Morgunblaðið - 05.05.1963, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.05.1963, Blaðsíða 13
Sunnudagur 5. maf 1963 ^ lUOnCVTSTtl 4 ÐIÐ ' 13 Landsfundur Hinn 15. Landsfundur Sjálf- Btæðisflokksins, sem lauk sl. sunnudag, fór fram með mikl- um ágætum. Tilhögun funda- haldsins féll mönnum vel í geð. Megináherzla var lögð á hin al- mennu fundahöld, en auk þess áttu fulltrúar úr helztu starfs- stéttum og einstökum kjördæm- um kost á að hittast og bera ráð sín saman. Stjórnmálanefndin, sem fjallaði um stjórnmálayfir- lýsingu fundarins, var eina sér- staka nefndin, er kosin var. Skipun fjölda nefnda, sem í er valið meira og minna af handa- hófi og ætlað er að fjalla um flókin og margþætt mál á ör- skömmum tíma, slítur funda- haldið sundur og skilar hæpn- um ávinning. Varðskipið Óðinn REYKJAVÍKURBRÉF Mestu máli skipti, að fundar- menn voru sammála í öllum meginatriðum. Allir þeir, sem til máls tóku, lýstu ánægju sinni yfir þeirri stefnubreytingu, sem orðið hefur í íslenzkum stjórn- málum á þessu kjörtímabili. Munurinn á frelsi og ófrelsi, á styrkri stjórn og sífelldri sundr- ung dylst engum. Það er vegna þess, að almenningur um allt land finnur þennan mun og hvernig hann hefur létt lífsbar- áttuna, sem fulltrúar hvaðan- aeva fögnuðu breytingunni, sem á er orðin. Ovissa um allt annað en ný höf t og f relsisskerðingu 1 upphafi stjómmálayfirlýsing ar Landsfundarins eru fyrst tal- in aðalstefnumál Sjálfstæðis- flokksins. Þau eru í hugum flokksmanna hafin yfir dægur- þras. Við þau ber að miða úr- lausn aðsteðjandi vandamála hverju sinni. Síðan er rakin sú gerbreyting á stjórnarháttum, sem orðið hefur á síðustu árum. Þá eru í 19 liðum taldar hinar veigamestu ráðstafanir, sem gera þarf til þess að viðreisnarstarf- inu verði haldið áfram. Loks segir: „í kosningum þeim til Al- þingis, sem fram eiga að fara 9. júní, velur þjóðin um það, hvort haldast skuli í landinu sterk stjórn og samhent, sem sækir fram til frelsis og hag- sældar, eða við eigi að taka glundroði og óvissa um allt ann- að en ný höft og margháttaða frelsisskerðingu. Sjálfstæðisflokkurinn mun nú sem fyrr vinna að málefnum þjóðarinnar með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Hann heitir á þjóðina að hafna sundrung en velja viðreisn." Munur á vfirlýsingtim Margir hafa haft orð á þelm mikla mun, sem er á stjórnmála- yfirlýsingu Landsfundarins og stjórnmálaályktun 13. flokks- þings Framsóknar. Yfirlýsing Sjálfstæðismanna er áreitnislaus í annarra g^rð. Um ástandið þegar vinstri stjórnin flúði af hólmi er einungis vitnað til orða þáverandi forsætisráðherra a Al- þingi 4. desember 1958, þegar hann sagði: „Ný verðbólgualda er skollin yfir.“ Stjómmálaályktun Framsókn- ar er aftur á móti í stíl lélegrar blaðagreinar, þar sem saman er hrúgað væmnu siálfshóli og bein —. Laugard. 4. maí um álygum og lítilmótlegum getsökum í garð andstæðing- anna. F^ránlegri sarnsetningur hefur sjaldan sézt. Mönnunum sem slíkt setja saman hlýtur að líða illa, og þó er erfitt að vor- kenna þeim, þegar þeir t. d. segja: , „Að Framsóknarflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn, sem treysta má til þess, hvað sem í skerst, að hafa þá afstöðu eina, sem miðar að almennu jafnrétti og allsherjar velmegun, og setur öllu ofar sjálfstæði landsins í nútíð og framtíð." / Þetta segja mennirnir, sem hafa gert sig ósamstarfshæfa með eilífu sérhagsmunapoti og harðast hafa barizt gegn „al- mennu jafnrétti" með því að halda dauðahaldi í freklegt mis- rétti um sjálfa undirstöðu ann- arra mannréttinda, kosningarétt- inn. „hefði - hefði - hefði.“ „— hefði — hefði,“ sagði kerl- ingin einmana og örvasa, þegar hún harmaði að hafa ekki farið á stefnumót í æsku. Eins segja Framsóknarmenn nú: „Hinu ber þó að fagna, að fyrri ára uppbygging, landhelgisút- færslan og gjafir góðæranna hafa dregið úr þeim ófarnaði, sem af stefnunni hefði leitt ella, og orðið hefði afdrifaríkar í meðal ár- ferði, hvað þá ef harðæri hefði að steðjað." Þarna huggar Framsókn sig við þrefalt „hefði“ til afsökunar því, að allar hennar ófarnaðar- spár hafa reynzt falsspádómar. En var ekki „fyrri_ árá uppbygg- ing, landhelgisútfærsla og gjaf- ir góðæra“ allt fyrir hendi í árs- lok 1958? Af hverju fór þá svo sem raun ber vitni? Þá skildi á milli feigs og ófeigs, rangrar stefnu og réttrar/ súndrungar og viðreisnar. Sama hjákátlega sjálfshólið lýsir sér, þegar flökksþing Fram sóknar segir: •>— — — enda kom flokkur- inn, ásamt Alþýðuflokknum, al- mannatryggingakerfinu á, fyrir rúmum aldarfjórðungi." Þessi tilvísun tíl þ'ess, að Alþýðuflokkurinn keypti Fram- sókn til að vera með setningu laga um alþýðutryggingar á ár- inu 1936 á að dylja andstöðu Framsóknar við setningu lag- anna um almannatryggingar 1946 og hina miklu endurbót á þeim 1960. GreinargerS Páls Hermannssonar Hver gerbreyting varð með almannatryggingalögunum 1946 má bezt marka af orðum Páls heitins Hermannssonar í efri deild 15. apríl 1946, en hann sagði þá: „Ég tel, að frumvarp þetta eigi enga hliðstæðu í íslenzkum lög- um aðra en sjálfa stjskr. Ég álít, að með lagasetningu þessari sé verið að búa til nýtt þjóðfélag, sem að minni hyggju verður betra en það sem við nú búum við. Þó að undirbúningur máls- ins sé að ýmsu leyti góður, þá tel ég þó, að hann hefði þurft að vera betri. En þar sem frv. að mínu viti stefnir að fullkomn ara þjóðskipulagi, þá segi ég já.“ Páll Hermannsson var eini Framsóknarmaðurinn, sem greiddi atkvæði með málinu í etfri deild. í neðri deild gerði samþingsmaður hans, Páll Zóf- aníasson slíkt hið sama. Aðrir Framsóknarmenn sátu hjá, eftir að þeim hafði mistekizt að eyða málinu. Þeir vildu ekki hið nýja og betra þjóðfélag, sem Páll Hermannsson sá fyrir að verið væri að skapa. Hið sama skiln- ingsleysi og afturhaldssemi réði enn framkopiu Framsóknar- flokksins 1960. „Má búast við “ Segja má, að það sé brosleg lítilmennska að reyna nú löngu síðar að dylja andstöðu sína við að koma hér á nýju og betra þjóðfélagi. Hitt er auðvirðileg lubbamennska að skrökva upp á andstæðinga sína „ráðagerðum" um hinar og þessar fyrirætlanir, sem eiga sér enga stoð í veru- leikanum. Það gera Framsókn- armenn í ályktun sinni, þegar þeir fullyrða: „Að stjórnarflokkarnir ráðgera nýja stefnu í sjávarútvegsmál- um, sem miðar að því að hleypa útlendingum inn í fiskiðnaðinn og þar með raunverulega inn í landhelgina.“ Og þegar þeir segja: „í landhelgismálinu gerðu stjórnarflokkarnir undansláttar- samninga við Breta, minnkuðu landhelgina ujn þriggja ára skeið, og í framhaldi af því má búast við að þá skorti festu tií að synja um framlengingu þeirra samninga. Ennfremur afsöluðu þeir um alla framtíð af hálfu ís- lands einhliða rétti á útfærslu íslenzkrar landhelgi." Framlenging kem- ur ekki til greina Menn mundu vart trúa, ef þeir sæu ekki svart á hvítu, að heilt flokksþing skuli telja sér sæma svo tilhæfulausar getsakir. Stefna Sjálfstæðisflokksins er skýr og ótvíræð. Landsfundurinn taldi meðal hinna veigamestu atriða, sem áfram yrði að gæta: „Framkvæmd einróma álykt- unar Alþingis frá 5. maí 1959 varðandi útfærslu fiskveiðilög sögunar og öflun viðurkenningar á rétti íslands til landgrunnsins alls. Ekki kemur til greina að framlengja samninginn við Breta um takmörkuð og tímabundin réttindi til fiskveiða, eiv hann fellur úr gildi 11. marz á næsta ári. Nauðsynleg verndun fiski- miða, samhliða eflingu fiskiðn- aðar og aukinni nýtingu sjávar- ^furða til manneldis. Efling land helgisgæzlunnar í samræmi við aukin verkefni.“ Ennfremur: „Aðild íslands að efnahags- samstarfi, eftir því sem hags- munir þjóðarinnar krefjast og án þess að undirgangast nokkur samningsákvæði, sem hér geta með engu móti átt við.“ Þessar yfirlýsingar Landsfund- ar eru í samræmi við margyfir- lýsta stefnu Sjálfstæðisflokksins fyrr og síðar. Um hana þurftu Framsóknarmenn ekki að fará í grafgötur, ef þeir vildu hafa það er sannara reyndist. Vanþakklæti Framsóknar til landhelgis- gæzlunnar Enn annað er svo ósamræmið í því að þakka annars vegar „landhelgisútfærslunni“ hag- sæld síðustu ára og ásaka ríkis- stjórhina hins vegar um „und- ansláttarsamning" við Breta. Það er einmitt hinn mikli sigur, er vannst í samningunum við Breta í marz 1961, sem hefur gert að verkum, að stækkun landhelg- innar hefur komið að raunveru- legum notum, með því að létta af stríðsástandinu, er áður ríkti á miðunum. Allt er á sömu bók- ina lært hjá Framsókn. Undan- farna daga hefur Tíminn haldið uppi ásökunum gegn landhelg- isgæzlunni fyrir að hefja ekki skotárás á landhelgisbrjóta fyrr en í síðustu lög. Aldrei hefur þó komið skýrar fram en nú, að varlega ber ~að fara í þeim efn- um. Eftir á getur engum bland- azt hugur um, að skipstjórinn á Milwood hefur verið viti sínu fjær, meðan viðureign hans og Óðins stóð á dögunum. Ómögu legt er að segja, hvernig farið hefði, ef þá hefði í alvöru verið gripið til fallbyssuskota. Fyrir mistök skipherrans á Palliser gekk skipstjórinn á Milwood að vísu úr greipum íslenzku rétt- vísinnar. Á þeim mistökum ber brezka ríkið ábyrgð og verður að bæta fyrir þau, eftir því sem alþjóðalög segja fyrir um. En ekki þarf að deila um, hversu staða okkar er nú sterkari en ef komið hefði til stórátaka, sem enginn veit hvernig lyktað hefði. Þá var Hermann seinn á sér Varúð og festa landhelgisgæzl unnar átti mikinn þátt í sigri okk ar í deilunni við Breta. Ætla hefði mátt, að áður en vinstri stjórnin lagði í útfærslu landhelg innar 1958, mundi hún hafa feng- ið landhelgisgæzlunni sæmileg tæki til að gegna sínum mikils- verðu og vandasömu störfum. Á sínum tíma beitti Bjarni Beneditksson sér fyrir því, að landhelgisgæzlan fékk flugvél, sem síðan hefur komið að ómet- ánlegu gagni. Er sízt ofmælt, þó að sagt sé, að ógerlegt hefði ver- ið að annast gæzluna hin síðari ár, ef flugvélarinnar hefði ekki notið við. Snemma árs 1956 fékk Bjarni Benediktsson einnig sam- þykkta á Alþingi heimild til þess fýrir ríkisstjómina að hefja und- irbúning að smíði nýs varðskips. Framkvæmdir á þessari álykt- . un Alþingis voru hins vegar látnar draga^t langt úr hófi. Það var ekki fyrr en hinn 4. desem- ber 1958, sama ~dag og vinstri stjórnin flúði af hólmi, sem samningur um smíði hins nýja varðskips var undirritaður. Land helgisgæzlan heyrði þá undir Hermann Jónasson og má segja honum það til lofs, að hann • skyldi þó skammast sín fyrir að hverfa úr ráðherrastóli, án þess að skeyta um Alþingissamþykkt- ina frá þvi í marz 1956. En vist hefur hann talið önnur verkefni meira aðkallandi en að skapa landhelgisgæzlunni skilyrði til þess að gegna sínu vandasama verkefni. Stjórnarslit og laxveiðileip;a Um þessar mundir þarf að taka ákvörðun um mat á lax- veiðiréttindum í Grímsá í Borg- arfirði. Þannig er mál með vexti, að hinn 24. nóvember 1958 — þegar farið var að hrikta í vinstri stjórninni — leigði Hermann Jónasson nokkrum heiðursmönn- um í Keykjavík laxveiðiréttindi í Grímsá „um næstu 9 ár frá 1. júni 1963 að telja.“ í fljótu bragði virðist það harla óvenjuleg fyrirhyggja að taka þannig ákvörðun fimm ár fram í tímann um ráðstöfun á eign- um ríkisins. Þegar betur er að gáð kemur í ljós, að þessi fyrir- hyggja er ekki alveg eins ný- stárleg og ætla mætti, því að hinn 8. júli 1953 leigir hinn sami Hermann Jónasson sömu heið- ursmönnum í Reykjavík þessi sömu réttindi „til næstu tíu ára“, þ. e. fram á mitt ár 1963. Þreföld tilviljun? Hinn nýi leigusamningur, sem gerður var tíu dögum áður en vinstri sitjórnin féll 1958, var að efni til um að framlengja samn- inginn frá 1953 um níu ár, frá árinu 1963! Samningsdagurinn 1953 vekur einnig athygli. Hann er nokkrum dögum eftir að Fram Sókn hafði beðið ósigur í Al- þingiskosningunum 1953, og Her mann hafði ákveðið að hverfa úr stjórn. Laxveiðifyrirhyggjan hefur því ekki verið síðri 1953 en hún reyndist 1958. Og þegar betur er að gáð, þá á þessi fyr- irhyggja sér enn lengri rætur. Hinn 24. október 1941 leigði Her- mann Jónasson einum þeirra, sem síðari samninganna nutu, þessi sömu réttindi „um 10 — tíu — ára tímabil frá 1. júní 1939 að.telja". Enn vill svo til, að samningurinn er gerður, þeg- ar óvissa var um framhald stjórnarsetu Hermanns Jónas- sonar. Þessi var gerður hinn 24. október 1941, en 7. nóvember sama ár veitti ríkisstjórnin ráðu neyti Hermanns Jónassonar lausn frá embætti! Segi menn svo, að Hermann hafi ver- ið skeytingarlaus um stjórnar- störf og ekki látið til sín taka það, sem hann taldi mestu máli skipta!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.