Morgunblaðið - 06.10.1963, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.10.1963, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 6. október 1963 Uj '-WWW/w/......»•/¥///<,»■«« Frá setningu skólans. 295 nemendur í Kennaraskólanum KENNARASKÓLINN var settur kl. 2 síðdegis í gær, í fyrsta skipti í hinu nýja skólahúsi. — Setningarræðuna flutti dr. Broddi Jóhannesson, skólastjori. Hann sagði, að nemendur í vetur yrðu 295 í 12 bekkjum, auk 6 æfingabekkja barna á aldrinum 9—12 ára. Auk þess hefði Kennaraskólinn samband við ísaksskóla og mætti með sanni segja, að í sjálfum Kenn- araskólanum og æfingabekkjun un væri á fimmta hundrað nem endur. í hinu nýja skólahúsi eru 12 almennar kennslustofur og 4 sérkennslustofur, en auk þess hafa nemendur fengið að- stöðu fyrir félagsmálastarfsemi sína. Samkvæmt lögum skal skipað ur sérstakur skólastjóri fyrir æfinga- og tilraunaskólann, en af því hefur enn ekki orðið. Hins vegar hefur Guðmundur í. Guðjónsson verið skipaður yfir kennari. Dr. Broddi minntist á breyt- ingar á kennaraliðinu og sagði, að þeir ísak Jónsson og séra Helgi Tryggvason létu af kennslu við skólann og nokkrir auka- kennarar. í>á er Guðmundur Matthíasson kominn úr orlofi og tekur upp kennslu að, nýju. Nýir kennarar hafa verið skip aðir, þeir Eiríkur Jónsson, sem kennir stærðfræðifög, Gestur Þorgrimsson, sem kennir teikn- un, Guðmundur Þorláksson, sem kennir landafræði og náttúru- fræði og Björn Jóhannesson, sem kennir tungumál. 50 þús. kr. varið til athugunar á vandamálum æskunnar Reykjavík Fjölþætt starfsemi Æskulýösráös Á F U N DI borgarstjórnar á fimmtudagskvöld svaraði Bald- vin Tryggvason fyrjrspurn Al- freðs Gíslasonar varðandi tóm- stundarstarf unglinga að sumri til 12 ára aldurs og eldri. Upp- lýsti Baldvin m.a., að nú hefði Æskulýðsráð ákveðið að verja 50 þús. kr. til að gera athugun á vandamálum æskulýðsins í í Reykjavík i dag með hliðsjón af starfi Æskulýðsráðs og ann- arra æskulýðsfélaga, en nauðsyn- legt er, að þar sé stöðugt vel fylgzt með. Þá verður leitað álits gerða þeirra, er gerzt þekkja til, og síðan unnið úr þeim. Fjölþætt starf Æskulýðsráðs Baldvin Tryggvason (S) gat þess í upphafi máls síns, að í febrúar sl. hefði farið fram könn- un meðal unglinga hér í Reykja- vík á tómstundastarfi þeirra að sumri til og hefði hún leitt í ljós, að af þeim 2143, sem svöruðu, hefðu 805 verið þátttakendur í tómstunda- og félagsstarfi, 225 dvalizt í sumarbúðum, 153 verið Ti! sölu Af sérstökum ástæðum eru til sölu öll verkfæri til bílaviðgerða ásamt beygivél til smiða á púströrum fyrir bifreiðar. Kennum á vélina. — Upplýsingar í: RÖRASMIÐJUNNI S.F. Sætúni 4. — Reykjavík. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Handbremsubarkar fyrir Chevrolet og Ford, árgerð 1950-1962. Raftækni hf. Langholtsvegi 113. Sími 34402. erlendis og 960 varið tómstund- um sínum sem mest til ferða- laga. Benti Baldvin á, að unglingar sæktust ekki eftir tómstunda- vinnu innan húss að sumrinu, heldur stæði hugur þeirra til ferðalaga, íþrótta eða einhvers þess, sem hægt væri að stunda úti við. Þar sem Æskulýðsráð hefði litið svo á, að sérstaklega hefði þurft að vanda sumarstarf- ið, var þriggja manna nefnd kos- in til að gera tillögur um það, sem síðan voru ræddar og sam- þykktar í Æskulýðsráði. Það nýmæli var tekið upp að gefa út bækling, Unga Reykja- vík, sem gefur upplýsingar um starfsemi Æskulýðsráðs og önn- ur æskulýðsfélög. Þessum bækl- ingi var dreift töluvert víða og geta unglingarnir nú með aðstoð hans leitað til þess aðila, sem þeim er mest að skapi. Æskulýðsráð rekur nú tvö tóm stundarheimili, að Lindargtöu 50 og í Golfskálanum. Á þessum stöðum starfa ýmist klúbbar, þar eru skipulögð ferðalög, stunduð Ijósmyndaiðja, Vélhjólaklúbbur- inn Elding starfar að fullum krafti og hefur gert mikið gagn o. s. frv. Róðrar og siglingar voru stundaðar í Fossvogi, veiðar í Elliðavatni, Sæbjörg fór í tvær þriggja vikna veiðiferðir og Leik hús æskunnar var með blóma. Loks var farið í náttúruskoðun- arferðalög, í grasasöfnunarferð I nágrenni Reykjavíkur, til fugla- rannsókna á Breiðamerkursand, rannsóknarferð í Jökuldæli og í jöklararnsóknarferð að Lang- jökli. Einbýlishús í Norðurmýri Til sölu er mjög skemmtilegt einbýlishús (alls 9 herb. og 2 eldhús). Húsið er allt nýmálað og stand sett, utan og innan. Upphitaður bílskúr. Vel rækt- aður garður sunnan í móti (baklóð). Húsinu fylgir: Stór ísskápur, uppþvottavél og stór þvottavél í vaskahúsL FASTEIGNA OG LÖGFRÆÐISKRIFSTOFAN Kirkjutorgi 6, 3. hæð, sími 19729 (í dag sunnud. milli kl. 2 og 4 e.h.). I hjarta bœjarins Café scaudía Mótel Varðborg, Akureyri, opið frá kl. 7 að morgni. Heitur matur — Smurt brauð — Kaffi og heimabakað brauð eftir eigin vali. Borðpantanir í síma 2604. Efnalaug Til sölu er ein stærsta efnalaug borgarinnar. — Lysthafendur leggi nöfn sín inná afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld, merkt: „Efnalaug — 3781“. Atvinna Piltur á aldrinum 17—20 ára óskast til starfa við heildverzlun. Þarf að hafa bílpróf. Tilboð sendist Mbl., merkt: „3778“. Dukadamask Höfum fengið fallegt hvítt damask í matardúka, br. 130 cm. Einnig tilbúnar serviettur í sama mynstri. Fata- & gardínudeild Laugavegi 31 -Sími 12816 Verkfæri í trésmíðavélar Fræsitennur frá 6—50 mm. Boltar — Z-járn Kíltennur; beinar — bognar Einnig margar gerðir af iönnum í handfiæsara. LUDVIG STORR Sími — 1-33-33. Nokkrir menn sem unnið hafa við síma og radió- tækni í allt að 18 ár óska eftir atvinnu. Tilboð merkt: „Electronic — 3776“ sendist Morgunbl. fyrir 11. þessa mánaðar. Skrifstofustúlka Stúlka vön vélritun og öðrum skrifstofustörfum óskast. Tilboð sendist blaðinu merkt: „Skrifstofustúlka — 3896“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.