Morgunblaðið - 21.12.1962, Page 24
287. tbl. — Föstudagur 21. desember 1962
Myndin var tekin á árekstursstaðnum á Suðurlandsbraut í gær.
Sjá má hvar frambretti fólksbílsins skagar út úr afturhjóli vöru-
bílsins. (Ljósm. Mbl.).
Frambrettið sat eftir á
afturhjóli vórubílsins
LAUST eftir kl. 2 í gærdag varð
harður árekstur á Suðurlands-
braut, skammt austan Miklu-
brautar. Rákust þar saman vöru-
bíll og fólksbíll af rússneskri
gerð. Farþegi í fólksbílnum
meiddist lítillega og báðir bíl-
arnir stórskemmdust. Hálka olli
óhappinu.
Nánari atvik voru þau að
vörubíllinn ko;n eftir Miklubraut
en bílstjórinn segir að er hann
hafi ætlað að hemla á gatnamót-
unum við Suðurlandsbraut hafi
Mllinn runnið 1 hálkunni. Segist
bílstjórinn þá hafa . eynt að auka
benzíngjöfina til þess að freista
þess að komast inn á Suður-
landsbrautina aður en næsta .AA
bar að, en það tókst ekki.
Pobedabíll, sem ekið var vest-
ur Suðurlandsbrautina, skall af
miklu afli utan í hægra aftur-
hjól vörubílsins. Sviptist fram-
bretti fólksbílsins bókstaflega af
honum og sat fast í afturhjóli
vörubílsins. Við höggið skekktist
,,hásing“ vörubílsins töluvert
þannig að drifskaftið fór úr sam-
bandi. Voru báðir bílarnir óöku-
hæfir eftir áreksturinn.
Farþegi í fólksbílnum meidd-
ist við áreksturinn. Var hönn
fluttur í Slysavarðstofuna og síð-
an heim, enda munu meiðslin
hafa verið lítil.
Hallalaus fjárlög án
nv'rra skatta eða tolla
Jafnframt eru framlög til verklegra
framkvæmda stóraukin
GUNNAR Thoroddsen fjármála-
ráðherra sagði í ræðu sinni við
3. umræðu fjárlaga, að það sem
m. a. einkennir afgreiðslu þess-
ara fjárlaga, er, að þau verða
afgreidd án nokkurra nýrra
skatta og tolla, án þess að nokkr-
ir tolla- og skattstigar séu hækk-
aðir eða nýir tekjustofnar á lagð
ir. Hins vegar gefa óbreyttir
skattstigar og tollstigar ríkis-
sjóði að sjálfsögðu allmiklu meiri
tekjur, bæði vegna aukinnar
þjóðarframleiðslu, vaxandi inn-
flutnings, vaxandi veltu og auk-
inna þjóðartekna.
Það hefur því reynzt fært að
afgreiða fjárlögin með tæpl 9
millj. kr. greiðsluafgangi án
nokkurra nýrra skatta eða tolla,
þótt jafnframt hafi framlög til
verklegra framkvæmda verið
hækkuð mjög verulega, — eða
meir en tvöfaldast frá 1958 Á
sama tíma hefur kostnaður við
þessar framkvæmdir hækkað um
40—50%. Það er því augljóst,
enda hefur það hvorki verið
hrakið né vefengt, að um raun-
verulega aukningu að töluverðu
marki er að ræða á framlögum
til verklegra framkvæmda, sé
Afreiðslu fjárlaga lokið
Alþingi frestað til 29. janúár
Á FUNDI sameginaðs þings í
gær voru fjárlög fyrir árið 1963
saimþytokt samhljóða sem lög
fná Alþingi.
Var þetta síðasti fundur Al-
þingis fyrir jól. í fundarlok ósk-
aði forsetd, Friðjón Skarphéðins.
þingmönnum góðrar heimferðar
og heimkomu og að þeir mættu
hilttast heilir til starfs, er þing
kærnd saman að nýju. Óskaði
hann þeirn og fjölskyldum þeirra
gieðilegra jóla svo og skrif-
stjóra oig starfsfólki Alþingis.
Eysteinn Jónsson þakkaði hlýj
ar óskir forseta og kvaðst vita,
að hann mælti fyrir munn allra
heilla og þakkaði gott samstarf
á árinu, sem er að líða. Tóku
aJþinginsmenn undir orð hans
með því að rísa úr sætum.
Ólafur Thors forsætisráðherra
las upp forsetabréf um frestun
Alþingis og lýsti því síðan yfir,
að þessu 83. löggjafarþingi þjóð-
arinnar yrði frestað frá og með
deginum í gær og yrði það kvatt
saman að nýju eigi síðar en 29.
janúar.
Jafnframt árnaði hann alþing-
ismönnium og starfsfólki alþing
is gleðilegra jóla og farsæls ný-
áns og vænti þess, að „við hitt-
umst heil í næsta mánuði.“
miðað við árið 1958.
Kvað fjármálaráðherra mikils
varðandi, að ekki sé halli á fjár-
lögum eða ríkisbúskapnum yfir-
leitt, En það er alveg sérstök
nauðsyn nú, eins og ástatt er í
atvinnu og efnahagsmálum, þar
sem eftirspurnin eftir vinnuafli
er jafn mikil í mörgum greinum
og hvergi nærri mögulegt að
fullnægja henni. Að afgreiða
fjárlög með verulegum greiðslu-
halla í slíku atvinnu- og efna-
hagsástandi er óafsakanlegt. Það
mundi auka enn á þensluna,
krefjast stóraukins lánsfjár ríkis
sjóði til handa úr Seðlabankan-
um og auka verðbólguhættuna,
sagði ráðherrann.
Að lokum þakkaði fjármála-
ráðherra fjárveitinganefnd og þá
alveg sérstaklega formanni henn
ar og meirihluta fyrir afgreiðslu
Þriðjungur
þaksins
fauk
Þykkvabæ, 20. des
í ROKINU í gær bar svo til
að bænum Bala í Þykkvabæ
að þriðjungur þaksins á nýju
íbúðarhúsi fauk. Gengu járn-
plötur af húsinu og fylgdi
smábrot af veggnum með.
íbúðarhúsið að Bala brann
í vor og er nýlokið við að
ganga frá nýja húsinu að ut-
an. — Ekki er kunnugt um
annað tjón á mannvnjkjum
hér um slóðir í þessu roki.
Magnús
fjárlagafrumvarpsins. Nú er 1
þriðja sinn í röð unnt að af-
greiða frumvarpið fyrir nýár og
hefur það ekki komið fyrir síð-
an í stríðslok. En ráðherrann
taldi það mikils virði fyrir alla
reglu í ríkisbúskapnum, að fjár-
lög séu afgreidd í tæka tíð fyrir
nýár. Kvað hann það vön sína og
trú, að Alþingi og þær ríkis-
stjórnir, sem koma hér eftir,
haldi þessari reglu og keppi að
því í lengstu lög að láta ekki
hinn gamla óvana koma upp á
ný.
Umferðargjalds-
málið á frumstigi
Aðeins Keflavíkurvegur hefur næga
umferð til þess að vegatollur sé hugsanlegur
MBL. átti í gær tal við vega-
málastjóra, Sigurð Jóhannsson,
um hugmynd þá, sem komið hef-
ur fram um að leggja á sér-
stakt umferðargjald um Kefla-
víkurveg er lánin verði að
minnsta kosti að nokikru leyti
greidd m«ð. . Sagði vegamála-
stjóri að þessi hugmynd hefði
komið fram áður í sambandi við
Keflavíkurveginn, en málið væri
á frumstigi og því ekkert um það
Lýst eftir skozkri
viskígæs á islandi
MBL. BARST í gær bréf frá
G. Helgason & Melsted h.f. þar
sem skýrt er frá því að hið
kunna viskífirma George
Ballantine & Son í Skotlandi
hafi snúið sér til fyrirtækis-
ins og beðið það að koma á
framfæri svohljóðandi eftir-
lýsingu:
„Þann 17. nóv. sl. týndist frá
brugghúsum George Ballan-
tine & Son Ltd. ein kínversk
gæs, hvít að lit með eilitlum
halla á vinstri væng og senni-
lega án hrings. Gæs þessi var
þjálfuð sem varðgæs. Síí t
sást hún á Clyde fljóti. Gæsin
er merkt með leynimerki og
fundarlaun eru £ 50-0-0 ef
hún finnst lifandi.
Ef svo skyldi vilja til að
gæsin hafi villzt hingað til
lands og finnist lifandi eru
finnendur beðnir að snúa sér
til G. Helgason & Melsted h.f.
eða George Ballantine & Son
Ltd., Dumbarton, Skotlandi".
Við þetta er því að bæta að
Ballantinebrugghúsið hefur
löngum átt í brösum við þyrsta
þjófa, sem brugðið hafa sér
yfir girðingar upihverfis viskí-
ámubirgðir brugghússins og
fengið sér sopa af tunnunum
og jafnvel tappað á ílát. Voru
varðmenn og hundar að sjálf-
sögðu settir til höfuðs þjófun
um, en samt sem áður tókst
þeim oft að næla sér í brjóst-
birtu.
1959 fékk cinn forstjóranna
þá hugmynd að láta gæsir
leysa vandamálið, og hefur í
því sambandi e. t. v. munað eft
ir sögunni um það er gæsir
áttu að hafa bjargað Rómaborg
frá innrás Galla árið 309 f Kr.
með því að vara íbúana við.
Keyptar voru í fyrstu sex varð
gæsir, en síðan fjölgaði þeim
hægt að segja að svo stöddu.
Vegamálastjóri sagði að erlend
is, m. a. í Bandaríkjunum, Ítalíu,
Noregi, Sviss og Austurríki vseru
tollvegir algengir. Væri þá tekið
ákveðið gjald af hverjum bíl,
sem leið ætti um viðkomandi
vegi. Eru gjöldin innheimt í toll-
hliðum með vissu millibili
Vegamálastjóri sagði að hugs-
anlegt væri að komast af með
eitt tolihlið á Keflavíkurvegi,
þar sem engin byggð væri um
miðbik hans.
Erlendis væri sá háttur hafður
á að tollvegir væru yfirleitt
byggðir fyrir lánsfé til langs
tíma. Tollarnir miðuðust við það
að greiða upp lán þess á láns-
tímanum. Vegamálastjóri sagði
að lokum að mál þetta væri á
algjöru frumstigi og ekkert væri
hægt að segja um hvort af þessu
yrði hér.
Þess má geta, að að jafnaði
munu 1000—1200 bilar aka Kefla
víkurveginn daglega, og er hann
eini vegurinn á landinu, sem hef-
ur nógu mikla umferð til þess
að til greina komi að koma á
umferðargjaldi.
Gæsahersingin á eftirlitsferð viö brugghús Ballantine. Viskí-
tunnurnar sjást í baksýn.
og munu þær nú vera 23 tals
ins, þ. e. a. s. 22, ef rétt er
að ein þeirra hafi fengið nóg af
því að passa viskíið og tekið
sig upp.
Þessi kátlega hersing kjagar
síðan umhverfis girðingar um
brugghúsið, og er sagt að þyrst
um þjófum hafi ekki orðið
ágengt síðan. Eru gæsirnar
sagðar svo taugaveiklaðar og
næmar að jafnskjótt og þær
heyri til mannaferða, þótt all
langt séu undan, rjúki þær
upp með miklu gargi og geri
aðsúg að hinum óboðna gesti.
Komi varðmenn þá til skjal-
anna og grípi þjófinn.
Ekki er talið liklegt að hin
týnda gæs gæti hafa villzt hing
að, ekki sízt með tilliti til þess
að aligæsir eru litt fleygar, og
ótrúlegt að þær ferðist milli
landa. Er því harla ólíklegt að
menn hér rekist á viskí-gæs-
ina á fömum vegi.
Jólasöngvar í
Laugarneskirkju
GUÐSÞJÓNUSTAN i Laugarnes
kirkju næstkomandi sunnudag
(Þorláksmessu) verður með
öðru sniði en veniulega, í tilefni
þess að jólahátíðin er að ganga
i garð. I stað venjulegrar messu-
gerðar syngur barnakór úr Laug-
arlækjarskóla fallega jólasöngva,
undir stjórn skóiastjórans, Guð-
mundar Magnússonar.
Kirkjukór Laugarneskirkju,
undir stjórn Kristins Ingvars-
sonar organista, syngur einnig
við guðsþjónustuna. Guðsþjón-
ustan hefst kl. 2 eh. séra Garð-
ar Svavarsson messar.