Morgunblaðið - 28.09.1963, Page 11
1 Laugardagur 28. sept 1962
MORCUNBLADID
tíðindi
d
A UNDANFÖRNUM fimm mán-
uðum hefur Tító, Júgóslavíufor-
6eti, fengið heimsóknir margra,
iháttsettra manna: forseta Mexí-
'kó, Finniands, Egyptalands og
Líberíu. Þá hafa utanríkis- og
Handbúnaðarráðherra Bandaríkj-
anna sótt Tító heim á þessu ári.
Fyrir réttum mánuði lauk
tveggja vikna heimsókn Krús-
jeffs, forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, til Júgóslaviu.
Nú er Tító staddur í Suður-
Ameríku, en þar heimsækir hann
eeðstu menn í Brazilíu, Bolivíu,
Chile og Mexíkó. Að því búnu
ifer Tító til Bandaríkjanna, en
þar mun hann m.a. ræða við
Kennedy, forseta.
Stjórnmálafréttaritarar hafa
lagt sig í lima við að skýra á-
ctæðurnar fyrir þessum heim-
sóknum opinberum og hálfopin-
berum. Niðurstaða þeirra er yfir-
leitt sú, að jafnerfitt sé að skýra
heimsóknirnar og utanríkisstefnu
Titós, yfirleitt.
Lærifaðir eða lærisveinn
Krúsjeffs.
Línudans?
15 ár eru nú liðin, frá því, að
Tító sagði skilið við Stalín. Eng-
inn efast þó um, að Tító sé trygg
ur í sessi, metinn leiðtogi og
eósíalisti. Hins vegar gegnir Tító
ekki lengur því forystuhlutverki
meðal óháðra (eða hlutlausra)
jþjóða, sem áður var. Má segja,
eð þar sé að nokkru leyti líkt
tneð honum farið og Neihru, for-
sætisráðherra Indlands.
Tító missti talsvert af þeirri
tiltrú, sem hann hafði á þessu
eviði, eftir fund fulltrúa óháðra
þjóða, en hann var haldinn í Bel-
firad, 1961. í yfirlýsingu þeirri,
eem birt var í lok fundarins,
voru Bandaríkin ásökuð fyrir til
xaunir með kjarnorkuvopn. Hins
vegar var þar ekkert minnzt á
tilraunir Sovétríkjanna.
Þrátt fyrir þetta, þá er Tító í
miklu áliti hjá ráðamönnum fjöl
margra nýstofnaðra ríkja, bæði
í Afríku og Asíu. Sumir leiðtogar
þessara ríkja hafa jafnvel talið
eig njóta sérstakrar verndar Tító,
t-d. Nasser, Egyptalandsforseti.
Fátt eitt eimir nú eftir af því,
sem setti sterkastan svip á Tító,
í lok síðustu styrjaldar. Hann er
ekki lengur bitur kommúnisti,
skæruhermaður, sem barðist
fyrir hugsjónum alþjóðahreyfing
ar, sem hafði þáverandi leiðtoga
Sovétríkjanna að leiðarljósL
í dag hefur Tító á sér blæ fág-
aðs stjórnmálamanns. Nýlega tók
hann á móti sovézkri sendinefnd
og bandarískum ráðherra, sama
daginn, með sömu óaðfinnanlegu
kurteisinni.
Tító hefur orðið mikið ágengt
í þessu nýja hlutverki. Þeir, sem
sækja hann heim, hvort sem þeir
koma úr austri eða vestri, segja,
að alúð og hlýja einkenni mót-
tökurnar.
Tító hefur einnig gengið vel
að semja við nágrannaþjóðir —
ftalíu, Austurríki, Ungverjaland,
Rúmeníu, Búlgariu og Grikk-
lands. Það er aðeins ein nágranna
þjóðanna sjö, sem valdið hefur
Júgóslövum erfiði: Albanir, sem
eiga landamæri að Júgóslavíu, á
um 485 km. svæði. Þetta verður
að teljast mikilsverður árangur,
með tilliti til þess ófriðar og
sundurlyndis, sem lengst af hef-
ur einkennt sambúð ríkja á Bal-
kanskaga.
Yart getur hjá því farið, að
Tító líti með nokkurri ánægju á
deilu Sovétríkjanna og Kína,
ekki sizt nú í sumar og haust,
er ráðamenn í Moskvu hafa lýst
Kínverja stríðsæsingamenn — en
aðhyllst í þess stað „friðsamlega
sambúð“, sem lengi hefur verið á
dagskrá leiðtoganna í Belgrad.
Friðmælgi sovézkra kommún-
ista við stjórn Títós og júgó-
slavneska kommúnista hefur
ekki verið meiri en nú, frá því,
að upp úr slitnaði með Tító og
Stalín. Hér er raunverulega uip
að ræða viðurkenningu á tiltölu-
lega sjálfstæðu afkvæmi þröng-
sýnna foreldra.
Þá halda Júgóslavar því fram,
að sovézkir kommúnistar hafi
nálgast þá — ekki öfugt.
Tító getur einnig verið ánægð-
ur með samskipti sín við Vestur-
landaþjóðir, að miklu leyti.
Moskvu sáttmálinn um takmark-
að tilraunabann, þ.e. nánara sam-
starf þjóðanna í austri og vestri,
er talsverður sigur fyrir Tító,
sem haldið hefur fram „friðsam-
legri sambúð“ a.m.k. jafn lengi
og sovézkir ráðamenn — ef ekki
lengur.
Bætt sambúð af þessu tagi
eykur líkurnar fyrir auknum við
skiptum Júgóslavíu og Vestur-
landa, og framhaldi á aðstoð
Vesturlanda við stjórn Tító.
Hins vegar dylst honum vafa-
laust ekki, að nánari samskipti
Júgóslavíu og Sovétríkjanna
kanna að valda grunsemdum með
al vestrænna leiðtoga.
Litill vafi leikur á þvi, að för
Tító til Suður-Ameriku og Banda
ríkjanna nú, er farin í þeim til-
gangi að vega á móti heimsókn
Krúsjeffs.
Hitt dylst heldur engum, að
Tító gefst gott tækifæri til að
kynna júgóslavneskan sósíalisma
í löndum S-Ameríku.
Hjólbarða-viðgerðarmaður
Maður vanur hjólbarðaviðgerðum óskast til starfa
á litlu verkstæði. Getur orðið meðeigandi að verk-
stæðinu ef um semst. Tilboð merkt: „Meðeigandi —
3875“ leggist sem fyrst inn á afgreiðsla blaðsins.
BILAEIGEIMDUR
PILTAR
6FÞIÐ EIOIÐ UNMUSTUNA .
ÞÁ Á É<? HRIN&ANA /
■fá/7 tísm//?qs$on\ \\f~
Málflu tningsstof a
Guðlaugur Þorláksson
Einar B. Guðmundsson
Guðmundur Péturssot
Aðalstræti 6. — 3. hæð
Málflutningsskrifstofa
JON N. SIGURÐSSON
Sími 14934 — Laugavegi 10
GUSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Sími 1-11-71
Þórshamri við Templarasund
BENZ ‘55
Mjög vel með farinn Mercedes
Benz fólksbifreið, árg. ’55, til
sölu. Uppl. í sima 10696.
Allir bílar, sem til íslands hafa flutzt,
hafa orðið ryðinu að bráð, fyrr eða
seinna, þrátt fyrir upphaflegar ryð-
varnir framleiðendanna. Þannig er það einnig með
yðar bíl. Ryðvörn þarf að endurtaka með vissu
millibili, ef hún á að koma að fullum notum.
Ryðvörn er því einn þáttur í almennu viðhaldi
bílsins, enginn bíll er of gamall eða svo illa far-
inn að ryðvörn sé ekki til mikilla bóta.
Pantið ryðvörn á bílinn yðar hjá
RYÐVÖRM
GRENSASVEGI 18
Sími 19945.
Bílaviðgerðir
Óskum að ráða menn vana viðgerðum eða rétt-
ingum. — Gott kaup.
H E M I L L S. F.
Elliðaárvogi 103 — Sími 35489.
Saumum eftir máli
karlmannaföt og stakar buxur.
Mjög hagstætt verð. — Úrvals efni.
Verzlunin Sel
Klapparstíg 40.
Svampfóðraðir
nœlonfrakkar
Léttir, hlýir, tilvalin vetraflík. LilaúrvaL
Verzlunin Sel
Klapparstíg 40.
Karlmannaföt
T erylenebuxur
á mjög hagstæðu verði.
Verzl. Sel
Klapparstíg 40.
H afnarfjörður
Stúlka óskast annan hvern dag frá Id.
9 — 2. — Uppl. ekki gefnar í síma.
BRAUÐSTOFAN Reykjavíkurvegi 16.
Bílaverkstœði
vantar starfsmenn við réttingu og logsuðu.
Bónusgreiðsla, auk venjulegs vikukaups.
Upplýsingar í síma 50449 kl. 1—6 e.h. daglega.
r *
Utgerðarmenn —
Skipstjórar
Tökum síldarnætur og önnur veiðarfæri
til viðgerða og geymslu, Litum, bikum og
termoblokk þurrkum.
Nægt efni til viðgerða og í heilar nætur.
Thorberg Einarsson netaverkstæði
Holtsgötu, Ánanaust, sími 14507.