Morgunblaðið - 09.06.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.06.1963, Blaðsíða 6
22 MORGVNBLAÐ1Ð Sunnudagur 9. júní 1963 yið uppsög* Kennaraskólans, dr. Broddi Jóhannesson í ræöustóli. (Ljósm. L M.) 84 brautskráöust úr Kennaraskólanum Rætt við tvo nýútskrifa ða kennara EINS og skýrt hefur verið frá í fréttum var Kennaraskóla Is- lands slitið í síðustu viku, og var það í fyrsta sinn sem skóla- slit fóru fram í hinum nýju húsa- kynnum skólans við Stakkahlíð. Í því tilefni áttum við stutt sam- tal við skólastjóra Kennaraskól- ans, dr. Brodda Jóhannesson, um skólastarfið á síðasta ári og fyr- irhugaðar breytingar á skólan- um í náinni framtíð. Dr. Brodda Jóhannessyni fór- ust orð á þessa leið: — Síðastliðinn vetur voru skráðir nemendur skólans 222 talsins, og stunduðu þeir nám í fjórum almennum bekkjum kennaradeildarinnar, stúdenta- deild og handavinnudeild. Til prófs komu 214, 192 stóðust próf- ið og 84 kennarar brautskráð- ust úr skólanum. Engar veigamiklar breytingar urðu á starfsháttum skólans, þótt hann flytti í um það bil sjö- falt stærra húsnæði s.l. haust. Til þess liggja margar orsakir. í fyrsta lagi var ekki tilbúin nema ein kennslustofa, þegar skólaár- ið hófst, og það var ekki fyrr en um 20. október sem allur skólinn hafði verið fluttur til bóklegs náms í nýju húsakynn- in. Handavinnunámið fer fram í gamla skólahúsinu. Eins og sjá má er byggingunni hvergi nærri lokið, og heita má, að allar frambúðarinnréttingu vanti í þann hluta, sem kominn er undir þak. í sumar verður unnið að því að ljúka við inn- réttinguna og kaupa húsgögn í kennslustofurnar. Ennfremur er fyrirhugað að vinna eitthvað við lóðina umhverfis skólahúsið. En þrátt fyrir þetta má segja að skólastarfið í ár hafi gengið prýðilega. Skólafélag hefur ver- ið starfandi eins og undanfarin ár og beitt sér fyrir skemmtun- um af ýmsu tagi, málfundum, listkynningu og gefið út skóla- blað; Félagið fær væntanlega góða aðstöðu næsta vetur fyrir starfsemi sína og getur haldið skemmtanir sínar á stórum og rúmgóðum skála á neðstu hæð hússins. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir samkomusal í út- byggingu frá skólanum, en það verður einhver bið á því hann verði reistur. — Hverjar verða helztu beyt- ingar á starfsháttum Kennara- skólans samkvæmt lögunum 26. apríl s.l.? — Fyrst má nefna þrjár nýjar deildir, sem taka til starfa, áð- ur en langt um líður, þ.e. mennta deild, framhaldsdeild og undir- búningsdeild sérnáms. í Kenn- araskóla íslands starfa þá sex deildir: 1) Almenn kennaradeild, fjög- urra ára nám, sem endar með almennu kennaraprófi og veitir kennararéttindi í barna- og unglingaskólum landsins sam- kvæmt nánari ákvörðun í reglu- gerð. 2) Kennaradeild stúdenta, þar sem námi lýkur með almennu kennaraprófi. 3) Menntadeild. Lokapróf úr þeirri deild er stúdentspróf, og veitir það réttindi til inngöngu í háskóla með þeim takmörkun- um sem sett eru í lögum hans og reglugerð. 4) Framhaldsdeild, vísir að nokkurs- konar kennaraháskóla, er veitir nemendum kost á fram- haldsmenntun með nokkru kjör- frelsi. 5) Undirbúningsdeild sérnáms tveggja ára nám, sem býr nem- endur uridir kennaranám í sér- greinum. 6) Handavinnudeild, sem veitir sérmenntun í handavinnu karla og kvenna. Námstími í handavinnudeild er tvö ár. Þá má geta þess, að marg- þætt starf er framundan m.a. í sambandi við æfingakennslu, og er ætlunin að auka æfinga- kennslu við Kennaraskólann til muna. í ráði er að reisa allfjöl- mennan æfinga- og tilraunaskóla, sem er um ieið skóli skyldu- náms fyrir ákveðið hverfi Reykja víkurbæjar. Kennaraefnin skulu fá kennsluæfingar þar í öllum þeim aldursflokkum, sem Kenn- araskólinn veitir rétt til að kenna. — Að síðustu lanjpr mig til að minnast aðeins á inntökuskilyrð- in, sagði dr. Broddi Jóhannes- son, sem eru ný á nálinni, og margir eru að spyrja um dag hvern. En þau eru í stuttu máli þessi: Rétt til inngöngu í I. bekk hinnar almennu kennaradeildar veitir: Landspróf miðskóla með þeirri lágmarkseinkunn, sem ákveðin er í reglugerð um miðskólapróf í bóknámsdeild. Fullgilt gagnfræðapróf með lágmarkseinkunn í nokkrum að- algreinum, sem reglugerð ákveð- ur, enda gangi gagnfræðingar undir viðbótarpróf í einstökum greinum, ef þörf krefur, svo að tryggt sé, að þeir hafi lokið námi, sem samsvarar námi til landsprófs miðskóla. Rétt til inngöngu í kennara- deild . stúdenta veitir almennt stúdentspróf. Rétt til inngöngu ' í mennta- deild eiga þeir, sem lokið hafa almennu kennaraprófi með fyrstu einkunn 1967 eða síðar. Heimila má þeim, sem lokið hafa slíku prófi fyrir þann tíma, inn- göngu í deildina, en vilji þeir þreyta stúdentspróf skulu þeir ljúka viðbótarprófi, sem nónar verður kveðið á um í reglugerð. Rétt til inngöngu í undirbún- ingsdeild sérnáms veitir lands- próf miðskóla, gagnfræðapróf eða önnur hliðstæð próf með þeirri einkunn, sem stjórn skól- ans metur gilda, enda sé nám og prófkröfur fullnægjandi að dómi skólans. Við inntöku skal hafa hliðsjón af sérhæfileikum til þess starfs, sem umsækjandi ætlar að búa sig undir. Rétt til inngöngu í handavinnu deild eiga þeir, sem lokið hafa námi í undirbúningsdeild sér- náms í Kennaraskólanum, stúd- entsprófi eða almennu kennara- prófi. Heimilt er skólanum að úr- skurða um inntöku nemenda í allar deildir með hliðsjón af hæfniprófi og öðrum matsað- ferðum, en fullnægja skulu þeir þó inntökuskilyrðum þessarar greinar. Ákveða má í reglugerff lágmarkseinkunn í íslenzku og fleiri greinum, en ekki hefur ver- iff gengið endanlega frá, hver sú lágmarkseinkunn verður né til hve margra greina hún tek- ur. ★ Meðal þeirra, sem útskrifuð- ust úr Kennaraskólanum í vor, voru Sigrún Pálsdóttir, úr al- mennu kennaradeildinni, og Guð- rún Einarsdóttir úr stúdentsdeild inni. Sigrún hefur stundað nám I Kennaraskólanum í þrjá vetur fyrsta veturinn tók hún 1. og 2. bekk saman en síðan varð hún reglulegur nemandi skól- ans. Sigrún var einn elzti nem- TRYGGJUM TRAUSTA STJORN X-D

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.