Morgunblaðið - 31.10.1963, Síða 5

Morgunblaðið - 31.10.1963, Síða 5
Fimmtudagur 31- okt. 1963 MORCUNBLAÐIÐ 5 RJúpvfaskytfur á villigötum tAÐ virðist vera orðið daglegt brauð, að leitarflokkar séu send- ir af stað vegna þess, að rjúpna veiðimenn villást á fjöllum uppi sökum gáleysis síns og ófullkom- ins útbúnaðar. í fyrradag um kl. 2 e.h. lögðu tveir menn af stað frá Samvinnuskólanum á Bifröst, matsveinninn þar og hús vörðurinn, mestu heiðursmenn. Sögðust ætla að koma aftur upp úr kl. 5. Óku þeir upp( á Dalafjall, og huga að rjúpum góða stund. Vill ast kíingum SáRu, ganga suður með Langavatni og vestiír fyrir það og yfir Langá, og siðan nið- ur með Gljúfurá, þar sem þeir fundust, hraktir og svangir, eftir nær 50 km. göngu, seint um nóttina. Svona er sagan af þeim sjálf- um. Sagan af leitinni og öllum und irbúningi hennar er öliu alvar- legri. f>að verður að telja það aldeil- is óforsvaranlegt að fara á fjöll í skammdeginu, jafnvel þótt verið sé að skjóta rjúpu, sem er auðvitað herramannsmatur. Lág markið hlýtur það að vera að hafa meðferðis áttavita og ein- hvern matarbita. Morgunblaðið átti ta<l við Borg arnes og frétti þar, að 20—30 menn hefðu lagt af stað 'til leit arinnar strax um kvöldmat. Þeir fóru ekki langt, og var það ákveð ið áður. Þeir skútu af byssum, ef vera mætti, að hinir týndu heyrðu það og gætu látið til 6Ín heyra, sérstaklega, ef um *lys hefði verið að ræða. Með morgninum átti svo að senda nemendur úr Samvinnu- skólanum til leitar, og talað hafði verið við 30 menn úr Borgar- nesi, aðallega kunnar rjúpna- skyttur, og menn úr Slysavarna- deildinni og Lionsfélagar annar- ar skyttunnar sem áttu einnig að hefja leit með morgninum. Þá var haft samband við Flug björgunarsveitina, sem var und- ir eins boðin óg búin að leita, og í gegnum hana haft samband við varnarliðið, sem lofaði að senda þyrlu með morgninum. Einnig var sporhundurinn Nonni hafður til taks. í stuttu máli: Á annað hundr- að manns, 2 talstöðvarbílar þyrla og sporhundur var kallað út til þessarar leitar. Svona lítur dæmið út frá þeim séð, sem ávallt eru fúsir til hjálp ar og leitar, hver sem í hlut á. Hvað skyldi svona nokkuð kosta? Það er að vísu aldrei h'orft í kostnað, en samt verður manni á að spyrja. Og allt er þetta fyrir eina rjúpu — eða máske tvær. Er að furða, þótt manni detti í hug orð skáldsins: Gæðakonan góða grípur fegin við, dýri dauðamóða, dregur háls úr lið. Plokkar, pils upp brýtur, pott á hlóðir setur, segir: Happ þeim hlýtur, og horaða rjúpu étur. SÓLBRÁÐ I Viö fannarskör eru strengir vorsins stiltir ! Starfandi andi Ijóss % geislaflóöi [Leikur þar fjörugt lag aj lífsins óöi. Hlær og grœtur fjall er giljum snjóloft þynnast Grósku flaumar bruna stimpast —• grynnast Stynja klettaþil er ryöjast risagangar. Jóh. S. Kjarval liiíiiilii Heilsuvernd, 5. hefti, er komiS út. Af efni þess má nefna: Skólarnir og börnin (Jónas Kristjánsson), Reyk- ingar barna í Rvík (Björn L. Jóns- •on), Fyrsta manneldistilraun i ver- aldarsögunni, Mesta kaffineyzluþjóð- In, Hár blóSþrýstingur og föstur, — Liðagigtarlækning, Tannáta óþekkt (BIJ), Uppskriftir, Spurningar og •vör. Mæðrafélagskonur! Munið fundinn I kvöld kl. 8.30 að Hverfisgötu 21. Áríðandi félagsmál og upplestur: — Helga Smári. ÍRingar! Skíðamenn! Æfing i kvöld í ÍR húsinu við Tungötu kl. 8 e. h. pjálfari: Gabor. — Stjórnin. Bazar Félags austfirskra kverina verður mánudaginn 4. nóvember i Góðtemplarahúsinu, kl. 2 e. h. Féiags- konur og aðrir velunnaraf félagsins eru góðfúslega beðnir að koma gjöf- um sínum, fyirir þann tíma, til Hall- dóru Elísdóttur, Smáragötu 14, Önnu Þórarinsdóttur, Ferjuvogi 17, Málfrið- •r Þórarinsdóttur, Nökkvavogi 30, Áslaugar Friðbjarnardóttur, Öldugötu *9, Þorbjargar Ingimundardóttur, Hringbraut 43, Sigriðar Magnúsdótt- ur, Sogaveg 98. Guðnýjar Sveinsdótt- ur, Álfheimum 64, Guðlaugar Kristjánsdóttur, Borgarholtsbraut 24, Guðrúnar Guðmundsdóttur, Nóatúni 20. Verkakvennafélagið Framsókn verð- ur með sinn vinsæla bazar í Góð- templarahúsinu, þriðjudaginn 12. nóvember 1963. — Félagskonur eru beðnar að koma gjöfum á bazarinn «em allra fyrst til skrifstofu félagsins 1 Alþýðuhúsinu, opin frá kl. 4—6 eJi. •lia virka daga. — Trúnaðarkonur á vinnustöðum eru beðnar að hvetja konux tii að gefa á bazarinn. —• Kvenfélag Laugarnessöknar heldur bazar laugardaginn 9. növember. — Félagskonur og aðrir velunnarar fé- lagsins hafið samband við Ástu Jóns- dóttur, sími 32060, Jghönnu Gísla- dóttur, sími 34171 eða Sigríði Ás- mundsdóttur, simi 34544. Hjúkrunarfélag íslands heldur fund í Breiðfirðingabúð uppi, fimmtudag- inn 31. október kl. 20.30. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Félagsmál. 3. Frú Sigríður Kristjánsdóttir hús- mæðrakennari flytur erindi. Stjórniri. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. — Skoðanabeiðnum veitt móttaka dag- lega ki. '2 til 4 1 síma 10269, nema laugardaga. Minningarspjöld Hallgrímskirkju I Reykjavík fást á eftirtöldum stöð- um: Verzl. Halldóru Ólafsd., Grettis- götu 26, Verzl. Björns Jónssonar, Vesturgötu 28, Verzl. Braga Brynjolfs- sonar, Hafnarstræti 22. íbúð óskast Dreng, sem er á öðru ári, vantar íbúð fyrir mömmu og pabba, helzt í 4 mánuði. Húshjálp, ef óskað er. — Uppl. í síma 34162. | Skrifstofuhúsnæði 35 ferm., við Miðbæinn, til leigu. Uppl. í síma 15723. | Morris ’47, ógangfær. Selst ódýrt. Uppl. í síma 35390. | Einhleypur rólegur karlmaður Ó9kar eftir herbergi. Tilboð send- ist blaðinu fyrir föstudags- kvöld, merkt: „5244“. Frá H.f. Eimskipafélagi íslands. — Miðvikud., 30. okt. ’63: Bakkafoss fer frá Hamborg 30. 10. til Reykjavíkur. Brúarfoss fór frá N. Y. 28. 10. til Charleston og ReykjaVíkur. I>ettifoss kom til Dublin 30. 10., fer þaðan til N. Y. Fjallfoss fer frá Seyðisfirði í kvöld 30. 10. til Norðfjarðar, Raufar- hafnar og Norðurlandshafna. Goða- foss kom til Reykjavíkur 29. 10. frá Gdynia. Gullfoss kom til Reykjavík- ur 27. 10. frá Kaupmannahöfn og Leith. Lagarfoss f<3fr frá Reykjavík 25. 10., til Gloucester og N. Y. — Mánafoss fer frá Gaut^borg 30. 10. til Kristiansand og Reykjavíkur. Reykja- foss kom til Reykjavíkur 22. 10. frá Hull. Selfoss fór frá Charleston 19. 10. til Rotterdam, Hamborgar og Rvíkur. Tröllafoss fer frá Hull -30. 10. til Rotterdam, Bremen, og Hamborgar. Tungufoss fór frá Reyðarfirði 28. 10. til Lysekil, Gravarna og Gautaborgar. H.f. Jöklar Drangajökull fór 1 gær frá Vestmannaeyjum áleiðis til Camd- en U.S.A. Langjökull fer í dag til Austfjarðahafna. Vatnajökull kom 29. þ.m. til Reykjavíkur frá London. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. — Katla er í Sölvesberg. Askja er í Rvík, Skipaútgerð ríkisins: Hekla fór frá Reykjavík í gærkvöldi austur um land í hringferð. Esja fer frá Rvík á morgun vestur um land í hringferð. Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21.00 í kvöld til Reykjavíkur. — Þyrill er í Reykjavík. Skjaldbreið er á Vestfjörðum. Herðubreið er í Rvík. Leifur Eiríksson er væntanlegur frá Helsingfors og Osló kl. 22.00. Fer til N. Y. kl. 23.30. Hafskip h.f.: Laxá lestar á Aust- fjarðahöfnum. Rangá fór frá Hafnar- firði í gærkvöldi til Bilbao, Napoli, Messina, Piraeus og Patras. Flugfélag íslands h.f.: Millilanda- flugvélin „Skýfaxi“ fer til GlasgoW og Kaupmannahafnar í dag kl. 07:00. Vélin er væntanleg aftur tU Rvíkur kl. 21:40 í kvöld. Innanlandsflug: í dag: er áætlað að fljúga til Akureyr- ar (2 ferðir), Kópaskers, Þórshafnar, Vestmannaeyjar og Egilsstaða. Á morgun: er áætlað að fljúga til Akur- eyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja, ísa- fjarðar, Fagurhólsmýrar, Hornafjarð- ar og Sauðá^króks. Orð spekinnar Sá, $«111 aflar sér hygginda, elskar líf sitt. Sá, sem varðveitir skynsemi, mun gæfu hljóta. Orðskviðirnir, 19,8. | Tilboð óskast í 2ja herb. íbúð. Árs fyrir- framgr. Tilboð, sem greinir fjölskyldustærð, sendist Mbl. fyrir 3. nóv., merkt: „Raglusemi — 3944“. | Sniðanámskeið í hinu auðvelda þýzka Paff- kerfi. Innritun daglega í síðustu námskeiðin fyrir jól. Ólína Jónsdóttir, handa vinnukennari, Bjarnarst. 7. Sími 13196. | Rúðugler fyrirliggjandi 3, 4 og 5 mm gler. Rúðugler s/f. Bergstaðastræti 19. Keflavík — Suðurnes Hvíldarstólar komnir. Húsgagnaverzlun Gunnars Sigurfinnssonar. Teiknivélar bestik, reiknistokkar og ýms mælitæki, fyrirliggj- andi. Verzlunin Háteigsvegi 52. Sími 16000. HÁFJALLASÓLIR gigtlækningalampar, hita- púðar, þvottavélar o. fl. fyrirliggjandi. Verzlunin Háteigsvegi 52. Sími 16000. Tvær stúlkur í góðri atvinnu óska eftir 2—3 herb. íbúð. Góðri um- gengni heitið. Uppl. í sima 37820. Sniðnámskeið hefst 1 nóv. Einnig hefst framhaldsnámskeið 4. nóv. Sigrún Á. Sigurðardóttir Drápuhlíð 48. Sími 19178. . 4 Keflavík — Nágrenni Maður vanur þungabifreiða akstri óskar eftir vinnu. Uppl. að Hátúni 10 kl. 7—8 á kvöldin. Stúlka óskast Stúlka óskast í þvottaihúsið Bergstaðastræti 52. Uppl. í síma 17140 og 14030. Eg var að enda við að reikna út, að ég hef sparað 5.967 krónur í strætisvagna með því að vera hér. Gætuð þið ekki komið aftur á morgun? Við erum í miðju tafli. Kuldaskór úr nælon með renni- lás og kvarthæl — léttir og þægilegir. uorur Kartöflumús — Kakómalt Kaffi — Kakó «• Nonni & Bubbi, Keflavík & Sandgeröi Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Sérverzlun á bezta stað í Miðbænum í fullum gangi með nýjum og góðum lager til sölu. Sala hlutar kæmi einnig til greina. — Uppl. géfnar (ekki í sima) í skrifstofu: EINARS SIGURÐSSONAR, hdl. Ingólfsstræti 4.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.