Morgunblaðið - 06.06.1963, Blaðsíða 15
f Fimmtudagur 6. júnf 1963
tu O R C II JV B r 4 f> 1 Ð
15
Útboð
Tilboð óskast í að byggja fyrsta áfanga heimavistar-
húss íþróttakennaraskóla íslands að Laugarvatni.
Gera skal kjallara hússins fokheldan. Framkvæmd
ir hefjist 1. júlí n.k. og ljúki 24. sept. í haust.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofunni, Tómasar
haga 31, frá og með laugardeginum 9. júní 1963 gegn
500.— kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á
sama stað 24. júní 1963 kl. 11 f.h.
íþróttakennaraskóli íslands.
VERZLUNARSTARF
Viljum ráða strax
vana stúlku
til starfa í bókabúð. — Nánari upplýsingar
gefur Starfsmannahald SÍS, Sambands-
húsinu.
STARFSMAN NAHALD
Hátíð ■ góðu
veðri á
Raufarhöfn
Blíðskaparveður á Raufarhöfn
Raufarhöfn, 4. júní. — Sjó-
mannadagurinn var hátíðlegur
haldinn í blíðskaparveðri hér.
Voru íþróttir um daginn og dans
að um kvöldið. Var veður ein-
dæma gott, um 20 stiga-hitL
Hátiðahöld sjómanna
á Skagaströnd
Skagaströnd, 4. júní. — Hátíða
höld sjómannadagsins á Skaga-
strönd fóru fram með svipuðum
hætti og undanfarin ár. Sjó-
mannamessa var í kirkjunni.
Sóknarpresturinn, sr. Pétur Ingj.
aldsson, predikaði. Aðalræðuna
á útiskemmtun flutti Þorsteinn
Matthíasson, skólastjórL
Keppt var i hlaupum, t.d.
tunnuhlaupi, naglaboðhlaupi og
pokahlaupi, og önnuðust það sjó-
menn og sjómannskonur. Einnig
kepptu í róðri sveitir frá mb.
Húna, mb. Helgu Björg, mb.
Mána og frá Síldarverksmiðjum
ríkisins. Sveit síldarverksmiðj-
anna vann, fyrirliði var Karl
Berndsen. Einnig kepptu ungl-
ingar í róðri og vann sveit Reynis
Sigurðssonar. . .
í samkomuhúsinu var sýndur
sjónleikurinn „Sprek" eftir Loft
Guðmundsson, og dansað var
fram eftir nóttu.
Fegursta veður var hér allan
daginn og hiti um 20 stig. —Þ.
Þorbjörn Jóhann-
esson form. Fél.
kjötverzlana
AÐALFUNDUR Félags kjötverzl
ana í Reykjavík var haldinn í
húsi Slysavarnafélags íslands
v/Grandagarð, 22. maí s.l.
Formaður félagsins, Viggó M.
Sigurðsson flutti skýrslu stjórn-
arinnar frá liðnu starfsári, og
sagði frá kjöri fyrsta heiðursfé-
laga félagsins, J. C. Klein, og var
hann hylltur með ferföldu húrra-
hrópi.
í stjórn félagsins voru kosnir:
Þorbjörn Jóhannesson, formaður,
og meðstjórnendur: Þorvaldur
Guðmundsson og J. C. Klein.
Fyrir í stjórninni voru: Jón
Eyjólfsson og Jónas Gunnarsson.
Varamenn voru kjörnir Jón B.
Þórðarson og Jóhann Gunnlaugs-
son.
Fulltrúi í stjórn Kaupmanna-
samtaka íslands var endurkjör-
inn Þorvaldur Guðmundsson, en
varamaður hans, Þorbjörn Jó-
hannesson.
Þorvaldur Guðmundsson lýsti
fyrirhugaðri kjötmiðstöð, sem
byggja skal á Kirkjusandi, en
þar er um að ræða eitt mesta
hagsmunamál kjötkaupmanna í
Reykjavík.
Slys við Þórscafé
UM ÞRJÚLEYTIÐ aðfaranótt
þriðjudags varð slys með nokk
uð óvenjulegum hætti við sam-
komuhúsið Þórscafé. Ung stúlka,
drukkin mjög, hafði þvælzt út á
götuna, og féll þar niður við hlið
bíls, sem ekið var framhjá. Héldu
menn í fyrstu að um alvarlegt
slys væri að ræða, þar sem stúlk
an lá sem dauð væri, en brátt
kom á daginn að hún var lítið
sem ekkert meidd, og með öllu
óvíst að bíllinn hafi svo mikið
sem komið við hana.
Próf í bifvélavirkjun
verður haldið laugardaginn 22. júní n.k. Umsóknir
um próftöku ásamt námssamningi, vottorði frá
meistara, iðnskólaskírteini og prófgjaldi kr. 600,00,
sendist formanni prófnefndar Sigþóri Guðjónssyni
c/o Ræsi h.f. fyrir 12. júní n.k.
Saumastúlka óskast
strax.
Fafagerð Ara
Brautarholti 4. — Sími 17599.
Skrifstofustúlka óskast
vélritunar- og enskukunnátta nauðsynleg.
Miðstræti 7. — Símar 14637 og 16510.
Bifreiðastjórar
Bifreiðastjóri, sem hefur meirapróf óskast til að
aka stöðvarbíl. Aðeins harðduglegur og heiðarleg-
ur maður kemur til greina. Tilboð, sem greini ald-
ur og fyrri störf sendist Mbl. fyrir 7. þ.m., merkt:
„SamvizkusámuT — 5608“.
Breiðfirðingaheimilið
Arður af hlutabréfum félagsins fyrir 1962 verður
greiddur á skrifstofunni í Beirðfirðingabúð dag-
ana 7.—25. þ.m. kl. 1—2 daglega nema laugardaga.
Stjórnin.
Lögregluþjónsstaða
Staða lögregluþjóns, er jafnframt gegni tollvarðar-
starfi er laus til umsóknar í Ólafsfirði. Laun sam-
kvæmt launalögum. Umsóknir sendist bæjarfógetan-
um í Ólafsfirði, sem gefur allar nánari upplýsingar.
Bæjarfógetinn í Olafsfirði.
Síldarstulkur
Nokkrar duglegar síldarstúlkur óskast til Siglu-
fjarðar um n.k. mánaðarmót. Nýlegt, gott húsnæði
fyrir aðkomustúlkur. Fríar ferðir. Kauptrygging.
Ennfremur óskast nokkrir verkamenn. Húsnæði á
vinnustað. Nánari uppl. veita Kristinn Halldórsson,
sími 5, Siglufirði og Ráðningarstofa Reykjavíkur,
sími 18-800.
Halldórsstöð
Síldarsöltun Siglufirði.
I
Vestur-þýzkur
! gólfdúkur
B þykkt.
Vestur-þýzkar
gólfflísar
2 tegundir.
H. BEMEÐIKT8S0IH H.F.