Morgunblaðið - 22.12.1962, Síða 23
Laugardagur 22. des. 1962
MORGU'NBLAÐlb’
23
Ferðabók Sigríðar
og Birgis Thorlacius
Ferðabók, 208 bls. + formáli,
37 ljósmyndasíður og 1 landa-
bréf. Bókaútgáfan Edda,
Akureyri 1962.
SKYLT þykir í fræðimennsk-
unni að kunna að skipa hverri
skepnu í réttan dilk, einnig verk
um mannanna og skeiðum sög-
unna. Nietzsche lét svo um mælt,
að nítjánda öldin myndi síðar
verða kölluð Zeitalter des
erotischen Romans, skeið kynóra-
6káldsögunnar. Á sama veg mætti
kalla samtíðina skeið hinna sjálf-
bo'%^. -eir
Sigríður Thorlacius
sitja fyrir hverjum einfeldningi
á strætum og gatnamótum og
krefja hann um auga og eyra, en
misbrestur vill verða á hvoru
tveggja sannleiksástinni og frá-
sagnarlistinni. Óvíða mun þó
þessi missirin meiri þörf á trú-
verðugri, fordómalausri og að-
gengilegri fræðslu en í landa-
fræðinni, er slík fræðsla því þakk
arverðari sem hún er stunduð
með listfengnari og skemmtilegri
hætti.
Og hvers myndi til þurfa, að
svo megi verða? Að sjálfsögðu
kemur margt til: skörp og lif-
andi sjón, opinn hugur, glögg
dómgreind og Ijóst skyn á sam-
hengi hinna fjölmörgu þátta
mannlífsins, haldgóð þekking á
helztu greinum nútíma atvinnu-
©g menningarlífs, öryggi í sam-
skiptum við fólk af ólíku þjóð-
erni og ólíkri menningu, næm-
leiki til að skynja heildina í svip-
sýn engu síður en smásæjar
skyndimyndir, frjó frásagnarlist
og frásagnargleði, og síðast, en
ekki sízt, það þanþol í mannleg-
um viðskiptum, sem er jafnljúft
og draga á sig slarkbuxur í fjár-
ragi vestur í Klettafjöllum og
handleika guðvef, ganga um
musteri austur í Indlandi og taka
tötralýð stórborgarinnar sem
þjóðhöfðingja heimsveldisins með
jafnri háttvísi orðs og hjarta-
lags. Þannig fer þeim hjónum
Sigríði og Birgi Thorlacius í
Ferðabókinni, en þau hafa grip-
ið jörðina með ökrum og eyði-
mörkum, úthöfum og löndum I
vinsamlegri tangarsókn austur
um Iandland og vestur um Kyrra
haf. Almenningur þeirra er rúm-
ur og fé mislitt og misval fram-
fengið, það er hvítt og svart, gult,
brúnt og rautt og allir blending-
ar þar í milli, og alls staðar sjá
þau, að einn litur streymir þó
um æðar undir mislitum lagði.
Frú Sigríður er vel kunnur
rithöfundur af bráðsnjöllum
blaðagreinum, og hlutdeild ráðu-
neytisstjórans í þessari bók kem-
ur manni til að ætla, að hin form
föstu og þurru embættisbréf
muni vera harla góður skóli hverj
um þeim, er neyta vill hinna
blæbrigðaríkari kosta tungunnar.
Þau hjón hafa sem sagt lagt sam-
an við að veita íslenzkum les-
endum verðmæt kynni af fjar-
lægum löndum og þjóðum.
Það mun verða nokkurt álita
mál, í hvaða dilk bókmenntanna
Reykjarpípa
er kærkomin jólagjöf.
Opið til kl. 11,30 e. h. alla daga.
Tóbaksverzlunin London
©? feðmáw/
Birgir Thorlacius
Ferðabókin skal dregin, utan
hvað hún er ferðabók. Þættirnir
eru sumir hörkuspennandi og f
dramatískir, sumir ljóðrænir,
sumir fræðandi, ritaðir af góð-
viljaðri alvöru og góðviljaðri
glettni. Bókin er skemmtilestur,
en öllu góðu gamni fylgir góð
alvara. Einfaldur lesandi, sem
ekki vænti annars en þægilegs
stundargamans við bókina, veit
ekki fyrr en hann er orðinn skuld
bundinn áhorfandi og þátttakandi
í kjörum og lífi fjarlægs mann-
grúa, sem ekki verður talinn
lægri tölum en hundruðum
milljóna og jafnframt verður
hann glöggsýnni á markverð
efni og hæfari að meta samtíð
sína og lifa henni. Þess kyns
lesning er þakkarverð.
f hjarta minu á ég ávallt örðugt
með að viðurkenna, að bók og
bóklist sé annað og meira en læsi
legur texti á blöðum, en þannig
eru heft eða bundin, að saman
haldist. Hvað fram yfir er, getur
lofað sinn meistara, en það er
önnur list. Því get’ég þess rétt
fyrir siðasakir, að bók þessi er
vandvirknislega út gefin og
Hörður Ágústsson listmálari hef-
ur sniðið henni óvenjulega og
hugkvæmnilega kápu.
Broddi Jóhannesson.
GRILL
GrRILLFIX grill- ofnarnir
aru þeir fallegustu og full-
Komnustu á markaðinum,
vestur-þýzk framleiðsla.
ÞBJÁR SIYEKÐIR.
k INFRA-RAUÐIR geislar
•fa innbyggður mótor
kc þrískiptur hiti
k sjálfvirkur klukkurofi
■k innbyggt ljós
Á öryggislampi
Ar fjölbreyttir fylgihlutir
GRILLFIX fyrir sælkera og
þá sem vilja hollan mat —
og húsmæðurnar losna við
steikarbræluna.
Góðir greiðsluskilmálar.
Sendum um allt land.
F Ö IV I X
O KORNERUP HANSEN
3ími 12606 — Suðurgötu 10.
— Rísinn
Framlh. af bls. 16.
Á hverjum morgni veitir
hann áheyrn fjölda manns,
sem fullvissað íhafa ritara for-
sætisráðherrans um, að þeir
eigi við hann erindi.
Það fólk kemur með gjafir,
sem Nehru veitir móttöku
með vandræðalegum undrun-
arsvip.
• Ný þróun án Ghandis.
Andrúmsloftið er gerólíkt
'því, sem gerist í Peking. Mis-
munurinn er eins konar stað-
festing á margbreytileik og
varnarleysis Indverja, og
„menntuðum" vanþroska i
þeirra. Mao má samt vita, að
ekki er sopið kálið, þótt í aus-
una sé komið. Kína Maos er
óhugnanlegt fyrirbæri, en
heimurinn verður nú vitni að
nýrri þróun, sem er að hefj-
ast í Indlandi, þróun, er ekki
einkennist af anda Ghandis
— og enginn getur sagt fyrir
um, til hvers muni leiða.
(Grein úr Daily Tele-
graph, eftir Douglas
Brow — þýtt og andur-
sagt).
T ómstundabúðin
Vðalstræti 8.
Sími 24026. .
Verið vel klæddir
um jólin
Karlmannaföt (42 stærðir) kr. 2375.—
Unglingaföt kr. 1985.—
Drengjaföt frá kr. 1160.—
..........□ ★ □.................
Einnig stakir jakkar og stakar buxur
í miklu úrvali.