Morgunblaðið - 28.09.1963, Blaðsíða 17
1 Laugardaeur 28. sept. 1963
MORCUN BLAÐIÐ
17
Ósvald Ey vindsson
útfararstjóri — Minningororð
ENN einu sinni hefur sláttumað-
urinn mikli brugðið ljá sínum
og vandamenn og vinir eru
xninntir á hverfulleik lífsins,
þau örlög, sem óumflýjanlega
bíða okkar allra fyrr eða síðar.
Þannig var það, þegar Osvald
Eyvindsson féll frá fyrir aldur
fram, aðeins tæplega sextugur.
Hann var fæddur í Reykjavík
4. janúar 1904 og voru foreldr-
ar hans Eyvindur Arnason, tré-
smíðameistari og útfararstjóri
og kona hans Sophie Heilmann,
en þau voru velþekktir og vel-
metnir borgarar þessa bæjar um
sína daga.
Osvald ól allan aldur sinn í
fæðingarborg sinni og fylgdist
því gjörla með, er Reykjavík óx
úr bæ í borg. Hann lagði stund
á rafvirkjun á unga aldri, en
hvarf frá því starfi til þess að
aðstoða föður sinn í starfi hans
og tók við því, er faðir hans féll
frá árið 1950, en hafði þá lengi
verið hans hægri hönd.
Osvald ■ kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Jóhönnu Guðmunds-
dóttur, hinni ágætustu konu,
ættaðri frá Dalbæ í Hrunamanna
hreppi, Árnessýslu, árið 1937 og
reistu þau heimili sitt á Laufás-
veg 60, þar sem þau bjuggu all-
an sinn búskap.
Þau hjónin voru höfðingjar
heim að sækja og bjuggu rausn-
ariega, enda var heimili þeirra
mjög gestkvæmt og hjónin sam-
hent um að búa vel að gestum
sínum. Þaðan á ég margar góð-
ar minningar frá yngri árum.
Þeim varð sex barna auðið og
af þeim eru fimm á lífi, en 2ja
ára dreng misstu þau af slys-
förum. Börnin eru öll í heima-
húsum, það yngsta 8 ára dreng-
ur. Öll eru þau hin mannvæn-
legustu, svo sem þau eiga kyn
til.
Osvald var vörpulegur maður,
meðalmaður á hæð, þéttur á velli
og þéttur í lund, yfirbragðið
drengilegt og góðmannlegt. Hann
hafði mjög ákveðnar skoðanir
og lét hlut sinn fyrir engum, en
þó ljúfmenni og vildi hvers
manns vanda leysa, enda við-
kvæmur í lund, þó yfirbragðið
bæri þess ekki ávallt vitni. Hans
ævistarf var þjónusta við syrgj-
endur og rækti hann starf sitt
af prýði, unz heilsan tók að bila.
Hann gat verið áhlaupamaður til
vinnu og vann þá oft langt fram
á nótt, þrátt fyrir erilsaman
vinnudag. Hann var einn af
þeim, sem settu .svip sin á bæ-
inn.
Hann lézt í Borgarsjúkrahús-
inu hinn 12. september og var
banarhein hans heilablóðfall.
Ég votta hans ágætu eiginkonu
og börnum mína innilegustu
samúð. Að Osvald er mikil eftir-
sjá, því hann var hinn bezti
drengur. Slíks er gott að minn-
ast.
G. Á.
Guðný Friðriksdóttir
Kaldabakka Bildudal
Fædd 9. ágúst 1886.
Dáin 11. febrúar 1963.
In memoriam.
Þótt hausti að með hélu og frost
og húmið sveipi fjöll,
Nemendasamband SVS
Aðalfundur íþróttaklúbbs Nemendasambands Sam-
vinnuskólans verður haldinn í Sambandssalnum
þriðjudaginn 1. okt. og hefst kl. 8.30.
Þeir sem hug hafa á að taka þátt í starfsemi
klúbbsins á komandi vetri vinsamlegast mæti á
aðalfundinum.
STJÓRNIN.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
AÐALHJMDIJR
verður haldinn n.k. miðvikud. 2. okt. kl. 20
í Alþýðuhúsinu.
STJÓRNIN.
Sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn.
Lárus G. Lúðvígsson, skóverzlun
Bankastræti 5 — Sími 17645.
Loftpressumaður
Loftpressumaður óskast. Aðeins vanur kemur til
greina. Hátt kaup. — Upplýsingar í síma 33544.
Piltur óskast
til afgreiðslustarfa. Uppl. á skrifstofunni
í Garðastræti 17 kl. 10—12 og 2—5.
XIDDABÚO
þá ljómar mætast minning þín
og mýkir kjörin öll.
Við draumsins hirð ert drottning
drottning þú
þótt dvíni geisli hver.
Svo kalt fær vetur andað ei
að ei sé hlýtt hjá þér.
Þú systir kær, hve blítt og bjart
leið bernsku unaðstíð.
Við leik og starf, við ljóð og sögn
var ljúft við fjörð og hlíð.
Með sólskinsbrosum, söng og ást
varð sigrað allt þitt böl.
Og allir fundu, að innst við barm
þú áttir kosta völ.
Ó, móðir góð, hve mild og hlý
og mæt var hönd þín kær,
því yfir hvert þitt ævispor
nú ilmi og Ijóma slær.
Frá óttu að aftni stóðstu sterk
að starfi langan dag
við árin jafnt sém akurmold
var allt þitt fært í lag.
Mín húsfrú kær, þú himins gjöf
þótt hausti og andi kalt,
mér brosir þín blíða mynd
svo birtu slær á allt.
í sorg og gleði sæla varð
að sigra allt með þér.
Ég veit í björtum betri heim
þú bíður eftir mér.
Við krjúpum öll svo klökk
og bljúg
til kveðju að þinni gröf.
Þótt breytist allt, þín bros og tár
er blessuð náðargjöf.
En sölnuð blóm og bliknuð strá,
sem blærinn strýkur hljótt,
þau minna á heilög — horfin ár
og hvísla — góða nótt.
Ur heimsins djúpi hækkar sól
og hlýnar blær við strönd, ‘
er vorið kyssir klöknuð strá
með kveðju úr Drottins hönd.
Eins munt þú eftir endað stríð
nú eignast gleðifund
og stíga sæl á Ijóssins land
á lífs þins óskastund.
Kveðja frá eiginmanni
og börnum.
Röskur sendisveínn
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Eigum dún- og fið-
urheld ver. Dun- og gæsa-
dúnsængur og koddar íyr-
irúggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstig 3. — Sinu 14968
óskast nú þegar fyrir hádegi.
ORKA H.F. Laugavegi 178.
FramtíBarstarf
Maður, helzt innan þrítugs, með gott próf frá Verzl-
unarskóla íslands, eða’ meiri menntun, getur fengið
vinnu hjá löggiltum endurskoðendum og skapað sér
þannig möguleika til þess, síðar meir, að fá lög-
gildingu. — Upplýsingar í síma 22210.
Afgreiðslustúlka
óskast strax. — Uppl. kl. 1 — 3 í búðinnL
StórholtsbúÖ
Stórholti 16 — Sími 13999.
Aðalfundur
Bridgedeildar Húnvetningafélagsins verður haldinn
í húsi félagsins áð Laufásvegi 25, þriðjudaginn
1. okt. n.k. kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundastörf.
Að fundi loknum verður spilað.
STJÓRNIN.
Stúlka
óskast til afgreiðslustarfa.
Kjörbúð La&igarnes
Dalbraut 3.
Stúlka óskast
til aðstoðar við eldhússtörf nú þegar.
Sími 19636.
Til sölu
T OGIJTBÍJN AÐIJR
hleragálgar og rúllur.
Upplýsingar í síma 51032.
Mercury 1957
til sölu af sérstökum ástæðum. Uppl. á Hótel Borg
herb. nr. 303 í dag og á morgun kl. 20—22.
Kristinn Jónsson Dalvík.