Morgunblaðið - 29.05.1963, Side 12
12
MORGVNBLAÐID
Miðvikudagur 29. maí 1963
HlilBíRT FOOTAIEB:
H
Æ
T
T
IJ
L
E
G
IJ
R
FARMUR
I. KAFLl.
Þegar kreppan var upp á sitt
versta, var það siður dagblað-
anna að segja, að Horace Laghet
sœti með alla peningana, sem til
vaeru í landinu. Nafn hans var á
hvers manns vörum, og hvert
minnsta handarvik hans varð
forsíðuefni.
Fyrst kom nafn hans í hámæli
í óðagotinu 1929, þegar það heyrð
ist, að hann hefði selt verðbréf,
sem hann átti ekki. Vitanlega
varð þetta milljónagróði. Og
þessu var haldið áfram og
milljónirnar streymdu inn. með-
an ajlir aðrir áttu um sárt að
bi.idá.
Hann eyddi fé eins og vitlaus
maður. Samtímis því, að bygg-
ingariðnaður í landinu var sem
næst stöðvaður, tók hann til að
reisa heljarmikla marmarahöll
ofarlega við Fimmtutröð og aðra
í Newport. Hann pantaði
skemmtiskip, sem átti að fara
langt fram úr öllum öðrum slik-
um, sem nokkurntíma hefðu
smíðuð verið. Þegar fundið var
að þessu óhófi, svaraði hann:
„Nú, hvað er þetta — er ég ekki
að halda peningunum í umferð?“
Og lét sér hvergi bregða.
En, svo að hann sé látinn
njóta sannmælis, þá gaf hann
geysimiklar upphæðir í atvinnu-
leysissjóði og hverskonar góð-
gjörðastarfsemi. En það stoðaði
hann ekkert. Mönnum fannst
hann hefði átt að gefa meira.
í þá góðu gömlu daga voru
milljónarar virtir — eða að
minnsta kosti dóðust menn að
þeim — en sá tími var nú liðinn.
Menn fundu það einhvernveginn
á sér, að Laghet hefði grætt á
eymd landsins — og hann var
hataður.
Já, guð minn góður, hvað hann
var hataður! Nafnið hans var
aldrei nefnt nema háðsbros
fylgdi. Það var sagt, að honum
hefði nokkrum sinnum verið
> sýnt banatilræði, og að hann vog
aði sér aldrei út nema með vopn
aðan lífvörð.
Að öllu þessu athuguðu, má
nærri geta, að ég sperrti eyrun
þegar ég heyrði snögga rödd í
símanum, sem sagði: — Þetta er
Horace Laghet. Já, það var ekki
um að villast. Þetta var engin
skrifstofublók eða einkaritari,
heldur inn mikli maður í eigin
háu persónu. Fyrst hélt ég, að
þetta væri gabb.
— Er frú Storey við? spurði
hann.
— Ég skal gá, svaraði ég var-
lega.
— Ekkert bull eða vitleysu,
srjði hann. Ég er Horace Laghet.
Gefið mér samband við hana
tafarlaust.
— Ef óg bara væri viss um,
að þetta væri hr. Laghet....
byrjaði ég.
— Ég vil fá samband! öskraði
hann. Ef hún er ekki ánægð,
getur hún slitið því aftur.
Mér fannst ráðlegast að gefa
honum samband við skrifborð
húsmóður minnar. Hún var
kuldaleg og stuttorð. Hann
spurði, hvort hann gæti fengið
að tala við hana. — Ég skal gefa
yður hálftíma um hádegið, sagði
hún. Svo afþakkaði hún kurteis-
lega boð hans til nádegisverðar,
og hann sagði: — Gott og vel.
Ég skal koma .klukkan tólf.
Þegar hún hafði lokið samtal-
inu, fór ég inn til hennar. Hún
var að kveikja sér í vindlingi og
brosti, eins og henni væri
skemmt. — Jæja, Bella, hver
veit nema atvinnan sé eitthvað
að lifna við, sagði hún.
— Já, hugsa sér, að Horace
Laghet sé að koma í eigin per-
sónu! sagði ég og var öll í æs-
ingi.
— O, jæja, við förum nú ekki
að dreifa neinum rósum á braut
hans, sagði hún.
Þegar hann kom inn í skrif-
stofuna mína, varð mér hverft
við. Ég hafði lesið einhversstað-
ar, að hann væri hálffertugur að
aldri, en það var næstum ótrú-
legt, að maður, sem var orðinn
svona viðfrægur, gæti verið svo
ungur. Svo var þetta kraftaleg-
ur maður á bezta aldri og mikið
sólbrenndur, þó að þetta væri í
febrúarmánuði. Andlitið var
dökkt og ástríðufullt, en nú var
á því kurteislegt bros. Hann bar
með sér þetta öryggi, sem auð-
legðin veitir mönnum, en ég sá
fljótt, að hann gat verið upp-
stökkur og þotið upp af litlu t.i-
efni.
Ég opnaði dyrnar að skrifstofu
frú Storey og gekk inn á eftir
honum. Hann snarstanzaði þegar
hann sá hana. — Mér datt ekki.
í hug, að þér lituð svona út, sagði
hann og augun Ijómuðu af aðdá-
un. Hann hefði getað gert konur
órólegar.
Frú Storey var öllu slíku vön.
— Það má nú skilja það á tvo
vegu, sagði hún lágt.
— Þér vitið, hvað ég á við,
sagði hann. — Vitaniega hef ég
oft séð mynd af yður og dáðzt
að henni. En það er nú bara
þetta, að myndir af frægum kon-
um eru oft svo fegraðar, að það
er ekkert að marka þær.
Hún brosti háðslega,-— Fáið
yður sæti og sígarettu, sagði hún.
Hann gaf mér auga. — Ég
hefði nú helzt viljað tala vió
yður undir fjögur augu.
— Ungfrú Brickley er við-
stödd öll mín viðtöl, sagði frú
Storey. — Það er föst regla, sem
ég hef sett.
Hann stóð upp og andlitið varð
dökkrautt. — Ég er nú ekki
neinn venjulegur viðskiptamað-
ur, sagði hann reiðilega. — Og
þetta er áríðandi mál.
Þarna fór hann nú alveg öfugt
að húsmóður minni. — Þetta er
föst regla, sagði hún blíðlega, en
þar lá meira að baki.
Ég hélt, að hann ætlaði að
strika beint út og þótti fyrir því.
Ríkasti maður iandsins að fara
út! En hann' sá sig um hönd,
Hann settist niður aftur og eftir
stutta sund hafði haitn jafnað sig.
Ég gekk að borðinu mínu í horn-
inu.
— Þkr vitið sjálfsagt, hver ég
er, sagði hann.
— Já, ég les blöðin, sagði frú
Storey, brosandi.
Það komu reiðikippir í and-
litið á honum. —. —- Já, fjand-
inn hirði þau.. tautaði hann..
— þau gera mig að dáfallegum
þorpara. . Hafið þér tekið eftir
því, að ég hef látið byggja
skemmtiskip, og er að leggja af
stað með hóp af gestum á morg-
un?
— Ég las einhversstaðar, að
þér leggðuð ekki svo fljótt af
stað.
— Ég veit. En nýkjörni for-
setinn sendi eftir mér í gær, og
samkvæmt því, sem ég frétti hjá
honum, skilst mér, að nú séu
erfiðir tímar fram undan. Verri
en nokkru sinni áður. Nú, ég
hef í hyggju að verða þar hvergi
nærri. Mér er hvort sem er,
kennt um allt, sem aflaga fer.
Ég ætla í sex mánaða siglingu
til Vestur-Indía og Suður-Amer-
íku.
Það verður gaman fyrir yður,
sagði frú Storey. — En hvað get
ég gert fyrir yður?
— Fyrir iiálfum mánuði var
hringt til mín í skrifstofunni og
það var kvenrödd, sem talaði.
Falleg rödd, hæg og með menn-
ingarbrag. Hún varaði mig við
því að fara í þessa ferð. Þegar
ég fór fram á frekari skýringu,
lagði hún símann. Nú, en ég fæ
nú svo margar gabb-hringingar,
að ég hugsaði ekkert um þetta
frekar.
— En svo í dag hringdi hún
aftur. Og nú var alvara í rödd-
inni. Slíkt verður ekki misskilið.
Hún var grátandi, og virtist
varla geta talað fyrir ótta og
skelfingu. Hún sagði ekki annað
en það, að ef ég færi þessa ferð,
mundi ég ekki koma aftur lif-
andi. Það væri setið um mig. Ég
reyndi að hafa meira upp úr
henni, en þá sleit hún samband-
inu.
— Hvernig náði hún sambandi
við yður í þessi tvö skipti?
— Eg hef leynisíma á borðinu
hjá mér, sem er beint á miðstöð.
Og hefur hún vitað leyninúmer
ið?
— Já, það vita það svo margir.
Það getur enga bendingu gefið.
— Það er ómögulegt að rekja
símtöl nú orðið, síðan sjálfvirku
símamir komu, sagði frú Storey.
— Ég ætlast ekki til, að þér
farið að rekja þessa hringingu,
sagði hann. — Ég vil, að þér
komið með mér í þessa ferð....
Og einkaritarinn yðar líka, ef
þér viljið hafa hana með yður.
Það verður látið eins og þið sé-
uð gestir mínir, en raunverulega
verðið þér að vinna fyrir mig.
Ég varð svo hissa, að ég gapti.
Gapti við manninum, eins og
sirkusfífl.
En frú Storey lét sér hvergi
bregða. — Ef þér haldið, að eitt-
hvað sé að marka þessa aðvörun,
ættuð þér að sleppa öllu ferða-
lagi, sagði hún.
— Ekki að nefna! sagði hann
Eg mundi eftir iillu nema höfuðverkjapillunum.
og beit á jaxlinn. — Skipið hefur
kostað mig þrjár milljónir, og ég
ætla mér að nota það.
— Þér hafið enga þörf á mann
eskju eins og mér, sagði hún.
—• Það sem þér þurfið, eru
nokkrir stórir og sterkir lífverð-
ir, sem vaka stöðugt yfir yður.
— Þá ætla ég að hafa, ef þörf
gerist. En ég vil, að þér komið
upp um samsærið, ef um sam-
særi er að ræða. Það gerir eng-
inn betur en þér. Og, sem meira
er, þá verður ánægjulegt að hafa
yður meðal gesta minna. Ég gæti
ekki farið að hrella gestina mína
með venjulegum spæjara.
— Þakka yður fyrir, svaraði
húsmóðir mín þurrlega. — En
hreinskilnislega sagt, freistar
þetta mín ekki.
— Hversvegna ekki?
— Hafið þér nokkurntíma far-
ið langa skemmtiferð á skipi
— Nei.
— En það hef ég. Þegar gest-
um er troðið svona saman, líður
ekki á löngu áður en þeir fara
að fara í taugarnar hver á öðr-
um.'Hún leit á hann og augna-
ráðið gaf til kynna, að sjálfur
væri hann óþarflega valdsmann-
legur til þess að geta orðið
skemmtilegur ferðafélagi.
Hann hló við þessu. — Ég
vona, að yður komi ekki til að
þykja húsakynnin á „Sjóræn-
ingjanum" of þröng.
— „Sjóræningjanum“? sagði
frú Storey. — Það er víst við-
eigandi nafn.
Hann var rétt orðinn reiður
við þessi orð, en ákvað að hlæja
heldur að þeim. — Þetta er lítill
hópur, sagði hann. Konurnar
eru: unnusta mín, ungfrú Celia
Dare og móðir hennar og frú
Holder.
— Hver er frú Holder?
— Bara vinkona mín, svaraði
hann kæruleysislega.
— Ekikja?
— Nei. Hún á vist ágætis eig-
inmann einhversstaðar. En hann
er önnum kafinn og kemst ekki
frá því.... Karlmennirnir eru:
Adrian, bróðir minn, Emil Her-
bert hinn ungi — hann er fræg-
ur slaghörpuleikari, og svo er
ritarinn minn, Martin Coade.
Hann er í Hollandi eins og er,
en kemur um borð í Curacao.
— Svona skip hlýtur að hafa
fjölmenna skipshöfn?
— Já. Allt að hundrað mamns.
— Þá ætti að vera hægt að
koma fyrir einum morðingja í
öllum þeim hópi, sagði hún í
hálfum hljóðum.
KALLI KUREKI
~K — —
Teiknari: Fred Harman
— Láttu mig hafa peningana,
Jimrnie, eða sýndu mer uyssuna. Og
þú veizt, að þú ert ekki nógu fljótur.
— Það verður að hafa það. Hérna
eru þeir.
— Og eitt enn, bara til að tryggja
þaö, að þú svíkir mig ekki aftur ,
ÍHtltvarpiö
Miðvikudagur 29. maí
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
15.00 Síðdegisútvarp.
18.30 Lög úr söngleikjum. — 18.50
• Tilkynningar. — 19.20 Vfr.
19.30 -Fréttir.
20.00 Varnaðarorð: Bjarki Elias-
son varðstjóri talar um um-
ferðarmál.
20.05 íslenzk tónlist: Log eftir Jón
Laxdal.
20.20 Lestur fornrita: Ólafs saga
helga; XXVII. — sögulok
(Óskar Halldórsson cand.
mag.
20.45 Píanótónleikar: . Sinfónisk
svíta op. 8 eftir Carl Nielsen
(Herman D. Koppel leikur).
21.00 Saga Kaldársels; síðara er-
indi (Ólafur Þorvaldsson,
þingvörður).
21.25 Létt músík í miðri viku.
21.45 íslenzkt mál (Ásgeir Blön-
dal Magnússon cand.mag.)
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Svarta skýið“
eftir Fred Hoyle; XXIV (Örn
ólfur Thorlacius).
22.30 Næturtónleikar: Síðari hluti
tónleika Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands i Háskólabíói 24.
þ. m. Stjórnandi: William
Strickland.
23.15 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 30. maí
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Á frívaktinni", sjómanna-
þáttur (Sigríður Hagalín).
15.00 Síðdegisútvarp.
18.30 Danshljómsveitir leika. —
18.50 Tilkynningar. — 19.20
Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 „Myndir á sýningu", hljóm-
sveitarverk eftir Mússorgskij.
20.30 Fólksfjölgun og fæðuöflun;
fyrra erindi (Gunnar Gríms-
son kennari).
20.55 Tónleikar í útvarpssal: Dúó
fyrir fiðlu og selló eftir Ko-
dály.
21.20 Raddir skálda: Ljóð eftir
Þorgeír Sveinbjarnarson og
saga eftir Sigurð Helgason.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Svarta skýið**
eftir Fred Hoyle; XXIV.
(Örnólfur Thorlacius).
22.30 „Vor í Balkanlöndum“;
Griskir og júgóslavneskir
listamenn syngja og leika
þjóðlög og dansa.
23.00 Dagskrárlok.
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur,
Lægstu 1000 krónur.
Dreqið 5. hver* mánaðar.