Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 1
32 slður Yfirlýsing brezka sendiherrans fyrir hond ríkisstjórnar sinnars Viðnrkenning mílunum skýluus Brezka ríkisstjórnin lýsir því enn einu sinni yíir, að hún muni ekki sækja um framlengingu þriggja dra tímabilsins í ORÐSENDINGU, sem sendiherra Breta hér á landi, E. B. Boothby, afhenti utanríkisráðherra ís- lands, Guðmundi í. Guðmundssyni, í gær, er því lýst yfir af hálfu brezku ríkisstjómarinnar, að eng- inn ágreiningur geti verið um það, að hún hafi með landhelgissamkomulaginu í marz 1961 viðurkennt tólf mílna fiskveiðilögsögu við ísland. Ennfremur segist brezki sendiherrann í orðsend- ingunni vilja endurtaka enn einu sinni þær yfirlýs- ingar, sem brezka ríkisstjórnin hafi áður gefið ís- lenzku ríkisstjórninni, um það, að hún hafi ekki í hyggju að fara fram á framlengingu þriggja ára tímabilsins, er því lýkur hinn 11. marz 1964. Segir í orðsendingunni, að fullyrðing um hið gagnstæða verði að teljast alvarleg rangtúlkun á ótvíræðri og afdráttarlausri afstöðu brezku ríkisstjórnarinnar í þessu máli. Fréttatilkynning, sem Morgun- blaðinu barst frá utanríkisráðu- neytinu um þetta efni I gær- kvöldi, fer hér á eftir í heild: í framhaldi af símskeyti, sem birtist í dagblaðinu Timanum 19. þ.m., er því í morgun haldið fram í sama blaði, að orðsend- ing ríkisstjórnar Bretlands til ríkisstjórnar íslands frá 17. þ.m. varðandi Milwood-málið, sé „túlkuð svo af talsmönnum brezka utanríkisráðuneytisins við fréttastofur, að brezka stjórnin telji sig ekki hafa viðurkennt 12 mílna fiskveiðilandhelgi við ís- land enn“. Jafnframt heimtaði blaðið, að íslenzka ríkisstjórnin krefði brezku ríkisstjórnina frekari upplýsinga um þetta at- riði. í tilefni þessara skrifa hefir utanríkisráðherra, Guðmundur í. Guðmundsson, í dag vakið at- hygli ambassadors Breta í Reykja vík á framkomnum fullyrðingum Tímans um talsmenn brezku ut- anríkisþjónustunnar og óskað upplýsinga um, hvort hér sé rétt með farið. Ambassadorinn full- vissaði ráðherrann um, að hér væri farið algjörlega rangt með, og hefir hann afhent ráðherra skriflega orðsendingu sem hljóð- ar þannig í íslenzkri þýðingu: „Kæri ráðherra. Þér hafið spurt mig í em- bættisnafni hvort ríkisstjórn mín geti gefið nokkra skýr- ingu á þeim fullyrðingum dagblaðsins Tímans í morgun, að opinber orðsending ríkis- stjórnar minnar til ríkisstjórn ar fslands frá 17. þ.m., varð- andi Milwood-málið, sé „túlk. uð svo af talsmönnum brezka utanríkisráðuneytisins við fréttastofur, að brezka stjórn- in telji sig ekki hafa viður- kennt 12 mílna fiskveiðiland- helgi við ísland enn.“ Ég leyfi mér að svara þessu svo, að ríkisstjórn mín hefur skýrt mér frá, að talsmaður hennar hafi haft fyrirmæli um að halda sér alveg að efnishlið orðsendingarinnar frá 17. maí, en þar var, eins og þér vitið, ekki minnzt á fiskveiði- lögsöguna. Ég get þess vegna ekki séð neina ástæðu fyrir því að slíkur skilningur skyldi hafa verið lagður í ummæli talsmannsins. Ágreiningurinn milli Bret- lands og íslands um tólf mílna fiskveiðilandhelgina var endanlega leystur með orðsendingum frá 11. marz 1961 milli ríkisstjórna okkar, og þar með féll ríkisstjórn mín endanlega frá mótmælum sínum gegn tólf mílna fisk- veiðilögsögu umhverfis fs- land. Samkvæmt orðsending- unum frá 11. marz 1961 getur enginn ágreiningur orðið milli landa okkar um, að tólf mílna fiskveiðilögsagan við ísland er viðurkennd af hálfu ríkisstjórnar minnar. Þegar þriggja ára tímabilið þar sem brezkum togurum hafa verið heimilaðar fisk- veiðar á ákveðnum svæðum innan tólf mílna fiskveiðitak- markanna, rennur út hinn 11. marz 1964, munu brezkir tog- arar sleppa þeim rétti. Ég vil leyfa mér að endur- taka enn einu sinni þær yfir- lýsingar, sem ríkisstjórn mín Ankara, 21. maí — AP/NTB Byltingartilraun sú, sem gerð var í Tyrklandi í gær- kvöldi, undir forystu Talat Aydemir, fyrrverandi hers- höfðingja, var fljótlega brot- in á bak aftur. Tilkynningin um bylting- una var fyrst lesin í útvarpið í Ankara. Þá var skýrt frá þátttöku Aydemirs, en hann var rekinn úr hernum 1962, er misheppnuð byltingartil- raun var gerð í febrúar það ár. Vart leið klukkustund, þar til önnur tilkynning var lesin. Þá var sagt: „Engin bylting hefur enn verið gerð. Tyrk- land verður lýðveldi, fram- vegis, eins og verið hefur.“ á 12 hefur áður gefið íslenzku ríkisstjórninni, um, að ríkis- stjórn mín hefur ekki í hyggju að fara fram á framlengingu þriggja ára tímabilsins, sem lýkur 11. marz 1964. Fullyrð- ing um hið gagnstæða verður að teljast alvarleg rangtúlkun á ótvíræðri og afdráttarlausri afstöðu ríkisstjórnar minnar í þessu efni. Yðar einlægur, (sign.) E. B. Boothby." Að gefnu tilefni hefur utan- rikisráðuneytið talið rétt að of- anritað komi fram. Utanríkisráðuneytið 21. maí, 1963. Ennfremur var því lýst yfir, að stjórn Ismet Inonu vseri enn við völd. Stjórnin hefur nú lýst yfir hernaðarástandi í Tyrklandi, og mun það vara í fjórar vikur. Engum er leyft að koma til lands ins, né fara þaðan, meðan hern- aðarástand ríkir. Ekki kom til alvarlegra átaka í Ankara, er byltingartilraunin var gerð. 7 hermenn létu þó lífið í bardögum, og 23 særðust. í>átt- takendur í byltingartilrauninni voru flestir nemendur herskól- ans. Yfirmaður tyrkneska herráðs- ins, Cevdet Sunay, er sagður hafa sent utanríkisráðherra landsins og varnarmálaráðherra skýrslu um málið. Ráðherrarnir dveljast nú í Ottawa, þar sem þeir munu sitja fund NATO, er hefst á morgun. Áreiðanlegar fregnir herma, að þar sé því haldið fram, að byltingartilraunin hafi endan- lega verið kæfð. Byltingartilraunin í Tyrklandi mistókst Sijórn Inonu enn við völd HAPPDRÆTTI S JÁLFST ÆDISFLOKKSINS Dregið eftir tvær vikur — Tryggið VERÐMÆTI ykkur miða ■ tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.