Morgunblaðið - 09.06.1963, Blaðsíða 11
Sunnuðagur 9. júní 1963
MORCVISBLAÐIÐ
27
Athugasemd
5. jtTNl s.l. átti ég undirrit-
aður fyrir hönd frjálsíþrótta-
deildar Í.R. viðræður við þá
Gunnar Sigurðsson og Óskar
Guðmundsson, formann frjáls-
íþróttadeildar K.R. um vænt-
anlegt fyrirkomulag E.O.P.
mótsins.
Þar sem Í.R.-ingar gátu
ekki fellt sig við auglýst fyrir-
komulag, að allt landið sam-
einað keppti á móti K.R., lag9i
ég fram þá tillögu að stiga-
keppni færi fram milli Í.R. og
K.R. á E.O.P. mótinu, þó ekki
í öllum auglýstum greinum
heldur í þeim greinum er fé-
lögin kæmu sér saman um, og
par á meðal kvennagreinum.
En þar sem svo naumur tími
var til móts, varð 'samkomu-
lag um tillögu öunnars Sig-
urðssonar að E.O.P. mótið
færi fram á venjulegan hátt
en félögin Í.R. og K.R. ynnu
1 sameiningu að stigakeppni
sín í milli síðar í sumar.
Komu mér þvi skrif frjáls-
Iþróttadeildar K.R. í Morgun-
blaðinu 7. júní og öðrum dag-
blöðum bæjarins 8. júní und-
arlega fyrir sjónir, og er þar
hallað réttu máli, og harma
ég það vegna íþróttanná, og
þeirrar samvinnu, sem þarf að
vera milli allra íþróttafélaga.
Með þökk fyrir birtinguna.
Sigurður Steinsson.
Eeiguflugvélin Nordhavet frá danska flugfélaginu Nordair, sem
kom til Reykjavíkur í fyrradag á vegum Flugfélags íslands. Flutti
hún utan 74 unglinga, sem eru að fara til námsdvalar um nokk-
urra vikna skeið í Englandi á vegum Scanbrit.
Flugfélagið ráðgerir 3
leiguferðir í vikunni
Enginn sáttafnndur í ílugmannadeilunni
£tðbóih
JlloiíKiUaisíitf
fylgir blaðinu í dag og er efni henn-
ar sem hér segir:
Bls.:
2 Svipmynd: Robert Mc-
Namara.
3 NONNI, eftir Magna Guð-
mundsson.
— Skelfileg nótt, smásaga eftir
NONNA.
4 „Þeim þótti ég linur við
bjórinn‘% viðtal við Eirík
Kristófersson.
5 Bókmenntir: Dróttkvæðin og
nútímamyndlist, eftir
Sigurð A. Magnússon.
— Rabb, eftir SAM
6 Hagalagðar.
7 Lesbók Æskunnar: Æskan
er bjartsýn.
8 Kommúnisminn og fimm and-
lit hans, eftir John W. Ðrake
ford.
9 í Annríki við höfnina
10 Fjaðrafok.
11 — —
13 Sjálflýsandi hjólbarðar í öll-
um regnbogans litum.
— „I*ér eruð salt jarðar**, eftir
Erling Moe, cand, theoL
15 Krossgáta.
16 Viðreisn.
Fundu mikið gull
Moskvu, 8. júní. — NTB-AFP —
MOSKVU-útvarpið skýrði frá
því í morgun, að sovézkir jarð-
fræðingar hafi fyrir skömmu
fundið miklar gullæðar í Kyzul-
Kum-eyðimörkinni, sem nær yf-
ir stóran hluta af Kazakhstan,
Uzbekistan og Turkmenistan.
TORFI Hjartarson, sáttasemjari
ríkisins, tjáði Mbl. í gær að eng-
inn sáttafundur hefði verið boð-
aður í flugmannadeilunni. — Þá
upplýsti Flugfélag íslands í gær
að félagið ráðgerði þrjár leigu-
Brezk
iistsýning
í Reykjavík
Á ÞRIÐJUDAGINN verður opn-
uð sýning í Bogasalnum á brezkri
nútímamálaralist. Dr. Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráðherra,
opnar sýninguna, en hún er hing
að komin frá London á vegum
félagsins Anglia. Eru þar mál-
verk eftir marga kunna brezka
listmálara og eru aðallega verk
é sýningunni eftir yngri málara.
Sýningin verður opnuð kl. 5 á
þriðjudaginn og verður opin til
sunnudagskvölds.
Félagið Anglia hefir fengið sýn
ingu þessa hingað fyrir milli-
göngu British Council, en hún
hefir farið víða um lönd. Alls
verða sýnd 27 olíumálverk, eftir
m.a. Graham Sutherland og Ben
Nicholson en þeir eru taldir
fremstu listmálarar Breta í dag.
Þá eru á sýningunni verk eftir
Alan Davie, Terry Frost, Roger
Hilton, William Scott, Keith
.Vaughan o. fl.
Gefst hér gott tækifæri til þess
að sjá mynd af brezkri málara-
list í dag.
ferðir til útlanda í næstu viku,
á miðvikudag, fimmtudag og
föstudag. Fær félagið vélar hjá
Nordair.
í gær var Skýfaxi væntanleg-
ur heim frá Kaupmannahöfn og
Glasgow fullur af farþegum. Er
hingað kemur mun vélin stöðv-
ast. —
Flugturninn í Reykjavík
kvaðst engar upplýsingar hafa
fengið um ferðir Loftleiðavéla,
enda flygju þær langt sunnan
flugstjórnarsvæðis íslands. Loft-
leiðamenn voru uppteknir á
fundi í gær og tókst ekki að ná
sambandi við þá.
Framsóknarmönn -
um vísað á dyr
Framsóknarflokkurinn hefur
undanfarið haft kosningaskrif-
stofu í kjallara hússins nr. 27
við Kaplaskjólsveg, stóru íbúða
blokkhúsi við veginn vestur á
Nes. Hafa þeir haft þar alls kon-
ar áróðursspjöld í gluggum, sem
Vesturbæingum hefur þótt lítil
prýði að.
í fyrradag gerðist það, að íbúar
hússins komu saman á fund og
ákváðu þá, að Framsóknarmenn-
irnir skyldu reknir á dyr með
starfsemi sína. Munu þeir vænt-
anlega vera farnir með allt sitt
hafurtask, þegar þetta blað kem
ur út, þótt enn væru spjöld
þeirra uppi í gærkvöldi.
Fólk hafði á orði í gær, að
þetta litla dæmi væri táknrænt
um það, hvernig Reykvíkingar
svara hinum blygðunarlausa á-
róðri, sem Framsókn hefur haft
í frammi fyrir bessar kosningar.
Skróningin n vb. Sigurpál
Athugasemd frá setudómaranum
FYRIR nokkru fór Verkalýðs- og
sj ómannaf élag Miðnesshrepps
fram á það við saksóknara, að
athugað yrði, hvort bæjarfógeta-
embættið í Hafnarfirði hefði
breytt lögskráningarskjali, þegar
skráð var á vb. Sigurpál í apríl
sl. Hélt lögfræðingur félagsins
því fram, að sjómenn hefðu skrif
að undir, að þeir væru ráðnir
„samkvæmt samningi", og hefðu
þeir átt við svokallaðan Sand-
gerðissamning. Síðar hefði verið
bætt við hin tilvitnuðu orð: „í
nóv. 1962“.
Nú hefur einn starfsmaður
embættisins játað að hafa bætt
orðunum „í nóv. 1962“ við, eftir
að sjómenn höfðu undirritað
skjalið.
Jón A. Ólafsson, fulltrúi yfir-
sakadómara, hefur verið skipað-
ur setudómari í máli þessu. Er
málið langt komið og verður síð-
an sent saksóknara ríkisins til
ákvörðunar.
Jón A. Ólafsson hringdi til
Morgunblaðsins vegna frétt-
ar, sem birtist þá í „Þjóð-
viljanum" um mál þetta. Bað Jón
um, að fram kæmi í Morgunblað-
inu, að starfsmaður sá við bæjar-
fógetaembættið, sem í hlut á, hafi
ekki breytt framburði sínum og
játað breytinguna, eftir að tækni
deild rannsóknarlögneglunnar
hafði athugað skjalið, heldur
hafi hann sjálfur óskað eftir því
að mæta aftur fyrir rétti, og
skýrði hann þá ótilkvaddur frá
breytingunni.
— Les/ð
Framlh. af hflis. 28.
„Innflutningur óþarfa vamings
verði bannaður“.
„Ríkisstjórnin taki að sér inn-
kaup einstakra vörutegunda, eftir
því sem ríkisstjórnin telur nauð-
synlegt“.
„Strangt eftirlit sé haft með
gjaldeyrisverzluninni, m. a. til
þess að fyrirbyggja fjárflótta úr
landi“.
„Ríkisstjórnin mun gera eftir
því sem þurfa þykir, ráðstaf-
anir til þess að opinberar stofn-
anir og aðrir þeir, sem fram-
kvæmdir liafa með höndum lög-
um samkvæmt, hagi störfum sín-
um í samræmi við stefnu stjóm-
arinnar í landsmálum“.
★
Þessar ómenguðu kommúnis-
tisku skoðanir eru miðlunartil-
lögur Eysteins Jónssonar og
Framsóknarmanna hér á árunum.
Þessar skoðanir þeirra fengu aft-
ur byr undir vængi í „vinstri"
stjórninni. Hver man t. d. ekki
eftir „gulu bókinni", sem ætlað
var að svifta borgarana rétti
yfir eigin húsnæði?
Frarhkvæmd þessara tillagna
Eysteins og Framsóknarforingj -
aima bíður aðeins tækifærisins.
Meirihluta á Alþingi ásamt Al-
þýðubandal aginu!
★
Linurnar eru því skýrar. Nú
er tveggja kosta völ fyrir kjós-
endur landsins. Veita Viðreisn-
inni traust með öflugum stuðn-
ingi við Sjálfstæðisflokkinn eða
veita Framsóknarflokknum og
kommúnistum þingmeirihluta.
Kjósa stjórn urvdir forystu Ey-
steins Jónssonar og Lúðvíks Jós-
efssonar til framkvæmdar „mið-
unartillagnanna" og endurtekn-
ingar „vinstri" stjórnar ævintýr-
isins.
Megi góðar vættir forða ís-
lenzku þjóðinni frá slíkri þróun
mála.
Eysteinn Jónsson, formaður
Framsóknarflokksins, for-
sætisráðherraefni „vinstri“
stjórnarinnar, sem verður
mynduð, ef Framsóknar-
flokkurinn og Alþýðubanda-
lagið hljóta þingmeirihluta.
Það munar aðeins 3 þing-
sætum. Þá mundi honum gef
ast tækifæri til þess að fram
kvæma þann sósíalisma, sem
hann hefur boðað.
Washington, 8. júní
LINCOLN White, sem um
margra ára skeið hefur verið
fastur blaðafulltrúi banda-
ríska utanríkisráðuneytisins,
hefur nú verið skipaður aðal-
ræðismaður í Melbourne.
London, 8. júní. NTB-Reuter
JO GRIMMOND, foringi
flokks frjálslyndra í Bret-
landi, skoraði í dag á Mac-
millan, forsætisráðherra, að
segja af sér, vegna Profume-
Keeler málsins.
— Fjöldarannsóknir
Framh. af bls. 18.
Margar góðar gjafir hafa bor-
izt til félagsins, og á sl. ári barst
félaginu arfur eftir Aðalbjörgu
Friðriksdóttur Akureyri, alls um
184 þús. kr. Einnig hafa margir
einstaklingar og fyrirtæki keypt
heiðurshlutabréf hjá Krabba-
meinsfélagi íslands og sýnt sér-
stakan skilning og góðvild í garð
félagsins með þessu peninga-
framlagi.
Hjörtur Hjartarson framkv.stj.
gjaldkeri félagsins las upp endur
skoðaða reikninga. Varð tekju-
afgangur kr. 905.521,20. Rekstrar-
halli við leitarstöð kr. 102 þús.
Stjórn félagsins skipa nú: Próf.
Niels Dungal, formaður; Bjarni
Bjarnason læknir, ritari; Hjört-
ur Hjartarson framkv.stj., gjald-
keri. Meðstjórnendur: Dr. Frið-
rik Einarsson yfirlæknir, Bjarni
Snæbjörnsson læknir Hafarf.,
frú Sigríður J. Magnússon, Gísli
Jónasson fv. skólastj., Erlendur
Einarsson framkv.stj. og Jónas
Bjamason læknir. í varastjóm:
Frú María Pétursdóttir hjúkrun-
arkona, Jónas S. Jónasson
kaupm. og frú Rannveig Vil-
hjáknisdóttir. — Endurskoðendur
eru Bjöm E. Árnason og Ari
Thorlacius.
Krabbameinsfélag tslands.
Landib okkar
Framh. af bls. 23
aftur að fyrirtækjum hér, Það
eru flest verkstæði?
— Já ýrniskonar viðgerðar
verkstæði, trésmiðaverkstæði
o.fl. Verktákafélagið Brúnás
er rekið hér á staðnum, en
tekur að sér verk bæði innan
og utan héraðs. Það vinnur
nú að framkvæmdum
við Ódáðavötn, en þar
hyggst Rafveitan koma upp
vatnsmiðlun fyrir Grímsár-
virkjunina. Gert er ráð fyrir
að vatnsmiðlun geti hafizt
síðari hluta sumars.
— Af framkvæmdum I
kauptúninu, heldur Þórður á-
fram, má nefna vatnsveitu og
skolpræsalagningu. Verða
framkvæmdir þær, sem unnið
er að á þessum sviðum, til
mikilla bóta. Fyrir skömmu
var gerður skipulagsupp irátt
ur fyrir Egilsstaðakauptún,
götur nefndar og hús tölusett
og innan skamms er ráð-
gert að hefja hér íþróttavall-
argerð.
— Hvað eru mörg börn I
skóla hér?
— í vetur stunduðu 70 nem
endur nám við barna og
unglingaskólann. Barnaskóla-
húsið er orðið of lítið, og er
ráðgert að stækka það um
helming í sumar, ef vinnu-
afl fæst. Sigurður Gunnars-
son, trésmíðameistari, sem
hefur umsjón með byggingu
félagsheimilisins, mun einnig
sjá um stækkun barnaskól-
ans.
Við kvöddum Þórð og þökk
uðum honum upplýsing-
arnar. Meðan við biðum flug-
vélarinnar ókum við um kaur>
túnið og umhverfi þess. Eins
og skiljanlegt er, ber mest
á nýjum húsum 1 kauptún-
inu, og öll eru þau hin mynd-
arlegustu. Þegar við ókum út
að flugvellinum var ejn af
flugvélum Flugfélags íslands
I þann veginn að lenda. Eftir
skamma stund stigum við um
borð í vélina og úr lofti kvödd
um við Egilsstaði og Austur-
land að þessu sinni.
S. J.
TRYGGJUM TRAUSTA STJORN X-D