Morgunblaðið - 06.01.1963, Page 5
Sunnudagur 6. janúar 1963
MORGUNBLAÐIÐ
5
iMýr snyrtiskóli
ÞESSA dagna er að hefja
starfsemi sína í Re;»lcjavilk
snyrtiskóli, hinn fyrsti sinn-
ar tegundar hér á landi. Er
hinn nýi skóli frábrugðinn
tízkuskólum þeim, sem starf-
rsektir eru hér í borg að því
leyti að í honum er fyrst og
fremst kennd andlitssnyrting
og almenn notkun og með-
ferð fegrunar- og snyrtivara.
Kennslu skólans verður
þannig háttað, að nemendur
taka þátt í 4 daga námskeiði,
eina stund á degi hverjum.
Læra nemendur að snyrta sig
sjálfir undir eftirliti kennara,
sem leiðbeinir þeirn þannig
stig af stig. Einnig verður
kennt að lagfæra húðgalla
með snyrtingu. Forstöðukona
hins nýja skóla er Erla Guð-
mundsdóttir en aðalkennari
hans er Hildigunnur Dungal,
en hún hefur lokið prófi í
andlitssnyrtingu og meðferð
snyrtivara hjá Max Factor í
London. Þá mun María Guð-
mundsdóttir fegurðardrottn-
ing aðstoða við kennsluna á
fyrstu námiskeiðunum.
Snyrtiskólinn er til húsa
að Sólheimum 23, 8. hæð og
er tekið við inntökubeiðnum
í síma 36399. Er þegar upp-
pántað á nokkur fyrstu nám-
skeiðin.
H.(. Eimskipafélae fslands: Brúar-
foss fer frá Rvík kl. 14.00 í dag til
Rotterdam og Hamborgar. Dettifoss
fer frá Dublin 11. þm. til NY. Fjall-
foss fór frá Seyðisfirði 5. þm. til Rott-
erdam, Hamborgar, Gdynia, Helsinki
og Turku. Goðafoss fór frá Mantyl-
uoto 4. þm. til Kotka og Rvíkur. Gull-
foss fer frá Kaupmannahöfn 8. þm.
til Leith og Rvíkur. Lagarfoss er á
ísafirði, fer þaðan tU Súgandafjarð-
ar og norðurlandshafna. Reykjafoss
fór frá Ólafsfirði 5. þm. til Dalvíkur,
Hríseyjar, Siglufjasðar og Vestfjarða-
hafna. Selfoss fór frá Dublin 1. þm.
til NY. Tröllafoss er í Rvík. Tungu-
foss fór frá Hamborg 5. þm. til Rvik-
ur.
Eimskipafélag Reykjasikur h.f.:
Katla er i Kristjánsand. Askja er á
Siglufirði.
Hafskip h.f.: Laxá fór frá Rvik. 2.
þm. til Cuxhaven. Rangá fór frá
Eskifirði 4. þm. til Rússlands.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell fór 4.
þm. frá Stettin áleiðis til Rvikur.
Arnarfeli fór 3. þm. frá Siglufirði á-
leiðis tU Finnlands. Jökulfell fór í
gær frá Aarhus áleiðis til Rvíkur.
Disarfell er i Rvik. Litlafell fór í gær
frá Rvik áleiðis til Siglufjarðar. Helga
fell er væntanlegt tU Rvíkur á morg-
un. Hamrafeli er væntanlegt til Bat-
umi 11. þm. frá íslandi. Stapafell fór
í gær frá Norðfirði áleiðis tii Rotter-
dam.
Flugfélag íslands h.f.: MillUanda-
flug: MUlUandaflugvélin Hrímfaxi fer
til Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08:10 i fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga tU Akureyrar og Vestmanna-
eyja. Á morgun er áæUað að fljúga
til Akureyrar, Vestmannaeyja, ísa-
fjarðar og Hornafjarðar.
tíLÖÐ OG TÍMARIT
Gangleri, 2. hefti 1962, er kominn
út. — Af efni hans má nefna: Af
sjónarhóli eftir Grétar Fells, Ný guð-
spekistúka á Sauðárkróki, Djákninn
í Grímsey, Efnishyggjan og andleg
viðreisn eftir Jóhann M. Kristjáns-
son, Höfðingi andans eftir G.F., Villi-
götur trúmannanna (G.F.), Hinn nýi
flokkur mannkynsþjónenda eftir
Steinunni S. Briem, Geislarnir sjö
eftir Sigv. Hjálmarsson, Andi æskunn
ar eftir Svövu Fells, Gáta framhalds-
lífsins (þýtt), Úr ýmsum yogabök-
um, Hvernig á að skapa og eyðUeggja
venjur með viljanum (þýtt).
— Ég er alltaf svo óróleg,
þegar maðurinn minn fer í ferða
löig.
, — Nú, hvers vegna. — Hann
er alltaf svo fljótur í fiörum
— komdnn heim, áður en þú
veizt af.
— J'á, það er nú einmitt þess
vegna, sem ég er svo óróleg.
XXX
f jólasam'kvæmi stakk einhver
upp á því, að gestirnir færu í
nýstárlegan lei'k. Þeir áttu að
gretta sig ag glenna eins herfi-
lega og þeir frekast gætu, og
síðan skyldi sérstakur dómari
skera úr um, hver hlutskarpast-
ur yrði, þ.e.a.s. ljótastur.
Dómarinn hugsaði sig lengi
um, en kvað loks upp þann dóm
að korla nokkur, sem sat úti í
horni skyldi hljóta verðlaunin.
— En ég var alls ekki með,
hreytti konan út úr sér.
XXX
Við erum ekkert að fljúgast á
mamma mín, við erum að dansa
twist.
NÝLÁTINN er í Hollywood
bandaríski kvikmyndaleikar-
inn Dick Powell, eiginmaður
leikkonunnar June Allyson.
Powell, sem veiktist í haust
af krabbameini, hafði legið
meðvitundarlaus í tvo sólar-
hringa, er hann andaðist og
er hann fjórði Hodlywood
kvi'kmyndaleikarinn er and-
azt hefur á síðastliðnum 18
dögum. Hinir þrír voru Jack
Carson, er lézt sama dag og
Powell einnig af krabbameini,
Charles Laughton og Thom-
as Mitchell.
Á myndinni sézt Dick Pow-
elil ásamt eiginkonu sinni og
syni Ricky.
2—3 herbergja íbúð
óskast til leigu. Tvennt í
heimili. Góð umgengni.
Fyrirframgreiðsla. Upplýs-
ingar í síma 17301.
ATHUGIÐ !
að bori'ö saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum.
Jólatrésskemmtun
Glímufélagsins Ármanns verður
háldin að Hótel Borg mánu-
daginn 7. jan. kl. 3 síðd.
Margir jólasveinar
Kvikmyndir.
Skemmtiatriði:
Aðgöngumiðar eru seldir í bóka-
verzlunum Lárusar Blöndal,
Vesturverf og Skólavörðustíg 2,
Sportvöruverzluninni Hellas og
Verzluninni Vogaver.
Balletskóli
Sigríðar Ármann
KENNSLA hefst aftur
mánudaginn 7. janúar.
Uppl. í síma 32153.
Frá Þjóðdansa-.
iéiagi Heykjavíkur
Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 8. janúar í Al-
þýðuhúsinu. Nýtt námskeið í nýju dönsunum, kl. 9.
Framhaldsnámskeið í gömlu dönsunum kl. 8 og
þjóðdönsum kl. 10. Hægt er einnig að bæta við byrj-
endum í barnaflokka.
Grímudansleikur félagsins verður laugardaginn
12. janúar í Félagsheimili Kópavogs.
(Upplýsingar í síma 12507 frá kl. 5—7).
Þjóðdansafélag Ryekjavíkur
Feroyingar
JÓLATRÆVEITSLA FYRI F0ROYINGAR verður
hildin 8. jan. kl. 20,30. — 011 hjartaliga vælkomin.
Hjálpræðisherinn.
Kvenfélag Háteigssóknar
Jólafundur
félagsins verður þriðjudaginn 8. janúar í Sjómanna-
skólanum og hefst kl. 8. Öldruðum konum í sókn-
inni er boðið á fundinn. — Sóknarpresturinn, sr.
Jón Þorvarðsson flytur ávarp, Vigfús Sigurgeirs-
son sýnir kvikmynd, frú Emelía Jónasdóttir les upp.
— Einnig verður einsöngur, almennur söngur og
kaffidrykkja.
Stjórnin.
Dansskóli
Eddu Scheving
í Kópavogi
Kennsla hefst að nýju mánudaginn 7. janúar.
Nemendur mæti á sama tími og venjulega.
Endurnýjun skírteina í fyrstu kennslustund.