Morgunblaðið - 02.07.1963, Page 10
10
MORGVTSBLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. júlí 1963
Landskeppnin i frjálsum iþróttum
Danir hafa 24 stig yfir eftir fyrri dag
Danir iinnu 8 greinar af 10
og tvöfaldan sigur í fjórum
DANIK tóku ör.ugga forystu í landskcppninni í frjálsum
íþróttum sem hófst í gær, Hafa þeir 24 stig yfir eftir fyrri
daginn og er það nokkru meiri munur en ísl. frjálsíþrótta-
unnendur höfðu gert sér vonir um. Stigin standa eftir fyrri
daginn 65 stig Dana gegn 41 stigi íslendinga. Er allt útlit fyrir
að Danir vinni keppnina með allt að 40-50 stiga mun.
Keppnin hóst í stilltu veðri kl.
8.30. Ingi Þorsteinsson form. FRI
setti keppnina meS stuttri ræSu
og einnig talaSi aSalfararstjóri
Dana, Emanuel Rose form.
danska sambandsins. Fyrirliðar
skiptust á blómum og þjóðsöngv-
ar landanna voru leiknir.
jkr Valbjörn brást ekki
Fyrsta greinin var 110 m
grindahlaup. Valbjörn náði beztu
viðbragði eftir að hafa þjófstart-
að einu sinni. Hafði hann forystu
fram að miðju hlaupi að Flemm-
ing Nielsen kom að hlið hans og
honum tókst að sigra, en Val-
björn hafði annað sætið þó hon-
um mistækist á síðustu grind og
lægi við falli á síðustu metrunum
if Tvöfaldur danskur sigur
Valbjörn gekk beint að rás-
holunum aftur og tók að undir-
búa 100 m sprettinn. Þar réði
hann engan veginn við Danina og
þeir unnu yfirburðasigur. Tími
okkar manna er langt frá því að
vera frambærilegur í lands-
keppni.
400 m hlaupið var næsta grein.
Brizzar tók forystu strax og hélt
henni út hlaupið þó Poul Ander-
son, sem er bezti 400 m hlaupari
Dana, drægi nokkuð á. Skafti Þor
grímsson hljóp mjög vel 300—
320 m, en þá voru kraftar hans
þrotnir og hann blandaði sér
ekki í stríðið frekar, þó bæði
hann og Helgi Hólm hlypu á sín-
um beztu tímum.
Bezta afrek mótsins
Kúluvarpið fór sem spáð
hafði verið. Thorsager var yfir-
burðasigurvegari, setti nýtt vall-
armet, 16.86, og var hálfan annan
meter á undan næsta manni. Það
jaðrar við að hann geti staðið
aftan við hringinn en unnið samt.
Afrek hans mun vera bezta af-
rek keppninnar, gefur 1136 stig.
Verðlaumn afhent í kúluvarpi. Aksel Thorsager (í miðju) varpaði
16.86 og vann með því bezta afrek kvöldsins. — Myndir: Sv. Þorm.
Guðmundur Hermannsson var
öruggur og hafnaði í 2. sæti en
Jón Pétursson var óöruggari,
gerði fyrstu tvö köstin ógild, en
sótti sig og hreppti 3. sætið.
ir Danska forustan eykst
1500 m hlaupið var dönsk
grein. Framan af fóru Danir sér
að engu óðslega, könnuðu mátt
hinna, en svo fór að keppnin var
á milli þeirra og lauk með æðis-
legum endaspretti. Báðir fengu
sama tíma 3.54.4 sem er mjög
góður tími og sá er sigraði er að-
eins 17 ára. Hann á norrænt
unglingamet í greininni.
• •
Oruggur
sigur
DANIRNIR tóku forystu í
landskeppninni þegar í
fyrstu grein og héldu henni
síðan. Á fyrsta hálftíma
mótsins lauk 5 greinum og
höfðu Danir þá náð 19 stiga
forystu. Þeir komust mest
yfir með 25 stig. En gangur
mótsins — í stigum — var
annars þessi: 110 m grhL í 4 D 7 Samt. I D
100 m hl. 3 8 7 15
400 m hl. 3 8 10 23
Kúluvarp 5 6 15 29
1500 m hl. 3 8 18 37
5000 m hl. 3 8 21 35
Kringiukast 5 6 26 51
Langstökk 7 . 4 33 55
Stangarstökk 6 5 39 60
4x100 m boðhl. 2 5 41 65
Frá 5 km hlaupinu segir á öðr-
um stað en það var skemmtileg-
asta grein kvöldisins.
Þorsteinn Löve kastiði kringlu
í ^tað Jóns Péturssonar. En
kringlukösturum okkar tókst
ekki vel upp og vantaði meter
á að sigurinn ynnist. En þeir
skipuðu 2. og 3. sætið án þess að
keppnin væri nokkurn tíma
spennandi.
Á íslenzkur slgur
Langstökkið var mikið senti-
metrastríð. Úlfar Teitsson tók
forystu í upphafi og enginn ógn-
aði sigri hans eftir það. Stríðið
stóð milli Einars Frímannssonar
og Jens Petersens. Fyrst hafði
Jens annað sætið, Einar hreppti
það síðan og allt virtist benda
til tvöfalds sigurs fyrir ísland.
En í síðasta stökki keppninnar
tókst Petersen vel upp og krækti
í silfrið frá Einari.
Boðhlaupið varð aldrei nein
keppni. Danir voru yfirmenn þar
sem í öðrum hlaupum og voru
um 20—30 m á undan.
Þetta gekk sem sagt ekki
vel fyrir okkur. Danir unnu 8
greinar af 10 fyrri daginn.
Það var aðeins Úlfar í iang-
stökki og Valbjörn í stangar-
stökki sem fögnuðu sigri af
okkar hálfu. '
lilaupin voru séríega léleg
af okkar manna hálfu. Dan-
irnir unnu tvöfaldan sigur í
þeim öllum nema grindahlaup
inu. Danir una vel við það,
því jafnvel þar náði Daninn
sem var þriðji sama árangri
og hann hefur bezt náð áður.
Keppninni lýkur í kvöld og
má búast við að Danir fari
með allt að 50 stiga sigur úr
keppninni í heild.
Úrslitin í einstökum greinum:
100 m hlaup:
Erik Madsen 10.7
Ulrik Friborg 10.9
Valbjörn Þorláksson 11.1
Ólaiur Guðmundsson 11.6
Kúluvarp:
Aksel Thorsager 16.86
Guðmundur Hermannsson 15.37
Jón Pétursson 15.00
Jörgen Tambour 14.33
Framhald á bls. 23
|Við vinnum!
með 40
stiga mun
ÞETTA er meiri munur í
stigum en við reiknuðum með
sagði Arne Halvorsen fyrir-
liði danska liðsins í lands-
keppninni, eftir keppnina í
gær.
— Við höfðum gert okkur
vonir um 15-18 stiga mun I
okkur i hag en þau urðu 24
og ef ekkert óvænt kemur
fyrir munum við vinna keppn
ina með yfir 40 stiga mun.
— Bezta afrekið frá sjón- í
armiði Dana er 5000 m hlaup-
ið hjá Claus Börsen. Að mín-
lum dómi hljóp hann mjög
/ gott hlaup, vel útfært og vel
thugsað. Það er samstarf hug-
ar og fóta sem færði honum
þennan óvænta sigur yfir
Thögersen.
1500 m hlaupararnir okkar
Ole Steen og Jörgen Dam
áttu og mjög gott hlaup og af-
rekin eru mjög góð miðað við
allar aðstæður, sagði Halvor-
sen að lokum, og var hinn á-
nægðasti.
300 m endasprettur var
Kristleiti um megn
— en hann barðisf vasklegast íslendinganna
KRISTI.F.IFUR Guðbjörnsson
var mesti baráttumaður íslenzka
liðsins. Hann barðist til hins síð-
asta en var fáum metrum frá
marki að láta í minni pokann.
5000 m hlaupið var er á leið
ein skemmtilegasta grein móts-
int. Lengi vel hlupu allir í
hnapp, Claus Börsen hafði for-
ystu fyrstu 5 hringina, en síðan
tók Thögersen við forystunni og
hélt henni nokkra hringi. Agnar
Lc/y varð að sleppa af hinum
er líða tók á hlaupið, en Krist
leifur fylgdi alltaf fast á eeftir
þeim Dananum sem forystu
h..fði.
300 m frá marki hóf Börsen
endasprettinn og fór mjög geist
en Kristleifur fylgdi fast og dró
á og þegar út úr beygjunni kom
virtist hann hafa sigurmöigur-
leika. en þá voru kraftar hans
þrotnir. Hann varð að sleppa af
Börsen og hinn gamalreyndi
Thyge Thögersen kom nú út á
þriðju braut og barðist kröftug-
lega. Kristleifur sætti sig við
þriðja sætið en Börsen vann við
mikla hrifningu. Thögersen hef-
ur ekki tapað keppni fyrir landa
sínum í mörg ár.
Kristleifur hljóp þama á sín-
um langbezta tima í ár, bættt
fyrri tíma sinn um nær mínútu
og var 7 sek frá meti sínu.
Agnar náði líka sinum bezta
tíma.