. d. Dylan Thomas
o. fl. Þá var þarna einnig
Zurkov frá Rússlandi, sem
mikið kom við sögu í Paster-
nakmálinu á sínum tíma.
— Fundur þessi stóð í
nokkra daga, og má m. a. geta
þess að franskan er ekki dauð
sem alþjóðamál, sem sjá má
af því að hún er mál þessarar
stofnunar og á fundum henn-
ar ekki annað mál talað.
— Hvaða hlutverki gegna
samtökin?
— Þau eru algjörlega ópóli-
Framh. á bls. 23.
ur verið mjög mikil og hefur
vantað fólk. Ekki er það betra
í sveitunum, en þar hefur ver-
ið mikill skortur á fólki.
— Byggingaframkvæmdir
hafa verið allmiklar á Blöndu
ósi, en þrátt fyrir það eru
mikil húsnæðisvandræði og
hafa þau staðið staðnum fyrir
þrifum.
— Fjölskyldur hafa orðið
að flytjast burtu,’ þar sem þær
hafa ekki getað fengið hús-
næði.
Stórt félagsheimili
í byggingu
— Nú er verið að byggja
stórt og glæsilegt félagsheim-
ili. Hluti þess var tekinn í
notkun í haust og standa von-
ir til, að því verði að fullu
lokið næsta vor.
— I húsinu er m. a. dans-
salur, sem tekur 300—350
manns í sæti, og leik- og bíó-
salur fyrir um 300 manns.
— I vetur eru starfræktar
þrjár kennslustofur í félags-
heimilinu, því barnaskólahús-
ið er orðið of lítið, þótt það
sé ekki nema 14—15 ára
gamalt.
— Áformað er, að sveita-
hreppir sýslunnar byggi sam-
eiginlega barnaskóla að Reykj
um á Reykjabraut. Fram-
kvæmdir hefjast væntanlega
næsta sumar.
— Á fjárlögum fyrir árið
1963 hefur verið ætlað fram-
lag til skólans.
Rysjótt tíð
— í haust hefur verið held-
ur rysjótt tíð hjá okkur fyrir
norðan, en þó er ekki hægt
að segja að tíðin hafi verið
svo slæm.
— Afli bátanna var lítill
framan af, en hefur heldur
glæðzt og má teljast sæmileg-
ur núna, sagði Jón sýslumað-
ur Isberg að lokum.