Morgunblaðið - 28.05.1963, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.05.1963, Blaðsíða 14
30 MORCUIVBL 4 ÐIÐ Þriðjudagur 28. maí 1963 MGII Fram vann annan leik sinn án þess að skora mark ICefBvíkingar gerðu sjálfsmark eg topuðu 0:1 AFTUR gengu íslandsmeistarar Fram af leikvelli meS sigur og tvö stig — án þess að skora sjálf- ir mark. í öðrum leik sínum í íslandsmótinu mættu þeir nýlið- unum í Keflavík og svo fór enn sem í leik Fram við Akureyri að Keflvíkingar færðu íslandsmeist- urunum sigurinn á silfurdiski með því að skora sjálfsmark, og það varð eina mark leiksins. Fram hefur því 4 stig eftir tvo leiki, en enginn Framari hefur enn skorað mark á mótinu. Undirtök Fram Fram átti þó lengst af undir- tökin í þessum leik og færi áttu þeir allgóð til að sleppa við að vinna leikinn á einu sjálfsmarki. En jafnt í upplögðum tækifærum sem öðrum lakari, sem sæmileg máttu þó kallast, brást íslands- meisturunum bogalistin. Stund- um komust áhorfendur ekki fram hjá þeirri hugsun að beztu varn- arleikmenn fyrir Keflavík væru sóknarleikmenn Fram — og reyndar mátti oft snúa þessari kenningu við. •k Bjargað á línunni Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn bæði í jákvæðum köflum og mistökum. Bæði lið björguðu á marklínu eftir að markverðir höfðu farið fýluferð út úr mark- inu til bjargar. Þannig bjargaði Halldór Lúðvíksson marki hjá Fram er hann stöðvaði skot Karls Hermannssonar á marklínu og nokkru síðar bjargaði Ólafur Marteinsson á línu Keflavíkur- marksins eftir aukaspyrnu Fram og mikla sóknarpressu. Fyrir utan þetta ógnuðu bæði lið mörkunum. Tækifæri Fram voru opnari og því enn sárara að sjá þau misnotuð en þau er Kefl- víkingar áttu sem sum hver voru þó góð. Sjálfsmarkið Eftir 3 mín. leik í síðari hálf leik kom sjálfsmarkið. Há sending var send í átt að Kefla víkurmarkinu. Sigurvin mið- vörður ætlaði að skalla frá og var óvaldaður með knöttinn. En hann hefur sennilega ekki reiknað með vindinum og svo 1 fór að haAn náði varla til knattarins — og ekki á annan hátt en að fleyta honum yfir markvörðinn sem var á leið út til að taka knöttinn og knött- inn hefði Gottskálk markvörð ur haft auðveldlega ef mið- vörðurinn hefði látið hann ósnertan. En þetta var sigur- mark Fram í leiknum. Misnotuð færi Góð færi sköpuðust eftir þetta. M. a. stóð Hallgrímur Scheving útherji Fram tvívegis einn og óvaldaður í góðu færi en spyrnti framhjá í bæði skiptin. Jón út- herji Keflvíkinga fékk og tvö mjög góð færi en sendi knöttinn í bæði skiptin yfir markið. Framarar áttu ýmis önnur tæki færi en misnotuðu allt. Mörgum í áhorfendahópi fannst Keflavík eiga vítaspyrnu um Framh. á bls. 26. Hér skora Keflvíkingar en Jón miðherji (lengst til hægri snerli knöttinn með höndum. Akranes vann Akureyri 3 gegn J Öll mörkin í séðari hálfleik AKURNESINGAR tryggðu sér sætan sigur og tvö stig er þeir mættu Akureyringum á vellin- um á Akranesi á sunnudaginn. Urslitin urðu 3 mörk gegn 1 og I þó sigurinn sé heldur stærri en Milan vann keppni meistaraliða ÍTALSKA knattspyrnuliðið Mil- an sigraði Benefica í úrslitaleik í Evrópukeppni meistaraliða með 2 mörkúm gegn einu. Leikurinn fór fram á Vemibley í London á sunnudag og þótti sigur Milan réttlátur. Aðeins 45 þús. manns horfðu á leikinn. raunverulegur gangur leiksins gaf tilefni til, þá áttu Akurnes- ingar frumkvæði í leiknum og voru ákveðnari við mark mót- herjanna og það réði endanleg- um úrslitum. Öll mörk leiksins voru skoruð í síðari hálfleiknum og áður en þau komu hafði Einar markvörð- ur Helgason frá Akureyri m.a. varið vítaspyrni. Ríkharðs Jóns- sonar. Þótti leikur Einars í mark- inu oft fnjög góður enda hefur hann sýnt það fyrr að hann er fimasti og fjaðurmagnaðasti markvörður okkar. Forystu fyrir Akranes skapaði Ingvar Elísson og notfærði sér vel klaufalegan leik varnar Akur eyringa. Nokkru síðar bætti Skúli Davíð Valgarðsson vann Guð- mund Gíslason og setti drengjamet Og Ármann vann KR 7:1 HINN kórnungi og efnilegi sund- maður frá Keflavík, Davíð Val- garðsson varð fyrsti íslandsmeist- arinn í sundi árið 1963. Tvær greinar mótsins fóru fram í gær- kveldi, 1500 m skriðsund og úr- slitaleikur í sundknattleik. Davíð sigraði í 1500 m sund- inu og vann m. a. Guðmund Gísla eon sem verið hefur meistari á þessari vegalengd undanfarin ár. Guðmundur hafði forystuna fyrri helming leiðárinnar en þá tók Davíð við og hélt henni til loka. Úrslit í sundinu urðu þessi: ísl.meist. Dayíð Valgarðsson ÍBK 19.50.3. 2. Guðm. Gíslason ÍR 20.13.6. 3. Guðm. Þ. Harðarson Æ 21.11.2. 4. Trausti Júlíusson Á 22.26.8. Alís tóku 7 menn þátt-í sund- inu og er það mesta þátttaka í þessari grein um langt skeið. Tími Davíðs er nýtt drengja- met, en þess má og geta að ný- lega auglýstur lágmarkstími SSÍ til þátttöku í Norðurlándamóti er 19.10.0. í úrslitaleik sundknattleiks- mótsins hafði Ármann yfirburði yfir KR og vann með 7 gegn 1. Hákonarsson öðru marki við eft- ir laglegt upphlaup Skagamanna og gött skot. Þriðja matkið skor- aði svo Ríkharður Jónsson er nokkuð var liðið á hálfleikinn. Einlék Ríkharður gegnum vörn- ina og framhjá Einari markverði og sendi í mannlaust markið. Fáum mínútum fyrir leikslok fékk Skúli Ágústsson minnkað tapið fýrir Akureyri með því að skora af stuttu færi. Þessi leikur var sem hinir aðr- ir í íslandsmótinu aðeins góður á köflum en þess á milli var hann þófkenndur og lélegur. Akurnesingar voru mun ákveðn- ari og verðskulduðu sigur sem fyrr segir. Framlína Skagamanna nær á köflum skemmtilega sam- an og eru þá bræðurnir Ríkharð- ur og Þórður driffjaðrir leiksins. Akureyringar eru enn alllangt frá því formi sem þeir sýndu í fyrra, einkum á það við um sókn armennina en ofan á bætist að vörnin að markverði undanskild- um er oft ákaflega opin og auð- veld viðureignar fyrir sóknar- menn mótherjanna. Valur vann KR 3:0 í GÆRKVÖLDI vann Valur KR með 3—0 í landsmóti 1. deildar. Sigur Vals var verðskuldaður. í byrjun _var baráttan jöfn en eftir að Valsmenn höfðu skorað úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik — fallegt mark Bergsteins Magnús sonar — og bætt öðru við (Berg- sveinn Tómasson) eftir klaufa legan varnarleik KR var mót- spyrna KR brotin á bak. Berg- steinn bætti svo þriðja markinu við. Sjálfsmark Keflvíkinga. Sigurvin miðvörður (annar frá hægri) skallaði yfir Gottskálk maik- vörð. (Ljósm. Sv. Þorm.), IR á móti „lands- keppni44 KR „í tilefni af fréttatilkynningu Erjálsíþróttadeildar KR um fyrirh'ugaða keppni KR gegn úr« vali úr öllum öðrum íþróttafé- lögum landsins, sem birtist í blöðum og útvarpi á uppstign- ingardag, leyfir stjórn Frjáls- íþróttadeildar Í.R. sér að taka fram eftirfarandi: 1. Frjálsíþróttadeild f.R. er mótfallin keppni í þessu formi. 2. Þegar um keppni tveggja aðila er að ræða, finnst stjóm Frjálsíþróttadeildar Í.R. nauðsyn legt, að keppnisaðilar ræði fyrir. komulag slíkrar keppni, þó svo að hægt væri að komast að sam- komulagi um einhverskonar stiga keppni, annaðhvort milli eins fé- lags og úrvals úr öðrum, eða keppni tveggja félaga, telur stjórn Frjálsíþróttadeildar Í.R., að dagarnir 12.—13. júní séu mjög óheppilegir. Frjálsiþrótta- mót út á landi fara yfirleitt ekkl fram fyrir 17. júní og því er úti- lokað að velja lið nú, ef miða skal við afrek á þessu ári, en telja verður vafasamt að velja menn í keppnislið, ef valið er eftir afrekaskrá ársins á und- an. 3. Frjálsíþróttadeild f.R. hef- ur nú sem hingað til áhuga á stigakeppni milli KR. og Í.R. í frjálsum íþróttum, enda hafa forystumenn félaganna rætt um slíka keppni í vor. Með þökk fyrlr birtinguna Frjálsíþróttadeild ÍJL“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.