Morgunblaðið - 29.05.1963, Síða 5
Miðvikudagur 29. maí 1963
MORGVNBLAÐIÐ
5
Hérastubbur bakari, Húsamús og Refur.
fslenzka brúðuleikhúsið er
nú að leggja land undir fót og
sýnir að þessu sinni Dýrin í
Hálsaskógi eftir Thorbjörn
Egner, í þýðingu Huldu Val-
týsdóttur og Kristjáns frá
Djúpalæk. Er þetta tíunda
starfsár leikhússins, og hefur
það breytt nokkuð um útlit,
því sýnt verður á stóru sviði
allt að 6 m breiðu, eftir stærð
samkomuhúsanna. Tæki og
útbúnaður eru af fullkomn-
ustu gerð, eins og bezt gerizt
erlendis. Sýningar hefjast í
Borgarnesi 4. júní og þaðan
verður haldið um Snæfells-
nes, Vestfirði, Norðurland og
Austfirði, á alla þá staði, þap
sem aðstaða til sýninga er
fyrir hendi. Aðgöngumiðum
fylgja ókeypis leikskrár, og í
þeim eru allir söngvar leiks-
ins birtir.
Dýrin í Hálsaskógi samdi
Egner upphaflega fyrir brúðu-
leikhús, en breytti síðan fyrir
leikhús. Höfundinn er óþarfi
að kynna fyrir væntanlegum
gestum Brúðuleikhússins;
þeim er Kardimommubærinn
í fersku minni. Leikstjóri er
Ævar Kvaran, en leikendur
alls 18. Vandað er til leiks og
söngs og hefur Carl Billich
æft söngvana og sér hann um
undirleik.
Brúðuleikhúsið hefur náð
miklum vinsældum um land
allt, enda val verkefna jafn-
an verið gott og sýningar vel
unnar.
Helztu „leikararnir“ á sviðinu.
Söfnin
Minjasafn Reykjavikurbæiar, Skúia
túni 2. opið dag'ega frá kl. 2—4
Ðema mánudaea
BORGARBÓKASAFN Reykjavík-
ur. sími 12308. Aöalsafnið Þinghoits-
Btræti 29a: tlánsdeild 2—10 alla virka
daga nema laugardaga 1—4. Lesstofa
10—10 alla virka daga nema laugar-
daga 10—4. Útibúið Hólmgarði 34 opið
5 til 7 alla virka daga nema laugar-
daga. Útibúið Hofsvallagötu 16 opið
5.30 til 7.30 alla vlrka daga nema
laugardag. tibúið við Sólheima 27.
opið 16—19 alla virka daga nema
laugardaga.
Ameríska bóltasafnið, Hagatorgi 1.
«r opið mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga, kl. 10—21. þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 10—18. Strætisvagna-
ferðir: 24,1,16,17.
Þjóðminjasafnið er opið þriðjudaga.
fimmtudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Tæknibókasafn KMSÍ. Opið alla
virka daag frá 13-19 nema laugardaga
frá 13-15.
Listasafn Islands er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
á sunnudögum og miðvikudögum kl.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræði 74, er
opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu
daga frá kl. 1.30—4 e.h.
+ Gengið +
21. mai 1963.
Kaup Sala
1 Enskt pund .. 120.28 120,58
1 Bandaríkjadollar ... 42.95 43,06
1 Kanadadollar ...... 39,89 40,00
100 Danskar krónur 621,56 623,16
lo(T Norskar kr. . 601,35 602,89
100 Sænskar kr ... 827,43 829,58
liT Finnsk mörk 1.335,72 1.339,1
100 Franskir £r. „ 876,40 878,64
100 Svissn. frk. .. 992,65 995.20
100 Vestur-þýzk mörk 1.078,74 1.083,50
100 Gyllini 1.195,54 1.198,60
100 Belgískír £r .... 86,16 86,38
100 Pesetar ......... 71,60 71,80
100 Tékkn. krónur ____ 596,40 598,00
Keflavík
Stúlka óskast til síma-
vörzlu og afgreiðslustarfa.
Bifreiðastö'ð Keflavíkur
Sími 2211.
Westinghouse ísskápur
10 kúbikfet, til sölu, vegna
flutnings. Selst ódýrt. —
Uppl. í síma 17812.
íbúð óskast
Hjón með 1 barn óska eftir
2—3 herb. íbúð frá 1. júní.
Fyrirframgr., ef óskað er.
Upplýsingar í símum 20625
og 20544.
ÓDÝRAR DRENGJAPEYSUR
Nýleg olíukyndirg
til sölu með öllu tilheyr-
andi. Úppl. í síma 33643.
1—2 herbergja íbúð
óskast til leigu sem fyrst
fyrir einhleypa stúlku. —
Uppl. í sírna 16801 til kL
5 e. h.
Varðan
Laugavegi 60.
Kjallaraherbergi
óskast sem næst Fiskhöll-
inni. — Sími 36727.
ATHUGIÐ !
að boriö saftian við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
t Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum.
Lögtaksúrskurður
Samkvæmt beiðni bæjarstjóra Kópavogs úrskurð-
ast hér með lögtak fyrir gjaldföllnum en ógreiddum
fyrirframgreiðslum útsvara ársins 1963, sem féllu
í gjalddaga 1. febrúar, 1. marz, 1. apríl og 1 maí
1963, í hvert skipti einn tíundi hluti útsvarsupp-
hæðar gjaldanda 1962, auk dráttarvaxta og lög-
takskostnaðar. Fer lögtakið frám að liðnum átta
dögum frá birtingu úrskurðar þessa, ef ekki verða
gerð skil fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Kópavogi, 22. maí 1963.
Sigurgeir Jónsson (sign).
GOTT TÆKIFÆRI
Odýr mánaðardv'öl í SvíþjóB í sumar
Eg hefi í hyggju að dveljast í sumarleyfi mínu á
Islandi. Eg ætla mér ekki að taka þátt í neinni hóp-
ferð og búa á hótelí heldur að heimsækja land yðar
einsamall í júlímánuði.
Eg hefi nýtízku íbúð — byggða í fyrra —, búna
góðum húsgögnum, 4 km. utan við Stokkhólm. Tvö
herbergi og eldhús, bað og svalir koma til með að
vera ónotuð í fjarveru minni.
Þér hafið ef til vill hugsað yður að heimsækja Sví-
þjóð um sama leyti? Sé svo, .væri ágæt lausn, að
við skiptumst á íbúðum og spöruðum okkur báðum
húsaleigu þann tíma.
Eg er einhleypur, 31 árs ritstjóri við stofnun, er
heyrir undir Stokkhólmsháslcóla. — Það skiptir
ekki máli, hvort þér eruð einhleypur/einhleyp eða
2—3 fjölskyldumeðlimir — þó engin smábörn. —
Vinsamlegast svarið á ensku eða „skandinavisku" til:
THURE LAGERSTRÖM, Box 99, SOLNA, Sverige.
Einbýlishús í Vesturbænum
Til sölu er einbýlishús við Hávallagötu. Húsið er
kjallari og 2 hæðir. Á hæðinni eru 3 stofur, eld-
hús og W.C. Uppi 3 svefnherbergi og bað og í kjall-
afa 1 herb. eldhús, W.C., þvottahús og geymslur.
Nánari upplýsingar gefur:
Skipa & Fasteignasalan
(Jóhannes Lárusson, hrl.)
Kirkjuhvoli, símai 14916 og 13842.
4 herb. íbúð
Til sölu er 4ra herb. íbúð (120 ferm.) í kjallara við
Barmahlíð. Sér inngangur. Sér hitaveita. Teppi
fylgja. — Nánari upplýsingar gefur:
Skipa- og fasteignasalan
(Jóhannes Lárusson, hrl.)
Kirkjuhvoli — Símar 14916 og 13842.